Bloggfærslur mánaðarins, maí 2016
Þriðjudagur, 31. maí 2016
Guðna Th. "betur borgið" með annan lýð
*** "Alveg ósatt" ***
Ég "fávís lýðurinn", hef komist að þeirri niðurstöðu að íslenska þjóðin henti ekki forsetaframbjóðandanum Guðna Th.
Og ekkert af því sem Guðni segir ætti að túlka bókstaflega, segir hann þegar hentar
Forsetaframjóðandinn Guðni Th. er ekki til í neinni bókstaflegri merkingu. Maður sem ekki er til, mun aldrei hitta sjálfan sig, því hann er ekki til
Mín spurning er því þessi. Hver blés upp þennan mann sem forsetaframjóðanda. Hver gerði manninum þennan grikk?
Hvert skyldi lénsherrann, "vegna plássleysis", flytja hann næst. Og hvernig verður Guðni þá fluttur "fávísum lýð" í nýrri útgáfu
Fyrri færsla
Merkilegt af forsetaframbjóðanda
Túlki ummælin ekki bókstaflega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Mánudagur, 30. maí 2016
Merkilegt af forsetaframbjóðanda
Hefði hin íslenska þjóð verið svikin í Icesavemálinu, þ.e. með því að neita henni um að sækja lagalegan rétt sinn í málinu, þá hefði sá gjörningur getað endað svo illa að hægfara borgarastyrjöld yrði alls ekki hægt að útiloka sem afleiðingu
Þetta segi ég vegna þess, að það, að þurfa að lifa sem íslensk þjóð í meira en hálfa öld með skuldaklafa og greiðsluklafa sem nagar og borar sig inn í sál þjóðarinnar í svo langan tíma, hefði getað komið af stað svo miklum innri ófriði meðal okkar, að friður hefði verið útilokaður í landinu
Hvert einasta ár hefði þjóðin verið rukkuð og hvert einasta ár hefði hún spurt sjálfa sig um lög- og réttmæti rukkarans, og einnig þeirra sem í upphafi gengu erinda hans og neituðu þjóðinni um að leita réttar síns - og hræddu hana með Norður-Kóreuneistaflugi í bensíntanki vinstristjórnarinnar. Var þetta virkilega rétt og lögmætt?, hefði þjóðin spurt ár eftir ár, áratugum saman. Efinn og reiðin hefði borað sig djúpt niður í þjóðarsál og vitund okkar Íslendinga
En kannski var það einmitt tilgangurinn. Að reyna þannig að kollvarpa þjóðríki Íslendinga innanfrá. Og þannig að koma því til leiðar að sundruð og óréttmætt skuldug þjóð hefði verið neydd til að skríða inn í það Evrópusamband sem allan tímann lá að baki hræðsluáróðurs og sundrungar- og uppgjafarstjórnmála vinstri stjórnarinnar (Samfylkingar og Vinstri grænna)
Ísland ætti aldrei að gera samning sem það getur ekki staðið við. Það er því í hæsta máta furðulegt að í framboði til Forseta Íslands skuli vera maður sem hefði getað komið, ýtt og hvatt, þjóðinni inn í þá óbærilegu aðstöðu, hefði hann verið forseti þá. Hér á ég við forsetaframboð Guðna Thorlacius
Icesave mun koma aftur. Ekki í sömu mynd, en það mun koma aftur og þá gæti forsetavaktin fyrir þjóðina, eins og síðast, skipt sköpum um framtíð Lýðveldisins. Hvorki meira né minna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 29. maí 2016
Evrópa er skáldsaga
Evrópa Evrópusambandsins er skáldsaga. Og forsetaframbjóðandinn Guðni hefur lifað sig svo sterkt inn í þessa skáldsögu að hann trúir henni. Það sama gildir um hirðskáldið Andra. Þetta sá maður greinilega í sjónvarpi Stöðvar tvö
Þetta passar ágætlega við þá upplifun mína að báðir þessir sögu-persónu frambjóðendur til forsetaembættisins séu einnig skáldverk. En hver ætli hafi skáldað upp að þetta framboð af þeim sé eitthvað annað en offramboð. Það þætti mér gaman að fá að vita
Sama skáldun er í gangi varðandi "nýju stjórnarskránna" sem öngvir nema skáld nýju skálmaldar hafa beðið um, til þess eins að hægt sé að troða landinu inn í skáld-sögu þeirra
Eftir stendur bruninn, skammstafað ESB
Fyrri færsla
Hve lengi eru menn að jafna sig á ungdæmi sínu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28. maí 2016
Hve lengi eru menn að jafna sig á ungdæmi sínu?
Þetta er ekki stór spurning. En það er hægt að gera hana að stórmáli með því að kjósa rangan forsetaframbjóðanda. Það er ekki gott að þjóð þurfi að þjóna forseta sem tilraunastofa. Það er ekki gott þegar eldar loga
Í dag er umræðan í þjóðfélagi okkar þannig að við liggur að menn VERÐI að hafa aldrei gert neitt né átt neitt og þénað neitt, til þess að hægt sé að þræða þá í gegnum hið óefnislega nálarauga líðandi stundar. Nálarauga sem hannað er af að minnsta kosti ekki hinni íslensku þjóð sjálfri. Heldur af þeim sem vilja koma henni og þjóðarheimili hennar inn í brennandi hús. Húsi hönnuðu af brunaliðinu sem kveikti í Evrópu. Brunaliðinu sem kveikti í þjóðarheimilum Evrópu; þjóð-ríkjum hennar
Það sem sameinar þá sem allt í einu núna, þykjast vilja "færa valdið til fólksins", er að þeir vilja allir færa það yfir til Evrópusambandsins!
Er þetta ekki furðulegt og nær algerlega þegjandi samsæri flestra forsetaframbjóðenda gegn þjóðinni, nema alveg örugglega eins manns (Davíðs Oddssonar, sem einn hefur alltaf staðið algerlega á móti) til þess sem þeir kalla lýðræðis. Þannig vilja þeir kveikja í Íslandi. Það rennur aldrei af þessum evrukrötum, aldrei. Bensínbrúsinn bíður alltaf við höndina um leið og kjörklefunum er lokað í enda kjördags. Þá verður kveikt í
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 26. maí 2016
Aðskilanður komma og ríkis
Nú þegar kommar og kratar Íslands undir allskonar fánum hinna og þessara samtaka og flokka keppast við að brjóta Ísland niður, væri þá ekki rétt að skoða það hvort ekki sé loksins kominn tími á aðskilnað kommúnisma og ríkis?
Einnig mætti skoða aðskilnað öfgamiðju og ríkis. Þetta tvennt fjármagnar sitt pólitíska líf með því að stunda eins konar dópsölu stjórnmála; með því deila út dópi úr skattafjármögnuðum ríkiskassa til að kaupa sér atkvæði og til að gera kjósendur háða sér. Í kringum fjörutíu prósent af landsframleiðslunni er bara tekið til handa þessum öflum - og þau heimta meira og meira, verða aldrei södd
Á meðan er póstþjónusta á öllu Íslandi, auðvitað fyrir utan DDR-kústskaftaveldi Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar, mafíusvæðis pírata, komin hundruð ára aftur í tímann. Fólk og fyrirtæki bíða dögum saman eftir að póstur brjótist út í gegnum borgarmúrana, sem bréfdúfur komast ekki lengur yfir. Er þetta ekki aðskilnaður ríkis frá hinum örfáu frumskyldum sínum?
Sósíalistaríki hætta alltaf á endanum að hafa efni á sjálfum sér. Í Danmörku sósíalismans og (já þið munið: uppreisnarinnar frá miðju (Viðreisnar) hósta hlægja og gráta hér) sem Danir sjálfir kalla DDR-Light, var póstþjónustan nýlega færð aftur til þess sem var árið 1624. Slík er sigurgagna hins norrænda sósíalisma | Postvæsnet er sendt tilbage til 1624
Á meðan dreifir U.S. Mail pósti í heilli heimsálfu eins og að drekka vatn
Aumingjar
Fyrri færsla
Klaustur Íslands betur vopnuð árið 1523 en lögreglan er í dag
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 24. maí 2016
Klaustur Íslands betur vopnuð árið 1523 en lögreglan er í dag
"Þegar biskup vísiteraði þar árið 1523 var í klaustrinu borðbúnaður fyrir 70 manns en það bendir til töluvert stórs mötuneytis. Tjöld skildu að matsal vígðra og óvígðra. Þá voru þar 53 kýr og um 500 ær en við útreikninga á fjölda fólks í fæði er venjulega miðað við eina kú, eða sex ær, fyrir hvern og einn. Á staðnum voru níu orf en ljáir 15, tíu stjórar, tveir pálar, einn járnkarl, átta kvíslar, fimm rekur og sex sigðir til að skera korn eða mel. Þá lítur út fyrir að á staðnum hafi verið níu varðmenn en níu pansarar, sem voru einskonar albrynjur, voru til í Þykkvabæjarklaustri þetta sama ár"
Í helgarblaði Morgunblaðsins var fróðleg grein um fornminjar frumkristni-klaustra á Íslandi og rannsóknir á þeim. Þau voru níu. Tvö nunnu og sjö munka, segja þeir. Sennilega eru konungslostnir eigendur þeirra ekki í fasteignaskrá í dag, því við erum að tala um allt frá tólftu öld. En ég efast samt um að formlegt afsal sé til neins staðar eða hafi verið gert, því að viss kóngur annarrar þjóðar tók þetta til sín til þess að gamna sér með
Gamla Testamentið segir samt réttilega að enginn megi vera kóngur nema yfir einni þjóð - sinni eigin þjóð. Þarna sjáið þið hvað brot á lögmálum undir og nálægt Móses hafa í för með sér,- allt sullast úr landi. Þetta gildir enn þann dag í dag. Og frá og með þarna -þökk sé konungi annarrar þjóðar- hélt nískan líklega innreið sína á Íslandi. Já Guðni, þetta "nálgast" auðvitað rasisma í mér. Og auðvitað er það ömurlegt og tandurhreinn rasismi að Gyðingar skuli halda því fram að þeir hafi fært mannkyninu þessa miklu gjöf; þjóð-ríkið - en það gerðu þeir samt
En þessi Guðni Thorlacius Jóhannesson forsetaframbjóðandi sagði einmitt í fyrirlestri sínum á miðri Bifröstinni yfir um til ESB þann 3. maí 2013, að það "nálgast rasisma" að halda svona löguðu fram. Að eitthvað betra hér en þar hafi jafnvel haft þýðingu. Þarna, eftir um það bil 15 mínútur, hætti ég að geta hlustað á yfirlesturinn og slökkti, sálar minnar vegna. Fari svona niðurtal til fjandans og helst til útlanda herra sagnfræðingur. Sá fjandi hlýtur að vera betri en þessi hér
Charles Krauthammer segir að Vantrú sé ólíklegasta trú sem til er. Því er ég sammála. Góður maður í Borgarfirði sagði við mig: ég trúi til að skilja,- og þar lærði ég mikið. Ég trúi sem sagt ekki á Vantrú. Neibb, það geri ég ekki
En hvað um það. Mér sýnist að klaustur Íslands í frumkristni hér á landi hafi verið hlutfallslega betur vopnum búin til varna en ríkislögreglan okkar er í dag. Jafnvel betur búin til varna en allt Ísland er í dag. Er þetta ekki frekar skammarlegt. Munka- og nunnu reglan var örlátlegar útbúin til varna en lög reglan er í dag. Hverslags regla er þetta orðin eiginlega. Ekki skortir lögin. En hvar er öll reglan?
Fyrri færsla
Algerlega Guðlaust fyrirbæri - og heldur því auðvitað ekki
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 20. maí 2016
Algerlega Guðlaust fyrirbæri - og heldur því auðvitað ekki
Umræður um réttarríkið og sannleikann spunnust í athugasemdum vegna síðustu bloggfærslu minnar: Hvað er Marxísk menningarstyrjöld?
Bara svo það sé alveg á hreinu þá neyðist ég til að benda á og undirstrika að Evrópusambandið sem stofnun er algerlega Guðlaust fyrirbæri. Það þyrfti að minnsta kosti krufningalækni til að finna leifarnar af hornsteinum Vesturlanda í líkinu af ESB: Hornsteinn Vesturlanda er Jerúsalem. Honum hefur sambandið þegar afneitað og það hatar hann. Og annað vesturlenskt segir sambandið að sé handónýtt og að það þurfi því að "bjarga Evrópu" frá sjálfri sér.
Sprenghlægilegt. Af hverju að byggja heilt heimsveldi til að bjarga því sem sambandið segir að sé ónýtt? Mótífið hér er afar gruggugt og réttarlæknirinn þarf því að skera dýpra til að finna eitthvað sem til kynna gæti gefið að um vitsmunalegt líf gæti verið að ræða innan sáttmála Evrópusambandsins og politic þess
En það er hins vegar til nóg af Róm(arríki) í Evrópusambandinu (imperial state building = heimsveldishönnun). En Róm með sínu réttarríki er samt ekki nóg sem lím til að halda saman vænlegu ríki fyrir borgarana. Borgarar farsælla ríkja verða að hafa eitthvað meira en bara lög-og-rétt sem þeir geta sameinast um. Hið Opinbera torg getur ekki þrifist nakið. Borgararnir þurfa eitthvað stærra til að sameinast um og þar erum við, í fyrsta skiptið í þessum þræði, komnir að því stærsta af öllu, en það er það að einstaklingurinn er fæddur frjáls, eins og kristnin boðar
Það er ekki fyrir neitt að útgangan af Egyptalandi (Exodus) markar upphaf Vesturlanda, þar sem þrælaríkinu var sagt að fara til andskotans. Næstu 2500 árin eða svo var Gamla Testamentið notað til að byggja upp hornsteina Vesturlanda og til að stjórna þeirri uppbyggingu í formi þjóð-ríkja. En leiðarljósið var samt þessi undursamlega opinberun að einstaklingurinn fæddist frjáls. Að hann fæddist ekki sem þræll
Nefndur er "sannleiki" í fleirtölu. En margir sannleikar eru ekki sannleikur. Þeir eru bara skoðanir. Ef allir álíta að skoðun sín sé "sannleikurinn" og að skoðanir annarra séu "þeirra sannleikur" - þá er þar með úti um réttararíkið. Réttarríkið byggir á þeirri einföldu forskrift að það sé bara einn sannleikur; að rétt sé rétt og að rangt sé rangt
En eins og áður er sagt: þá getur réttarríkið alls ekki staðið eitt og sér. Það er ekki nóg til að halda saman góðu og lífvænlegu þjóðríki. Í Hinum heilögu ritningum finnst eina forskriftin að þjóðríkjum Vesturlanda sem til er í veröldinni. En þjóð-ríkið var eina vörn litla og óbreytta mannsins gegn heimsveldagræðgi og þrælaríkjum. Og landamærin eru einnig komin úr Gamla testamentinu. Þau eru sett til að vernda borgarana og til að hindra að ríki þenji þau út til að gleypa önnur ríki. Að kóngur geti aðeins verið kóngur yfir einni þjóð. Og að þjóðir munu áfram verða, til enda tímans
Og lagaheimspekin sem liggur á bak við lögfræðina er að stórum hluta byggð á kristinni trú. Lagaheimspeki er eina heimspekin sem notast við því sem næst allar aðrar greinar heimspekinnar. Dæmi: tilvistar og trúarheimspeki, stjórnmála heimspeki, vísindaheimspeki
Mín skoðun er sú að ESB-Evrópa sé í þann veg að detta út úr skilgreiningunni Vesturlönd, af því að hún hefur hent áttavitanum fyrir borð: hent Hinum heilögu ritningum fyrir borð. Lýður Evrópu gengur því til frétta við trédrumb og spyr hann til átta
Bandaríkin horfa ekki lengur til Evrópu. Þau horfa yfir hana, beint til Jerúsalem. Lestin styttist. Evrópa mun ekki verja hinn frjálsa himinn yfir Vesturlöndum. Svartur himinn færist því yfir Evrópu
Fyrri færsla
Hvað er Marxísk menningarstyrjöld?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 18. maí 2016
Hvað er Marxísk menningarstyrjöld?
Myndband 7,5 mín.: Hvað er Marxísk menningarstyrjöld?
Til þess að skilja hvað til dæmis stjórnmálaaflið DDRÚV stendur fyrir, þá þurfa menn að vita hvað Marxísk menningarbylting er. Marxísk menningarstyrjöld er DDRÚV + pólitískur rétttrúnaður + femínismi + píratar + góða fólkið sem drepur með heimsku sinni + fólk sem vill drekkja sinni eigin þjóð með annarri þjóð + umhverfðir kommar á umhverfismála og + Evrópusambandið. Þetta er það sem er vouge núna. Tær Marxisminn inn um bakdyrnar - ókjörinn að venju
Fyrri færsla
Veðurstofan gerði það samt - furðuleg áhættutaka
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þriðjudagur, 17. maí 2016
Veðurstofan gerði það samt - furðuleg áhættutaka
Átti "bara" eftir að tengja - "býst við"
"Hafdís segir að möguleikinn á bilun í kælibúnaðinum hafi verið fyrir hendi. Þetta er það sem við vorum hræddust við. Við vorum tilbúin með varaleið, sem á eftir að tengja, segir hún og býst við því að það verði gert á morgun. Þetta á ekki að geta gerst en það er oft þannig að ef eitthvað getur farið úrskeiðis þá gerir það það."
Spurning mín er þessi: Af hverju hættuð þið því sem þið máttuð ekki við að missa, fyrir það sem þið gátuð vel verið án (snemmbært start)? Af hverju gerðuð þið þetta ekki eftir bókinni og biðuð eftir að öryggi og rekstraröryggi væri tryggt?
Af hverju takið þið alla þessa miklu áhættu? Ef þið væruð banki, þá væri Veðurstofan gjaldþrota nú. Horfin. Tæmd
Hvað með að starta nú þeim litla vefþjóni sem á að þjónusta okkur Íslendinga, sem borgum launin ykkar, með veðurfregnum og spám í farsíma. Sá vefur ykkar hefur nú legið niðri í fimm daga, að minnsta kosti. Sá niðurtími er líklega heimsmet. Hvað er að??
--- m.vedur.is ping statistics ---
10 packets transmitted, 0 packets received, 100.0% packet loss
Mér hefur alltaf verið ákaflega hlýtt til Veðurstofu Íslands. En hér hristi ég hausinn í vantrú, það verð ég að játa. Reikningurinn frá Slökkviliðinu verður líklega engin smásmíði, býst ég við. Og hvað skyldi DMI segja? Cray þeirra næstum því kominn í flugeldabransann
Fyrri færsla
m.vedur.is ping og opinbert fé Ríkisskattstjóra et. al.
Þetta á ekki að geta gerst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 13. maí 2016
m.vedur.is ping og opinbert fé Ríkisskattstjóra et. al.
--- m.vedur.is ping statistics ---
10 packets transmitted, 0 packets received, 100.0% packet loss
Nú er á annan sólarhring farsímavefur Veðurstofu Íslands dauður. Ofurtölva þessarar ríkisstofnunar hefur líklega étið þann þjón almennings. Nema að hann sé hýstur í skattaskjóli. Frekar vonlaust er að nota aðalvef Veðurstofunnar sökum ofgreidds ónothæfis
Og svo Pósturinn sem er "opinbert hlutafélag", já hann hefur ekki lengur efni á að bera út póst í landinu sem hann hefur ekki efni á að starfa í, þannig að nú hættir hann sér ekki lengur út fyrir borgarvirki Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar, nema annan hvern virkan dag. Borgríkispóstur Íslands ætti að flytja í minna land. Til dæmis til Monaco
Svona er hið opinbetra. Eyðsluskylda þess gagnvart almenningi virðist komin í greiðslufall (default), þrátt fyrir að það hirði um 40 prósent landsframleiðslunnar í skattheimtufrekjur. Aumingjar!
Þess utan er ótrúlegt að vefur Veðurstofunnar skuli enn þann dag í dag, gera ráð fyrir því að *Flash sé á tölvum árið 2016 e.Kr.. *Flash er einn eitraðasti hugbúnaður sem upp hefur verið fundinn og framleiðandinn hefur meira að segja sjálfur gefist upp á honum og öllum þeim sem nota hann. Halló! Og þetta var algerlega og alltaf fyrirfram vitað af öllum þeim sem vit hafa á STÖÐLUM. Af hverju hlustuðuð þið ekki á þá? Þeir sem eytt hafa opinberu fé í *Flash, eru ekki starfi sínu vaxnir. Hvorki þá né nú!
Það er auðvitað þess vegna sem að Tíund tímarit Ríkisskattheimtu-frekjunnar kemur út sem *Flash og JPG (OMG!) og er útgáfan að sjálfsögðu framtalshýst erlendis í "skattaskjólum". Danmörk er númer 42 á lista yfir "skattaskjól" (betra en Botswana í Afríku), en zmags.com sem Ríkisskattheimtufrekjan á í vefviðskiptum sínum við með Tíund sína, er með svo mörg heimilisföng fyrir utan Danmörku að þau hljóta að enda annað hvort í botnlausu gjaldkeri Samfylkingarinnar eða í skjólum annars staðar
Þetta er nú meiri brandarinn. Að geta ekki framleitt einn andskotans PDF eða birt þessa fjórföldu Tíund sem HTML í Hypertext Transfer Protocol (HTTP). Ekkert slær HTTP og HTML út, nema kálfaskinn
Sökum vankunnáttu í starfi þarf Ríkisskattstjóri að leita til aflandsfélaga til að hýsa 60,4 Mb af ónothæfum gögnum eins tölublaðs Tíundar í formi sjötíu og tveggja mynda, sem kunnandi maður hefði getað komið fyrir í texta í HTML ásamt mynd-skreytingum á 3 til 4 Mb vefsetri hér heima, fyrir næstum ekki neitt og ofaní kaupið hefði Ríkisskattstjóri fengið skattatekjur af vinnunni við hýsinguna. Til hvers er höfuðborgarbeyglan með alla þessa ljósleiðara ef ekki er hægt að koma frá sér svona smotterí þaðan
Að vista texta á myndformi er þess utan eins og að segja: "Við handreiknum allar tölur hér hjá Ríkisskattstjóra. Við notum ekki tölvur af því að við kunnum ekki á þær. Við notum einungis tölvur til að hita tevatnið á þeim", eins og fröken skúringakona aflandsfélaga herra Ustinov gerði í Hot Millions 1968. Hvaða aular eru þetta?
Ég bendi þeim sem eru ekki með *Flash á að þeir geta leikið á aflandsbæli Ríkisskattstjóra og skoðað tölvuklámmyndirnar af Tíund sem JPG (OMG!), með því að tilkynna sig sem "User Agent" iOS í vafra (dæmi: OS X, virkja Debug-menu í Safari og nota viðeigandi "User Agent" og opna nýjan ramma (frame))
Já, þetta er greinilega opinber "stjórnsýsla" í skýjum - peningunum er bara hent í sjóinn og Akamai! notað til að skjóta risasmíðuð mistökin niður úr skýinu. Hugtakið "skýjatölvun" er tískuorð yfir þvælu og sölugas, eins og *Flash var á sínum tíma, selst vel til fáráðlinga eins og er
Einu sinni keypti ég nokkrar "ónýtar" Wang tölvur sem Alþingi "henti út" og velti 15 milljón dollara vörusölu og þjónustaði 30 þúsund viðskiptavini á þeim. Þær voru ekki ónýtari en það. Sóun er fánýti
Ofan í þetta kemur svo nýr ónýtur vefur Seðlabanka Íslands sem viðist ekki hafa hundsvit á neinu er tengist virðugleika, notendaviðmóti og einhverju stærra en að heimagerð saumavél knýi silakeppavef stofnunarinnar afturábak, því ekki fer hann áfram sá vefur. Barn virðist hafa hannað vefinn
Við skulum heldur ekki tala um nýja vef Hagstofunnar sem unninn var af leikskólaráðunautum, eða nefnd. Sá nýi vefur er ekki nema 20 sinnum verri en síðasta fíaskó Hagstofunnar. Það tók ekki nema tæplega eitt ár að koma RSS efnisveitu vefsins í það horf að hægt væri að nota hana. Húrra fyrir aulahætti! Stofnunin er ekki einu sinni fær um að hýsa ársrit sitt sjálf, heldur leiðir hún þann almenning sem borgar brúsann inn í áskrift! að enn einu erlenda skattaskjólinu
Ef að Landhelgisgæslan, eða jafnvel sjálfur Voldemort, myndi missa klippurnar niður fyrir vestan og austan land, þá myndi Hið Opinbera hrökkva af hjörunum, því allt allt of mikið af vefumsvifum þess er hýst erlendis í skattaskjólum. Hvers eiga innlendir hýsingaraðilar sem greiða skatta á Íslandi að gjalda þegar þið hagið ykkur svona. Eruð þið aumingjar eða hvað?
Það er alveg greinilegt að hið opinbera kann ekkert með skattfé borganna að fara. Vér ættum því að neita að borga!
*Flash ® skrásett Shitware
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.5.2016 kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ísland og Grænlandsmálið
- "Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 166
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 91
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008