Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021
Miðvikudagur, 31. mars 2021
Stóra-Bretland flytur alla bóluefnaframleiðslu burt af lögsögu ESB
Mynd: Hin utanríkispólitíska tilvistarsýn Berlínar breytist ekki og liggur föst. Hún er algjörlega óháð tilvist pappírsbunka-stundarfyrirbæra á borð við Evrópusambandið. Pólitískar hugmyndir manna í hinum ýmsu löndum og á milli þeirra ferðast ágætlega um borð í flugvélum í 30 þúsund feta hæð yfir jörðu. En það gera þær hins vegar ekki á jörðu niðri. Þar ná þær ekki að hagga landfræðilegum og sögulegum staðreyndum. Enginn býr, lifir né sefur um borð í flugvél núna, og ei heldur á átakatímum. Átök vinnast aðeins á jörðu niðri, þar sem menn búa, og sem éta slíkar pólitískar hugmyndir hraðar upp en þær ná að (af)myndast, nema náttúrlega þær geopólitísku - og Útópía er verður aldrei geopólitísk hugmynd
****
BURT AF HÆTTUSVÆÐI ESB
Á meðan Angela Merkel kanslari frá DDR og Emmanuel Macron Frakklandsforseti funda með Vladímír Pútín fastaforseta Rússlands um Spútník bóluefnið, þá er löglegt land Borisar Johnsons forsætisráðherra að flytja alla bóluefnaframleiðslu burt frá löndum Evrópusambandsins og yfir til Stóra-Bretlands, eftir hótanir sambandsins (lesist: Þýskalands og Frakklands) um útflutningsbann. En hvað þá með hin rússnesku [eitur] efni sem verið hafa fréttamatur mörg hin síðustu ár í Evrópu og víðar? Skyldu þau efni ekkert hafa verið rædd á fundi Pútíns, Merkels og Macrons. Eða er það kannski markmið "leiðtoganna" þriggja að skaffa þau líka. Ég spyr. Fylgja þau kannski með í "pakkanum"?
Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í gær:
"Ursula von der Leyens loose talk about vaccine export bans belongs to the category of things that have an enormous long-term cost and fail to achieve anything in the short-term."
Hið breska GlaxoSmithKline mun sjá um það sem Þýskaland átti að sjá um (átöppun/áfylling/frágangur) fyrir Novovax bóluefnið og Fujifilm Diosynth Biotechnologies mun sjá um að framleiða það í norðaustur Bretlandi í verksmiðum fyrirtækisins í Teesside. Öll framleiðsla bóluefna fyrir hina síðari bresku bólusetningarumferð, sem hefst í lok sumars, mun fara fram í sjálfu Bretlandi og eiga þessar verksmiðjur að vera komnar á full afköst í september. Markmiðið er að byggja upp langtíma framleiðslugetu fyrir bóluefni innan landamæra Bretlands og sem hægt er að stóla á og séð getur landinu fyrir eigin bóluefnum, og náttúrlega flutt þau síðan út til annarra landa líka. Novovax er bandarískt fyrirtæki í Maryland í Bandaríkjunum sem þróar bóluefni. Ofan í þetta koma síðan Astra, Pfizer og Moderna
HEIMUR MANNA BREYTIST EKKI
Ég er næstum viss um að Frakkland spilar með til þess að reyna að keppa við og spilla fyrir sívaxandi pólitískum vinskap Rússlands og Þýskalands, og sem er gamalt franskt plott frá fyrri tíð um að reyna að koma í veg fyrir að Þýskaland geti haft öruggt bak í austri, ef það skyldi nú byrja að þjarma að Vestur-Evrópu á ný. Ýmislegt bendir nefnilega til þess: 1) NATO-svik Þýskalands og sem eru fordæmisgefandi fyrir þau ríki sem eru á fastri sporbraut um það. Og 2) hin nýja MolotovRibbentrop II gasleiðsla Rússlands til Berlínar núna (NordStream2). En um hana mun enginn umframdropi af gasi fara miðað við þær leiðslur sem nú þegar eru til staðar, en sem verða lagðar niður í Úkraínu og Póllandi, og þar með gera bæði þau ríki enn strategíkst berskjaldaðri gagnvart austri
Reyndar er Evrópusambandið sem Þýskaland er komið með í rassvasa sína núna, þegar byrjað að þjarma að Stóra-Bretlandi í vestri, Póllandi í austri, Ungverjalandi og Grikklandi á Balkanslóðum ásamt ríkjum Suður-Evrópu, plús það að Þýskaland mælist nú Ameríku-fjandsamlegasta ríki hins þróaða hluta veraldar
FYRIRBYGGJANDI ÁRÁSIR
Þessar stanslausu fréttatilkynningar um blóðtappa af völdum AstraZeneca miðast að því að spilla fyrir því bóluefni, því vel getur hugsast að Stóra-Bretland muni hætta að sjá ESB-löndum fyrir hátæknihráefnum til framleiðslu þess. Líklegt er því að ESB-Berlín-Parísar öxullinn viti nú þegar vel að það er að lokast á að AstraZeneca verði framleitt á meginlandi Evrópu, og að öxullinn neyðist því til að flytja það inn frá Bretlandi, Bandaríkjunum og t.d. Indlandi, en sem nú er bandamaður Bandaríkjanna í hinu óformlega Fjórbandalagi með Japan og Ástralíu - og þar með Bretlandi líka
Hin óhæfa Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er persónulegur skjólstæðingur Angelu Merkels og það voru þær sem plottuðu saman um að láta Evrópusambandið um bóluefnamálin, en sem sambandið er algjörlega ófært um. Þessar tvær persónur hafa reyndar reynst óhæfar til flestra verka líka. Til að láta ESB um málaflokk á borð við bóluefnamál, þyrfti 7-ára sáttmálabreytingarferli til að ESB gæti slíkt - og það vissu þær vel, nema að þær séu ekki með á nótunum, sem er líklegasta skýringin, nú sem fyrr. Afar ólíklegt er að slík sáttmálabreyting hefði fengist samþykkt - nema þá undir hótunum, áframhaldandi evruógnum og spellvirkjum
PÓLITÍSK UPPLAUSN
Fylgi CDU/CSU flokksbandalags Angelu Merkels er nú í frjálsu falli og komið niður í 25 prósentur, eða á par við fylgi hins nú misheppnaða Sjálfstæðisflokks míns hér á Íslandi, með svipaða óhæfa og sísökkvandi flokksblýklossa um borð þar líka
Hinn pólitíski stöðugleiki eftirstríðsáranna er horfinn í Þýskalandi. Stjórnmálaflokkar þar eru að leysast upp og nýir að myndast í þeirra stað. Enginn veit hvað gerist næst í Þýskalandi. Og það eitt og sér er ekki góðs viti, því þegar það kviknar í Þýskalandi þá geta hlutirnir gerst mjög hratt. Til dæmis fór verðlag úr verðhjöðnun og yfir í 400 prósent verðbólgu á minna en 12 mánuðum er þýski seðlabankinn fór með landið í þrot 192x. Slíkur var hraðinn í þessu eldfima landi þá og er því miður enn, nái réttu skilyrðin fyrir þýskum steppubruna að myndast
FLÓTTINN
Fjárfestingar lýðræðislanda á lögsögu Evrópusambandsins eru nú að komast í flokk með áhættufjárfestingum í húlabúla-löndum. Hætt er því við að vaxandi löng bið verði eftir þeim í hinni mjög svo ómögulegu framtíð Evrópusambandsins. Líkurnar á að aðeins Kínverjar og Rússar hafi áhuga á fjárfestingum á lögsögu Evrópusambandsins, aukast í takt við að áhugi lýðræðislanda minnkar. Og nú er kominn nýr valkostur sem heitir frjálst og fullvalda Stóra-Bretland. Hækkar því sterlingspundið sífellt gagnvart evru og hefur gert það síðustu 12 mánuðina. En það eru fleiri lönd en Bretland sem ekki munu sætta sig við að vera lokuð inni í ESB. Íslensk fyrirtæki sem fjárfest hafa á meginlandi Evrópu munu nú þurfa að hugsa sig alvarlega um, áður en það er um seinan. Löggjafinn í ESB er óútreiknanlegur, enda hefur enginn kosið hann
Fyrri færsla
Ekki slys - og þær voru svartar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 29. mars 2021
Ekki slys - og þær voru svartar
Mynd: Apaplánetan réðst að styttu af Winston Churchill í Lundúnum síðasta ósumar
****
Þær, stúlkurnar, voru svartar (má ekki segja það, sjá frétt neðst) og yfirfalsfréttastofan CNN kallar þetta "slys" (e. accident). Það gerir hún af ásettu kynþáttahatandi ráði hins nýja rasisma andrasista. Þetta var ekkert "slys". Þetta var virkilega ógeðslegt ránmorð framið af nútíma villimönnum
Það eina sem stúlkurnar höfðu áhuga á eftir að bíllinn fyrir þeirra tilstuðlan hafði brunað á ofsahraða fyrir horn og oltið, með bílstjórann að mestu hangandi utan á, var hvar síminn þeirra væri staðsettur á meðan bílstjórinn lá í hrúgu og var að deyja. Búið er að má yfir staðinn á myndinni við fréttina þar sem tveggja barna faðirinn liggur og er að deyja af völdum blábjána. Öll hans fyrirhöfn og viðleitni í lífinu var þarna gerð að engu, fyrir hann sjálfan og konu hans, fyrir ekki neitt
Þegar ég sá upptökuna datt mér apaplánetan í hug og varð virkilega illt. Ég hvet engan til að horfa hana á sundurfélagsmiðlum sem nú hafa breytt sér í mjúkt alræðistól í höndum ofsakjána með lyklaborð og hálmhrúgur í heilastað
Og nú er komið í ljós að hinn margumtalaði George Floyd dó vegna eign eiturlyfjaneyslu af tvennu tagi og þar af leiddu uppblásnu hjarta, en ekki af völdum lögregluþjóns sem fór eftir starfsreglum lögreglunnar. Hafði hinn látni þegar verið að kafna löngu fyrir handtökuna
Hve lengi skyldi þessi sjálfsútskúfun í boði Demókrataflokksins fá að ganga fyrir sig þarna vestanhafs? En þetta virðist vera einhvers konar 100 ára árangur þess flokks, sem fyrr á tímum varði þrælahald með vopnum, kjafti og klóm
Barnfóstruríkið þar sem fræga fólkið skeinir sig á bandaríska fánanaum og fær fyrir það klapp hjá CNN, er virkilega komið í ógöngur. Það styttist í að þolinmæði hins hvíta manns þrjóti. Og þá þýðir lítið að kalla elsku mamma loksins þegar það gerist. Ákalla verður þá þann stóra sem á Bandaríkjadal er áletraður
Þingsályktunartillaga um "upplýsingaóreiðu" sem lögð hefur verið fyrir á Alþingi myndi að sjálfsögðu (heldur betur ekki) koma því til leiðar að bent yrði á að hér var ekki um slys að ræða heldur ránmorð. Og einnig (ekki) koma því á framfæri að morðingjarnir eru þeldökkar táningastúlkur, ásamt (ekki) því að það sem kom óeirðunum af stað í Bandaríkjunum síðasta vor og sumar voru falsaðar fréttir, sundurfélagsmiðlar og pólitísk aðför fréttamiðla landsins að þáverandi forseta Bandaríkjanna. Og sem massíft voru bergmálaðar á öllum Norðurlöndunum fimm, einnig í þeim löndum sem á sínum tíma töluðu máli Adolfs Hitlers í "Gyðingamálinu" - hér í málgagni sænska sósíaldemókrataflokksins - enda var þýski nasistaflokkurinn vinstriflokkur - og nokkuð skyldur þeim sænska - og hét því Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei
Fyrri færsla
ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]
Táningsstúlkur ákærðar fyrir morð á Uber-bílstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 26. mars 2021
ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]
Mynd: pólitískur evruupptakari
****
Stjórnmálamenn og ríkisstjórnir framleiða ekki bóluefni
Evrópusambandið framleiðir ekki bóluefni. En það hindrar framleiðslu þeirra og drepur fólk þannig óbeint
Nei. Það eru fyrirtæki sem framleiða bóluefni
Og þau gera það til að græða peninga og þekkingu á því. Annars hefðum við engin bóluefni í dag. Græðgi einkaframtaksins skaffaði okkur bóluefni gegn kínversku Wuhanveirunni
Hagnaðarvonin til lengri tíma litið skaffaði okkur bóluefni, ásamt grjótharðri samkeppni milli einkafyrirtækja, sem nutu stuðnings þjóðkjörinna ríkisstjórna þjóða, en ekki óþjóða
Ísland er án bóluefna vegna þess að stjórnmálamenn okkar gátu ekkert og gerðu ekkert. Gátu og gerðu ekkert ekkert og ekkert í bóluefnamálinu. Ekkert er svo gott sem það eina sem þeir hafa sýnt að kunna þar. Heilbrigðisráðherra þjóðar ætti aldrei að vera hvorki hálf- né heilkommi. Hann ætti umfram allt að vera stórkapítalisti og helst að hafa prófað gjaldþrot
Evrópusambandið er andkapítalistísk og umboðslaus elítusamsteypa hinnar stjórnlausu pólitísku elítugræðgi, sem er hundrað sinnum verri en flest annað
Sambandið er umboðslaus ófreskja sem ekki hægt að kjósa burt. Sú græðgi á ekkert skylt við hina góðu græðgi eiginhagsmuna og framfara þjóða, og einstaklinga hennar, sem oft eru hluthafar líka, fyrir utan það að vera bólusettir ríkisborgarar, sinni stjórnmálamen störfum sínum og standi við sitt
Geri þeir ekki það, verða þeir kosnir burt
Viðtal Telegraph við kapítalistann Kate Bingham sem sá um bóluefnismál Stóra-Bretlands, þ.e. var verkefnisstjóri bresku ríkisstjórnarinnar í bóluefnamálum, og stóð fyrir öllu frá A til Ö, er mjög svo athyglisvert og lærdómsríkt fyrir okkur öll - en þó einkum fyrir heilbrigðisráðherra sem er kommi. Hún var ráðin með einu símtali og enginn annar var spurður né hvað þá leitað til bráðdrepandi ráðningarnefndar um neitt: Kate Bingham exclusive interview: "EU leaders undermining the vaccine are completely irresponsible"
Hún býr í Wales, uppi í sveit, og á ekki sjónvarp, en hins vegar mann og þrjú börn. Þaðan vann hún verkið stóra fyrir Boris Johnson og Stóra-Bretland, á næstum núll komma fimm
Stjórnsýslan í 101 allra borga og Wall Street, eiga það sameiginlegt að framleiða lítið annað en hávaða og læti. Nóg er að koma þangað einu sinni á ári
NÝR FORSETI VESTANHAFS?
Hinumegin Atlantsála hefur nýr(?) Joe Biden forseti nú setið við sennilega illa fengin völd í 46 daga. Um nýja tegund forseta Bandaríkjanna virðist vera að ræða. Man hann til dæmis hvorki hvað Pentagon er, né hvað það gerir. En þar eru aðalstöðvar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna til húsa. Og forsetinn man heldur ekki hvað yfirmaður hersins sem hann sjálfur fer fyrir heitir. En ekki nóg með það, þá tókst þessum nýja forseta úr röðum Demókrata ekki að komast um borð í flugvél sína nema með því að detta þrisvar sinnum á hausinn á leiðinni upp í hana
Hvað skyldu valdamenn Kínverska kommúnistaflokksins hugsa núna? Að stofna til óþarfa freistnivanda í utanríkismálum hefur ávallt reynst hættulegt og sérlega slæmur fyrirboði. "Ég hitti þá, og ég sá þá, og þeir voru ormar" sagði Hitler eftir fundinn í München þann 30. september 1938. "Ég hefði getað lamið hann [Chamberlain] í hausinn með regnhlíf hans. "Vesalingar og ormar" var það eina sem kom út úr þeim fundi eins og þessum þarna í Alaska um daginn. "Þarna er ekkert að óttast" hugsaði herra Hi á síðustu öld - og sennilega líka herra Xi á þessari
Séu frammistöðutölur Rassmusen Reports um Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í forsetaembættinu skoðaðar, og bornar saman við sömu tölur um Donald J. Trump á hans fyrstu 46 dögum í sama embætti, þá fæst sú niðurstaða að samanlagt eru bandarískir kjósendur næstum tvöfalt meira umfram-óánægðari með Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í embættinu, miðað við 46 fyrstu daga Donalds J. Trump sem forseta Bandaríkjanna
Sé daglegur mismunur á mjög ánægðum kjósendum og mjög óánægðum (e. approval index) lagður saman og deilt í með fjölda daga, þá fær Trump töluna mínus 3,22 en Biden mínus 5,63. Þarna, eins og annars staðar, virðist Biden forsetinn þegar kominn að minnsta kosti tvöfalt meira á hausinn miðað við fyrirrennara hans, og færist nú hraðinn niður þann stiga líka mjög svo í aukana
Hve lengi skyldi þessum lygum verða leyft að standa? Svar: Sennilega jafnlengi og allir stórir fjölmiðlar og félagsvefir halda bandarískum kjósendum í jafn öflugri einangrun frá forseta Bandaríkjanna eins og Evrópusambandið hélt nýlendunni Austurríki í einangrun frá umheiminum vegna stjórnmálamannsins Jörg Haider
Hvernig skyldi annars ganga með MolotovRibbentrop II gasleiðsluna til Berlínar núna? Um hana mun enginn umframdropi af gasi fljóta miðað við það að nota þær leiðslur sem þegar eru fyrir hendi, þ.e.a.s komist hún í notkun, og þökk sé þá stigamanninum Biden
Fyrri færsla
ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]
Boða aukna framleiðslugetu á bóluefnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2021 kl. 05:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 24. mars 2021
ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]
Mynd: Í Stóra-Bretlandi var í dag búið að bólusetja 55 prósent þeirra sem eru 18 ára og eldri, vegna þess að Bretland er hvorki í Evrópusambandinu né EES. Það er nefnilega fullvalda og sjálfstætt ríki. Útgangan borgaði sig strax
****
EINANGRUNARBÚÐIR EVRÓPUSAMBANDSINS
Ríkisstjórnin hefur einangrað Ísland með tengingu þess við ESB
[Sjá frétt neðst: ESB bannar flutning bóluefna til Íslands]
Þarna er ESB að þurrka vandamálinu sem það sjálft skapaði yfir á okkur. Og hér heima er aularíkisstjórn okkar náttúrlega þegar komin á klósettið vegna þessa máls, fyrir að hafa látið lífshættulegt Gangster-samband ESB um bóluefnamálið
Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í morgun (leturbreyting mín)
"The blanket export ban is off the table - despite of what you may read in some reports this morning. The purpose of the discussion is deflection - an art mastered by the rulers of the EU. It constitutes another way of not solving the problem. FAZ reports this morning that the Commission will now propose a transparency mechanism, according to which countries have to notify the Commission before they impose export bans. But EU countries already have to do this. Whats new is that the countries of the western Balkans, Switzerland and Norway would have to do so too, which is of course irrelevant for the current situation."
En hér með er ríkisstjórn Íslands hins vegar komin í sjálfa salernisskálina, og verður að öllum líkindum sturtað niður í kosningunum í haust. Nema að Bjarni Ben taki dúkkulísu-ráðherra ríkisstjórnarinnar og sendi þær fastnegldar á skítakamri Evrópusambandsins til tunglsins, og fái í staðinn fullorðið fólk til liðs við sig, áður en öllum xD-flokki okkar verður skotið sömu leið
1. Við erum með einn heilbrigðisráðherra sem enn er því sem næst þvottaheldur gamall Sovét-kommi, 30 árum eftir hrun Sovétríkjanna
2. Við erum með einn ráðherra sem er eins konar Hamborgaraofstækisáðherra með löngu nafni og sem virðist vera eineygð
3. Við erum með dómsmálaráðherra sem er eins konar MeToo dúkkulísa, án vits og ára
4. Og við erum með sjálfan Bjarna Ben formann xD sem er eins konar bimbó-haldari og ætti í reynd að vinna við afgreiðslu í banka eða á bílasölu, þar sem hann myndi njóta sín og vegna vel
5. Og við erum með forsætisráðherra sem er einfeldningur og krónískur miðstjórnarkommi, græn að utan en rauð að innan. Einu landvarnirnar sem hún þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar
Grrrrr....
Þetta er nú meira skrímslasafnið. En það versta er að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn eru enn verri. Já enn verri!
En verst af öllu er þó sjálft Evrópusambandið. Leiðari Wall Street Journal komst ansi vel að orði um þann kamar í vikunni sem leið:
"Europes Gang That Couldnt Shot Straight
Its hard to think of a recent fiasco that can match the European Unions Covid vaccine rollout. Protectionism, mercantilism, bureaucratic ineptitude, lack of political accountability, crippling safety-ismits all here. The Keystone Kops in Brussels and European capitals would be funny if the consequences werent so serious"
****
Uppfært 25. mars kl 06:50
EN ÞAÐ KOM MEIRA VONT Í BUXUR ESB Í GÆR
Samkvæmt fréttum Telegraph gerðist einnig það í gær að NAS sérsveitir ítölsku herlögreglunnar á vegum Evrópusambandsins stormuðu áfyllingar- og pökkunarstöð AstraZeneca nálægt Róm. Hið tómhöfða elítustóð hins umboðslausa getuleysissambands ESB í Brussel hafði nefnilega hafi fengið fregnir af því að miklar og faldar brigðir af Oxford/Spitfire bóluefninu frá AstraZeneca væru faldar í þeirri verksmiðju, og að senda ætti þær til Bretlands. Storma því sérsveitir herlögreglunnar verksmiðjuna sem er í eigu bandarísks fyrirtækis og komast að því að 29 milljón skammtar af bóluefninu eru þar, eða helmingur þess sem AstraZeneca hafði ekki enn afhent til ESB
Og eftir að hafa farið í gegnum pappíra verksmiðjunnar lekur ESB því í ítölsku La Stampa pressuna að þarna séu loksins komnir í leitirnar þeir skammtar sem ekki hafði verið staðið við og að þeir hefðu ábyggilega verið á leið til Bretlands, leynilega!
En síðan byrjar lygavefur blábjánahers Evrópusambandsins að hrynja, en þó fyrst eftir að hafa farið eins og eldur í sinu upp allt fársjúkt meginlandið, sem er að sökkva undan ESB, því í fyrsta lagi gat breska ríkisstjórnin strax staðfest (já það er ríkisstjórn í Bretlandi og hún virkar) að ekkert kæmi til Bretlands frá þessari verksmiðju á Ítalíu og kæmi aldrei og hefði aldrei gert það. Og í öðru lagi kom í ljós 16 milljón skammtar af birgðunum voru ætlaðir Evrópusambandinu sjálfu og aðrir 13 milljón vanþróuðum ríkjum undir Covax-áætluninni
Sagði AstraZeneca að þessir 16 milljón skammtar ESB biðu þess að fá grænt ljós frá gæðaeftirliti fyrirtækisins áður en hægt væri að senda þá áfram til verksmiðju fyrirtækisins í Belgíu - og að það væri fullkomin rangfærsla að kalla þetta "birgðir" eða "birgðastöð"
Bruno Macaes fyrrum evrópumálaráðherra Portúgals lýsti þessu framferði Evrópusambandsins sem skammarlegasta augnabliki í sögu þess
En þegar hér var komið í lygasögu Evrópusambandsins í gær, neitaði blábjánaher þess þó að gefast upp og hóf að útvarpa því að hafa krafið AstraZeneca um enn frekari upplýsingar um hvar hin virku innihaldsefni í bóluefnunum sem stödd voru í framleiðsluferlinu þarna á Ítalíu væru framleidd, og gaf blábjánaher ESB jafnframt út þær yfirlýsingar að þau gætu hafa verið framleidd í margumræddri Halix lyfjaverksmiðju AstraZeneca í Hollandi. En hingað til hefur sú verksmiðja ekki afhent bóluefni til ESB-landa einfaldlega vegna þess að hún hefur ekki leyfi til þess fyrir lyfjastofnun ESB. Gat þá AstraZeneca upplýst blábjánaher Evrópusambandsins um að bóluefnið sem væri á Ítalíu til pökkunar hefði komið frá löndum utan sambandsins (les; sennilega frá Bretlandi)
Ég get upplýst lesendur hér um, að þarna er Evrópusambandinu rétt lýst. Ef horft er fast í andlit þessa fólks þá sjást heiladordinglar skíðandi fram og til baka á bak við annað auga og yfir í hitt, og að á bak við þau bæði er ekkert annað en gamlir köngulóarvefir. Það sama sést þegar horft í augu ríkisstjórnar Íslands í þessum efnum og hið sama sést þegar horft er í augu fylgismanna sambandsins og EES hér á Íslandi eins og úti. Þar inni er ekkert annað en einmitt þetta. Helber skríðandi heimska sem drepur fólk og eyðileggur lönd og ríki þess
1. Evrópusambandið hefur eyðilagt stjórnmálin í Evrópu
2. Evrópusambandið hefur eyðilagt sambúð ríkja í Evrópu
3. Evrópusambandið hefur eyðilagt efnahag ríkja Evrópu
4. Evrópusambandið hefur stórskaðað menningu ríkja Evrópu
5. Evrópusambandið er að eyðieggja friðinn í álfunni
6. Stofnmarkmið og tilgangur Evrópusambandsins var aldrei annar en valdarán og þjófnaður
Fyrri færsla
Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt
ESB bannar flutning bóluefna til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.3.2021 kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 23. mars 2021
Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt
Skjáskot: Grein Wolfgangs Münchau í Eurointelligence á laugardag
****
BÓLUEFNI ASTRA-ZENECA DÆMT ÖRUGGT Í BANDARÍKJUNUM
Niðurstöður eru komnar úr klínískum prófunum á bóluefninu frá AstraZeneca í Bandaríkjunum. En bóluefnið er kennt við háskólann í Oxford í Stóra-Bretlandi, þar sem það var fundið upp
Í frétt Wall Street Journal í gærkvöldi kemur fram að klínískum prófunum sé nú lokið þar vestanhafs og að bóluefni AstraZeneca sé öruggt. Það er talið 80 prósent verndandi fyrir 65 ára og eldri, en sá aldurshópur í klínísku prófununum vestanhafs var mun stærri en þegar efnið var prófað austanhafs. Fær bóluefnið einkunnina 100 prósent í því að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar og sjúkrahúsinnlagnir hjá fólki á öllum aldri og kynþáttum
Engin vandamál með blóðtappa komu fram í prófunum. Hefur bandaríska ríkisstjórnin þegar pantað 300 milljón skammta af bóluefninu og þar af mun varnarmálaráðuneytið fá 200 milljón skammta. Um það bil 32.500 manns sem eru 18 ára og eldri tóku þátt í prófinu og var fimmtungur þeirra eldri en 65 ára
Framleiðandinn AstraZeneca segist muni halda áfram að rýna í niðurstöðurnar og ætlar að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum. En Donald J. Trump forseti lét Bandaríkin veita 1,2 milljarði dala til þróunar þess er hann setti Ljóshraðaáætlun sína til þróunar, framleiðslu og dreifingar bóluefna gegn kínversku Wuhanveirunni á laggirnar í mars 2020. Hátt í 20 milljarðar dala voru settir í áætlunina og hóf hinn fámenni en velmannaði vinnuhópur sem að áætluninni stóð, þegar greiðslur úr þeim poka af peningum í mars 2020. Þremur vikum síðar tók hinn litli vinnuhópur Borisar Johnsons til starfa við sama verk, austan Atlantsála í Bretlandi
En þá var hið helsjúka Evrópusamband, sem lífshættulegt er heilsu manna, ekki einu sinni vaknað í málinu og drattaðist það síðan síðast allra í veröldinni af stað í þessum málum. Varla hefur eins viðurstyggilegt og lífshættulegt fyrirbæri og Evrópusambandið skriðið um á evrópskri jörð á friðartímum, síðan að Adolf Hitler kanslari Þýskalands undirbjó sig þar síðast. Evrukreppan sem hófst 2008 var 10 ára hryllingur þjóðpyntinga og varir enn; Flóttamannamisfóstrið 2014 er enn að rústa Evrópu; Og núna síðast er það massadauði íbúanna vegna misþyrminga Evrópusambandsins á sjúkdómavörnum í löndum sambandsins. Tugir og aftur tugir þúsunda manna munu láta lífið af völdum Evrópusambandsins á þessu ári
Fáir nema vesælir og veiklunda menn og vitsmunaskertir einfeldningar leggja lag sitt við Evrópusambandið
Fyrri færsla
Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Laugardagur, 20. mars 2021
Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík
Tónverkið Charmaine í byltingarkenndri útsetningu hljómsveitar Mantovani 1951 - og sem kom í stereó-útgáfu hjá Decca í Lundúnum 1959. Þarna var um eina stærstu byltingu í hjómtækni nútímans að ræða. Hin svo kallaða strengjahrina (e. cascading strings) þar sem örlítil seinkun er viðhöfð á fiðlubogum hljómsveitarinnar, fær strengina til að magnast upp og mynda þennan ótrúlega stóra og breiða hljóm, ekki svo fjölmennrar strengjasveitar. Þarna fæddist brautryðjandi síðari tíma geimferðatónlistar, og það áður en rafmagnshljómborðin komu til sögunnar sem eftirhermur. Já, fiðlan er ótrúlegt hljóðfæri. Verkið passar ágætlega við eldgos (í myrkri) og jafnvel við álframleiðsluna í Straumsvík líka. Hljómborð Chopin eru samt uppáhald mitt, en þá verður viss herra Horowitz helst að sitja við þau og spila verk hans, bremsulaus
****
30 TONNA FRÉTTAGOS Á SEKÚNDU
Já þetta er "lítið" og "ræfilslegt" eldgos, eða um það bil ca. 30 tonn á sekúndu núna (10 m3 á sekúndu með eðlismassa hrauns á ca. 2,7) og er þetta litla og krúttlega eldgos þá búið að framleiða hálfa milljón tonna af hrauni síðan í gærkvöldi. Það er tvöföld þyngd ársframleiðslu álversins í Straumsvík. Síðast þegar gaus á Reykjanesskaga, þá var það víst á tímum Snorra í kringum árið 1240 og þá gaus í ca. 30 ár. Þessu gosi núna aflýstu "sérfræðingar" hins vegar klukkan 18 í gær, eða áður en það hófst. En virðist sú aflýsing þó ekki hafa tekist alveg, þannig að úr varð fréttagos
Séótveir eða Co2 frá þessu fréttagosi mun náttúrlega drepa jörðina á núll komma fimm, samkvæmt helgi-trúarritum Rauðu lofthita-kirkjunnar, því lofttegundin Co2 er samtals 0,04 prósent af gufuhvolfi jarðar. Rosalegt maður! Sem sagt: búið ykkur undir dauða alls og allra um alla eilífð, þvi massi allra 7,8 milljarða manna á jörðinni er 0,0000000000078 prósent af þyngd hennar - og eru þá heilabúin talin með og hver lifandi maður því settur á 60 kílógrömm. En massi jarðar er 5.973.600.000.000 milljarðar tonna (5,9736×10 í 24. veldi kg.) Allur massi manna á jörðinni vegur því hlutfallslega 213 þúsund sinnum minna á jörðinni en ein 1-milligramma höfuðlús vegur á höfði eins manns
Framleiðsla áls í heiminum er 64 milljón tonn á ári og þar af framleiðum við tæpa milljón tonn hvert ár hér heima og þar af er Straumsvík ca. 0,25 milljón tonn á ári. Þetta litla hobbýgos núna myndi þá framleiða alla þyngd þess heims-brædda massa á einum mánuði, eða 65 milljón tonn. Eldgosið í Holuhrauni 2014 var 100 m3 á sekúndu, eða tæp 16 þúsund tonn á mínútu, og hefði verið þrjá daga að gubba upp 64 milljón tonnum af bræddum massa, eða hér um bil
Já það má reyna að vona að fólk fari sér ekki að voða núna. En þar sem massíft of margir halda að þeir séu með snjallsíma-heiminn í hendi sér og því ódauðlegir, þá má búast við öllu
Og nú gæti einhver kverúlantinn með háskólagráðu, og sem því kallar sig "vísindamann", fundið upp á því að segja að "nýtt gat í ózonlaginu" sé að myndast yfir Íslandi vegna gossins, og hrætt fólk upp úr (vegan-plast) skónum næstu 20 árin og fengið okkur (ykkur, en ekki mig) til að hætta að nota-eða-gera A, B eða C. En þannig var það með síðasta "gat" í því lagi, sem þá varð mikið spilað dægurlag í hinum rauðu miðaldahöllum nýSovét-vísindanna seint á síðustu öld. Allt saman eitt stórt fís, kjaftæði og histería, en þó samt ekkert miðað við allsherjarþvælu hinna rauðu loftslags-kirkjutrúarmanna núna
Nú hljóta líka allar síður hinnar rauðu Wikipedíu að verða uppfærðar og settar í stílinn, því þetta eldgos breytir auðvitað öllu, ekki satt? Til dæmis mætti klína þar inn tengingu við hvað við menn eru vondir, og að við höfum kallað þarna fram reiði Rauðu loftslagsguðanna. Ja hérna...
En ef þetta verður eins og síðast á tímum Snorra, þá er ansi líklegt að fólk verði orðið frekar þreytt á gosinu eftir 30 ár og því búið að flytja höfuðborgina til Akureyrar og flugvöllinn líka. Hmm kannski hugmynd að spekúlasjón á fasteignamarkaði... tralla la la....
Fyrri færsla
P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?
Pínulítið gos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. mars 2021
P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?
Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í breskt framleiddri Vickers VC10. VC10-þotan var uppáhaldsflugvél Margrétar Thatchers og var hún í 50-ár í loftinu. Bæði voru þau knúin Rolls-Royce Conway, eða því sem næst. ESB veit því miður ekki enn út í hvílíkt fen það hefur verið leitt
****
P-PILLAN?
(Sjá frétt neðst.) Ef um karlmann er að ræða þá er hann sennilega orðinn karlkerling á hinum norsku aurahaugum volmenningarinnar þar og því kominn á P-pilluna, sem þar með fengi nafnið P-transvestítatranstranskynskiptapilla v.68bíómiði
En P-pillan hefur ávallt legið undir einmitt þessum grun sem nú í æðiskasti er kastað á Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca, bara vegna þess að Evrópusambandinu er illa við það sökum þess að það kemur frá fullvalda Brexit-Bretlandi. En þar borgaði útgangan af Evrópusambandinu sig heldur betur frá og með fyrsta degi, því Bretar eru búnir að bólusetja nærri helming þjóðarinnar og nálgast nú hinn margumtalaða þorra hennar. Og ofan í það kemur síðan flótti alþjóðlegs fjármagns frá Evrópusambandslöndum yfir til Stóra-Bretlands. Hálf billjón evra yfirgaf lögsögu sambandsins á síðasta fjórðungi síðasta árs, og er það hvorki meira né minna 20 prósentur landsframleiðslunnar á ársgrundvelli
Í dag sagði Boris Johnson forsætisráðherra að hann myndi svo sannarlega láta dæla Oxford/Spitfire bóluefninu í sig um leið og kemur að honum í röðinni. Hann undirstrikaði það, fast og með hörðum penna. Hyggst hann einnig hefja þróun á hraðfleygustu eldflaugum jarðar í sínu nýfrjálsa landi, á meðan íslenskir ráðherrar halda sig við hamborgasteikingar ofan í fljúgandi fátæklinga
Í Bandaríkjunum, sem mér skilst að samþykki ekki útlenskt lyfjaeftirlit, bíða 100 milljón skammtar af bóluefninu þess að stórskalaprófun AstraZeneca á efninu ljúki þar í landi. En Donald J. Trump forseti veitti 1,2 milljörðum dala til þróunar þess. Til Pfizer lét hann tæpa tvo milljarða dala af hendi (1,95) og 4,1 milljarð dala til Moderna. Samtals 13 milljarða dala létu Bandaríkin af hendi rakna til þróunar og framleiðslu á bóluefnum. Síðan kemur dreifing og skipulag. Í Bandaríkjunum var það fjögurra stjörnu hershöfðingi og forstjóri úr lyfjabransanum sem látnir voru sjá um bóluefnaaðfangamálið þar. Í Bretlandi var lítill hópur manna úr atvinnulífinu látinn sjá um aðföng bóluefna. En í Evrópusambandinu voru hins vegar vanvita og algjörlega fávísar tröllskessur í skriffinnsku látnar um að klúðra málinum svo hryllilega að sennilega er þar um heimsmet í vanhæfni, vanræslu og getuleysi að ræða - reyndar eins og í flestu því sem sambandið kemur nálgæt
HAMBORGARASTEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR OG ÞÓRÓLFUR
Ríkisstjórnin getur ekki bara hent sér í það allt í einu núna að ganga gegn Þórólfi nú þegar hann er kominn með sitt á hreint og búinn að læra mikið og jafnvel nóg. Það getur hún ekki fyrst að hún þóttist ekkert vit hafa á neinu allt síðastliðið ár. Slíkar tilraunir til að viðhafa skítugt kosningatrix munu aðeins virka öfugt. Og nú þegar það er ríkisstjórninni sjálfri að kenna að ekki er búið að bólusetja alla þjóðina, þá verður hún að súpa seyðið af eigin getuleysi í þeim efnum. Hefði heilbrigðiráðuneytið ekki verið svona algjörlega vita vonlaust í bóluefnismálum og ekki svona hryllilega fjandsamlegt einkaframtakinu, þá væri Kári búinn að redda þessu máli fyrir langa löngu með hámark fjögurra-manna vinnuhópi úr atvinnulífinu. Ríkið er auðvitað ófært um lítið annað en að sólunda tíma og peningum annarra. Það getur ekkert frekar en Svandís sjálf. Þetta eru nú meiri vesalingarnir. Skyldi Katrín grænkommi enn vera í símanum uppi í bedda að redda?
Reyndar held ég að Þórólfur myndi fá 70% af öllum greiddum atkvæðum í kosningunum í haust ef hann byði sig fram sem eins-manns flokkur. Jafnvel 75% prósent. Hvað ætla menn að gera við því. Fremja kannski pólitískt sjálfsmorð. Harakiri um ágústnótt?
****
Bretar eru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi Síðari heimsstyrjaldarinnar til síðasta dags hennar, og ekkert hagkerfi neinna annarra landa afkastaði eins miklu og það breska á meðan á stríðinu stóð, miðað við mannfjölda. Hér minnast menn stíflusprengjuleiðangurs flugmanna hins Konunglega breska flughers
Tengt
Lyfjastofnun Evrópu [18. mars 2021]: Bóluefni AstraZeneca öruggt
Fyrri færsla
Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]
Sterk ónæmissvörun hafi valdið blóðtöppunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.8.2021 kl. 02:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 16. mars 2021
Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]
LÍFSBJÖRG BÖNNUÐ
Ekkert lát er á árásum ESB-landa á breska Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca. Tvö gervihnattalönd, Danmörk og Austurríki, með allt niður um sig í bóluefnismálum á sporbraut þeirra um Þýskaland, riðuðu fyrst til hins pólitíska falls á vaðinu sem frussast nú upp um allt og alla í Evrópusambandinu, og er að breytast í jökulhlaup. Þar næst riðu Þýskaland, Frakkland og Ítalía út, og lýstu pólitískt munnfrussandi yfir stundarfrests banni á bóluefnið, til að kaupa sér tíma frá kjósendum sem þola orðið ekki lengur að heyra minnst Evrópusambandið í hinum bólupólitískum efnum krónískrar ESB-klikkunar meginlandsins. En hún er í ætt við málatilbúnaðinn sem á sínum tíma var viðhafður og byggður upp í kringum evru, sem flestir hagfræðingar töldu geðbilun (e. economic lunacy) og hefur sannað sig sem verandi einmitt það
Hér heima tók sá Þórólfur-sótti* er gerði allt rangt í byrjun faraldurs (til þess eins að þýðast faraldur ESB-þvættingsins sem þá stjórnlaust geisaði um Schengensvæðið þar til Trump drap hann) undir hinn nýja gaskút ESB-þvættingsins í gær og át ofan í sig allt það sem hann á ævi sinni hafði lært, og lítur því út sem uppblásinn ESB-gaskútur fyrir vikið, eða alveg eins og firrt Svandís-sovét gerði í DDRÚV Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar í gær
En bæði eru uppblásin og þungt haldin af ESB-þvættingi og viðstöðulausum ESB-pólitískum hneigingum. "Vísindin" látin lönd og leið og hysterían ein og rógburður Evrópusambandslanda gegn bóluefninu höfð að leiðarljósi. Singularity svartnættis breyttist í belgmyrkur hins þýska svarthols sem gervilöndin í ESB eru á sporbraut um. En þar inni er Þórólfur því miður villtur og að ærast úr hlátrarsköllum Kára, sem stendur fyrir utan, trúr sínum vísindalegu kenndum
SÖKKIÐ
"Þessu verður ekki gleymt" skrifar Eurointelligence um aðförina í dag. En þar hefur af hreinskilni verið fjallað um allsherjarklúður Angelu Merkels og Evrópusambandsins í bóluefnismálum og rógburðarherferð þýska kanslarans og franska forsetans gegn bóluefninu frá AstraZeneca. Ástæðan er velgengni Stóra-Bretlands í bólusetningum með bóluefni fullveldisins og sem þolir ekki dagsins ljós, því hún er sönnun þess að Brexit-útgangan af egyptalandi Evrópusambandsins virkaði frá og með fyrsta degi. Þar var nefnilega búið að bólusetja 24.453.221 manns, eða um það bil 40 prósentur þjóðarinnar með fyrstu stungu bóluefna og þar af 11 milljón manns með efninu frá AstraZeneca í gær, og engin vandamál. Beint fyrir framan nefið á örkumla meginlandi Evrópusambandsins
Þar sannast að það er lífsbjörg fyrir lönd að standa utan Evrópusambandsins og að stóla á fullveldi og sjálfstæði í eigin málum. Þetta þola svo kallaðir "leiðtogar" Evrópusambandsins ekki. Og níða verður læknavísindin niður í leiðinni. Eðli Evrópusambandsins er það, að vera álíka banvænt og Sovétríkin voru síðustu áratugina sem þau héngu uppi, áður en þau og hið trúarpólitíska altari þeirra féllu saman og ofan á fólkið
==== uppfært kl. 20:25
* PS: Í upphafi faraldurs var þríeyki okkar í faraldursfræðum og sóttvörnum ekki með frumforsendu-mikilvægi landamæra Íslands á hreinu. Hvergi nándar nærri. Mikilvægi landamæra höfðu hins vegar allir dýralæknar anno 1965 á hreinu. En þá kom í ljós að Schengen bannaði að viðhafðar væru sóttvarnir á svo kölluðum innri landamærum svæðisins og pólitískur aulafarsi hófst í málinu. Þeir ráðamenn á Ítalíu sem þá vildu loka landinu eða héruðum þess voru vændir um rasisma af kverúlöntum Evrópusambandsins og Schengen-heilastöppunnar. En þangað barst veiran til Evrópu með beinu flugi frá Wuhan í Kína. En þarna voru tillögur mínar þær að loka bæri landamærum Íslands strax og leggja hald á Miðnesheiði sem sóttvarnarsvæði, og að enginn fengi að koma inn í landið án þess að hafa verið þar í sóttkví í tvær vikur og að svipað yrði látið gilda um millilandaskip. Þá mátti ekki heyrast minnst á neitt slíkt. En síðan uppgötvaði þríeykið smám saman landamærin, tók upp vissa karlmennsku í málinu og hætti að hlusta á söng örvita um að veiran virti ekki landamæri ríkja. Og fyrst þá fóru kjarnakostir Þórólfs að njóta sín; en þeir eru að geta talað við þjóðina og fengið hana til að hlusta, því Þórólfur er fyrst og fremst samskiptamaður og þar liggja hans sterkustu hliðar í málinu. Hann á hins vegar ekki að taka þátt í hvaða dansi sem er. Sérstaklega ekki í pólitískum villimannadansi örvita ESB-klíku gegn bóluefnum. Ísland verður að losna úr þessum heljarviðjum ESB-ómennskunnar
Fyrri færsla
Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.3.2021 kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 14. mars 2021
Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt
Þessu er ég sammála. Að hætta eigi að flytja inn ESB-fátækt sem Íslendingar eru síðan settir í að reyna að útrýma. Nú er svo komið að ESB-fátæklingar hanga hér í nær endalausum röðum um háls íslenskrar þjóðar. Bæði sem atvinnulausir, og sem hælisleitendur flýjandi lönd og nánasta nágrenni Evrópusambandsins
Sennilega hanga um 15-25 þúsund manns þannig um háls ríkissjóðs Íslendinga núna. Þetta er allt saman ESB-framleidd fátækt - og ánauð. Heil erlend hersveit af ESB-sviðnum útlendingum á stærð við Akureyri hangir því um háls þjóðarinnar núna
Enginn bjargar neinum með því drekkja björgunarsveitinni fyrst, og hella síðan vatni á bensíntanka hennar
Og ekki nóg með það að vextir á bankainnistæðum í evrulendum Evrópusambandsins séu neikvæðir, og að þýskir fjölmiðlar segi því að verðbólgan sem þeir gera ráð fyrir að verði komin í þrjú prósent í því landi á næstunni, muni því ásamt neikvæðum vöxtum á sparnaði verða ein stærsta eignaupptaka sem sést hefur í Þýskalandi um langan tíma. Það segja þeir og skrifa. Þrjú prósent verðbólga í næstfremsta óðaöldrunarhagkerfi veraldar er ofsapólitísk verðbólga. Hún er óðaverðbólga á elliheimili
Um 16.000 manns voru atvinnulausir í janúar og þar af voru 41 prósent frá ESB eða 6560 manns. Og ofan í það dæmi koma síðan 10-15 milljarða útgjöld á ári í peningahælisleitendur, sem flýja en taka því miður með sér fátæktina í ESB, til að láta Íslendinga um að glíma við hana hér heima. Síðan rotnar vinnumarkaður okkar eigin launþega vegna þessa innflutnings á ESB-þrælum. Þessu dæmi þarf að loka. Loka verður á þessa innfluttu ESB-fátækt
Sendum því Loga út í Wuhan-veiruleiðangur til Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Spánar, Portúgals og Danmerkur. Sendum hann í leit af bóluefni og ríkidæmi, þar sem hvorugt er að finna. En það er einmitt í þannig leiðangur sem Logi og ESB-kórfélagar hafa sent kjósendur Samfylkingarinnar í samfellt 20 ár
Ég er næstum því viss um að Logi og félagar eru að rugla ríkidæmi saman við ríkisdæmi - og réttlæti saman við ólæti og tortímingu, þar til ekkert er eftir handa neinum, nema honum sjálfum og ríkisdæmi hans,... eins og í ESB
Fyrri færsla
Dauðsföll Angelu Merkels kanslara
Misrétti, ójöfnuður og því miður fátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 11. mars 2021
Dauðsföll Angelu Merkels kanslara
DIKTAT MERKELS
Wolfgang Münchau og teymi hans á Eurointelligence skrifar í dag um dauðsföll Angelu Merkels. Lausleg þýðing:
****
"Enn sem komið er hefur þetta ekki gerst á stórskala (að talað sé um Wuhanveiru-dauðsföllin sem dauðsföll Merkels, GR). Enn sem komið er er Angelu Merkel og öðrum forsætisráðherrum ekki kennt persónulega um aukin dauðsföll vegna sameiginlegar óhæfni og getuleysis í krísustjórnun vegna kínversku Wuhanveirunnar
En Karl Lauterbach varaþingflokksformaður SDP (þýskir sósíaldemókratar í samsteypustjórn Merkels, GR) og sem einnig er prófessor í heilbrigðismálahagfræði og faraldursfræðum við háskólann í Köln, gerir það hins vegar, á varfærinn hátt, og afleiðingarnar eru augljósar: því ný rannsókn sýnir að breska B117-afbrigðið af kínversku Wuhanveirunni veldur 64 prósent aukningu í dauðsföllum, og það þýðir að mikill fjöldi fólks mun láta lífið áður en það nær því að hlotnast bólusetning gegn veirunni. Með öðrum orðum þá eru þetta dauðsföll af völdum Angelu Merkels, því það var hún sem ákvað að Evrópusambandsvæða bóluefnisinnkaupaferlið
Gögnin (Þýskaland, GR) sýna fall í fjölda smita frá því í lok desembermánaðar fram í miðjan febrúar, og óverulega aukningu í fjölda smita síðan þá (reyndar 9 prósent, GR). Og vegna þess að útbreiðsla breska B117-afbrigðisins er í gangi núna (það er í 46 prósentum nýrra tilfella, GR), þá búast faraldursfræðingar á borð við Karl Lauterbach við aukningu í smitum þegar litið er fram á veginn. Með aðeins 5,7 prósentuhluta þjóðarinnar nú þegar bólusettan með fyrstu stungunni, þá er sviðsmynd Lauterbach klárlega raunhæf. Á kjördag í september (þjóðþing, GR) mun meirihluti þjóðarinnar hafa verið bólusettur (kannski og kannski ekki, gæti verið 40-51 prósent, GR), en stjórnmál þessa pólitíska stefnustórslyss munu hins vegar enduróma í langan tíma fram yfir þann dag. Enginn er enn sem komið er að tala um dauðsföll Angelu Merkels. Þýska pressan reynir að forðast alla hugsanlega persónulega gagnrýni á kanslarann. En þessu máli hefur hún ekki stjórn á"
Tengt: Coumo er fallandi stjarna demókrata | Hvað varð um kínverska sendiherrann?
HRUN Í FJÁRFESTINGUM Í ESB
Nú er komið í ljós að neyðarlánin í ESB-löndum síðasta sumar hafa næstum öll farið í að bæta lélega eiginfjárstöðu fyrirtækja og í að fjármagna birgðahald. Fjárfestingar í ESB hafa hrunið næstum algjörlega og hafa ekki tekið við sér og munu ekki taka við sér nokkru sinni að ráði úr þessu, eða svo lengi sem Evrópusambandið er á lífi, því kjarnastaðan í heild í flestum löndum Evrópusambandsins er það ömurleg vegna tilvistar sambandsins og myntar þess, að ekki verður úr bætt. Um er að ræða skipbrot eða "depression" þar sem fyrirtæki og hagkerfin eru svo löskuð að aukið aðgengi að fjármagni getur ekki úr bætt. Þau geta ekki nýtt sér nýtt ferskt fé að ráði nema þá helst í þjóðargjaldroti, 70 prósent gengisfellingum, eða 65 prósent hækkun á gengi þýska marksins. Upphafstaða landanna var það vonlaus er þau tóku upp evru eftir að hafa samþykkt Maastrichtsáttmálann og fóru þaðan inn í convergence tímabilið (samræmingin) frá 1993-2001. Þetta lagast ekki. Það eina sem var samræmt þá voru ófarir, eins og í bóluefnastórslysi Evrópusambandsins í dag, þar sem upptaka bóluefnis getur ekki farið fram sökum ESB-eyðni
Fyrri færsla
Bóluefnaklúður ESB: Stalín er ekki hér, segja Rússar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 8
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 125
- Frá upphafi: 1387408
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008