Leita í fréttum mbl.is

Uppgjörið: Landsframleiðslan 2020

Hagstofan kom með uppgjör yfir landsframleiðsluna á síðasta ári á föstudaginn:

Við erum með VLF-samdrátt upp á 6,6% á árinu 2020, í heild.

Slæmt já, en ekki það hrun sem menn óttuðust

Síðasti fjórðungur af fjórum á árinu 2020 óx um 4,8% miðað við þann þriðja (bati), og miðað við sama fjórðung á árinu 2019 var samdrátturinn 5,1% á fjórða fjórðungnum (milli ára)

Vöruútflutningur dróst saman um 8,5% á árinu, sem er flott niðurstaða miðað við allt

En samdráttur í útfluttri þjónustu var 51,2% á árinu. Ferðaþjónustan hrundi um um 74,4% á meðan annar þjónustuútflutningur virðist standa sig, því annars hefði hrunið í útfluttri þjónustu verið meira í heildina

Vöruinnflutningur dróst saman um 12,5% á árinu og innflutningur þjónustu um 38,5%. Bara fínt. Meira af þessu!*

Sem sagt; vöruútflutningur var nokkuð í lagi miðað við aðstæður ytra á meðan þjónustuútflutningur hrundi. Ferðaþjónustan er náttúrlega algjört drasl og síðasta sort til að reiða sig á. Þolir ekkert. Prump bransi sem krefst miklu meiri innflutnings en af er látið. Nettóframlag hans í virðis- og velmegunarsköpun er því nálægt núlli. Þarna er hestöflum hins vel menntaða hagkerfis okkar eytt í spól úti í mýri. Illa er farið með þau. Breyting verður að eiga sér stað þarna, því annars verðum við suður-evrópskri fátæk að bráð. Ferðaþjónustu fylgir ávallt hrun í hagvexti landa til lengri tíma litið

Einkaneysla dróst saman um 3,3%
Fjárfestingar drógust saman um 6,8%
Samneysla jókst um 3,1% (það eina sem jókst)

Það eru sem sagt utanríkisviðskipt með þjónustu sem eyðilögðu árið

Takið eftir að samdrátturinn í einkaneyslu er vegna þess að fólk fékk ekki að kaupa það sem það vildi og bað um. Þetta er því framboðskreppa - ekki eftirspurnarkreppa. Mikilvægt

Árið 2020 fyrir Ísland og nágranna okkar:

Ísland -6,6%
Bandaríkin -3,4% (dugnaður Trumps)
Kanada -5,5%
Bretland -10,0%
Frakkland -9,0%
Þýskaland -5,4%
Ítalía -9,2%

Það er náttúrlega ekkert að marka Kína (+2,3% hagvöxtur) því þar er það Miðstjórn Kommúnistaflokksins sem ákveður hagvöxtinn, ekki hagkerfið. Þar er output samkvæmt pöntun (fer eftir magninu af ríkislánsfé) og rangstæðar og ónýtar fjárfestingar eru aldrei afskrifaðar né niðurskrifaðar í virðisaukaþætti fjárfestinga í þjóðhagsreikningum. Allar bækur fjármálafyrirtækja eru því krónískt stútfullar af þvælu og ónýtum lánasöfnum. Þetta tifar. Þetta tifar

2021

Árið 2021 byrjar ekki vel því Evrópusambandið klúðraði bóluefnismálum 448 milljón manna. Vesalingaveldið vex og hörmungar þess sístækka og 67 milljón manns yfirgáfu það því á síðasta ári

Ríkisstjórn Íslands gafst upp á sjálfri sér og tók þátt í klúðrinu. Þetta leiðir hugann að Sovétríkjunum sálugu og er meiriháttar hneyksli í Íslandssögunni. Af hverju missir ekki einhver vinnuna þarna? Þið gerðuð á ykkur og þurrkið því á íslensku þjóðina. Þið eruð nú meiri Icesave- og orkupakka vesalingarnir! Þetta er algjör aumingjadómur

------

* Fínt, því viðskiptageiri hagkerfis okkar (e. tradable sector) er svo lítill miðað við heildarstærð hagkerfisins, eins og ávallt er í litlum hagkerfum. Það þarf því að hefta innflutning og auka og vernda innlenda framleiðslu massíft. Um að gera. Allt annað mál gildir um stór hagkerfi. Þeir sem segja annað á Íslandi eru annað hvort í sértrúarsöfnuði um e-merki og Schengen eða í stuttbuxnadeild

Fyrri færsla

Síðasta reiðhjólabóla umhverfis (næstum ekkert) 1890


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Hafðu mínar bestu þakkir fyrir þennan síðasta pistil Gunnar! sem og alla aðra pistla.

Eg hef nokkuð lengi fengist við að stjórna fiskiskipum og eitt er víst að nánast ekkert af stjórnarliði alþingis er að vinna sína vinnu fyrir Íslenska þjóð.

Maður sem ræður sig í skipsrúm bara til að flaka sér fisk til eigin nota,fær einfaldlega POKANN sinn.

Bestu kveðjur

Óskar Kristinsson, 28.2.2021 kl. 12:32

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka  þér fyrir Óskar.

Já mikið rétt hjá þér, og eins og þú sérð, er hér ekki um neitt "smart-hagkerfi" að ræða og því síður um neina "fjórðu iðnbyltingu", því hún fór þá þegar fram er reiknigeta tölvunar forðaði okkur frá því að allir Íslendingar þyrftu vinna við bankakerfið og reiknistofur fyrir hinn opinbera geira í kringum 1970.

Og nú sitjum við uppi með tröllvaxna erlenda landflökkulýðsstétt ESB-hörmunga meginlands Evrópu, sem eru innfluttir atvinnulausir láglaunaþrælar ferðaþjónustu sem aldrei hefur þénað túkall, og er og verður um aldur og ævi því fyrst og fremst bara veltubransi sem aldrei skilar gróða og verður alltaf í krónísku hokri.

Ég vorkenni skattgreiðendum lands okkar stórkostlega vegna þessa. Núllið eftir þennan túrhesta-geira í hagkerfinu stækkar bara og stækkar. Og nóg er komið af skúra- og skiltadraslinu eftir þennan bransa út um allt land. Ég vona að það fjúki út í hafsauga sem fyrst.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2021 kl. 13:35

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Það hefur blessast vel úr þessu hér hjá okkur, og enginn hvað hefði blessast ef ekki hefði verið opnað fyrir túristaveiruna í upphafi sumars, mikill skaði fyrir lítinn ávinning.

En hefur þú einhverja hugmynd um hvernig gekk hjá norrænum frændum okkar í viðjum vesalingabandalagsins á síðasta ári, hvernig endaði sú saga hjá frændum vorum Finnum, Svíum eða Norðmönnum, að ekki sé minnst á gömlu herraþjóðina.

Þetta er ekki lönd sem byggja mikið á ferðaþjónustu þannig maður hefði haldið fyrirfram að þau kæmu betur út en við en veistu hver var reyndin??

En segi eins og Óskar, takk fyrir enn einn hressandi pistil þinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.2.2021 kl. 15:00

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ómar.

Bæði ríkisstjórnin og sóttvarnaryfirvöld eyðilögðu efnahag lands okkar langt umfram það sem þurfti. Eins og þú bendir á þá skóf landamæraopnunin stóran hluta einkaneyslunnar burt með því að dæla veirum inn í landið, og sem síðan skelltu of mörgu í lás á ný. Það var aumingjadómur og sem virðist vera sérgrein vesalinga.

Uppgjör norsku, dönsku, sænsku og finnsku hagstofanna er þetta yfir landsframleiðsluna 2020:

Finnland -2,9%

Danmörk -3,3%

Svíþjóð -2,8%

Noregur (fastlandið) -2,5%

Við erum sér á báti með 6,6 prósenta hrun vegna ferðaþjónusturústanna sem stjórnmálamenn okkar hvöttu áfram í byggingu með efnahagslegum þvættingi í mörg ár.

Sú rúst var þegar byrjuð að myndast á síðari hluta ársins 2018 en einkum á árinu 2019. Við erum því í  tvöfaldri kreppu (e. double whammy).

Ekkert annað Norðurlandanna er svona á kafi eins og við í rústum ferðanjálgsorgíu-bransans. Hmpf!

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2021 kl. 17:38

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 28. febrúar 2021 kl. 21:45:15

Nú nú!

Hin þýska vísindalega kverúlantakirkja endurvinnslustöðva Wilhelm von Humboldt, sem telja verður sem einn helsta forföður nasismans, virðist hafa gefist upp á sjálfri sér í dag og játað að "eitthvað hafi farið verulega úrskeiðis" í sambandi við breska Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca í Þýskalandi. Þar kom nefnilega Thomas Mertens höfuðsmaður Stiko (já rétt: Stiko er hvorki meira né minna en nafnið á bólusetningarnefnd Þýskalands) fram á tröppurnar, og sagði óbeint að allt það sem Þjóðverjar og svo kölluð þýsk yfirvöld þeirra hafa sagt um Oxford/Spitfire bóluefnið hafi verið þvæla. Það eina sem hann sagði ekki, var að þvæla þeirra hefði byggst á öfund, en það gerði hún einmitt. Telegraph er með þetta í dag:

Thomas Mertens, the head of Germany-s Standing Committee on Vaccination (Stiko), said on Saturday that the country was likely to change its controversial guidelines against not to give the AstraZeneca vaccine to over 65s, saying errors had been made. Promising "a new, updated recommendation very soon", Mertens said: "somehow the whole thing went very badly".

Ellefu gervihnettir á fastri sporbraut um Þýskaland fylgdu því að málum í þessi hámenntaða klúðri.

Einmitt svona mun öll hin óvísindalega kverúlantakirkja um hlýnun jarðar af mannavöldum láta lífið sem eitt stærsta og heimskulegasta samsæri hreinræktaðra histerískra bjána og kjána úr Heiðnikirkjuveldi háskólanna.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2021 kl. 21:45

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 28. febrúar 2021 kl. 23:44:58

Það var gott að horfa á Donald J. Trump í beinni útsendingu frá CPAC í kvöld, en þar lauk hann ræðu sinni  fyrir nokkrum mínútum. Þar kom hann fram í fyrsta sinn frá því að hann yfirgaf Hvíta húsið fyrir sex vikum síðan. Hann leit jafnvel yngri út en fyrir fjórum árum. Ræða hans var löng og góð, enda orka mannsins næstum ótakmörkuð.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2021 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband