Föstudagur, 22. maí 2020
Hvað á hrun ferðaþjónustu sameiginlegt með hruni í banka- og fjármálaþjónustu?
Er Tokkata ELP frá 1973 lýsandi fyrir ástand eða stemmingu alþjóðamála í dag? Á plötunni Brain Salad Surgery gat maður allaf huggað sig við að næsta lag á eftir tokkötunni er Still...You Turn Me On. En hljómplata er þó aðeins hugarfóstur. Hvernig verður sjálfur veruleikinn eftir Wuhan-veiruna sem kom ofan í hrun alþjóðlegra fjármála? Það er stóra spurningin. Tvö meiriháttar hrun á aðeins 12 árum og allt glóbalisma að kenna...
****
BANKABÓLAN OG FERÐAMANNABÓLAN (SEM BÝR INNAN Í NÁTTÚRUBÓLUNNI)
Jú fyrir það fyrsta eru bæði fyrirbærin þjónustugreinar. Og fyrir það annað þá byggðust bæði fyrirbærin á því-sem-næst óheftu flæði yfir landamæri sem voru af tveimur gerðum og styrkleikum. Landamæri þjóðríkja og hins vegar landamæri hugarfóstursfyrirbæra prómilluelíta á borð við Schengenbrunagildru hagkerfa
Fyrir bankahrun var flæði fjármagns á milli landa næstum óheft um tíma. En svo kviknaði í vissum geymslustöðvum þess og þá fossaði fjármagnið til þeirra ríkja sem buðu mestu og bestu þjóðríkisábyrgðirnar. Ríkin í Evrópusambandinu yfirbuðu hvort annað með ríkisábyrgðum til að reyna að koma í veg fyrir að allt fé myndi flýja löndin og skilja þau eftir á borð við mergsogið lík sem vampíra hefur tæmt af blóði. Aðeins hársbreidd munaði að sum lönd í pappírstrúarfyrirbærinu Evrópusambandinu yrðu þjóðargjaldþota, því þau höfðu látið glepjast og leigt vopnabúr sín út til aðila sem notuðu þau síðan til að ráðast að þeim sjálfum. Þau voru algerlega varnarlaus og hlekkjuð
Næstu 5-10 árin frá fjármálahruni fóru síðan í að smíða varúðarráðstafanir af ýmsum toga sem koma eiga í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig. Mikið, stórt og nýtt lagaverk fæddist um þá þjónustugrein
Eins verður það með hina alþjóðlegu-ferðaþjónustu. Næstu árin munu fara í að smíða girðingar sem koma eiga í veg fyrir tryllingslegan hagkerfisbruna á borð við þann sem Kínverski kommúnistaflokkurinn kom af stað með frjálsu og óheftu flæði Wuhan-veira út yfir heimsbyggðina, innan í trójönskum líkömum ferðamanna, sem fluttu bálkestina á milli heimshvela á aðeins 14 tímum. Er Kínverski kommúnistaflokkurinn og álíka gangster-pólitísk element jaðar nú kominn á bragðið og sér hversu öflugt vopn hann hefur í höndunum til að beita á beinlausa grænfugla Vesturlanda af líberalistakyni, sem búa innan í náttúrubólu
Íslenska bankakerfið er aðeins svipur hjá sjón í dag miðað við árin 2000-2009. Það var minnkað því það reyndist þjóðhættulegt. Ferðaþjónustan mun einnig minnka mikið, því óheft flæði fólks yfir landamæri ektaríkja hefur sýnt sig að vera þjóðhættulegt fyrirbæri. Greinin verður enduruppsett á nýjum forsendum. Og einnig hún, verður ekki nema svipur hjá sjón miðað við ferðabóluárin 2010-2020. Þeir sem halda annað eru að bíða eftir síldinni eins og hún var, en varð aldrei aftur
Næsta lag á plötunni er því.. hvað?
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:59 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 27
- Sl. sólarhring: 59
- Sl. viku: 443
- Frá upphafi: 1389063
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 252
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Stóra-Bretland, Kína og Bandaríkin
Telegraph segir í dag að Boris Johnson forsætisráðherra hafi skipað breskum embættismönnum að þurrka öll kínversk fyrirtæki úr úr öllum áætlunum Bretlands um uppbyggingu 5G-netverksinnviða í landinu. Ákvörðunin kemur í aðdraganda heimsóknar breska forætisráðherrans til Bandaríkjanna í næsta mánuði þar sem einnig G7-ríkin munu funda á sama tíma. Boris Johnson hefur kallað eftir því að Bretland verði meira sjálfu sér nægt í vörum og minna háð Kína. Á sama tíma leggur hann áherslu á viðræður Bretlands og Bandaríkjanna um viðskipti í framtíðinni, og minni áherslu á samningaviðræður við Evrópusambandið, um sama efni. Ólga hefur verið innan breska Íhaldsflokksins yfir því að kínversku fyrirtæki skyldi hafa verið ætlað heimilt að bjóða í suma þýðingarminni hluta 5G netsins. Nú verður hlutur þeirra hins vegar minnkaður niður í núll. Segir Telegraph að Boris Johnson hafi sjálfur ávallt verið mótfallinn þátttöku hins kínverska Huawei, en að það hafi verið Thersa May sem hleypti því í áætlanir landsins.
Brexit-ferlið
"The prospect of extra customs checks are nothing compared to the airport queues, travel quarantine and temperature checks which may ensue once countries come out of lockdown. The shift towards "supply chain security" means that cross-border supply chains will become less important. The prospect of a WTO Brexit has never been less intimidating." - James Forsyth, the Spectator
James Forsyth segir efnislega í Spectator á morgun að breska ríkisstjórnin hafi engan áhuga á að semja neitt sérstaklega við Evrópusambandið um viðskipti né annað. Það mál allt er farið að líkast sandkorni að stærð miðað við það sem Wuhan-veirufaraldurinn hefur og mun hafa í för með sér varðandi viðskipti, flutninga og samgöngur Stóra-Bretlands við umheiminn. Alþjóðleg viðskipti munu skipta minna máli frá og með nú því afhendingaröryggi innanlands er ekki lengur hægt að fá og treysta á með því að nota alþjóðlegar framleiðslu- og afhendingarkeðjur. Að eiga viðskipti við heiminn á WTO-skilmálum er því eins og að drekka vatn miðað við ærandi upphringingar-áhrifin vegna kínversku Wuhanveiru-faraldursins - og þau breytingaráhrif sem hann mun hafa á milliríkjaviðskipti um allan heim um ókomna framtíð.
Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2020 kl. 23:02
Svo sannarlega.
Og svo það sé á hreinu, þá erum við vestrænt ríki og eigum samleið með USA & UK
ásamt Ástralíu, Nýja Sjálandi og Kanada.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.5.2020 kl. 22:10
Og sagt í eitt skipti fyrir öll:
Norsk stjórnvöld þurfa að fá ærlegt pungspark.
Hvernig þau hafa nýtt sér EES samninginn til að gera okkur umdirsáta sína er gjörsamlega óhæft.
Segja verður upp EES samningnum.
Norsk stjórnvöld þurfa að fá ærlegt pungspark!
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.5.2020 kl. 22:17
Hér þarf Sigmund Davíð til valda.
Hann er okkar Boris Johnson.
Það er jafn augljóst og
Bjarni er hins vegar Theresa Blair May.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.5.2020 kl. 22:36
Þakka þér Símon Pétur.
Í dag var ég alveg laus við EES-samninginn. Við konan fórum út á Mýrar með nesti og nýtt kaffi og sóluðum okkur á ljósri sandströnd í goluþyt og sautján stiga hita. Í nestiskörfunni voru brauðsneiðar með heimagerðri kindakæfu ásamt kaffi. En fyrst var stoppað við ekkert á miðjum Mýrum, þar sem ekkert heyrðist nema hrossagaukarnir stingandi sér, vellandi spóar og frjóvgandi flugnasuð. Ekkert heyrðist til EES-ómenningarinnar. Ekkert!
Á leið heim var allt uppselt í versunum Borgarness þannig að á grillið henti ég hvítlaukstungnum framparti af lambi úr dalnum mínum góða, sem reyndar átti að vera í matinn síðar (súpukjöt).
Við enduðum kvöldið á tveimur þáttum af Krúnunni, enda kemur EES hvergi nálægt neinu þar, ei heldur kemur það nálægt Netflix né tölvunar- og streymistækni nútíðar. Löggan gat meira að segja sinnt landanum sjálfum eins og hann er, þjóðfrjáls sem fuglinn í sínu eigin landi, einn á vegunum, farandi aðeins of hratt.
Þetta var góður dagur
Já já, SDG er maðurinn!
Niður með EES!
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2020 kl. 23:57
Takk fyrir þetta Gunnar
Já, ég og mín kona gerðum svipað og þið,
keyrðum að Reykjum í Ölfusi, gengum um klukkustundarhring þar og ókum því næst Suðurstrandarhringinn, niður í Selvoginn og áðum við Strandakirkju og gengum þar niður að brimóttu fjöruborðinu og já, settumst á steina þar og borðuðum nesti, horfðum á hið gjöfula haf og fugla himins, jarðar og sjávar sem svifu þar um. Gengum því næst að Strandakirkju og þá hvarf EES og ESB.
Svona höfum við báðir notið dagsins sem best má vera í blíðskaparveðri og enga sáum við erlenda túrista og söknuðum þeirra ekki. Við leituðum gamla landið okkar uppi og það er hérna enn, og fær vonandi að vera í friði.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.5.2020 kl. 00:40
Meistari Bach hefði ekki getað skilað þessu betur.
Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 24.5.2020 kl. 09:59
Þakka þér fyrir Jósef Smári.
Já það er mjög svo vel hægt að taka undir þetta með þér.
Mér skilst að Tokkata ELP komi úr penna hins argentínska tónskálds Alberto Ginastera, og upphaflega sem píanókonsert. Mörgum finnst hún koma áhugaverðari út úr vopnabúri ELP, og reyndar gilti það sama um sumt af því sem ELP lánuðu hjá Copland og Bartok.
Aukalag: Hin endalausa ráðgáta sem hin blinda Rachel Flowers flytur svo afskaplega vel, skrifuð af Keith Emerson og Greg Lake sjálfum, af plötunni Þrenna.
Flowers er hreint ótrúleg. Hér leikur hún sér að bandaríska þjóðsöngnum.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2020 kl. 22:34
Þakka þér Símon Pétur.
Mikið góður dagur hjá ykkur líka, sýnist mér.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2020 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.