Fimmtudagur, 23. júlí 2009
Það þurfti þá ekkert ESB eftir allt saman. Engin ástæða til að leggja niður TAX FREE
Það þurfti þá ekkert ESB
1. Það þurfti ekkert ESB til þess að opna nýja flugrútu til Ljótabæjar (Brussel). Og þessvegna þarf heldur ekkert að leggja niður fríhöfnina og tax free duty store, sem annars hefði þurft ef Ísland væri í ESB
2. Það þurfti ekkert ESB til að fá erlenda bankapeninga inn í meira að segja ónýta banka á Íslandi. Við skulum heldur ekki tala um þá 100 zilljón erlendu kröfuhafa sem lánuðu peninga til fyrirrennara þrotabús þeirra íslensku banka sem fóru á hausinn inni í miðju ESB
3. En það þurfti hinsvegar heilt ESB til að koma bönkunum á hausinn og til að hræða líftóruna úr sumum þeim sem nú búa á þeim stökkpalli sem forfeðrur okkar byggðu upp fyrir þá. Mest með svita og svo oft með söltum tárum. Byggðu upp það sjálfstæða og fullvalda Ísland sem þú stendur á núna
4. Það þarf líka heilt volað, falskt og væmið ESB til að hneppa alla Íslendinga um ókomnar kynslóðir í járnin aftur. Það er einfaldelga gert með svikum við landið, við þjóðina og með launráðum í íslenksri aumingjapólitík, sem er skrásett vörumerki Samfylkingarinnar og forvera hennar. Eina sem til þarf er eitt stykki ESB - og Samfylkinguna, sem 71% Íslendinga kusu ekki í síðustu Alþingiskosningum (jú, plús það lausa drasl sem skyndilega og óskiljanlega datt undan sterkri stálgrind VG). Já í sjálfum Alþingiskosningunum, þar sem þingmenn eiga að sækja umboð sitt til kjósenda. Þetta skrásetta vörumerki aumingjastjórnmála Íslands keyrir nú póflaust og umboðslaust um landið okkar með hörmulegum afleiðinugm. Falschfahrer þeir eru - með gísla í bifreiðinni - og án umboðs í stærsta máli lýðveldisins
En það er svona, eins og hér fer á eftir, sem erlendir bankapeningar virka, þ.e.a.s þegar það ríkir meðvindur hjá þeim. En núna er kominn mótvindur, mikill mótvindur
Athugið: Lettland er nú undir stjórn Brussel
Nýja Argentína er í ESB og heitir að minnsta kosti Lettland
(birtist 21. janúar 2009 klukkan 10:00 á AMX) Pistill eftir Gunnar Rögnvaldsson
Tveir erlendir bankar eru orðnir svo allsráðandi í Eystrasaltslöndunum - sem öll eru í Evrópusambandinu - að þeir eru farnir að virka sem ríkjandi seðlabankar fyrir löndin. Þeir eru orðnir svo allsráðandi að þeir standa með þau stærstu verkfæri sem hægt er að nota sem áhrifa- og aðgerðavald fyrir peningamálastefnuna í þessum þrem hagkerfum. Þetta eru sænsku bankarnir SEB og Swedbank. Þetta skrifaði matsfyrirtækið Standard & Poors síðasta sumar.
Sænska blaðið Dagens Industri (DI) veltir nú því fyrir sér hvernig þetta de facto seðlabankahlutverk SEB og Swedbank sé að virka fyrir þá þegna sem búa í Eystrasaltslöndunum. Einkunnin sem Dagens Industri gefur þessum tveim bönkum er því miður falleinkunn.
Það sem SEB og Swedbank eru að sýsla með í þessum þrem hagkerfum núna er beinlínis vanvit segir DI. Þeir hafa valdið stórkostlegum efnahagslegum óstöðugleika og eru jafnvel að grafa undan stjórnmálalegum og öryggislegum stöðugleika alls svæðisins.
Hin stóraukna útlánastarfssemi bankanna hefur ekki farið í að byggja upp samkeppnishæft atvinnulíf og berandi innviði. Stærsti hluti útlána þessara banka hefur farið til einkaneyslu. Með gagnslausri útlánastarfsemi hafa þessir sænsku bankar stuðlað að því að fermetraverð íbúðarhúsnæðis í Riga, höfuðborg Lettlands, er orðið hærra en í Stokkhólmi. En nú á sér stað alger viðsnúningur því hin peningapólitíska örvun hefur snúist upp í andstæðu sína einmitt þegar þörfin á annarri stefnu er mjög brýn.
Lettland verður næsta Argentína
Eins og í mörgum öðrum löndum hafa sænsku seðlabankarnir í Lettlandi neyðst til að ganga betligang til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) til þess að reyna að bjarga sér út úr bráðnauðsynlegri gengisfellingu með 10 miljarða dollara neyðaraðstoð. Bankarnir eru mjög á móti því að gengi lats verði fellt því gengisfelling mun rýra eignir þeirra sjálfra á meðan hún myndi þjóna atvinnulífi Lettlands vel. Flestir sem fylgjast grannt með þeirri efnahagskreppu sem er nú í uppsiglingu eftir að kreppa á fjármálamörkuðum er búin að koma atvinnulífi margra landa á kné, vita að eina leiðin til þess að vinna sig út úr vanda komandi ára mun verða sú að leggja þarf megin áherslu á að útflutningsgreinarar geti búið við samkeppnishæfni. Það er einungis hægt ef mynt landanna hefur samkeppnishæft gengi.
En það er alls ekki víst að samlíkingin við Argentínu sé algerlega réttlát því óvíst er hvort þessi neyðarlán séu næg lækning. Til þess að fá peningana frá AGS og einnig frá nágrannalöndunum, þarf Lettland að þvinga í gegn mikinn niðurskurð á opinberum útgjöldum. Nú þegar er samið um launalækkanir til opinberra starfsmanna um 25% og svo þarf einkageirinn að fylgja eftir með eigin launalækkun. Laun í Lettlandi hafa hækkað miklu meira en framleiðni hefur gert og því eytt samkeppnishæfni landsins og þar með gert mynt Lettlands (lat) alltof dýra og ósamkeppnishæfa. En gengi lats er bundið fast við gengi evru. Það er hérna sem Argentína kemur inn í myndina því þar var ástandið svipað er mynt Argentínu hrundi árið 2002. Lettland þarf því að velja á milli verðhjöðnunar og gengisfellingar.
Verði gengið fellt þá munu langtíma fjárskuldbindingar almennings svo sem húsnæðislán hækka verulega því þau lán eru í evrum. Ríkisstjórn Lettlands hefur valið erfiðu leiðina, þ.e. að halda genginu föstu og þarf því núna að þvinga í gegn verðhjöðnun í öllu landinu. Sænsku bankarnir hafa farið þannig að undanfarin ár að 90% af útlánum þeirra hafa veið veitt í erlendri mynt, aðallega í evrum. Ef ríkisstjórnin myndi fella gengið þá myndu skuldir heimilanna aukast nema á þeim lánum sem veitt voru í mynt landsins. En það sama gerist einnig þegar laun Letta eru lækkuð því þá mun verða erfiðara fyrir heimilin að vinna fyrir afborgununum á þessum lægri launum. Í raun er því enginn munur á verðhjöðnun og gengisfellingu hvað varðar húsnæðislán Letta. Þar er valið því einungis á milli pestar eða kóleru. En gengisfelling hefði þó þau jákvæðu áhrif að hún myndi ekki hafa áhrif á skuldir í innlendri mynt og myndi samstundis auka samkeppnishæfi útflutnings. Að lækka laun með handafli mun reynast ríkisstjórn Lettlands mun erfiðara en menn halda, svo gera má ráð fyrir að svoleiðis verðhjöðnunaraðgerðir taki langan tíma og virki seint. Það er einnig alls óvíst að þvinguð verðhjöðnun muni skila sér á rétta staði í samfélaginu og því er hætta á að útflutningur og ferðamannaiðnaður muni ekki getað keppt á aukinni samkeppnishæfni fyrr en það er orðið um seinan.
Það er þó einn stór munur á milli Lettlands og Argentínu, en það er sjálf stærðin. Ástandið í Eystrasaltslöndunum mun að líkum versna stórlega á komandi misserum. Það mun verða svo slæmt að margir munu segja það sama og sumir eru að segja á Írlandi núna, þ.e. að Evrópusambandið eigi að koma og hjálpa löndunum út úr erfiðleikunum. Þau séu ekki það stór að það ætti að vera svo erfitt. En það er ólíklegt að þetta verði raunin því svona hjálp er bönnuð samkvæmt reglum myntbandalags Evrópusambandsins. Það var nefnilega einmitt þetta sem Þýskaland óttaðist svo mikið þegar það loks lét undan kröfum Bandamanna, með tilstuðlan Frakka, um að sameining Þýskalands gæti einungis farið fram ef Þýskaland léti undan síendurteknum kröfum Frakklands um myntbandalag. Þjóðverjar hafa nefnilega alltaf óttast að auðæfi þeirra muni - á einn eða annan hátt - enda á kistubotni illa rekinna ríkiskassa annarra og verr settra ríkja í myntbandalaginu með því að verða þvingaðir út í að gangsetja seðlaprentvélarnar illa stöddum löndum til björgunar. Ef farið yrði út í að bjarga Eystrasaltslöndunum þá munu PIGS löndin, Portúgal, Ítalía, Grikkland, Spánn - og nú einnig Írland - stilla sér upp í betliröðina fyrir aftan Lettland, Litháen og Eistland. Þetta yrðu því 8 af 27 löndum Evrópusambandsins sem þýskir skattgreiðendur þyrftu að bjarga. Svo er einnig Ungverjaland og þá erum komin í 9 af 27 ríkjum til að byrja með.
Undanfarna daga hafa verið mikil mótmæli á götum í Lettlandi. Þetta vekur því miður upp gamlar minningar hjá þeim aðilum sem hafa reynslu af öryggismálum í þessum heimshluta. Það er nefnilega svo að í ógáti gætu sænsku seðlabankarnir í Eystrasaltslöndum verið að vekja upp gamlar vofur. Í versta falli getur þetta versnandi efnahagsástand leitt til svipaðs ástands og við sáum í Georgíu á síðasta ári, því fræin hans Stalíns eru ennþá gróðursett þarna í Eystrasaltsöndunum og þurfa aðeins réttu samfélagslegu aðstæðurnar til þess að fara að spíra aftur. En hér á ég við kjörnar aðstæður fyrir hvata menn í Kreml til að píska upp stemningu sem gæti virkjað öfl hins stóra rússneska minnihluta í þessum löndum. Þá væri með sanni hægt að segja að Svíar hafi skotið sig alvarlega í báða fætur. En sama hvernig allt fer þá mun ástandið í baltísku löndunum hafa áhrif innanlands í Svíþjóð. Það er einfaldlega ekki hægt að komast hjá því. Fyrstir í þeirri röð atburða verða væntanlega hluthafarnir í sænsku seðlabönkunum í Eystrasaltslöndunum. Lokaspurningin gæti því orðið þessi: munu sænskir bankar þurfa að byggja vélbyssuhreiður fyrir utan banka sína í Lettlandi, Eistlandi og Litháen eins og erlendir bankar þurftu að gera í Argentínu? Einnig verður fróðlegt að vita hvort AGS verði gagnrýndur eins hart fyrir að styðja fastgengisstefnu Lettlands eins og hann var gagnrýndur fyrir að hafa stutt fastgengisstefnu Argentínu á sínum tíma.
Það er ekki einungis nóbelsverðlaunahagfræðingurinn Paul Krugman sem gagnrýnir ákvörðun AGS um að veita Lettlandi neyðarlán án þess að gengi lats hafi verið fellt. Hagfræðingurinn Edward Hugh í Bacelona á Spáni gagnrýnir einnig AGS harðlega og spyr hvaðan nauðsynleg örvun hagkerfisins eigi að koma. AGS er banki og það þarf að greiða lánin til baka með vöxtum. Það sé veruleg hætta á að hagkerfi Lettlands fari í frjálst verðhjöðnunarfall og að það verði mun erfiðara að stöðva það heldur en að stöðva væga veðbólgu sem myndi koma ef gengið yðri fellt. Það er mikill halli á mannfjöldajöfnuði í þessum löndum því svo fá börn fæðast þar. Ungt fólk er af mjög skornum skammti og hætta er á að það flýi lönd sín ef aðstæður verða nógu slæmar. Það mun leiða til þess að löndin endi í sömu sporum og El Salvador þar sem stór hluti þjóðarinnar lifir á peningasendingum frá ættingjum og vinum sem hafa flúið til útlanda. En El Salvador tók upp dollar sem sína eigin mynt árið 2001 og er nú stærsti hlutinn af bankakerfi þeirra einnig komið í eigu útlendinga. Í El Salavor er nú rætt um að taka upp gömlu mynt landsins aftur, en það mun því miður reynast þeim mjög erfitt og jafnvel ógerningur.
Umræðan á Íslandi
Mikið er rætt um gjaldmiðlamál á Íslandi þessa dagana. Nánast hefur verði gerð herför að Seðlabanka íslenska lýðveldisins og hafa sumir gengið svo langt að ryðjast inn í bankann og henda matvælum í hann. En menn eru að henda góðum hlutum á ranga staði því Seðlabanki Íslands varaði einmitt þjóðina við því sem gæti komið og sem svo kom. Menn hefðu frekar átt að henda matvælum sínum eftir þeim bönkum sem bjuggu til þau vandamál sem verið er að kljást við núna. Einnig ættu þeir í nafni þjóðar og lands að taka upp gjaldmiðilinn sinn og kyssa hann á kinnina því það er hann sem mun sjá til þess að hægt verður að vinna sig út úr erfiðleikunum og er einnig sterkasta vopnið í þeirri baráttu. Menn ættu því að minnsat orða Hermanns Oskarssonar, hagstofustjóra Færeyja, þegar hann benti Íslendingum á að krónan væri þeirra sterkasta vopn. Að henda eggjum og ryðjast inn í Seðlabankann er því að snúa réttunni inn og röngunni út. Einnig ættu Íslendingar að hætta að leggja eyrun of þétt að ráðgjöf erlendra sem innlendra hagfræðinga og treysta dálítið meira á eigin brjóstvit eins og er. Hagfræðin en nefnilega stödd í ókönnuðu landslagi núna. Það kom einn svona erlendur álitsgjafi í heimsókn til Íslands á liðnum dögum. Hann heitir Willem H. Buiter og er prófessor í stjórnmálahagspeki. Samkæmt orðum Morgunblaðsins þá á hann að hafa sagt að Ísland geti vel haldið krónunni en verði þá að sætta sig við gjaldeyrishöft og að þurfa að stunda landbúnað og fiskveiðar nánast að eilífu. Þetta eru þær atvinnugreinar sem hafa gert ísland að því sem það er orðið í dag, eitt ríkasta samfélag í heiminum. En ef raforkusala, álvinnsla, álútflutningur, mannvirkja- og byggingagerð eru einnig landbúnaður og fiskveiðar, þá leyfi ég mér að segja að herra Willem H. Buiter sé smjörfjall og sé einmitt að bráðna núna. En kanski eru þetta einungis leifarnar af gamla smjörfjalli Evrópusambandsins sem þarna tala.
Íslenska krónan, mynt Íslands, gæti hinsvegar reynst besta vörn landsins gegn því að herferðir mikilmennskubrjálæðis til útlanda hefjist á ný þegar veðrið gengur niður aftur. Núna vita menn nefnilega að myntin og þjóðfélagið okkar þolir ekki svona meðferð. Reyndar þolir engin mynt svona meðferð. Það verður þó og því miður að segjast eins og er að hefðu Mikki Mús og Andrés Önd stýrt bönkunum undanfarin ár þá hefði árangurinn varla getað orðið verri en hann er í dag. En þetta á ekki einungis við um Ísland heldur einnig um mörg önnur lönd.
Fyrri færsla
Þýskaland íhugar að þjóðnýta hluta bankakerfis landsins, þrátt fyrir evruaðild
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:07 | Facebook
Nýjustu færslur
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 2
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 783
- Frá upphafi: 1389482
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 505
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Ofdekraðir ESB andstæðingar á moggablogginu
http://pallblondal.blog.is/blog/pallblondal/entry/918743/
Páll Blöndal, 23.7.2009 kl. 02:33
Sérlundaðir, sérhlífnir og sjálfselskir ESBsinnar á moggabloggi
(IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 07:55
Ég skora á alla lýðveldissinna að hefja fjársöfnun sem fyrst til að bjarga Gunnari Rögnvaldssyni úr þeirri prísund sem hann býr í. Maðurinn hefur eytt síðasta aldarfjórðungi í helsi ESB og það hefur greinilega sett sitt mark á hugsanir hans. Við hljótum -- eins og samtök gyðinga á tímum sovétstjórnarinnar -- að gera allt til þess að bjarga hverjum okkar bræðra og systra sem býr við slíka áþján undan henni og veita honum skjól hér í frelsinu og fullveldinu -- a.m.k. meðan það endist. Kjörorðið verður: Gunnar heim!
Gunnar (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 09:34
Það er eins og það fréttist illa til Íslands, hversu illa ESB og nánast öll Evrópa er stödd. Við lentum jú í hruni...en Evrópa er bara að byrja að renna niður brekkuna. Það geisar efnhagsstríð í heiminum og Evran mun ekki lifa það stríð af. Evran er ekki framtíðargjaldmiðill Evrópu, né er hún lausn vanda Íslands. Lausnin felst í krónuni og útflutningnum. Það þarf að fara að huga að því að vekja þingliðið á Austuvelli til þeirrar staðreyndar að styðja þarf við fyrirtæki og heimili í landinu. VIð erum með allt til þess að vinna okkur út úr vandanum...allt nema stjórnmálamenn með almennilegann beinvöxt í nefinu.
Haraldur Baldursson, 23.7.2009 kl. 17:27
Þakka ykkur fyrir innlitið
Já Haraldur þetta lítur svo sannarlega ekki vel út á elliheimilinu Fortess Euroland.
=================================
Mario Draghi seðlabankastjóri Ítalíu sagði í gær:
July 22 (Bloomberg) -- The Italian economy will need to expand at a faster pace than averaged over the past decade for the government to be able to reduce Europe’s biggest debt.
“We will emerge from the economic crisis with more debt and higher unemployment,” he said in testimony to a parliamentary committee on organized crime. “In order to reduce them, we should be able to grow at a faster pace than over the last 10 years.”
The activity of organized crime in Italy tends to hurt economic growth, he said. The Italian economy has expanded at a slower pace than the European Union average for more than a decade.
In his testimony, Draghi called for tougher rules against money laundering.
=================================
Hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha hah ha ha
Þetta er beinlínis hlægilegt hjá herra Draghi. Ítalía er með lélegasta hagvöxt í heimi síðastliðin 15 ár (PDF: Hagvöxtur í OECD 1994-2007) (athugið að spáin fyrir Ítalíu 2009 er gersamlega úrelt og 100 sinnum verri en þarna er getið). ítalía er eitt skuldugasta land heimsins. Ítalía þess utan elliheimili. Ítalía er búnin að vera - history. Þetta var einu sinni mjög blómegt land með ágætishagvexti og samfélagslegum framgangi. En svo kom The European Union og myntbandalagið.
NEXT ritvélaiðnaður Þýskalands
=================================
Wolfgang Munchau, einn af aðalritstjórum Financial Times Deutschland bar í gær bílaiðnað Þýskalands saman við ritvélaiðanð Bandaríkjanna 1980 í grein sinni í FTD:
Wolfgang Munchau compares today’s car industry, on which Germany relies, with the American typewriter industry in the 1980s and 1990s. The two products have a lot in common, including the false belief that they are indispensible to a modern society forever, a flattening curve of innovation, a much longer life-span of individual products due to technological improvements, falling profits margins, and overcapacities that need to be reduced through M&A. The various recent developments in the German car industry are a case in point, including the power battle between Volkswagen and Porsche.
=================================
Það var nefnilega það. Ritvélar og bílar. Framtíð Þýskalands byggist á rivélaiðnaði! Þetta passar svo sem ágætlega fyrir elliheimilið Þýskaland. En verst er þó af öllu að þetta er svo nötulega satt og rétt að það er óhugnlaegt. Þýski iðnaðurinn er búinn að vera. Þýski bílaiðnaðurinn er búinn að vera og þýska þjóðin er því miður búin að lifa því Þýskaland er orðið að elliheimli. Þetta er leiðinlegt en því miður rétt.
Nýsköpun á elliheimilum? Já það var einmitt það væni minn. . .
Tvær góðar fréttir á einum degi fyrir 45% af evrusvæðinu. Restin er lítið betri nema ef væri kannski Frakklandið
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 23.7.2009 kl. 18:49
Fyrirgefðu Gunnar, en mikið helv.... er hann Páll Blöndal farinn að fara í mínar fínustu taugar. Fáfróður og með öllu röklaus þvælist hann um allt blogg með upprhrópanir gegn öllum þeim sem ekki vilja láta troða sér með klækjum og nauðugum viljugum inn í Ljótabæ Himnaríkis. Annars frábær pisitll eins og oftar.
Almennur borgari (IP-tala skráð) 23.7.2009 kl. 23:38
Þakka þér Almennur borgari. Já þetta með taugarnar er ekkert grín :)
- það reynir á þær :)
Því meira sem eg hugsa um ummæli Mario Draghi seðlabankastjóra Ítalíu þarna fyrir ofan, því meira undrandi verð ég. Það er mér óskiljanlegt hvernig Ítaíla ætti að koma hagvexti í gang hjá sér án þess að segja síg úr myntbandalaginu, - sem þeir geta varla gert án þess að fremja efnahaglegt sjálfsmorð. En það var jú einmitt útsögn Ítalíu úr myntbandalaginu sem spá Saxo Bank gerði ráð fyrir við síðusu áramót.
En kannski er búið að finna upp nýtt nafn fyrir svona hluti eins það er búið að finna upp nýtt nafn yfir það sem venjulega er kallað "launa og verðhjöðnun". Núna nota menn nýskrípayrðið "internal devaluation" yfir þetta.
Kannski þetta verði þá "internal suicide" í ítalska tilfellinu. Að drepast inni í myntbandalaginu
Þetta verður bara meira og meira spennandi
Gunnar Rögnvaldsson, 24.7.2009 kl. 02:22
Það er samt spurning ef PIGS löndin tækju sig saman um að gera þetta öll í sameiningu, hvort þannig skapaðist ekki jafnvægi fyrir þau. Það er betra að standa ekki ein í eymdinni
Eftir aðlögunartíma finna þau síðan fótana að nýju, enda líklegt að útflutningur komist á skrið að nýju.
Haraldur Baldursson, 24.7.2009 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.