Föstudagur, 19. febrúar 2021
Kanslari og forseti rógburðar
STÓRA BÓLAN ESB
Evrópusambandið er komið með nýtt bóluefnisvandamál. En þar eru slík vandamál framleidd á þeim færiböndum sem mjaka meginlandi álfunnar enn dýpra inn í hlutverk taparanna og ánauð
Rógburðarherferð Angelu Merkel og Emmanuels Macron út í breska bóluefnið af Oxford/Spitfiregerð, framleitt af AstraZeneca, er þegar byrjuð að skila miklum árangri í því að auka mótvilja gegn bólusetningum við kínversku Wuhanveirunni í löndum Rógburðarsambandsins. En þeim löndum sögðu kanslarinn og forsetinn að fylgja ekki vísindum, heldur rógburði þeirra sjálfra og persónulega pólitískum hefndarþorsta hinnar krónísku elítugræðgi er logið hefur upp heilu húsi fjötra yfir þjóðir menginlandsins. En þar hýrast þjóðirnar núna í fremstu skuldafangelsismynt jarðar, og fá þau skilaboð að bóluefni og bólusetningar virki ekki, vegna þess að Evrópusambandið gat ekki skaffað neitt slíkt sjálft
Þannig berast þær fréttir frá Norðurrín-Vestfalíu sem er fjölmennasta sambandsríki Þýskalands, að fólk neiti að láta bólusetja sig með bóluefninu frá AstraZeneca. En Þýskaland er eitt þeirra óvísindalegu landa sem segja að fyrst að lyfið hafi ekki verið prófað samkvæmt magn-óskum þess á ákveðnum aldurshópi, sé það sönnun þess að það sé slæmt fyrir þann hóp. Þetta er ekki ósvipað því að segja að jörðin sé að farast fyrst það er ekki að kólna akkúrat núna. Þetta, mínar dömur og herrar, eru "vísindin" sem koma úr slorbandalögum um lítið nema þvælu. Eurointelligence skrifaði því í gær:
"But this is misleading information. Not enough tests were conducted in that age group, but the real-world data from the actual vaccination programme in the UK shows that this vaccine has been very effective in reducing hospitalisation and fatality rates. As so often, people confuse absence of evidence with evidence of absence. The problem with a smear campaign against a vaccine is that this affects not only the use of this particular vaccine but vaccines in general."
EKKI Í FYRSTA SINN
Þetta minnir okkur á það aumingja sovéska fólk sem hlaut þau örlög að fá vinnu hjá fréttastofum Ráðstjórnarríkjanna. Þar var hlutverk blaðamanna að taka fréttir úr hinum frjálsu löndum jarðar og snúa þeim gegn þeim í sovéskum blöðum. Dekkjaframleiðandi sem auglýsti til dæmis að viðskiptavinir fengju ókeypis hjólbarða ef þeir sem hann hafði keypt hjá honum skyldu bila, varð að frétt um að hjólbarðar á Vesturlöndum væru svo ónýtir að ekki væri hægt að taka greiðslu fyrir þá
Sovésku blaðamennirnir vissu nær samstundis að geðbilunin ein biði þeirra við þennan starfa
Það er þarna sem ESB-flokkarnir á Íslandi starfa núna. Í slorinu - en af fúsum og frjálsum vilja
STAÐAN
Staða stóru-leikanna á meginlandi Evrópu er nú orðin þessi: Rússland er komið með fastan forseta sem sagði árið 2000 að fall Sovétríkjanna væri verstu geópólitísku mistök síðustu þúsund ára. Og eina kosningaloforðið sem hann gaf Rússum þá, var að snúa þeim mistökum við. Í Stór-Þýskalandi og á hinum föstu gervihnöttum á sporbraut um það, er staðan þannig að sú samsteypa er hætt að skammast sín fyrir Síðari heimsstyrjöldina og Helförina. Þar skammast menn sín nú fyrir að hafa tapað henni. Þetta kemur: Evrópusambandið sér fyrir því...
Guði sé lof fyrir að Stóra-Bretland er komið út
Fyrri færsla
Vindverkur og sólstunga sendir Texas á kné
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:15 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 117
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
"Real world data"
hvað varðar notkun Oxford/AstraZeneca
fyrir 65 ára og eldri,
skipta Þórólf sóttvarnalækni heldur engu máli,
hann fylgir bara í blindni boðvaldinu
frá "kanslara og forseta rógburðarins"
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2021 kl. 18:10
Það er fremur dapurlegt til þess að vita
að íslenski sóttvarnalæknirinn taki þátt
í drullukasti þýsk-franska kolabandalagsins
að svo virtu vísindateymi sem Oxford teymið er,
Sarah Gilbert og rannsóknateymi hennar er.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2021 kl. 18:42
Nú keppast líka "leiðtoganir" við að gefa bóluefni til "fátækra" ríkja og á meðan deyja þegnar þeirra
eða ef til vill ekkert að marka þennan hræðsluáróður sem notaður hefur verið miskunarlaust til að berja þegna til hlýðni við misvitrar "sóttvarnar" reglugerðir
Grímur Kjartansson, 19.2.2021 kl. 19:26
föstudagur, 19. febrúar 2021 kl. 21:20:18
Janet Yellen fjármálaráðherra Bandaríkjanna tilkynnti rétt í þessu að tollar Donalds J. Trump á Kína munu halda áfram og verða látnir standa.
Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2021 kl. 21:20
Þakka þér Símon Pétur.
Já svona virka hringar í vatni, þegar kastið kostar ekkert.
En Þórólfi hefur samt farið fram sem lærlingi í pípulögnum. Lögnin heldur mun betur en áður, sérstaklega eftir að aðrennslislokinn úti í götu var loksins uppgötvaður.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2021 kl. 21:23
Þakka þér Grímur.
Svona eru þessir pressupakkar. Kostar lítið að gefa þá út.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2021 kl. 21:25
Haft er eftir Magnúsi Gottskálkssyni, yfirlækni smitsjúkdómadeildar LSH, að bresk stjórnvöld hafi veðjað á réttan hest, hvað bólusetningar varðar.
Gott hjá honum að tala tungu hreinni.
Betra væri sóttvarnalækni að taka mið af bresku lyfjastofnuninni, fremur en að hanga í pilsfaldi Mömmu Merkel og klúðurkjellingarinnar Úrsúlu von der Leyen og bíða þess eins sem frá þeim kemur: Þarmagasið.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2021 kl. 22:55
Þurftu Frakkar ekki frest til þess að þeirra fyrirtæki gæti komið fram með sitt síðbúna bóluefni? Merkel hjálpar þeim með töfunum hjá sér. Enn eitt dæmi um hverjir stjórna ESB alfarið. Svo halda Íslendingar að þeir fái afgreandi sæti við borðið?
Halldór Jónsson, 20.2.2021 kl. 11:26
Þakka þér Halldór.
Jú mikið rétt, plús ýmislegt annað úr sömu skúffu.
Hafa því dauðsföllin af völdum Wuhan-veirunnar í ESB nú breyst í ESB-dauðsföllin. Fólk deyr, þúsundum saman dag hvern, vegna pólitískar hugmyndafræði Evrópusambandsins. Sjálfsákvörðunarréttur þjóða hefur verið afnuminn þar.
Þetta er eins og á fæðingardeild þar sem allar mæður ákveða að gefa ekki sínu barni fyrr en að sú sem erfiðast á með gjafir tekst að gefa sínu nýfædda barni.
Börnin falla þá unnvörpum og enginn kemst af - í stað þess að gefa sínu barni fyrst til að geta síðan aðstoðað þær sem geta ekki sjálfar.
Þjóðerniskenndin er næsti bær við móðurástina. Sé henni ekki sinnt þá deyja á endanum allir.
Við lifum á imbahala-tímum heilaþveginna stjórnmálamanna af verstu sort, og margir fjölmiðlar eru þeim meðvirkir, en samt ekki allir, sem betur fer.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2021 kl. 12:04
Já rétt Símon Pétur.
Og þér að segja þá fylgdi ESB að miklu leyti breskum stöðlum við þróun, prófun og samþykkt nýrra lyfja þar til Bretland sparkaði Evrópusambandinu út úr Bretlandi.
Ekki veit ég hverju ESB fylgir núna. En það minnir óneitanlega mest á Moskvulínuna.
Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2021 kl. 12:22
Heill og sæll Gunnar,
að Þórólfi hafi farið fram sem nema í pípulögnum?
Jú, rúmensku athafnamennirnir vaða þó ekki lengur um allt Suðurlandsundirlendið eins og í fyrra sumar, og þeir frönsku síðsumars um Dags barina. Bara til að nefna örfá dæmi.
En það var kenning Þórólfs allan fyrri part liðins árs, að erlendir ferðamenn smituðu ekki, bara íslenskir smituðu íslenska. Það má svo sem segja að Víðir hafi fórnað sér til að "sanna" þá kenningu Þórólfs. Í því voru þeir kaþólskari en páfinn og allt Stór-Þýzkaland.
Sleppum því hetjusögum nemans.
Gæfa okkar er sú, að búa á eyju lengst norður í Ballarhafi, svo hægt er um vik að skrúfa fyrir sístreymið. Fyrst og fremst er það þjóðin sem hefur staðið sig með prýði.
Tek svo undir frómar óskir þínar, Stóra Bretlandi til heilla, sem og Íslandi.
Með góðri kveðju
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.2.2021 kl. 12:48
V/ aths. þína kl. 12:22
Hárrétt athugað Gunnar, það er sannleikur málsins. Enda löngu viðurkennt að Oxford teymi Söru Gilbert byggi yfir yfirburða þekkingu á flensu og sars veirum, enda rannsakað þær eingöngu í nær tvo áratugi og hvernig best væri að kveða þær í kútinn. Þetta vita helstu sérfræðingar í þessum málum. Munum t.d. að Kári sagði um mitt síðasta sumar að hann bindi mestar vonir við bóluefnið sem yrði búið til skv. forskrift Oxford og teymis Söru Gilbert, AstraZeneca. Þar með er ekki sagt að bandarísku bóluefnin frá Pfizer og Moderna séu ekki ágæt líka.
En það er slæmt þegar heljarstefna Stór-Þýzkalands rænir annars góða menn vitinu.
Dæmi þess, og afleiðingar þess, má einnig sjá hérlendis, því miður.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.2.2021 kl. 13:21
Já það verður víst að viðurkennast að það tókst betur og mun fyrr að stöðva hraunflæðið í Vestmannaeyjagosinu en Kínversku Wuhanveiruna. Enda var Evrópusambandið og hinar gagnslausu gagnagrynningar Schengenfirrunnar ekki að flækjast fyrir okkur þá.
Fyrstu skilaboðin sem komu frá þjóðgrynningarkrefum ESB-heilastöppunnar voru þær að bannað væri að reyna að stöðva hraunflæðið. Bannað var að viðhafa sóttvarnir á landamærunum. Enda er það það sem regluverk Schengen segir: að bannað sé að viðhafa sóttvarnir á svo kölluðum innri landamærum heimsveldisins.
Og þeir sem slíkt vildu gera voru á Ítalíu kalllaðir "rasistar". Enginn ætlaði að aðhafst neitt af viti fyrr en Trump tók af skarið, eftir að hafa beiðið eins lengi og hægt var eftir því að Evrópusambandið geri eitthvað í sínum málum sjálft.
En þangað til náði Ítalía að dreifa veirunni með beinu flugi frá Wuhan í Kína áfram til 52 landa í Evrópu.
Þetta er sovésk bandalag.
Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2021 kl. 13:44
Rétt Gunnar, og þetta vita þeir sem kunna þá eðlu list, að hugsa.
Þegar smitin byrjuðu að grassera á Ítalíu, þá sagði mér eldri læknir sem þekkti þar nokkuð til, að það væri enginn vafi í sínum huga að þetta tengdist kínversku farandverkafólki sem væri að koma úr kínverska áramótafríinu.
Ekki álasa ég því fólki, heldur flærð og dyggðaflöggun Brusselhirðarinnar sem notar greinilega kínverskt farandverkafólk sem láglaunaþræla sína. En um það gildir þagnargildi hinna skinheilögu í Brusselhirðinni.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.2.2021 kl. 15:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.