Sunnudagur, 19. október 2008
Standa í fæturnar: Bandaríkin munu ná sér fljótt aftur og Ísland einnig. Bréf frá frænda
Nú hrynja gamlir blá- og rauðbirknir sófa-vitringar út úr skápunum í öllum flokkum. Nú er það gamla 78 snúninga hljómplatan sem er sett á fóninn aftur: Bandaríkin eru nefnilega búin að vera og hinn frjálsi markaður og hin svokallaða frjálshyggja er búin að vera. Frelsið og sjálfstæðið er ekki vinsælt lengur því það krefst að staðið sé fast í eigin fætur.
Á stöðnunartímabili áttunda áratugs síðustu aldar þá sprungu út bústnar kinnar akademískra sófamanna sem básúnuðu að Bandaríkin væru að tapa leiknum og það yrðu Sovétríkin sem myndu sigra og verða þjóðfélagsskipan framtíðarinnar. Gerum eitthvað annað. En nú eru Sovétríkin hrunin til grunna sem þjófélagsskipan og eftir standa Bandaríkin sem eina stórveldið í heiminum sem virkar, sterkari og öflugri en nokkru sinni fyrr.
Svo kom fjármálakreppa sparisjóða í Bandaríkjunum í enda níunda áratugs síðustu aldar. Þá komu bústnu sófa-kinnarnar aftur úr úr skápnum og nú var það Japan sem var viðundrið. Gerum eitthvað annað. En nei. Japanska undraverkið reyndist vera byggt á sandi. Þar hafði markaðurinn misst sjónar á eiganda sínum, þ.e. misst sjónar á hinum samfélagslegu undirstöðum sínum. Japanska viðundrið reyndist því miður vera bóla. Japan fór inn í varanlega kreppu á meðan Bandaríkin fóru inn stóru í hagvaxtarárin fram til 2001. Þessu missti ESB alveg af eins og öðrum framfaratímabilum
Bandaríkin yfirvinna yfirleitt kreppur og krísur mjög hratt. Það er vegna þess að markaðurinn er virkur, samkeppni er virk og skattalækkanir eru framkvæmdar þegar þess er þörf. Skattalækkanir sem lítil fyrirtæki á borð við litla Microsoft nutu góðs af á sínum sokkabandsárum. Hvaða þjófélag vill ekki eiga fyrirtæki á borð við Microsoft í dag? Eða Apple eða Cisco eða Intel eða AMD og IBM. Já skattalækkanir og hvatning til lítilla fyrirtækja sem vaxa sig stór og öflug. Nú þurfa fyrirtæki á borð við Microsoft og Apple ekki að leita til banka því þau eiga tonn af fjármunum sem þau hafa lagt fyrir í góðæri. Þau eru því það sem við köllum "stöndug". Þau standa á eigin fótum, standa sterk til að mæta erfiðum árum. Já tonn af peningum
Á Íslandi gerðist það sama og í Bandaríkjunum. Fjárhúsin voru opnuð og búfénaðurinn stökk bjartsýnn út í vorið. Ríkisvaldið var sett í megrun og frelsi okkar allra aukið. Flestum gékk vel og Ísland varð miklu ríkara fyrir vikið. Landið nötraði af orku og athafnagleði þegnana. En sum fyrirtæki gerðu afdrifarík og stefnumótandi grundvallarmistök í uppsetningarferli sínu og því eru þau dauð núna, eða í andaslitrunum. Þetta voru stór fjármálafyrirtæki sem gerðu afdrifarík mistök í stefnumótun sinni. Þau máluðu sig inni í horni og köfnuðu úr súrefnisleysi. En án mistaka munu aldrei koma neinar framfarir. En sjálft Ísland er ekki hlutaféalg heldur frjálst og sjálfstætt samfélag okkar mannana og mun því lifa að eilífu á meðan svo er. Þetta verðum við að muna
Öll fyrirtæki eiga eftirfarandi sameiginlegt: Þau eiga sér upphaf og endi. Fjarlægðin frá upphafi fyrirtækis til enda fyrirtækis er háð hæfileikum fyrirtækisins til að breyta og aðlaga sig að nýjum aðstæðum. Í stuttu máli hæfileikinn til að breyta fyrirtækinu á réttann hátt og á réttum tíma er afgerandi fyrir lífslengd þess
Sveigjanleg hagkerfi munu vinna sig hraðar út úr erfiðlekum en önnur hagkerfi, miklu hraðar. Það er nefnilega frelsið, sterk sjálfsbjargarviðleitnin og sjálfsæðið sem vinnur verkin. Í núverandi ástandi er hætta á að stjórnmálamenn fari út í það að gefa út straum af nýjum og illa skilvirkum reglugerðum sem munu hefta virkni markaðssamfélags okkar og einnig hefta virkni sjálfstæðis okkar. Ef svo verður þá mun það einungis leiða til verri virkni hins frjálsa markaðar og til verri virkni okkar sjálfra sem þeirra einstaklinga sem skapa verðmætin sem allir aðrir munu njóta góðs af. Þetta ber að varast því annars munu allir verða fátækari
Það borgar sig alltaf að standa í eigin fætur. It just plain works
Við Íslendingar erum töffarar, það vita allir. Þessvegna mun Ísland taka sig saman og töffa sig út úr núverandi vandræðum - saman
Bréf frá frænda
Ég fékk bréf frá ungum frænda mínum. Mér finnst það svo gott að ég tek mér það bessaleyfi að birta það hérna:
Kæri frændi. Já, það er af svo mörgu að taka að maður veit ekki hvar skal byrja. Það er svona helsta ástæðan að ég hef ekki haft samband fyrr en nú. Alltaf endað með að froðufella og rífa í hár mitt og skegg yfir heimsku og "nævisma" fólks áður en ég gat sett niður nokkur orð. Hlakka mjög til að heyra frá þér á morgun og vona svo sannarlega að Ísland verði enn inn á heims kortinu þegar þið komið næsta vor! Ef rétt verður staðið að hlutum hér þá er engin spurning að við munum koma okkur út þessu með slíkum hraða að það verður tilefni til enn frekari endurskoðunar á hagkerfum heimsins og virkni þeirra. Eftir að hafa legið yfir þessum kreppu og hagkerfis málum undanfarnar vikur verða ég að segja að ég sé Ísland í allt öðru ljósi en áður. Ég er vægast sagt stoltur af þjóðerni mínu og þessu dýrmæta og einstaka landi sem Ísland er. Að hugsa til þess að við gætum endað sem bara smá hérað í ESB er sorglegra en tárum tekur. Við mundum missa allt. ALLT. Nóg höfum við látið vaða yfir okkur núna. Ef við færum í ESB yrði okkur einfaldlega bara nauðgað og sagt að halda kjafti á meðan. Já já og jamm . . við skulum bara biðja um svipuna hjá IMF svo við getum síðan farið rakleitt á hreppinn hjá ESB. HVAÐ ER AÐ ÞESSU FÓLKI?? Spurning hvort Gunnar í Krossinum geti ekki bara af-ESBÉAÐ þetta fólk? Þetta ESB lið ætti að lesa Íslandsklukkuna eftir Laxness. Og spyrja sig síðan hvort við værum betur sett nú í ESB en þá, þegar Jón Hreggviðsson á Rein var dæmdur til hýðingar fyrir að stela snærisspotta.Manstu þegar Ísland var síðast í sviðsljósi heimspressunnar? 320.000 manna þjóð að keppa um gull í hóp-íþrótt á Ólympíuleikunum í Peking. Nokkuð sem ætti að vera tölfræðilega útilokað. Við munum aldrei gefast upp. Gordon Brown á eftir að komast að því.
ÁFRAM ÍSLAND!!!!
Eftirmáli: við verðum að muna þetta:
Þurfa Íslendingar að laga eitthvað hjá sér? Nei, ekkert að ráði. Þeir voru einungis að lenda á flugvelli frjálsra hagkerfa nútímans í fyrsta skipti, og það með braki og brestum. Það er erfitt að lenda á nýjum flugvelli í fyrsta skiptið. Það gerist aðeins einusinni í lífi hverrar þjóðar. Frá með núna munu Íslendingar aldrei fá tækifæri til að haga sér á sama hátt og þeir gátu síðan hið litla opna og alþjóðavædda hagkerfi þeirra var tekið í notkun, án þess að nokkur tæki eftir því. Einusinni kunnu Íslendingar lítið í fiskveiðum. En núna kunna þeir þær. Eins verður með það að reka opið og frjálst hagkerfi í ólgusjó alþjóðafjármála nútímans. Íslendingar mega fyrir alla muni aldrei hætta að vera þeir sjálfir, því þá myndu þeir hætta að virka. Íslendingar þurfa ekki á neinni fjarvistarsönnun að halda vegna svartar fortíðar. Það er ekkert að fela. Þeir þurfa ekki að dulbúa sig sem nýtt og fallegt heimsveldi sökum þess að gamla heimsveldi þeirra er runnið þeim úr greipum. Nýi Heimurinn er ekki þannig
Við skulum ekki gera eitthvað annað. Allt um þetta mál stendur í Sögum okkar því þetta er ekki neitt nýtt tilbrigði af raunveruleikanum. Okkar fólk hefur reynt þetta margoft áður - saga okkar er þarna til að læra af henni
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2008 kl. 23:14 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.12.): 178
- Sl. sólarhring: 180
- Sl. viku: 313
- Frá upphafi: 1388877
Annað
- Innlit í dag: 77
- Innlit sl. viku: 160
- Gestir í dag: 67
- IP-tölur í dag: 64
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Frábært innlegg hjá þér í umræðuna Gunnar og skáldlegt ! Ég trúi að þú hafir rétt fyrir þér (í megin atriðum að minnsta kosti).
Mér sýnist að ríkisstjórnin muni ekki kikna í hnjánum. Við þurfum ekki mjög langan tíma til að sjá í gegnum hríðina.
Nú er að koma að EB. Spánverjar eru nú þegar komnir með 11,3% atvinnuleysi og fer hratt vaxandi. Þeir gætu hæglega misst einhverja banka í gjaldþrot.
Loftur Altice Þorsteinsson, 19.10.2008 kl. 21:36
Fjármál.
Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 19.10.2008 kl. 22:07
Kreppa ,áfram ísland.
Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 19.10.2008 kl. 22:11
Gott. Umfram allt skulum við þó kappkosta að minnast ekki á þá íslenska stjórnmálamenn sem vöruðu við þessu meðan enn var tími til að stíga á bremsurnar. Við skulum gleyma mönnum eins og Jóni Magnússyni frjálslyndum, Steingrími J. vinstri grænum og Ögmundi Jónassyni sem auk þess krafðist þess á Alþingi að bankar okkar á erlendri grund yrðu klipptir frá íslenskum móðurfyrirtækjum. Og við skulum gleyma hinum reynda bankastjóra Ragnari Önundarsyni og hans mörgu blaðagreinum´með öll rauð ljós logandi. Og við skulum gleyma skýrslum erlendra fjármálaérfræðinga sem unnu skýrslur fyrir banka og stjórnvöld- skýrslur em síðan var stungið undir stól. Við skulum gleyma þeim alþingismönnum sem kröfðust þess að Alþingi yrði kvatt saman síðsumars til að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú væri komin upp og yrði að bregðast við. Við skulum gleyma forystu Samfylkingarinnar sem var í óða önn að ræða um upptöku evrunnar þegar fyrsti neyðarfundurinn var boðaður í Seðlabankanum. Við skulum gleyma að við áttum ruglaðan Seðlabankastjóra sem talaði eins og myndugur forsætisráðherra um viðbrögð gegn kröfum Gordons Brown. Við skulum gleyma þeim orðum Geirs H. Haarde að aðvaranir þær sem tilvitnaðar eru hér að ofan séu "svona eftirá skýringar." Og að fyrsta comment formanns Samfylkingarinnar í viðtali við fréttamann Sjónvarps var á sömu lund. Við skulum umfram allt tala um alla íslenska pólitíkusa í sama pakkanum.
Árni Gunnarsson, 19.10.2008 kl. 22:12
fsakið það er eitthvað að hjá mér í tölvuni ,biðst velvirðingar á því . KVEÐJA DRENGUR.
Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 19.10.2008 kl. 22:22
Sæll Gunnar og þökk fyrir þín skarpskyggnu skrif. Það hressir mann í svartnættinu að lesa bréf þíns unga frænda. Í rauninni tel ég að það vanti aðeins að einhverjar stóriðjuframkvæmdir fari í gang á Íslandi til að kreppan svífi undan eins skjótt og hún kom. Við höfum allt til alls til taks, hendur, hausa, tæki og tól. Úrræðaleysið gegn vá sem við festum ekki hendur á er það versta. Ef við fyndum kröftum okkar stað myndi margt breytast fljótt.
Það er því miður enginn replay-takki á tilverunni. Þetta er bara svona. Heimkomin hafði frú Ingibjörg Sólrún ekki annað að segja við Geir Haarde: Fyrst í IMF og svo beint í EBE. Var þetta útspil ekki alveg í það minnsta á pari við sjónvarpsviðtal Davíðs ?
Sem betur fer erum við Íslendingar ekki með Evru um þessar mundir. Þá fyrst væri komið hér erfitt ástand með allt þetta fók úr fjármálageiranum atvinnulaust. Nú getum við notað krónuna til að örva efnahagslífið sem við gætum ekki með sífelldum evruskorti.
Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það væri hægt að gera árið 2009 að afborgunarlausu ári hjá Íbúðalánasjóði og setja þá gjaldaga afturfyrir á höfuðstólinn. Bara svona til að reyna að glæða fólk von og bægja frá kvíðanum sem hrjáir unga fólkið. Og að sveitarfélög skipuleggi ný smáíbúðahverfi þar sem lóðir verða látnar niðurgreiddar með greiðslufresti í því skyni að fólkið fari aftur að nota eigin hendur við að bjarga sér í stað þess að reyna að græða á tölvuskjáunum.
Fólkið vantar von fyrir stafni, nýjar lendur að nema. Ljónsöskur eins og Churchill sagði að hefði verið sitt hlutverk á stund neyðarinnar.
Halldór Jónsson, 19.10.2008 kl. 23:34
Góð lesning
Jón Aðalsteinn Jónsson, 19.10.2008 kl. 23:42
Þegar harðir kapitalistar eru flúnir í faðm ríkisins með bón um hjálp, þá held ég að frjálshyggja Reagans og DO, sé dáin. Allt annað er óskhyggja um liðin tíma. Eins og Frederik Braconier segir í SVD í dag.
"Finanskrisen orsakar ett ideologiskt jordskred. När stater tar över banker och tvingas garantera hela det finansiella systemet har tron på den fria marknadens självläkande krafter fått en knäck. "
og seinna "Därmed har nyliberalismen åtminstone temporärt kastats på sophögen. Staten behövs när marknadskrafterna har kört i diket. Att staten då har 20 procent i en av storbankerna framstår knappast som stötande."
Það getur vel verið að hinn anglosaxnesku hagkerfi séu fljótt að jafna sig en markaðshagkerfið eins og við þekkjum það í dag er farið. Sú heimsskipan sem byrjaði með Nixon hefur liðið sitt skeið.
Ég á von á því að Ísland jafni sig fljótt en ég vona að við berum gæfum til þess að sleppa ríkisforsjáni og leggjum frekar áherslu á gott regluverk. En við þurfum líka góðan heimamarkað (ESB-löndinn) og traustan gjaldmiðill (Evru) til þess að okkar kraftar nýtist sem best. Til þess að við eigum að geta jafnað okkur, þá þurfum við að lækka allan viðskiptakostnað sem mest við megum. Við þurfum stóran heima markað,
Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 15:16
Já auðvitað mun Noregur, Sviss og Ísland sökkva í sæ ásamt öllum öðrum löndum heimsins nema þeim 27 sem eru í ESB. Það hljóta allir að sjá alveg eins og þeir sáu ljómann frá austri og niðri á fyrri tímum
-------------------
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
-------------------
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
-------------------
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
-------------------
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
-------------------
Halló !!
Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2008 kl. 15:44
Það er gaman að fylgjast með ykkur á þessari síðu. Það sem þið eruð að skrifa um er svo á skjön við raunveruleikann og það sem ég er að upplifa úti í þjóðfélaginu að það er hreint út sagt með ólíkindum.
Það eru sjálfstæðismenn unnvörpum að skipta um skoðun og aðhyllast nú ESB á meðan þið látið eins og ekkert hafi gerst, þetta sé sé smá skúr - ekki einu sinni él - og að allt muni ganga sinn vanagang, þegar álversframkvæmdirnar í Helguvík verða komnar á fullt. Ekki misskilja mig, því ég vil álversframkvæmdir hér á Suðurnesjum og fyrir norðan!
Við erum núna að taka lán upp á 1/2 þjóðarframleiðsluna, sem mun skuldsetja hvert mannsbarn um 2,2 milljónir króna. Þetta mun samt duga skammt, því mér skilst að skuld okkar í útlöndum sé eitthvað um 12 milljónir króna á hvern Íslending.
Vaknið endilega!
Ef við hefðum verið með evruna hefðum við aldrei fengið að skuldsetja okkur svona og þar að auki hefði evran tryggt rekstur bankanna og við hefðum ekki upplifað þetta gengisfall og þessa verðbólgu.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.10.2008 kl. 17:06
BNA hafa þegar verið í djúpri kreppu um þónokkurt skeið og samkv. spá frá Deutsche Bank sem þú vísar sjálfur í hér er ekki mikil von um að ástandið í BNA skáni, því þarna er spá fyrir árið 2009 sem segir: "USA ventes at gå i recession med et minus på 1 pct".
Það er augljóst að þetta blogg þitt byggir á óskhyggju frekar en öðru...
BigBrother (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:50
Guðbjörn: "Ef við hefðum verið með evruna hefðum við aldrei fengið að skuldsetja okkur svona og þar að auki hefði evran tryggt rekstur bankanna og við hefðum ekki upplifað þetta gengisfall og þessa verðbólgu".
Talandi um óskhyggju...
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 18:01
Þakka þér fyrir góðann pistil Gunnar. Satt best að segja mætti heyrast meira af viðhorfum sem þessum.
sandkassi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 18:40
Þakka ykkur öllum kærlega fyrir innleggin
Big Brother
Ég held að þú sért að misskilja eitthvað:
ESB mun ekkert geta gert til að sporna við því að atvinnuleysi fari upp í hæstu hæðir nokkurntíma. Sjálfur spái ég 15% atvinnuleysi í ESB sem mun þýða allt að 20% atvinnuleysi í sumum löndum ESB. Það verður ekkert hægt að gera við þessu því evran hindrar atvinnusköpun ?
Evran og ESB mun sjá fyrir því að bilið á milli efnahags ESB og BNA og Íslands hinsvegar mun einungis halda áfram að breikka og verða enn verra en það er nú: árangur Lissabon 2000 markmiða Evrópusambandsin
Ég mæli með:
Breytt mynd af ESB - höfuðstefna
og
og Skatta-OPEC Evrópu - Evrópusambandið - árangur
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2008 kl. 19:09
Ég legg til að menn skoði úttekt á Spáni sem ég var að setja á bloggið mitt. Ég held að Spánn fari jafnvel verr út úr kreppunni en Ísland. Atvinnuleysi þar er nú þegar komið yfir 11%.
Loftur Altice Þorsteinsson, 20.10.2008 kl. 21:55
Nei Gunnar, ég er ekki að misskilja neitt, ég er bara að vísa í sömu skýrslu og þú gerðir.
Skýrslan sem þú sjálfur vísar í sýnir annað en þú fullyrðir. Það er bara svona þegar þú handvelur einhverjar tölur úr skýrslum til að nota í áróðursskyni og minnist ekki á allt annað, að þú færð það svo léttilega í andlitið aftur þegar betur er að gáð.
Svo má líka benda á þetta hér sem spáir efnahagsbata í Evrópu á næsta ári en það líka allt annað en þú fullyrðir. Enda er þetta Evrópuhaturs- og Bandaríkjaástarblogg þitt meira byggt á trúarbrögðum og óskhyggu en nokkruð öðru.
BigBrother (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:28
BigBrother: Þeir sömu ágætu menn (IMF) sem spá nú efnhagsbata í Evrópu á næsta ári, höfðu þetta að segja um langtíma efnahagshorfur Íslands í skýrslu sinni sem birtist í júlí 2008. (Athugaðu dagsetninguna! Hún er þó nokkuð skondin eins og skýrslan öll sjálf í heild sinni.. eða hvað?)
Iceland—2008 Article IV Consultation Concluding Statement
July 4, 2008
This document contains the conclusions of the IMF mission that visited Iceland during June 23-July 4, 2008. The mission team would like to thank all participants in the meetings for excellent cooperation, frank discussions, and the usual warm hospitality.
Introduction
1. The Icelandic economy is prosperous and flexible. Per capita income is among the highest and income inequality among the lowest in the world. Labor and product markets are open and flexible. Institutions and policy frameworks are strong, and the government's debt is very low. The remarkable management of the country's natural resources has enabled Iceland to diversify the economy and help ensure sustainability. Against this backdrop, the long-term economic prospects for the Icelandic economy remain enviable.
-----------------------
Ef efnahagshorfur hér ættu að teljast öfundsverðar, nú tæpum fjórum mánuðum eftir að ofangreind spá er birt, þá held ég að þú og hinir píslarvottarnir sem þrá himnaríki á jörðu innan ESB, ættuð að leggjast á hnén og biðja fyrir himnasmiðunum í Brussel. Það eru nú bara 436 dagar til dómsdags. En trúin flytur fjöll, ekki satt?Frosti (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 04:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.