Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2016

Brotið tekjublað í sögu Viðreisnar komið út á leiðaraformi

Yoram Hazony og George Weigel í Jórsölum í fyrra: Framtíð Vesturlanda. Öskrað er frjálslyndi. Frelsis til að gera hvað?

Leiðari Morgunblaðsins fjallar um "frjálsa verslun" Viðreisnar með hlutabréf í dag. Hér er hins vegar afleiðarinn:

Það er ekki undarlegt að hin nýja stjórnmálahreyfing Viðreisn skuli hafa séð sig knúna til að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn fyrir fullt og allt, til að geta loksins orðið það sem þeir auglýsa sjálfir í dagblöðum sem verandi "frjálslyndir". Líklega eru þetta náttúrleg örlög þeirra sem urðu algerlega frjálslyndir af að misskilja heilar Tvær ritgerðir um ríkisvald eins og Locke höfundurinn gerði líka svo hroðalega sjálfur

Formaður Viðreisnar er því orðinn algerlega frjáls. Frjáls frá skyldum. Pólitískt frjáls frá fjölskyldu, foreldrum og umfram allt eins og svo margir aðrir eru í dag; frjáls frá gamlingjanum honum Móses og mannasáttmála hans við einn Guð: sem eru eitt-tvö-þrjú-fjögur-fimm-sex-sjö-átta-níu-tíu fyrirmælin, eða lágmarkssáttmálann, sem engin ríkisstjórn nokkurs staðar er kenna vill sig við Vesturlönd, er æðri, hvað svo sem þeim ríkisstjórnum sjálfum kann að þykja í oft svo ömurlegum lagasetningum sínum. Oftast á þingi, nema náttúrlega í ESB sem er ný gömul hugmyndauppskrift til einræðs

Já, Móses-sáttmálann sjálfan sem auðvitað anti-imperial Mótmælendahreyfing Þjóðkirkju okkar uppgötvaði og tók til sín eftir endalausan hroða esblegra imperial heimsvelda Egyptalands, Assýríu, Babýlon, Persíu, Rómar og sem veitti enduruppgötvun sinni brautargöngu til okkar hér og nú sem þjóðríkjum Vesturlanda, að hætti fyrirmyndarþjóðríkis Davíðs konungs, sem fjallað er ítarlega um í Hinum heilögu ritningum, sem jafnvel Patton sagðist lesa í "hvern einasta helvítis dag". Engin önnur bók mun nokkru sinni koma út í stað Ritninganna

Vesturlönd eiga líf sitt þessari bók að þakka, en ekki frjálsri verslun með bæði litlum og stórum bókstaf, og heldur ekki tekjublaði né vísbendingum um hvað sem er annað. Stóra bókin gaf okkur skiptingu ríkisvalds, hógvært ríkisvald, landamærin, þjóðríkið og þau sannindi að frelsinu fylgir ábyrgð og skyldur. Hún gaf okkur metnað, samkeppni, göfuglyndi og þjóð, ættjörð og þjóðarstolt, svo fátt eitt sé nefnt og einnig heilan Sjálfstæðisflokk, en ekki hálfan

Bókin heilaga hataði imperial heimsveldi og bannaði að stjórnmál yrðu að alþjóðavæðingu undir neinum merkjum, eins og til dæmis alþjóðavæðingu morða og úthreinsana á stóriðnaðarskala sem síðast fóru fram í allri Evrópu til Rússlands niður í Norður-Afríku og til Shanghai, en á öllum þessum glóbal stöðum var Gyðingum samkvæmt regluverki þýska imperial heimsveldisins, varpað í fangabúðir svo hægt væri að flytja þá þaðan til útrýmingar. Svona heimsveldi bannar bókin stóra algerlega. Hún harðbannar því einnig allt Evrópusambandið, þó svo að það sé enn sem komið er ekki orðið eins ömurlegt, en það mun það verða, eins og öll slík fyrirbæri verða

Forstjóri Viðreisnar hefur um langan tíma æft sig í útgáfu á nafngreindum skattatekjum landsmanna og grætt á þeim mikið fé. En aldrei þessu vant þá neitar hann nú að gefa upp hvar, hversvegna og hve mikið hann varð einmitt svona algerlega frjálslyndur. Ekki varð hann það í Sjálfstæðisflokknum, svo mikið er víst, því annars hefði hann ekki neyðst til að yfirgefa þann flokk minn og manna til að geta orðið svona algerlega frjálslyndur ESB-stalínisti

Algerlega frjáls viðskipti Viðreisnar eru þess eðlis að Viðreisnarmenn þurftu auðvitað að fórna foreldrum sínum til að geta stundað þau, svo frjáls er Viðreisn. Þetta algera frelsi var bara alls ekki hægt að stunda í Sjálfstæðisflokknum. Segja þurfti því bless við foreldrana. Fórna þeim og fara burt, því að við Sjálfstæðismenn vorum, erum og verðum ávallt svo íhaldssamir og algerelga ófrjálslyndir að við tímum ekki að fórna sjálfstæði þjóðríkis Íslendinga í þágu Benedikts, Þorsteins og Þorgerðar

Hve lengi mun þetta fólk lifa af svona frjálslynt? Seríurit formanns Viðreinar, Vísbending, varð mér eitt sinn svo mikið og gott efni að ég gat notað það í grein: Áhlaupið á íslensku krónuna

Fyrri færsla

Sundrung þjóða


Sundrung þjóða

Þjóð sem þarf tíu stjórnmálaflokka í herlausu landi er illa stödd. Hún hættir lífi sínu til óþurftar. En það eru stjórnmálamenn sem eru að sundra þjóðinni. Það er ekki þjóðin sem hefur sundrað stjórnmálunum

Og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að stjórnmálamenn hafa sundrað þjóð með því að selja henni falskan pólitískan varning. Í okkar tilfelli; ábyrgðarlitlir vegna þrúgandi velmegunar sem sameinuð íslensk þjóð um þjóðríki sitt skaffaði þeim

Gengis Kahn klíka hins yfirríkislega alþjóðaisma er á ný að reyna að læsa klóm sínum í stjórnmál þjóða. Hún boðar tortímingu hornsteina Vesturlanda, eins og sósíalistar kommúnisma og nasisma gerðu einnig. Hið sama gera ESBistar í dag

Sumir stjórnmálaflokkar samrýmast ekki framhaldslífi þjóða. Þeir binda enda á líf þjóða því að þeir boða upplausn þjóða og endurkomu alþjóðlegs og yfirríkislegs alræðis, sem ávallt endar sem skrílræði. Píratar eru til dæmis slíkt alþjóðlegt svart afl. Þeir eru endastöð en ekki upphaf. Segja má svipað um fleiri nýjustu tíma flokka

Kjósendur verða að gera sér grein fyrir því að allt er ekki gott í veröldinni. Sumt er vont, eins og sést. Og sumt hefur alltaf verið vont, og verður ávallt vont - fyrir þjóðir og þjóðríki þeirra

Fyrri færsla

Það hitnar: og volgnar nú Þrakía á ný


Það hitnar: og volgnar nú Þrakía á ný

Það hitnar

Einkafjölmenningarvinur Þýskalands, Erdogan forseti næstum alls Tyrklands og hins þriggja milljón manna tyrkneska minnihluta einmitt Þýskalands, hélt mikla ræðu í háskóla einum í Tyrklandi um helgina. Hann sagði að Þrakía tilheyrði svo gott sem Tyrklandi, en ekki Grikklandi. Svo fór hann sömu orðum yfir til Kírm og Kýpur og upp Balkanskagann. Ekki er skrítið að Grikkir neiti að skera niður herinn sinn að kröfu Þýskalands, sem Bandaríkjaforseti sagði í gær við ítalska forsætisráðherrann, að væri sjálf orsökin fyrir stjórnmálaástandinu á Ítalíu. Hvað skyldi frú uppstoppuð Merkel segja við þessu á safni sínu

Og það hitnar

Um 96 prósent af íbúum Anbar héraðs (Sunni meirihluti) og 55 prósent íbúa Mosúl (Sunni meirihluti), þ.e. flestir þeir sem búa á landsvæðum sem Mosúl er helsta borgin fyrir, sögðu á sínum tíma, árið 2005, nei við þeirri nýju stjórnarskrá Íraks sem nú hefur sent herafla sinn til að frelsa þá ekki frá en með því sem þeir vildu ekki samþykkja. Ekki er nándar nærri allt sem sýnist, frekar en fyrri daginn

og hitnar

Það styttist óðum í allsherjar upplausn og enduruppstillingu á því sem varð niðurstaðan úr bæði fyrri og síðari heimsstyrjöldinni - og kalda stríðinu. Mikil og ófriðsamleg ný uppstilling á útskaganum Evrópu, sem er minnsta heimsálfa veraldar út úr meginlandi Evrasíu, er fyrirstandandi, ásamt mestum hluta Austurhvels jarðar. Þeir sem fastir eru í heiminum sem varð til úr síðustu þremur stóru stríðum, munu eiga erfitt með að fóta sig héðan af. Hollt er að muna að Rússland er meginland útkjálkans Evrópu

Fyrri færsla

Andófsmenn fá enn gamla pakka Stalínistanna


Andófsmenn fá enn gamla pakka Stalínistanna

Þegar sovéskum andófsmönnum tókst að flýja meint sæluríki vinstrimanna á Íslandi, þá var þeim af vinstrinu alltaf tekið sem svikurum hér á landi og víðast í Evrópu. Sérstaklega þegar andófsmennirnir sögðu frá raunveruleikanum í bákni kommúnismans. Þá fengu þeir það óþvegið frá sanntrúuðum vinstrimönnum og málgoggum þeirra

Í dag er þetta svipað. Þegar sagt er frá raunveruleikanum í hinu nýja sæluríki vinstrimanna, löndum Evrópusambandsins, þá eru viðbrögðin nær undantekningarlaust þau, að höfðinu er stungið í sandinn, steypu sprautað í eyrun og afturendinn látinn moka skít yfir staðreyndir. Til dæmis þær að tilvist Evrópusambandsins hefur hvorki skilað hagsæld, öryggi né friði til þeirra sem búa við það - til þeirra sem búa við samband sem enginn bað um nema elíta, alveg eins og var í sovét1 - og að Evrusvæðið er hvorki meira né minna en versta efnahagssvæði veraldar

Oft er bara hringt í böðulinn -eða nokkrir dálkar af fátækum stálevru sannleika klipptir út úr Brusselblaði- og hann látinn gefa út nýtt fæðingarvottorð fyrir líkin, svo þau geti talað það sem þarf til að viðhalda trúnni á sæluna út við sokkið sólarlag sambandsins. Aldrei er komið með annað en skít undan skáldanöglum króníska vinstrisins. Ekkert varðar þeim um það sem er að gerast, frekar en á fyrri öld fangabúða vinstrimanna og gluggatjalda hókus pókuss. Aular

Fyrri færsla

Frétt: Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl - er það?


Frétt: Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl - er það?

Er þetta raunhæft? Það leyfi ég mér að efast um

Mosúl er milljón manna borg. IS hefur haft tvö ár til að byggja vígi sitt í borginni. Þeir hafa haldið borginni í tvö ár. Nefna má að til dæmis Bandaríkjaher hefur aldrei náð svo stórri borg á sitt vald með því að berjast frá götu til götu, sem er eina leiðin ef ekki á að gera borgina að þeirri rúst sem einmitt byggir varnir óvinarins enn sterkari og torveldar alla sókn að honum. Rauði herinn missti 300 þúsund manns þegar hann fór inn í Berlín. Mannfallið gæti orðið stjarnfræðilegt og hér er að mínu mati einungis um áróður að ræða. Enginn her mun voga sér þarna inn

Þriðja eldaflaugaárásin á einni viku var á föstudaginn gerð á skip bandaríska flotans á alþjóðlegri siglingarleið í Rauðahafi. Um það bil 10 prósent af öllum siglingum á heimshöfunum fer um þetta svæði. Lokist það þá þarf að sigla suður fyrir Gróðrarvonarhöfða, sem oft tekur tvær vikur. Allt er reynt til að inndraga Bandaríkin enn frekar í fjölmenningarstyrjöld Mið-Austurlanda, sem legið hefur og marrað og úlmað síðan að kalífat Ottómanska heimsveldisins gaf upp öndina 1919

Hefur einhver tekið eftir því hversu hin efnahagslegu bönd Tyrklands og Þýskalands eru orðin svakaleg. Hvað segir ESB-Evrópa við því?, fyrst að ESB var stofnað til að allir gætu aukið friðinn með því að vera með nefið niðri í öllum pottum allra annarra ríkja samsteypunnar, nema auðvitað Þýskalands og Frakklands. Svo tryllast ESB-menn þegar Pólverjar hætta við 50 Airbus vesalingaþyrlur og ætla í staðinn að gæta hagsmuna sinna með því að smíða þær sjálfir í þeim Black Hawk verksmiðjum sem Sikorsky Lockheed Martin er með í Póllandi. Frakklandsforseti hótar því Pólverjum með "pólitískum afleiðingum". Ætlar hann kannski að siga Rússum á Pólverja? Mikið gengur þetta allt vel og fallega fyrir sig þarna í afglapasæluríki ESB-beljunnar

Ekki veit ég enn hvernig mér líst á fyrirætlanir franskra yfirvalda að gera borgara landsins að vopnuðum varð- og eftirlitsmönnum vegna hryðjuverka íslamista í landinu. Var þetta tilgangurinn með frönsku byltingunni? - að láta borgarana um að hafa eftirlit með borgunum? eða er hugmyndin austurþýsk að uppruna. En kannski er ég bara svona vitlaus að sjá ekki glæsileikann í þessari skelfilegu vanþróun niður á lægsta plan. En allt ber að sama brunni á meginlandi Evrópu: sagan er að endurtaka sig þar í nýrri mynd. Einskis góðs er þaðan að vænta

Fyrri færsla

Af hverju vilja píratar útrýma Sameinuðu þjóðunum ?


mbl.is Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju vilja píratar útrýma Sameinuðu þjóðunum ?

SUNNUDAGUR

Að sameinast um - er ekki sameining

Birgitta Jónsdóttir hafði skuggalegan áhuga á Sameinuðu þjóðunum. Ekki veit ég á hverju hún og flokkur hennar hafði áhuga þar, nema þá helst tortímingu þjóðanna sem eru í samtökunum. Þessa dagana er enn einn Íslendingur úr alþjóðaelítuhreyfingu pírata staddur þar á framfærslu íslenskra skattgreiðenda

Eins og aljóðavæðing viðskipta- og fjármála vill og krefst í dag, þá krefst alþjóðavæðing stjórnmála einnig þess að þjóðríki þjóðanna séu þrædd upp á lyklakippur hinna alþjóðlegu elíta, til að láta þau vinna í þeirra þágu. Þessar elítur ætla ekki að vinna fyrir þjóðríkin né þjóðir þeirra, heldur krefjast þær að þjóðríkin vinni fyrir þær. Séu þrælar þeirra. Elítur þessar tala eigið tungumál og eiga lítið sameiginlegt með litla manninum sem talar íslensku sína í næsta hverfi eða næsta bæ. Þær eiga meira sameignlegt með elítum í öðrum löndum, jafnvel hinumegin á hnettinum, og þær nota sömu brandarana um þá sem tala ekki tungumál þeirra

Þetta er illilega þveröfugt við allt gott sem unnist hefur síðan að breska iðnbyltingin réði niðurlögum furstaklíkudæma elítuvelda hins vestræna heims. Og það var einnig það sem hin nýja alþjóðavæðingin átti upphaflega að gera, hún átti að vinna fyrir þjóðríkin, en þau ekki fyrir hana. Þjóðríkin og þjóðir þeirra áttu ekki að vinna fyrir alþjóðavæðinguna. En hin alþjóðlegu og ríkisfangslausu elítuveldi viðskipta- og stjórnmála hafa því miður tekið alþjóðavæðinguna yfir og sú fjandsamlega yfirtaka hefur staðið yfir síðan 1989, eða í tæplega 30 ár. Og sömuleiðis voru það einnig alþjóðastjórnmálin sem áttu að vinna fyrir þjóðríkin en ekki öfugt. Þjóðirnar áttu ekki að þræla fyrir alþjóða stjórnmála elíturnar, né hvað þá heldur fyrir hinar alþjóðlegu elítur viðskipta og fjármála

Breska iðnbyltingin vann fyrir þjóðríkin og þjóðirnar, en ekki öfugt. En alþjóðavæðing viðskipta, fjármála og stjórnmála er hins vegar að reyna að eyðileggja þjóðríkin og þjóðir þeirra í þeim tilgangi að gera þau að þrælum hinna nýju furstaklíkudæma elítuvelda nýjustu tíma. Færa þjóðríkin inn í furstadæmin sín og einangra þjóðir þeirra frá hinni nýju alþjóðlegu yfirstétt elíta, sem er að yfirtaka stjórnmál þjóðanna og gera sjálft hugtakið þjóð dirty

Fyrsta grein stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem undirritaður var 26. júní 1945 í San Fransisco í Bandaríkjum Norður-Ameríku, er sjálfur hinn tilvistarlegi hornsteinn Sameinuðu þjóðanna. Íslendingar fengu aðild að Sameinuðu þjóðunum þann 19. nóvember 1946. Í þessari allra fyrstu grein stofnsáttmálans stendur:

"Markmið hinna sameinuðu þjóða er að efla vinsamlega sambúð þjóða á milli, er byggð sé á virðingu fyrir grundvallaratriði jafnréttis og sjálfsákvörðunarréttar, og gera aðrar hæfilegar ráðstafanir til að styrkja alheimsfrið"

Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna gengur sem sagt ekki út á að útrýma þjóðum og leggja landamæri þeirra niður, heldur að elfa sjálfsákvörðunarrétt og öryggi þjóða. Og þjóðir geta einungis í öryggi þrifist vel í þjóðríkjum sínum. Landamæri eru frumforsendur þjóðríkja þjóðanna, tilvistar þeirra og öryggis. Landamærin og þjóðríkið eru pólitísk hönnun úr hinum Heilögu ritningum, sem jafnframt eru hinn tilvistarlegi hornsteinn Vesturlanda

Landamæri stuðla meðal annars að því að koma í veg fyrir að reynt sé að þenja ríki út og éta önnur ríki. Að halda ríkjum innan landamæra sinna. Hinn 3500 ára lærdómur hinna Heilögu ritninga er sá, að enginn má nokkru sinni komast í þá aðstöðu að drottna yfir heiminum. Þetta var vitað þegar Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar í rústum ríkis sem braut niður landamæri, þandi sig út og gleypti önnur ríki og reyndi að gleypa allan hinn siðmenntaða heim. Bæði nasismi og kommúnismi eru alþjóðlegar stjórnmálahreyfingar stjórnmálaelíta sem ávallt hafa ætlað sér að þræða þjóðir og þjóðríki þeirra upp á lyklakippu sína - til að drottna yfir þeim

Píratar hafa á stefnuskrá sinni að eyðileggja þann merka áfanga sem náðist með því að gefa þjóðum sjálfstæði, sjálfsákvörðunarrétt og fullveldi í eigin málum svo að þær geti með öðrum þjóðum stuðlað að betra lífi fyrir þjóðirnar

Forsenda þess að Sameinuðu þjóðirnar gátu orðið til er sú, að til séu þjóðir sem standa sameinaðar um eitt að minnsta kosti eitt: Að vera áfram þjóðir. Tilgangurinn var ekki að sameina þjóðirnar. Það er alveg stranglega bannað og það er jafnframt það versta sem hægt er að gera mannkyninu

Píratar eru enn ein kynslóð af kjánum í fjölskyldu síðustu fífla mannkynssögunnar: alþjóðabyltingu kommúnista. Kommúnisminn og nasisminn kröfðust þess að þjóðin og þjóðríkið ynni fyrir kommúnismann og nasismann og yrðu þrælar þeirra. Og auðvitað voru þær hreyfingar alþjóðahreyfingar, eins og píratar eru alþjóðahreyfing kjána sem leggja vilja niður landamæri og útrýma þjóðríkjum þjóða. Þessi slæmu fyrirbæri lykta öll banvænt fyrir allar þjóðir og þjóðríki þeirra. Svo ekki skaltu ganga í neinar þeirra glansandi gildrur

Alls þessa vegna, er Brexit svona ofboðslega mikilvægt og áríðandi. Og þessa vegna er Brexit svona óskaplega mikið og stórt mál. Það getur að mínum dómi orðið að stærstu breytingum sem orðið hafa á Vesturlöndum síðan að breska iðnbyltingin breytti heiminum. Brexit er ekki bara Brexit, það er miklu stærra og dýpra mál en bara útganga Bretlands af elítuveldi Evrópusambandsins. Þetta hefur breska Íhaldsflokknum orðið ljóst þegar sest var niður og dómur kjósenda skoðaður niður í kjöl og einnig í skuggalegum aðdraganda kosninganna, sem tryllti alþjóðaelítuna úr hræðslu og gerði flest málgögn hennar að stikandi ómarktækri hlandfor til eilífðarnóns. Afsakið orðbragðið, en þetta er því miður satt og rétt

Og dómur kjósenda verður tekinn grafalvarlega því að þetta er síðasti séns sem Bretland hefur til að beygja af braut eyðileggingar sem tortímt getur flestu því góða sem vannst með iðnbyltingunni fyrir sérstaklega litla manninn, sem setið hafði fastur og fjötraður í fangageymslum elítuvelda í fimm þúsund ár. Hvorki meira né minna

Við lifum á afar sögulegum tímum, því að árið 2008 breytti heiminum til frambúðar og hvert eitt rangt skref í viðbót getur eyðilagt margt það góða sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í dag. Þetta er síðasti séns sem Bretland hefur innan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars til að framkvæma þær nauðsynlegu breytingar sem verður að gera. Sé hann ekki virtur og vandlega nýttur, þá munu breytingarnar fara fram utan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars: þ.e. annað hvort með byltingu eða borgarastyrjöld

Í komandi kosningum til Alþingis Íslendinga er mikilvægt að hafa þetta efst í huga: að segja nei við því sem er rangt og slæmt fyrir þjóð vora og hið íslenska þjóðríki okkar. Ekki kjósa alþjóðaelítuflokka, hverju nafni sem þeir nefnast - og er Evrópusambandið og aðild að því þar efst á listanum yfir banvænt eitur fyrir þjóðir og þjóðríki okkar

Ég sendi Theresu May forsætisráðherra Bretlands mínar ýtrustu baráttukveðjur í baráttu Íhaldsflokks hennar fyrir því að endir sé bundinn á yfirríkisleg völd ríkisfangslausra elítuvelda í landinu. Ég margtek hatt minn ofan fyrir henni og breska Íhaldsflokknum fyrir Brexit, og ég veit að systurflokkur þeirra hér á Íslandi mun taka við keflinu og sýna okkur 1944 á ný. Því trúi ég og treysti og þess vegna gekk ég í Sjálfstæðisflokkinn um daginn. Fagna ég brottför Viðreisnar úr Sjálfstæðiflokknum. Af því fólki mun líklega aldrei renna. Þú ættir að gera hið sama eða að öðrum kosti ganga til liðs við Framsóknarflokkinn, sem einnig er massíft bolverk gegn elítumusteri Evrópusambandsins. Kjóstu með Íslandi, en ekki á móti því

Fyrri færsla

Fátæktin dafnar og vex í Evrópusambandinu


Fátæktin dafnar og vex í Evrópusambandinu

Þegar Bretland yfirgefur Evrópusambandið á næstu tveim árum, þá minnkar sambandið um tæplega 20 prósent, fjárhagslega. Einn fimmti hluti fer, en fjórir sitja fastir eftir. Og ESB-báknið losnar þá við um helming af öllu lýðræði og ekkert land verður þá eftir í sambandinu sem hefur hernaðarmátt sambærilegan við þann breska. Næst stærsta ríki sambandsins er að fara úr því. Bless, bless og haldið endilega áfram á leið ykkar niður til fjandans, en sú vegferð ykkar verður algerlega án okkar

Þegar Bretland er farið þá hefur áhuginn á lýðræði sem pólitísku stjórnarfyrirkomulagi minnkað í heild um 60-70 prósent í öllu Evrópusambandinu, og var hann ekki sérlega mikill fyrir. Allt niður í 40 prósent í mörgum ESB-ríkjum. Yfirgnæfandi verður restin af ESB hinu vaxandi einræði sennilega mjög fegin, því að þeir sem eftir sitja trúa flestir mikið á einn "sterkan mann". Og Þýskaland er ennþá í gangi með frumtilraun sína til lýðræðis, og ferst það illa úr hendi, eins og sést á ríkisstjórn landsins, sem ennþá er næstum því bankakerfið að innan og utanþings

Nettó-framlag Bretlands til reksturs Evrópusambandsins var tæplega 15 milljarðar evra á síðasta ári. Bretar borguðu 15 milljarða meira til ESB en þeir fengu þaðan. Til samanburðar þá var nettóframlag Frakklands til sambandsins 7,2 milljarðar evra það árið. Beint fjárhagslegt framlag Bretlands var því tvöfalt stærra en framlag Frakklands. Og það munar um minna. Það munar um tvö Frakkalönd

Núverandi sjö ára fjárlagatímabili Evrópusambandsins lýkur árið 2020. En löngu áður þarf að koma sér saman um rammann fyrir næsta sjö ára fjárlagatímabil. Það verður skrautleg samkunda. En á hverju ári þurfa aðildarríkin og framkvæmdastjórn sambandsins að koma sér fyrir innan þess ramma, sem áratugum saman aldrei hefur fengist samþykktur af endurskoðenda, og semja í kröppum dansi um bókhaldslega falsaða tilvist sína þar. Þeir sem fá mest vilja að sjálfsögðu dansa harðast á bökum annarra. Þeir sem borga mest dansa ekki við neinn. Hvorki Svíþjóð né Finnland hafa nokkru sinni fengið einn grænan eyrir frá ESB. Eru þau farin að þreytast á dansinum og fyrir alvöru byrjuð að tala um brottför. Finnaland kemst hvergi því það er frosið fast í evru sem gerir landið fátækara með hverju árinu sem líður í skrúfstykki evrunnar

Um fátt er að velja fyrir þau 27 ríki sem eftir eru í sambandinu því að 11 af þeim eru gömul Sovétríki og geta ekki borgað. Þá eru vonandi 16 ríki eftir til að borga brúsann. En 5 ríki af þeim 16 eru gjaldþrota, geta ekki borgað og bíða eftir að fá að komast í þjóðargjaldþrot á réttum tíma. ESB-aðildin byggði upp gjaldþrot Grikklands á 30 aðildarárum með fé annarra ríkja og tókst að koma landinu í eina samfellda rjúkandi rúst, sem er heimsmet, fyrir 113 milljarða evra, í ekki neitt! Þá eru heil 11 ríki eftir. En 9 af þeim 11 ríkjum sem þarna eru eftir og sem ekki eru enn gjaldþrota eða orðin að gömlum Sovétríkjum, eru einungis smáríki sem engan veginn geta haldið fimm gjaldþota og ellefu Sovétríkjum uppi. Þá er bara um tvenn stór ríki að ræða sem eftir eru á listanum

Og hvað skyldi nú þeim tveim stórríkjum, sem eftir eru, detta í hug til að leysa fjármögnunarvandann. Banakerfi Þýskalands hristist og skelfur og Frakkland getur ekki mikið lengur nauðgað sér og barið niður franska byltingarandann, sem varðveita átti neista hennar öllu landinu til framtíðar lífsviðurværis, án þess að hún endurtaki sig sjálfkrafa. Atvinnuleysi í Frakklandi er 10 prósent og hefur verið svo í 30 ár. Og Þýskaland hefur bara blásið út og gnæfir nú algerlega yfir því

Það verður fróðlegt að sjá hvaða nýja tröllslega og eyðileggjandi skattheimta verður lögð á þau ríki sem enn yfir höfuð eru sköttunarleg í sambandinu, því ekki mun báknið sætta sig við minna spillingar- og mútufé til sinna umráða

Fyrri færsla

Kosningabaráttan í Bandaríkjunum ekki einsdæmi


Kosningabaráttan í Bandaríkjunum ekki einsdæmi

Staðan 1968

Í gær horfði ég á aðrar kappræður bandarísku forseta-frambjóðendanna. Fyrirkomulag þeirra var haft í félagsheimilastíl þar sem viðstaddir kjósendur áttu orðið og spurðu framjóðendur spurninga. Á Íslandi virðast félagsheimili landsins vera komin út í kuldann sem blæs yfir landið frá Reykjavík

Heldur ekki núna, get ég tekið undir að Hillary Clinton hafi gengið út úr félagsheimilinu sem sigurvegari. Sigurvegarinn var hin opna umræða og taparinn voru þeir felustaðir sem eru helstu vígstöðvar Reykjavíkurstjórnmála

Þessi kosningabarátta í Bandaríkjunum núna er ekki neitt miðað við kosningabaráttuna 1952 og 1968. Þar var spennan tífalt magnaðri, segja þeir sem þekkja hve best til

Árið 1952 var það þreytan vegna Kóreustyrjaldarinnar, undir fána Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar og svo kommúnistaskelfingin frá Heimsveldi illskunnar í Sovét sem var að gera útaf við sálarró bandarísku þjóðarinnar

Truman neitaði að gefa kost á sér þó svo að honum væri það heimilt. Stevenson og Eisenhower urðu forsetaframjóðendur undir tættum, mögnuðum og eldfimum innanríkis-aðstæðum og McCarthy kynnti undir kötlunum sem voru við það gera útaf við geðheilsu kjósenda, sem vissu vel að Kreml var með njósnara í Bandaríkjunum á sömu kjörum og Bandaríkin höfðu sína njósnara í Kremlarhöll. Kalda stríðið var að skella á, Berlín var að farast og sigur í Kóreu var algerlega undir bandarísku þjóðinni kominn, en hann var samt þoku hulinn inni í óvissri framtíð

Það er ávallt erfitt fyrir lýðræðisþjóðir að hefja varnarstyrjöld, halda hana út og umfram allt að enda þær. Klofningur meðal þjóðarinnar veðrur oft reyndin, en samt ekki alltaf

Árið 1968 var bandaríska þjóðin klofin sem aldrei fyrr. Robert Kennedy frambjóðandi Demókrata var ráðinn af dögum kvöldið sem hann sigraði forkosningarnar í Kaliforníu, aðeins tveimur mánuðum eftir að Marin Luther King var drepinn. Víetnamstríð Demókrata klauf þjóðina í herðar niður og Johnson, eins og Truman, neitaði að gefa kost á sér því hann vissi að hann myndi tapa. Valið stóð á milli hins óvinsæla Nixons og hins óvinsæla Humphrey, sem álitinn var dulbúið framhaldslíf Johnsons

Flokksþing Demókrata í Chicago fór fram undir mótmælum 10 þúsund manna í svo kallaðri "friðarhreyfingu" þar sem bæði lögregla og þjóðvarðlið reyndu að halda hinni lýðræðislegu samkundu Demókrata opinni. Meira en þúsund manns særðust í átökum, lögreglan stormaði kosningaskrifstofur eins framjóðanda flokksins og handtók allt starfsfólk hans

Í þessum kosningum tefldi Nixon framboði sínu fram undir fána "hins þögla meirihluta" og sigraði

Árið 2016 er það exit úr styrjöld sem er eitt helsta þrætueplið, eins og svo oft áður

Flokka baklands-apparöt bæði Demókrata og Repúblikana hafa gefið skít í Donald Trump. Það mun brátt koma í ljós hvort að "hinn þögli meirihluti" sem líkar ekki það sem hann sér í uppgjafarherbúðum beggja flokka, muni leiða Donald Trump til sigurs

Hvort að ný styrjöld sé að skella á í Evrópu og víðar á Austurhveli jarðar, landmassa Evrasíu, get ég ekki vitað, frekar en neinn annar. En of margt bendir til að svo muni verða. Staðan er orðin það eldfim og flókin að ólíklegt er að ennþá sé hægt að bakka út úr henni. Og fjarvera kjarnorkuvopna í stöðunni, eykur líkurnar á hefðbundinni styrjöld til muna. Utanríkisráðherra Þýskalands, vopnaður evru á kústskafti, er því orðinn hræddur

Fyrri færsla

Rauði október fundinn á Íslandi?


Rauði október fundinn á Íslandi?

Mun Rauði október loksins finnast strandaður hér á þurru landi hinn 29. þessa mánaðar? Hvað skyldi þá verða um þjóðarskútuna okkar, sem þoldi ekki einu sinni hina varlitarauðu skipamálningu Jóhönnustjórnarinnar og sem píratar hafa nú rænt öllum kjósendum frá

Allt rautt er ávallt eins. Það sekkur eins og steinn. Þannig fer ávallt fyrir kakkalakkahugmyndum stjórnmála. Þær skríða upp veginn en falla svo örmagna niður, aftur og aftur. Og alltaf undir sama söngnum: "Ísland er ónýtt og kjóstu kakkalakkann mig" tralla la la ég og kjóstu mig. Tralla la la mig um mig frá mér til mín og tralla la la ónýta Ísland og kakkalakkinn ég. Um mig og mig fíli bomm bomm ónýta Ísland... rautt rautt rautt

Kemst Rauða skipamálning ríkisins til Hollywood eins og kór Rauða hersins gerði undir stjórn hins ónýta Sovétríkis?

Fyrri færsla

Breska pundið komið í vinnufötin á ný og furstadæmið skelfur


Breska pundið komið í vinnufötin á ný og furstadæmið skelfur

"If you believe you are a citizen of the world, you are a citizen of nowhere. You do not understand what the very word "citizenship" means"

- Theresa May forsætisráðherra Bretlands

Brexit útganga Bretlands af Evrópulandi fjármálafursta er hafin. Breska pundið fellur og bryður í sig undirstöður þess sem sumir kalla enn "fjármálageira". Réttnefni þess geira er hins vegar orðið að furstadæmi án ríkisfangs. Og pundið er að verða því fjandsamlegt. Furstadæmið hélt að enginn myndi kjósa ESB lobbýið undan því, en það gerðist samt, og peningaafl hins sjálfstæða gjaldmiðils þjóðarinnar er strax komið í vinnufötin og byrjað að bryðja furstadæmið í sig

Bretland er byrjað að losa sig úr viðjum furstadæmisins og fjárfestingar munu héðan í frá flæða framhjá ríkislausa furstadæminu og inn í verðmætasköpun til hagsbóta fyrir almenning, en ekki fyrst og fremst til hinna sér-útvöldu í furstadæmum án ríkisfangs

Fimmfrelsi er ekki fjórfrelsi. Það sést ágætlega á þeirri sérmeðferð sem Deutsche Bank, en enginn annar, fékk í álagsprófum ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, þegar álög bankans stilltu sér sem alvöru álagspróf út í búðargluggum seðlabankans á útsölum hans í sumar. Fimmta frelsið felst í því að vera undanþeginn sannleikanum

Píratar eru til dæmis alþjóðleg furstadæmis-samtök án ríkisfangs og þau aðhyllast fimmfrelsi

Fyrri færsla

Bankaríkisstjórn Evrópusambandsins ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband