Þriðjudagur, 28. september 2021
Kosningarnar: Græna myglan búin að vera
Ekið með 70 tonn yfir brú í Ástralíu á 16-gíra Kenworth-trukki knúnum V8-strokka 18-lítra Caterpillar dísilvél. Heyrið þið V8-tónlistina? Þeir sem hafa ekki séð 150 km þráðbeinan "vegarspotta" geta séð hann hér á þessari upptöku eigandans. Stundum eru 450 km á milli bensínstöðva á þessari tröllvöxnu eyju sem heitir Ástralía. Stóra-Bretland, Bandaríkin, Ástralía, Kanada og Nýja Sjáland eru öll eyríki. Þau eru Fimm Augu veraldar með risavaxna sameiginlega flotahagsmuni. Flotar eru því framtíðin, en ekki landlæstir hagsmunir
****
ALÞINGISKOSNINGARNAR
Um þessar kosningar er það að segja að til dæmis ég kaus taktískt og kaus flokkinn minn xD en ekki Miðflokkinn eins og ég hafði velt fyrir mér. Það sem gerðist var að nokkrum vikum fyrir kosningar leysti SDG upp perlufestu flokksins og stráði henni á borð fyrir stétt froðu-myglunga. Tók hann sjálfan sig næstum með í fallinu. Kosið var því taktískt hér hjá mér og mínum
Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, tapaði á samstarfinu við Vinstri græna. Hann spólaði af sér einu prósentinu enn, og sem næstum urðu tvö, væri það ekki fyrir hið tæpa eina prósent sem kom í hús korter eftir uppgjafarlokun DDRÚV klukkan 05:XX-get-ekki-neitt. Þar á bæ fær fólk jú eina og hálfa til tvær á mánuði fyrir að geta ekki neitt. Svipað gildir um flest það sem er á framfærslu hins opinbera
Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, fékk næstverstu kosningu í sögu flokksins. Slík var frammistaða flokksforystunnar. Hún var hreint út sagt hörmuleg. Bara 2009 var verra fyrir flokkinn
Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, varð því að eins konar smábæjarflokki á kjörtímabilinu því hann er ekki lengur stærstur úti á hinu stóra Íslandi. Reykjavíkursvæðið er jú bara smábær á nokkur hundruð hekturum af vafasamri svifryksjörð er hvenær sem er sokkið getur alfarið í froðusæ. Svæðið er orðið að eins konar Evrópulíkkistu á borð við a-tómstöð. Gervihnöttur á sporbraut um nýtt en hrynjandi sovét
Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, hrundi niður í annað sætið vegna hamborgararáðherranns í Norðvesturkjördæmi, sem er mitt. Og í Norðausturkjördæmi trónir Framsókn nú svoleiðis að þar sést xD varla, nema þá sem ombyttnar heyrúllur á útibleikri brókarstöðu. Og í Suðri er staða xD hreinlega til að hlægja að. Framsókn og hann eru næstum jafnir þar. Já. Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, er orðinn smábæjarflokkur
Ég verð að játa að ég hef aldrei skilið Framsókn. Sá flokkur er mér alltaf sem lokuð bók eins konar dulspekifélags. En hann er samt sigurvegari kosninganna, þegar litið er til síðasta kjörtímabils
Aldrei hafði ég trú á að Sósíalistaflokkurinn næði inn á þing. Enda gerði hann það ekki
GRÆNA HELIÐ
Vinstri grænir urðu helgrænir á kjörtímabiluninni og er hin græna mygla þeirra um þessar mundir að keyra á vegg um alla jörð. Bera má "græna tímabilið" í dag saman við geggjunartímabil kynbótastefnumanna í byrjun síðustu aldar (e. eugenics). Þar ætluðu vísindamenn sér að bæta mannkynið með því að eyða hinum og þessum hópum þess og þar með búa til "fyrirmyndar-mannkyn"
Vísindamenn hafa alltaf verið hálfbrjálaður hópur menntamanna haldnir guðastælum. En sem betur fer stoppuðu stjórnmálamenn þetta fólk af, þarna á síðustu öld. Það þurfti sem sagt stjórnmálamenn til að stöðva vísindageðbilun þeirra daga, því vísindamenn sjálfir stoppa sig aldrei af. Og þannig er það líka í dag. Guða-komplexgræn vísindaþvæla þeirra verður stöðvuð af á sama hátt núna. Kjósendur munu stöðva geðbilunarboðskap þeirra
Þegar litið er til mannkynssögunnar hafa vísindamenn lítið lagt af mörkum. Þeir fundu ekki upp hjólið. Þeir fundu ekki upp vatnssalernið og ei heldur pípulagnir og skólpræstingar. Það gerði hins vegar einkaframtakið með nýrri tækni. Það fann upp og framkvæmdi líka iðnbyltinguna. Vísindamenn komu þar hvergi nálægt, enda ævinlega hálfklikkaður hópur manna og sennilega mun meira klikkaður en hvaða annar hópur manna sem er
Vinstri grænir munu sem sagt upplifa endalok sín á þessu nýja kjörtímabili og þar með virka eins og tifandi svifrykssprengja þegar komið verður fram á árið 2023 - í hvaða ríkisstjórn sem er
Á sunnudaginn frussaðist bæjarloftið úr þýsku græningjunum í kosningunum þar. Þeir eru náttúrlega smábæjarfyrirbæri þar eins og hér, eða eins konar svifryksnökkvar nýburgeisa er svífa um innan borgarmúranna. Og ef það væri ekki fyrir snilligáfu einkaframtaksins þá myndu þeir þurfa að vara skít og drullu upp í háls - eða ganga um á stultum
Sem betur fer er ég ekki Bjarni Ben, því þá myndi ég hafa sagt af mér. En mín ráð til hans eru þau að hringja í Viðreisn og segja við þá: "Ef þið skerið af ykkur Evrópuútlimina og látið skera úr ykkur evrubotnlangann, þá megið þið koma heim og sitja í stjórn með mér og Framsókn, sem er í framsókn. Ef ekki, þá endilega haldið áfram að brjóta í ykkur tennurnar á stálfátæktarevrunni þar til tannlausir þið sannarlega verðið og betlið mjúka fæðu. Þið eigið eina tönn eftir"
STÓRA-BRETLAND OG LITLA-EVRÓPA
Á meðan græna myglan hefur verið að strá sporum sínum um allt í Valhöll á síðasta kjörtímabili hefur hið íslensk-ameríska fyrirtæki Alcoa áttafaldast í markaðsvirði á síðustu 17 mánuðum. Þar hefði ég átt að geta þénað tonn af peningum. En ég hef bara ekki sérþekkingu á hrávörumarkaði eins og ég hef á tæknimarkaðnum, þannig að þetta fór í súginn, enda ekki hægt að vera góður í meiru en bestu hugmynd sjálfs síns. Enginn getur haft tvær bestu hugmyndir
Svo vill til að stærsta álver Alcoa í heiminum er á Reyðarfirði og sem er á Stóra-Íslandi en ekki í smábænum Reykjavík. Mikið er að gerast á hrávörumörkuðum heimsins, því á þessu sama kjörtímabili hefur hinni kínversku millistétt Guðlaugs Þórs verið breytt í 1400 milljón manna biðröð inn í þjóðargjaldþrot og varnarbandalagið AUKUS verið sett á laggirnar; sem þýðir það að Fimm Augu eru eina bandalagið í heiminum sem hægt er að stóla á
Og ekki nóg með það; Fimm Augu sem er hið óformlega bandalag Stóra-Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands, já það bandalag er eldra en NATO sem nú liggur í öndunarvél bíðandi eftir að Evrópa gangi í það. En það mun bara ekki gerast, því Evrópa er gengin til grunna og komin að hálfu leyti upp í afturendana á Kína og Rússlandi. Þess vegna kom Frakkland ekki til greina sem aðili að AUKUS, sem er hið nýja varnarbandalag Stóra-Bretlands með fyrrverandi nýlendum þess; Bandaríkjum Norður-Ameríku og Ástralíu. AUKUS er varnarbandalag 427 milljón manna sem standa fyrir rúmlega þriðjungi heimsframleiðslunnar - og standa sennilega fyrir meiru þegar froðunni Kína hefur verið fleytt af. Sú fleyting er nú þegar hafin og má því búast við flestu illu þaðan
AUKUS og Ísland og Grænland ríma hins vegar saman, því við erum nátengd þessum löndum. Þeir sem hugsa um Alcoa og ál, verða samtímis einnig að hugsa um Ástralíu. Hvernig er viðskiptajöfnuður okkar við Ástralíu?, sem er land tækifæranna og komandi stórveldi með tilkomu AUKUS
HEFUR BORIS MISST GLÓRUNA?
Munið þið eftir því að Stóra-Bretlands-Boris sagði að þegar hömlum og lokunum vegna Wuhanveirunnar verður loksins aflétt að "þá munu þær aldrei verða settar á aftur". Munið þið það?
Já ég man það, og mér líst svoleiðis á stjórnmálin í Stóra-Bretlandi að græna myglan sem Boris er sagður hafa sem eins konar pólitískt-heilaæxli sé ekki meira æxli en svo að þar verði hið sama látið gilda: Að almenningur verði því miður látinn finna það mikið til græna myglutesins að Boris geti komið og sagt það sama þar; "Nú sjáið þið hvert þessi græna mygla hefur leitt okkur og þegar ég aflétti þessari geðbilun vísindamanna af herðum ykkar, já þá mun hún aldrei aldrei aftur verða sett á herðar ykkar á ný. Hún mun ekki eiga afturkvæmt - og það verður aldrei aftur snúið við. Aldrei." Ég held að það sé þetta sem Boris er að hugsa. Hef ég rétt fyrir mér?
KOSNINGAÞÁTTTAKAN
Voru það ekki frekar margir sem skiluðu auðu í kosningunum hér heima á laugardaginn? Er 1,8 prósent ekki frekar mikið? En kosningaþátttakan var léleg, svo mikið er víst. Því verður ekki afneitað. Hún er sú næstlélegasta síðan 1933
Fyrri færsla
Sennilega langt í ný sýklalyf. Skemmtilegar veðurfréttir [u]
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2021 kl. 13:41 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 26
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 442
- Frá upphafi: 1389062
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 251
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Góður pistill. Þessar kosningar marka ákveðin þáttaskil að lækkað hefur eitthvað rostinn í vinstriflokkunum í bili.
Jón Valur Jensson hefði átt að komast inná alþingi á meðan hann lifði til að setja mark sitt á þjóðfélagið. Það hefur verið mesta ógæfusporið að taka æsku og kjánaskap fram yfir reynslu, hæfni og þekkingu.
Þú kemur inn á mörg atriði í þessum pistli, en gleymir þeirri gleðilegu frétt sem var í DV nýlega að Trump sagðist tilbúinn að taka við stjórn landsins hvenær sem væri, og bara ef hann missti heilsuna yrði því aftrað.
Held ég að Joe Biden sé farinn að virka ótraustvekjandi jafnvel á fleiri. Sá ágæti maður Jóhannes Björn, sem skrifaði "Falið vald", segir að kreppa sé í uppsiglingu í Bandaríkjunum, ekki bara í Kína, vegna óstjórnar Biden-stjórnarinnar. Það eru kannski stærstu fréttirnar.
Sjálfstæðisflokkurinn er í lægð, rétt er það. Bjarni Benediktsson hefur samt sýnt að hann er býsna hæfur sem fjármálaráðherra. Aðrir formenn Sjálfstæðisflokksins hefðu þó fyrr barið í borðið og haft meiri stjórn á skipi sínu, ríkisstjórnunum eftir hrun.
En staða Kína og staða Evrópu er það atriði sem væri áhugavert að vita hvernig þú fjallar nánar um.
Þessar nýju kosningar í Þýzkalandi geta breytt einhverju. Hógværir eru Þjóðverjar nútímans, en varla önnur Evrópuþjóð áhrifameiri, nema auðvitað Bretar. Er Evrópusambandið endanlega að gliðna í sundur, eða hvað?
Ástandið í Kína er sennilega miklu verra en fréttir gefa til kynna. Þaðan berast takmarkaðar fréttir eins og úr Sovétríkjunum sálugu áður fyrr.
Ingólfur Sigurðsson, 28.9.2021 kl. 14:48
Þakka þér fyrir góðar kveðjur og athugasemd Ingólfur.
Bandaríkjaforseti þarf ekki að virka neitt sérstaklega vel, því Bandaríkin eru sem betur fer hófstillt blanda af Spörtu, Aþenu og Róm, þannig að stofnanir þeirra virka ágætlega þó svo að útópískt Aþenuástand ríki meðal fárra útvaldra á mýrarhúsahæðum Washingtonborgar. Sagan skapar forsetann þar en ekki öfugt. Hann mótar því ekki söguna svo mikið. Sagan mótar hann meira.
Merki þess sjást glögglega á því að þó svo að hinir útvöldu og ruslfjölmiðlar þeirra séu á sífelldu frétta- og hugmyndahvolfi þessi árin, þá kemur samt góð og mjög svo viturlega-strategísk grunnhugsun út úr til dæmis Pentagon. AUKUS sannar það. En já víða er allt á hvolfi. Enda varla við öðru að búast á hágeðbilunartímum grænfroðu-myglunga.
Kína er frá og með nú búið að vera sem það ríki sem menn víða á Vesturlöndum héldu að það væri. Það land er nú að hefja japönsku sjóferðina sem hófst 1987 og sem varð þess valdandi að það land hefur ekki náð sér enn.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 28.9.2021 kl. 15:11
Hafði ekki tíma til að svara sumum spurningum þínum Ingólfur, þannig að hér kemur smá framhald:
Bandaríkin eru ekki laus eða fáanleg fyrir Trump, sama hversu vel manni líst á hann. Joe Biden er forseti Bandaríkjanna fram að næstu kosningum, sama hvað manni kann að finnast um það. En stundum er það þannig að þó svo að allt virðist á hvolfi innvortis í Bandaríkjunum, að þá virka þau. Þau eru sett þannig upp.
Kemst Trump að á ný í næstu kosningum? Já það er alveg mögulegt en samt of snemmt að segja til um. Bandaríkin bíða að minnsta kosti eftir nýjum Reagan núna.
Það er segjandi fyrir stöðuna í Þýskalandi að Angela Merkel þóttist ekki hafa tíma til að tala við Joe Biden þegar hann settist á forsetastól og hringdi sitt fyrsta símtal út fyrir landssteinana, því Biden hafði gert sér (fáránlegar) hugmyndir um að hægt sé að "bæta sambandið" við DDR-ESB-Evrópu - þ.e. yfir Atlantsála. En nei. Angela Merkel sagðist ekki hafa tíma til að tala við hann því hún þurfti að huga að grænmetisgarði sínum þá helgina.
Merkel og öll þýska valdastéttin er orðin andsnúin Bandaríkjunum. Merkel hóf ferill sinn sem aðdáandi Bandaríkjanna en snérist 180 gráður á sínum 16 valdaárum og er í staðinn orðinn mesti aðdáandi Kína á Vesturlöndum. Ekkert land heimsótti hún eins oft og Kína. Hún fór þrettán sinnum þangað í heimsókn á kanslaraferli sínum. Sennilega mun oftar en danski DDR-forsætisráðherrann Anker Jørgensen fór sér til andlegrar hressingar til Norður-Kóreu.
Merkel er staðan í Evrópu í hnotskurn: Hún sjálf skilur við allt í rúst. Flokkinn sinn og sambandið við Bandaríkin og Bretland í kaldakoli - og sjálf er hún snúin á braut til nýs DDR. Hún dáir einræðistilburðina í Kína og "skipulags-hagkerfið". Hún álítur heim engilsaxa þ.e. Anglosphere(ið) vera óreglubundið hagkerfi allsherjarklúðurs (disorder, disorderly, keine ordnung) þar sem einstaklingar séu allt of frjálsir til að leita efnda eina loforðsins sem til dæmis bandaríska stjórnarskráin lofar mönnum: að allir hafi jafnan rétt til að leita hamingjunnar.
Svipuð staða er uppi í Frakklandi. Þar eins og í Þýskalandi drógu menn þá röngu ályktun af Suez-hrakförum Breta og Frakka 1956 að Bandaríkjunum sé ekki treystandi. En þáverandi forseti Bandaríkjanna, Eisenhower hershöfðingi, iðraðist mistaka sinna í því máli til dauðadags. Árið eftir var Rómarsáttmálinn því samþykktur sem hefnd gegn Bandaríkjunum. Það eina sem í honum stendur er að "við ætlum hér með að hefna okkar" með því að stofna nýtt ríkjagúlag til að nota sem vogarstangarafl gegn ykkur þarna í áhrifaveldi Engilsaxa.
Bretar drógu hins vegar ekki þessa ályktun af Suez-hrakförunum, því þeir sjálfir eru Anglo-Saxon og vita manna best að eina leiðin til framfara er að leyfa hlutunum að fara (já disorderly) á hausinn í óreglubundnu allherjar fíaskói inn á milli. Að það sé eina leiðin til að rétta skútuna við, svo að hún verði ekki sovéskt/kínverskt draugaskip eins og Evrópusambandið er náttúrlega orðið.
Þannig að ekki kom til minnstu greina að hleypa Frakklandi né neinu meginlandsríki hins nýja ESB-DDR með inn í hið nýja AUKUS-bandalag. Þannig DDR-fólki er hreinlega ekki trúandi fyrir ríkisleyndarmálum né neinu mikilvægu, því þannig fólk þolir ekki áföll án þess að breytast í ESB-DDR. Þolir ekki Lehmanshrun, þolir ekki íslenskt bankahrun án þess að breytast í DDR. Og það má með miklu sanni segja að Þýskaland sé eins konar kína Evrópu. Þýskaland ER kína Evrópu.
Góðar kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2021 kl. 07:27
Kann betur við Border Reiver. https://youtu.be/dzqNSAbE7Fo
Jón Steinar Ragnarsson, 29.9.2021 kl. 09:16
Ég þakka þér greinargóð svör, Gunnar. Það er nefnilega svo að ef maður hlustar á "spekingana" á RÚV vellur uppúr þeim mærðarvitleysa um ESB.
Túlkun þín á Merkel og þýzku þjóðinni finnst mér nákvæm. Það er þessi dýrkun Þjóðverja á skipulagi sem gerir þá skylda Kína.
Þannig að hættan er sú að ESB þróist í valdstjórnarríki kommúnískt ef það er ekki orðið þannig nú þegar?
Hnignun Evrópu heldur áfram. Það eru undarleg mistök af Merkel að taka grænmetisgarðinn sinn fram yfir Biden, því Þjóðverjar höfðu gefið þau skilaboð að þeim líkaði betur við hann en Trump.
Það er mjög eftirtektarvert að fréttamenn á RÚV finna allt neikvætt á Breta þessa dagana eftir að hafa sagt skilið við Evrópusambandið. Vandræðin með vörubílstjórana og meintan vöruskort eru daglegar fréttir jafnvel þótt brezk stjórnvöld telji að þetta muni leysast auðveldlega.
Það er eins og RÚV telji það skyldu sína að hræða Íslendinga frá þeirri stefnu sem Bretar hafa tekið.
Þrátt fyrir allt er ég þokkalega ánægður með Joe Biden núna. Hann er ekki eins og verstu hrakspár sögðu fyrir um.
Þökk fyrir góð svör og áhugaverð.
Ingólfur Sigurðsson, 1.10.2021 kl. 14:20
Amen - og þakka þér fyrir feikigóða athugasemd Ingólfur.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 1.10.2021 kl. 14:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.