Leita í fréttum mbl.is

Engir af 20 bestu háskólum veraldar eru í ESB

Lee Marvin Poul Newman pocket money2

Hafa allan tíma heimsins

Tuttugu bestu háskólar veraldar eru næstum allir í Bandaríkjunum, eða fimmtán talsins, þrír eru í Bretlandi, einn er í Sviss og sá tuttugasti er í Japan. Enginn er í Evrópusambandinu (krækja)

Af hundrað bestu háskólum veraldar er helmingur þeirra Bandarískir, eða fimmtíu talsins, og átta eru í Bretlandi og tveir í Ísrael. Aðeins átján af hundrað bestu háskólum veraldar eru í ESB-löndum! Eins og kunnugt er hefur Bretland sagt sig úr Evrópusambandinu, til að bjarga lífi sínu

Evrópusambandið er svarthol nútíðar og framtíðar. Þar átti einu sinni að byggja nýtt sólkerfi. En það er ekki hægt að byggja sólkerfi umhverfis svarthol. Evrópusambandið og evra Þýskalands er svarthol. Sovétríkin voru líka svarthol. Kína er líka svarthol. Sósíalisminn er svarthol

Fyrri færsla

Af hverju fer Ögmundur VGkommi ekki til Frakklands?


Af hverju fer Ögmundur VGkommi ekki til Frakklands?

Ögmundur "reynir að hitta palestínskan fanga"

Furðulegt. Þetta er einn af svo kölluðum þing-mönnum vinstri vængsins sem haldið hefur æðstu stofnun Íslendinga, sjálfu Alþingi, í gíslingu án dóms og laga, með röfli, kjaftæði, þvaðri og algerri misnotkun á umboði kjósenda, nú árum saman! Vængur sem í heild hefur staðið þar og sprautað eitri yfir æðstu stjórnmálastofnun lands okkar. Og gert það beint eftir að hafa fyrst troðið massífu umboði kjósenda flokksins upp í afturenda þeirra, er flokkstíkin Vinstri grænir svín-sviku kjósendur sína og misnotuðu umboð þeirra til þess að sækja um inn í hin nýju sovétríki þeirra í ESB. Já, nú er farið til Ísraels til þess að röfla þar og kjaftæðast!

En af hverju fer Ögmundur ekki til ESB-kommaríkis Frakklands í stað þess að leggja á sig alla þessa löngu ferð til sjálfs hornsteins Vesturlanda, Ísraels? En Ísrael er eina Vesturlandið þar sem kjörnir fulltrúar fólksins sinna frumskyldum sínum, sem eru þessar afar fáu; að verja líf, limi og eigur borgaranna sem kusu þá

Í Frakklandi sitja hundruð manna undir fangelsun án dóms og laga, nema auðvitað neyðarlaga, sem franska ríkið neyddist til að taka í notkun eftir að vinir kommanna á Íslandi hafa myrt hundurðir af algerlega saklausum borgurum; konum, börnum og körlum

Af hverju fer Ögmundur ekki í heimsókn til ESB-kommanna í Frakklandi til að hitta vini sína þar? Er það kannski vegna þess að Ísrael er smáríki? Þú gætir varla kennt Frakklandi meira en það kann um umboðssvik, kosningasvik, fyrirlitningu og lágkúru flokks þíns; Vinstri melónu græna að utan, en blóðrauða að innan! Ennþá sami komma kjaftæðisflokkurinn og síðast

Fyrri færsla

Frá V8-krónu til hins verra og þaðan til helvítis


mbl.is Reynir að hitta palestínskan fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá V8-krónu til hins verra og þaðan til helvítis

Nýjasti gagnagrunnur frá AGS er: IMF World Economic Outlook Database, April 2016

Þegar skoðaðar eru tölur gagnasafnsins, má til dæmis finna eftirfarandi grundvallar staðreyndir:

1) Hagvöxtur á Íslandi frá og með 2001 til og með 2015, var 41,6 prósent. Íslenska hagkerfið hefur vaxið um 41,6 prósent að raungildi á þessu tímabili, þrátt fyrir bankahrun. Velmegun Íslendinga á þessu tímabili hefur aukist gríðarlega, þrátt fyrir bankahrun. Hún hefur aukist um 41,6 prósent, eða um nær helming

2) Á sama tímabili hefur hagvöxtur í Danmörku -sem er með gjaldmiðil sinn fastbundinn við evru Þýskalands- aðeins verið 10,5 prósent. Hagvöxtur, velmegunaraukning, hefur þannig verið fjórfalt meiri og betri á Íslandi en í Danmörku á þessu tímabili. Þrátt fyrir bankahrun hér heima

3) Á sama tímabili hefur hagvöxtur á Ítalíu verið minni en enginn, eða -0,2 prósent. Viðreisnar-gjaldmiðill Ítalíu er sjálf evra Þýskalands. Hún hefur reist landið þannig við að það er nú á barmi þjóðargjaldþrots. Enginn hagvöxtur í 14 ár! - og því allt að veslast og rotna upp

41,6 prósent hagvöxtur á 14 árum

10,5 prósent hagvöxtur á 14 árum

-0,2 prósent hagvöxtur á 14 árum

Hvort skyldi nú vera betra. Allt, einn fjórði, eða ekkert?

Öll lönd sem binda gjaldmiðil sinn fastan, eru með því að reyna að hengja sig. Þau lönd sem tekið hafa upp evru, dingla nú þegar hálf dauð í hegningarólinni, bendir Lars Christensen réttilega á hér

 

Aldrei aftur

- undir erlent vald

Fyrri færsla

Evran og norska krónan að hverfa


Evran og norska krónan að hverfa

USD og ISK-SEK-NOK-EUR frá 7 júlí 2008

Vísitölumyndin sýnir gengisþróun evru og hinna íslensku-, norsku- og sænsku króna gagnvart Bandaríkjadal. Tímabilið er frá 7. júlí 2008 = 100, er vatnaskil urðu á gjaldeyrismarkaði, og fram til dagsins í dag

Norska krónan er nú fallin meira en sú íslenska. Fall evru og sænsku krónunnar nálgast bankarot. Norska krónan hefur orðið fyrir miklu áfalli vegna heilbrigðra framfara í verðmyndun á olíumörkuðum. Evran er hins vegar að leggjast í rústir skipulagðs pólitísks áhlaups stjórnmála- og embættismannamannastétta sovétríkja ESB, þ.e.a.s í NSU og EMMA (European Monetary Madness Area in New Soviet Union | © Bernard Connolly)

Evran mun halda áfram að falla næstu 3 árin og fara niður í 0,65 Bandaríkjadali. Borgarastyrjöldin sem hafin er í Evrópusambandslöndum vegna innrásar í kjölfar gjöreyðingar evrunnar, munu svo gera útaf við myntina evru. Við það verður hún aftur mynt þess eina lands sem stjórnar og hefur haft hag af henni; Þýskalandi. Og við það hækkar hún um 160 prósent aftur og Þýskaland verður gjaldþrota hennar vegna og framskriðinnar elli. Ritvélaiðnaður hinna þýsku kínverja Evrópu þolir ekki slíka frjálsa verðmyndun á gjaldmiðli landsins

Íslenska krónan mun halda áfram að hrista ferðamenn af íslenska hagkerfinu eins og lús. Og er það ákaflega gott og þarft verk. Við tekur arðbærari notkun á menntuðu vinnuafli og auðæfum þjóðarinnar. Takk mín kæra V8 íslenska króna

Næstu tveggja kjörtímabila ábyrg og sannfærandi hægri ríkisstjórn á Íslandi, hefur alla burði til að gera þig að alþjóðlegri mynt, vilji menn það. Allt sem til þarf, er viljinn, ábyrgð og Sjálfstæðisflokkurinn

Fyrri færsla

Aðeins ein ástæða fyrir ríkidæmi Íslands


Aðeins ein ástæða fyrir ríkidæmi Íslands

Og sú ástæða er sjávarútvegurinn með gjöfult Atlantshafið umhverfis landið - og fullveldi og sjálfstæði Íslands. Enginn önnur ástæða er til fyrir ríkidæmi Íslendinga. Bara alls engin. Allt okkar ríkidæmi eigum við þessu að þakka: hafinu og sjávarútveginum

Þegar maður skoðar veröldina með geó-pólitískum augum þá ber þar hæst við himinn sjálfur risinn í Vestri, Bandaríki Norður-Ameríku. Ástæðurnar fyrir ríkidæmi Bandaríkjanna eru að miklu leyti landfræðilegar: þ.e. höfin sem umlykja 9 milljón ferkílómetra landmassa þeirra og árnar sem renna rétt, en ekki vitlaust, um þessi Bandaríki Norður-Ameríku. Þær sameina þar með stærsta ræktanlega landbúnaðarsvæði veraldar, sem eitt út af fyrir sig er 1,7 miljón ferkílómetrar að stærð og hrikalega gjöfult. Siglanlegar ár í Bandaríkjunum eru um 40 þúsund kílómetrar að lengd, sem er meira en restin af veröldinni hefur til umráða, og á þeim eru flutt yfir 500 milljón tonn af vörum og varningi á ári hverju, fyrir einn þrítugasta af því sem kostar að flytja eitt tonn eða einn gám á vörubílum, og fyrir einn tíunda af því sem kostar að flytja farminn á járnbraut

Einn tveggja aflvéla fljótabátur með 8 til 10 manna áhöfn sem ýtir 15-pramma farmi þúsundir kílómetra í einni ferð, fer þar með stærri farm en flugvéla-móðurskipin voru í síðari heimsstyrjöldinni. Já hann fer létt með 1050 stórtrukka farm í einni ferð, fyrir næstum ekki neitt

Enginn tekur eftir þessu því þetta er ekki í fréttum. Alveg eins og að enginn tekur eftir sjávarútvegi lengur, vegna þess að of margir fréttamiðlar eru mannaðir af þið vitið hverjum, þó mest kommúnistum. Engar skipa- og aflafréttir eru lengur fréttir. En samt er allt þetta að gerast á hverjum degi, bæði hér heima og í Bandríkjunum, hvern einasta dag ársins

Þessar ár renna þannig að þær sameina Bandaríkin en sundra þeim ekki, eins og árnar í Rússlandi gera, sem allar renna vitlaust. Að vera bóndi eða verksmiðja í framleiðslu til innlendrar eftirspurnar og útflutnings í Bandaríkjunum, er ekkert mál þó svo að býlið eða verksmiðjan sé staðsett 2000 kílómetra inni í landi. Að framleiða og þjónusta Bandaríkjamarkað eru forréttindi engum lík. Þau eru með einkaneyslu sem þar til rétt nýlega var meiri og stærri en öll einkaneysla allra annarra landa veraldar var samanlögð. Ríki og sveitafélög kunna lítið að fara með fé, svo þau eru lítið látin um hvað peningarnir eiga að fara í. Það er meðal annars þess vegna sem Bandaríkin eru svona rík og mikið veldi

Í bandarísku Dow Jones vísitölunni, sem spannar 130 ár, er aðeins eitt fyrirtæki ennþá lifandi frá upphafi hennar og er það fyrirtækið General Electric. Slíkt er umbyltingarafl Bandaríkjanna. En í Evrópu tróna ennþá hæst gömlu elítutæru ættarveldin með skelfilegum afleiðingum fyrir efnahaginn. Þeim er haldið lifandi af elítum sem sitja á elítuvöldum utan og innan þings. Fórnarlömbin eru borgararnir og litlir möguleikar þeirra í elítuveldum Evrópu. Má þar nefna Deutsche Bank, Siemens, Bayer og Allianz sem öll urðu til fyrir meira en 120 árum. Slíkt er máttleysi endurnýjunar í Evrópu. Gamalt glingur aðalsins lifir enn, þökk sé völdum elíta. Evrópusambandið til dæmis var stofnað til að halda þeim við völdin. Og Þýskaland sjálft var sameinað í sama falska tilgangi 1871

Meira að segja Bæjaraland, sem tímabundið áttavillt og á tíðum tryllt íhaldsmannaríki elíta, í kjölfar hruns þýska keisaraveldisins 1919, lýsti sig sem verandi nýtt og sjálfstætt "Sovét-lýðveldi" þegar Weimar var stofnað, já það ríki lítur enn þann dag í dag á sameiningu Þýskalands frá 1871 sem misgjörning, og er það hárrétt ályktun hjá þeim. Hefur Bæjararíkið nú hótað þýskum yfirvöldum að gripið verði til "sjálfstæðra varnaraðgerða" gegn drekkingartilraun Angelu Merkel á Þýskalandi með íslamistum, fari innrás hennar á allt þýska ríkið á þann veg sem horfir; þ.e. til helvítis!

Fyrst að rótgrónir íhaldsmenn Bæjaralands gátu árið 1919 lýst yfir sjálfstæði sínu sem nýtt kommúnistískt "Sovét-lýðveldi" undir keisaralegu öngþveiti hins nýstofnaða Þýskalands, hvað haldið þið þá að eigi ekki eftir að gerast í Evrópu á komandi tímum. Fullt af trylltum hlutum sem engum manni dettur í hug í dag, eiga eftir að gerast í Evrópu á næstu áratugum

Það er enginn "jaðar" í Bandaríkjunum. Þau eru eitt massíft sameinað veldi út í gegn. Rússland hefur til dæmis aldrei getað brauðfætt sig sjálft nema þá einna helst sem smábænda-ríki á ofboðslegum landmassa þess "ríkis" og mun aldrei geta það sem stórveldi, því að Rússland og flest fjöll þess eru á vitlausum stað eins og mestur partur landmassa Kína er einnig. Það eina sem getur haldið Rússlandi saman sem ríki er terror stjórnvalda og þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf verða. Öll orka stjórnvalda fer í terror og í jaðarinn fræga, sem klúðrast bara og klúðrast og býr reglulega til krúss-sjeffana í endalausum pólitískum líkkistum eilífs jaðar-klúðurs. Svona erfitt er að vera landmassaríki án náttúrulegra landamæra. Ekkert af þessu þurfa Bandaríkin að glíma við, enda sést það

Og hið sama gildir um Kína, sem innan 10-20 ára mun hrynja eins og Japan hrundi í rúst undir skuldafjalli sem þyrlaði svo flott upp ryki í augu veraldar, en bara í smá tíma, áður en fjallið það pompaði og brasaði saman og gerði landið og íbúa þess að öskugráu pompeiveldi í bókstaflegri merkinu náttúruleysis og elítugráma. Og hið sama gildir náttúrlega um Evrópusambandið. Það er að hrynja og mun halda áfram að hrynja þar til meginland Evrópu springur í loft upp á ný

Íslenski sjávarútvegurinn hefur mótað stjórnmálin á Íslandi frá því að hann varð til. Engin stjórnmálaöfl, nema tímabundin poppuð skemmdarverkaöfl, komast hjá því að mótast af legu landsins í miðju Atlantshafi og af sjávarfangi okkar sem gert hefur okkur að heimsmeisturunum í þeim miklu efnum. Saman með okkar eigin landbúnaði er sjávarútvegurinn það sem Ísland stendur og fellur með. Þó svo að "allt annað" færi á hausinn hér -og það mun það á endanum gera ef illa er farið með sjávarútveginn- þá myndi það ekki koma Íslandi á hausinn, því allt "þetta annað", hefur sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn skaffað okkur

En öll hafa þó hin íslensku stjórnmálaöfl að vissu leyti misst frumfætur sína og ganga því annaðhvort hölt eða sem áttavilltar karlkerlingar til kosninga sinna. Þessir þeir eru allir farnir að hanga aftan í Reykjavík og stærsta aumingjaveldi veraldar, hinni glötuðu Evrópu Evrópusambandsins. Þessi aftaníossa árátta við Evrópu hefur valdið næstum óbætanlegum umhverfisskaða í heilabúi þeirra sem hanga aftaní Evrópu. Ísland er ekki þannig og á ekki að verða þannig. Við ætlum ekki að verða evrópskt elítu- og aumingjaveldi. Allt landið á að blómstra, því hafið umlykur okkur öll

Byggðastefna Bandaríkjanna var og er sú, að nema landið. Það var einnig hin sama byggðastefna sem viðhöfð var hér á Íslandi forðum. En hér hafa menn þó gleymt miklu. Þeir hafa gleymt og komið sér fyrir þversum í skráargatinu að Íslandi, höfuðborgarsvæðinu, sem er á minni jörð en Grímsstaðir á Fjöllum. Þar hokrar 65 prósent af þjóðinni þvers í skráargati, og þar drekka allir sama stjórnmálamjöðinn, hinn úldna evrópska drykk elítuvelda

Vegna hinnar sterku og réttu tengingar Sjálfstæðisflokksins við sjávarútveginn og landbúnað, og einskis annars, er ég sterkt að íhuga að ganga loksins í þann Sjálfstæðisflokk sem haldið hefur landinu best. Og nú hefur formaðurinn Bjarni kropið og svarið íslensku krónunni hollustu sína. Svo fyrir mig er ekki eftir neinu að bíða, er það nokkuð? Já mér er alvara

Allir getum við Íslendingar tekið undir Sjómannavalsinn. Öll þekkjum við hann. Án hans hefði ekki verið neitt "ég er kominn heim". Við erum sem betur fer ekki heimilislaus og ekki á leiðinni þangað, er það nokkuð? Ekki eins og Evrópa, er það nokkuð?

Hafið er okkar stóra vörn. Hana eigum við að nota til hins ýtrasta, í öllum skilningi þess orðs

Það er fyrir löngu kominn tími á að ræða Bandaríkjamálin hér á Íslandi

Fyrri færsla

Barist um völdin í Tyrklandi


Barist um völdin í Tyrklandi

Ef eitthvað er greinilegt frá atburðunum í Tyrklandi um helgina, þá er hægt að sjóða það -hið greinilega- niður í eitt orð; völd. Barist var um þau, völdin

Íslamistar innan sem utan hersins reyndu að taka völdin í sínar hendur með einmitt valdi. Notuðu hervaldið til að taka völdin. Tilraun þeirra mistókst þó svo að hún væri mjög vel skipulögð. En velheppnað valdarán krefst meira en fullkomins skipulags. Tvennt vantaði; almennan stuðning meðal nógu stórs hluta borgaranna og, sameinaðan her

Ljóst er að herinn veit ekki hvern og hvaða stjórnmálaöfl hann á að styðja né verja. Hluti hersins styður hrátt stjórnmálaaflið Íslam. Annar hluti styður þykjustu veraldlega stjórnarhætti og enn annar hluti hersins styður hugmyndir um nýtt heimsveldi a la Ottóman, undir Íslam. Tyrkneski herinn er því ekki alvöru her. Hann er eitthvað annað

Sem sagt: þarna er að verkum pólitísk heimspeki þrennunnar a) Rómarríkis b) Aþenu og c) Íslams

Allir hugsandi menn sjá hins vegar hvað skortir. Þeim vantar hinar Heilögu Ritningar, þ.e. hornsteina þess sem við köllum Vesturlönd. Þess vegna verður nútímalegt steinaldarstig ávallt ríkjandi í þessum heimshluta á meðan hornsteinn Vesturlanda, Jerúsalem, er eina blómið í heimshlutanum. Því þeir hafa hinar Heilögu Ritningar og Levítana, sem aldrei geta orðið kóngar. Þeir hafa þjóð-ríkið og landamæri

Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu gleður okkur sem komum auga á að heimsveldi úr kokkabókum Rómarríkis og ESB er úrkynjuð hugmyndafræði. Útgangan (exodus) markaði upphaf Vesturlanda. Það veit Bretland

En þeir sem vantar Ritningarnar, eiga áfram bágt. Þannig er nú það. Og græt ég vegna Nice

Fyrri færsla

Sigurganga Ónýta Íslands á EM


Sigurganga Ónýta Íslands á EM

Sigurganga karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu á EM rúllaði upp svo mörgum sigrum og hjörtum að veröldin svo gott sem öll klórar sér nú í hausnum og skilur ekki hvað er að gerast. Þessir Íslendingar, án neinna nýlendna, hljóta að vera að gera ótrúlega margt gott og rétt í landi sínu, annars væri þetta varla mögulegt, hugsar heimurinn, sem eins og 68 ára Lars Lagerbäck, er ekki fæddur í gær

En á sama tíma hér heima marsera dulbúnir og torrentaðir kúltúrklesstir marxistar samfylkingarklessuflokks samfó, pírata, vaffgé og svört framtíð viðskildinga, með þá hugsun fastbrennda í höfðum sér, að hér sé allt ónýtt og að nýtt framhald af síðasta áhlaupi ríkisstjórnartætara Samfylkingar og Vinstri grænna á Ísland þurfi til, svo að draumur þeirra um handónýtt Ísland rætist loks. Þeir ætla sko að sjá fyrir því og auðvitað með aðstoð hins pólitíska Ónýta Íslands vígahreiðurs DDRÚV gegn Íslandi

Háskólasamfélagið eitt og sér er þó dyggasti og öflugasti gjaldþrota stuðningsaðili þessara afla. Enda þoldi það illa sigra landsliðsins og ráfaði fram hjá sér farandi, bölvandi og ragnandi á opinberri framfærslu, um glapstigana í turni sínum, yfir því að löndum væri bara sí svona leyft að mæta til leiks sem lönd. Að það þýddi bara eitt: þjóðernisrembu, þjóðfána, þjóðsöngva og að þar væri því allt heila dótið til öfga-hægris og bla bla bla, blaaði vinstri græn samfó stappa pírata í viðskildinga bjartri-já-svartri framtíð bíen púff vol væl og klynk, og ég veit ekki hvað

Íslendingar staðfestu fyrir Bretum hve mikilvægt er að standa vörð um sjálfan sig á eigin fótum og halda sér fyrir utan ESB. Bretland mun síðar þakka Íslandi fyrir þessa kennslustund

Ástand forseta Frakklands eftir leik Íslendinga og Frakka var svo slæmt að hann sat eftir, lamaður af ótta yfir því sem gæti gerst ef hann létti bara ögn á ESB-fangagæslu sinni yfir Evrópu

Innilegar þakkir til landsliðs Íslands í knattspyrnu. Það er það minnsta og hógværasta sem ég get sagt. En mikið er ég stoltur af ykkur og Íslandi. Samt ætla ég ekki að drepa neinn

Fyrri færsla

Nýi forsetinn Guðni of ungur?


Nýi forsetinn Guðni of ungur?

Hann er að minnsta kosti of óreyndur og ef til vill er hann einnig of ungur til að vita að réttarríkið er frumforsenda mannréttinda. Það var réttarríkið sem ól af sér nauðsynleg réttindi handa mönnum

Eyðileggi menn réttarríkið þá hverfur grundvöllur svo kallaðra mannréttinda, sem er tískuorð nútímans yfir stjórnleysi í skjóli stofnunar sem kallar sig "Sameinuðu þjóðirnar" og ýmissa einræðisherra þeirra, sem eru margir og slæmir. Þessi stofnun gerist meira og meira firrt og að er miklu leyti ónothæf og skaðleg réttindum manna

Fyrstu skref hins nýja forseta lofa ekki góðu fyrir mannréttindamálin. Hvar skyldi hann stíga umboðslaus niður fæti næst?

Mikilvægt er að muna að það var skaðræðisknúin þykjustu jákvæðni sem bjó til bankahrunið. Virkni neikvæðrar hugsunar er oft á tíðum forsenda framfara og hún er frumforsenda farsældar og lífshamingju. Neikvæð hugsun er ekki neikvæð nema að hún sé röng. Það þarf til dæmis virka og afar sterka neikvæðni til að byggja upp skothelt bankakerfi og þjóðaröryggi, sem hrynur ekki í rúst við álag. Uppbyggjandi neikvætt fólk gerir sér grein fyrir hættum og gildrum. Múgsefjandi jákvæðni er af hinu slæma. Það er algerlega fullreynt

Ekkert varð út þessari heimatilbúnu jákvæðni hinna múgsefjandi-jákvæðu þegar á þurfti að halda í glímunni við rústir jákvæðisins, þegar glíma þurfti við hrun-afleiðingar falskrar jákvæðni. Þá kom í ljós að hún var einungis dulbúin, heimasmíðuð og skipulögð sjálfsblekking. Þá gekk Guðni hinn nýkjörni forseti í fyrsta tenór Norður-Kór ESBista og söng skilyrta ESB söngva úr gamla rauða kverinu

Það er oftast léttara að segja bara já, þ.e. að vera það sem í dag er kallað að vera "jákvæður". En Davíð sagði nei - og þakklátur er ég fyrir það

Fyrri færsla

Brexit fimm dögum síðar: ESB en ekki Bretland fór í kerfi

Krækja

Ábót: Bókarumfjöllun WSJ: The Power of Negative Thinking


mbl.is Mátti reyna að leita annarra leiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brexit fimm dögum síðar: ESB en ekki Bretland fór í kerfi

Brexit og næstu fimm viðskiptadagar 877px

Mynd: breytingar á helstu hlutabréfavísitölum í Evrópu fyrstu fimm viðskiptadaga eftir Brexit

Eins og sjá má hefur útganga -exodus- Bretlands úr Evrópu-sambandinu ekki bitnað á Bretlandi þegar að hlutabréfamörkuðum kemur. Þeir sem eiga bresk fyrirtæki hafa átt frekar góða daga sem eigendur þeirra. Hlutabréf er staðfesting á því að þú ert eigandi. Þeir hafa litlar áhyggjur af eignum sínum í Bretlandi og hafa þeir ekki liðið fyrir að hafa sett fjármuni sína í atvinnurekstur á Bretlandseyjum

En þessu er ekki þannig farið á meginlandi Evrópu og Írlandi. Allir eigendur þar vita að þeir, en ekki Bretland, sitja eftir í fljótandi fangelsi Evrópusambandsins sem bókstaflega er að sökkva í evrum. Bretland er hins vegar sloppið út og flýtur með sitt góða Sterlingspund. Það losaði af sér hlekkina og lét sig hverfa úr slæmum félagsskap

Myndin af hlutabréfamörkuðum Evrusvæðis er enn hroðalegri ef menn skoða síðustu 52 vikur þeirra. Þar trónir Grikkland, Ítalía og Portúgal í kringum 30 prósenta hrunið og það virðist óstöðvandi

Fjármálaflaggskip Þýskalands, Deutsche Bank, heldur einnig bara áfram að falla ofan á eigendur sína og éta þá upp til agna. Einn hlutur í bankanum var metinn á 102,66 evrur þann 7. maí 2007. Í dag kostar sá hlutur aðeins 12,32 evrur. Hann er orðinn 88 prósent minna virði og heldur bara áfram að gufa upp. Alveg án afláts hvert einasta ár síðustu 9 árin. Hvernig skyldi nú standa á þessu

Bankinn á náttúrlega stóran hlut í sjálfum sér, því annars myndi enginn trúa á hann, og sú eign bankans í sjálfum sér er náttúrlega hluti af eiginfé bankans, sem því er að gufa upp. Ekki veit ég hvenær fjármálaeftirlitið í vasa ESB mun banka á dyr þessa banka til að segja honum að hann sé gjaldþrota og heimti að hann sé þjóðnýttur. Ekki skal ég segja til um það, en sá dagur nálgast, hvern dag

Evrópumennin á sínum sovét-mörkuðum ESB munu að minnsta kosti ekki hafa kjark til að láta frjálsa markaðinn um þennan risabanka og aðra stórbanka evrusvæðis, eins og gert var af fullum ásetningi með Lehmans í Bandaríkjunum og 200 aðra banka þar í landi. Nei, þeir munu ekki þora því, því þá leysist auðvitað myntin þeirra stál-evran upp. Gengi Þýskalands myndi þá hækka um 80 prósent og landið yrði gjaldþrota með öllum sínum gamalmennum þar sem meira en helmingur kjósenda er kominn yfir sextugt. Þá gæti Þýskaland óðaöldrunar ekki lengur haldið gengi sínu niðri með því að níðast á óðaöldrunar-hagkerfum Suður-Evrópu

En vandamálið með þennan þýska felubanka er allt það rosalega sem hann er í svo mörgum öðrum löndum. Líklega þyrfti því um leið að þjóðnýta alla myntina evru. Í gær lýsti Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn því yfir að þessi Deutsche Bank væri áhættusamasta og jafnframt hættulegasta fjármálastofnun veraldar

Stutt er síðan að allt bankakerfi Frakklands var þjóðnýtt síðast og stutt er síðan að gengi þýska marksins var falsað til að fela leyndan stuðning þýska seðlabankans við gengisfallið í Frakklandi. Þessir aðilar ættu því að geta komið sér saman um stofnun hins nýja sovétríkis Evrópusambandsins, þar sem á veisluborð almennings bornar verða hertar stálverur. Ekki mun Bretland lengur trufla þessi lönd við þann stálbruðning undir stjórn efri og neðri yfirkjálka Evrópu

Fyrri færsla

Bretland er farið og mun aldrei snúa aftur í þennan félagsskap


Bretland er farið og mun aldrei snúa aftur í þennan félagsskap

Sú staðreynd að eitt helsta og traustasta lýðræðisríki veraldar hefur yfirgefið Evrópusambandið, sannar svart á hvítu að Evrópusambandið var aldrei í þennan heim sett til að koma í kring neinu sem bara líkist sameiginlegum lausnum á neinu

Bretland er fimmta stærsta hagkerfi veraldar. Það er einnig fimmta sterkasta herveldi heimsins og eina ríkið í Evrópu sem beint getur herstyrk sínum á veraldarvísu, í þágu málstaðar og þvingað fram lausnir í hans þágu fyrir því sem Vesturlönd standa fyrir

Stutt er síðan að Bretland bjargaði meginlandi Evrópu frá sjálfu sér. Nú hefur hinum þremur til sex sem byrjuðu að vinda upp á sig í brunarústum síðustu sameiningar Evrópu, tekist að eyðileggja Evrópu það mikið aftur, að varla mun verða úr bætt. Meginland Evrópu er að sparka sér aftur út úr Vesturlöndum, og það gengur bara ansi vel

Bretland er farið úr þessum félagsskap og mun aldrei snúa aftur. Vonandi mun þetta þýða það fyrir okkur Íslendinga að hinn ömurlegi EES-samningur verður tekinn upp til gagngerrar endurskoðunar og jafnvel sagt upp af okkar hálfu. EES samningurinn er fyrir lögnu orðinn svæsin, þungt lamandi og kæfandi tímaskekkja

****

Í dag lýsti Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn því yfir að Deutsche Bank væri áhættusamasta og jafnframt hættulegasta fjármálastofnun veraldar og að bankinn væri ógn við fjármálamarkaði heimsins. Þessu greinir Wall Street Journal frá í dag. Og þetta veit kanslari Þýskalands auðvitað mjög vel. Og hún hefur vitað þetta, ásamt fyrirrennara hennar, í 20 ár. Þau hafa bæði stýrt þessum banka, innan sem utan þings, allan þennan tíma. Þannig er og hefur Þýskalandi ávallt verið stjórnað: fyrst og fremst utan-þings

Fyrri færsla

Sérfræðingarnir reiðir vegna Brexit

Krækja

WSJ: Deutsche Bank Poses Greatest Risk to Global Financial System, IMF Says


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband