Leita í fréttum mbl.is

Hæstvirtir rasistar, fasistar og aðrir hvítir menn

Donald J Trump

PÓLITÍKIN

Af hverju hafa þessi nöfn verið svo mikið á sveimi í hinni pólitísku umræðu vestanhafs undanfarin fjögur ár? Jú, í Bandaríkjunum er vel vitað að enginn vinnandi hvítur maður með bara sæmilega virðingu fyrir landi sínu, kýs flokk Demókrata lengur. Sá flokkur hefur ávallt haft tilhneigingu til að sveiflast til vinstriöfga og óbærilegs sósíalisma. Síðast var það Barack Obama sem tók flokkinn á ný inn á gamla afvegu vinstrisins. Obama var öfgavinstrimaður á bandarískan mælikvarða. Þess vegna veit flokkur Demókrata að hann getur ekki lengur komið forsetaefni sínu að í Hvíta húsinu, nema fyrir tilstilli hinna ýmsu hópa þjóðarinnar sem ekki eru hvítir. Donald Trump, annars vegar, veit þetta líka. Hann hefur því snúið sér til þessara hópa og sagt: "Þið þurfið ekki að reiða ykkur á ölmusur ríkisstjórnarinnar lengur. Ég ætla að efla ykkur og gera ykkur og vinnukrafta ykkar mikilvæga fyrir þjóðina alla. Þá getið þið sparkað ölmusuflokki Demókrata, sem lifir á því að halda ykkur niðri." Og það er þetta sem Trump hefur gert. Atvinnuástand meðal þessara hópa undir honum er orðið það besta í sögu Bandaríkjanna og lægstu laun og nemalaun hafa þotið upp. Viðbrögð Demókrataflokksins við þessum afrekum Trumps hafa því verið þau, að kalla hann öllum þeim illu nöfnum sem notuð eru meðal þessara hópa. Rasisti er númer eitt, síðan kemur ásökun um að vera hvítur og kristinn, og svo kemur öll runan af alls konar nýuppdiktuðum Metoo blótsyrðum úr Heiðnikirkjuveldi háskólanna, sem allir eru í höndum og stjórnað af krónískum aumingjum, sem hins vegar sjálfir hafa alls ekki hugsað sér að lifa samkvæmt aumingjaboðskap sínum - hvorki rauðum né grænum. "Við getum ekkert gegn þessum afreksmanni í venjulegri kosningabaráttu, þess vegna verður að reyna að skíta hann út í augum þessara hópa, eða að minnsta kosti reyna að koma í veg fyrir að hann geti boðið sig fram á ný", - segja Demókratar

Þess vegna er Trump hataður svona mikið af þessu fólki. Hann er að taka það frá því sem átti að koma þeim inn á bæði þing og í Hvíta húsið. Það öfundar hann allt fyrir hversu öflugur og mikill sigurvegari hann er. Öfunda hann öll, en eru sjálf ófær um að vera sú jarðýta sem hann er. Öll vildu þau geta hið sama, en ekkert þeirra vill hins vegar vera sjálfur Trump. Og þetta gildir um marga Repúblikana líka. Allir vilja að Dirty Harry komi og bjargi þeim. Allir vilja að hann komi og skeri meinið burt, jafnvel þó svo að hnífur hans sé ryðgaður og subbulegur, því alveg sama hvað, hann er svo öflugur að hann mun fjarlægja það. Meinið mun fara. Þetta fólk getur síðan ekki hugsað sér að drekka kaffi með honum á eftir, því hann lyktar eins og klóakmeistarinn sem kemur og bjargar málum fyrir hina sískítandi, og þar með okkur öll. Honum er ekki boðið í hanastélið á eftir, því hann lyktar. Þegar Trump svo hefur lokið verki sínu, ríður hann inn í sólarlagið, því hann veit að hann getur ekki búið meðal aumingja, svona öflugur og subbulegur sem hann er. Trump er nefnilega vestri. Allir öfunda hann, en enginn vill hafa svona Patton eða sir Bomber Harris í hanastélsboðum sínum, eftir verklok. Patton var snillingur og gáfumenni sem talaði bæði frönsku og þýsku, en umfram allt var hann hermaður. Það sama gildir um Bomber Harris í Bretlandi. Trump er eins. Þessir menn leysa vandamál. Fixa hluti. Alveg sama hvað, þeir skila sínu verki. Ég þekkti svona menn í byggingarbransanum. Það var klappað fyrir þeim þegar þeir komu á sínum átta strokka Pontiac Trans Am til að hvetja okkur áfram. Öflugir og hættulegir bjánum. Eða eins og Matthías Johannessen sagði; þar sem þeir sem byggðu virkjunina stóðu úti í rigningunni á meðan demókratarnir skáluðu fyrir afrekum þeirra innandyra

Aumingjaveldið hér heima apar svo samkvæmt venju allt upp sem að vestan kemur sbr. hippatímabilið, Metoo-apínur með eina græna og ofsoðna baun í heilastað, og svo auðvitað hið íslenska Heiðnikirkjuveldi háskólanna, sem eru yfirstéttaraumingjar Íslands

ER NATO BÚIÐ AÐ VERA?

Já. Það eru sennilega ekki nema nokkur ár eftir af því. Það sem mun koma í stað þess eru tvíhliða varnarsamningar á milli nokkurra strategískt mikilvægra landa við Bandaríkin. Þetta þýðir að Ísland þarf að byrja að læra að drepa, sprengja og skjóta niður flugvélar. Við kunnum sem betur fer enn að sökkva skipum, svo þar þarf aðeins að uppfæra græjurnar. Bandaríkin munu ekki nenna að halda í höndina á okkur ef við kunnum og getum ekki lágmarks-þetta. Barnfóstrutímabilinu er lokið, og þessa lágmarks mun verða ætlast til af okkur. Enda aðeins eðlilegt að svo ríki þjóð sem við erum, þökk sé Bandaríkjunum, hafi lágmarksviðbúnað sem nemur þremur prósentum af landsframleiðslu okkar

Staðan er hins vegar verri í Evrópu. Þar þykist Frakkland ætla að koma á fót varnarliði –innan morkinna vébanda ESB– sem á að vinna samkvæmt prinsippum um vesalinga. Þú, Þýskaland, átt að styðja stofnun ESB-hers þar sem þú, Þýskalaland, átt að vera rómverski hermaðurinn á meðan ég, Frakkland, verð gríski heimspekingurinn. Þú átt að koma þessu á fót, því án þín er ekkert ESB, og þú átt að fórna þér en ekki fyrir þig sjálft –það máttu alls ekki– heldur fyrir mig Frakkland. Þetta verður sem sagt stofnun evrópsks brandarahers, sem þýðir: verður aldrei

Bandaríkin munu hins vegar einbeita sér að Póllandi og Rúmeníu og þar með hlúa að uppbyggingu Intermarium-svæðis, þar sem 120-170 milljón manns búa (nenni ekki að reikna það nákvæmar). En Intermarium er landsvæðið á milli Þýskalands og Rússlands, sem Þjóðverjar álíta rusl og ruslahauginn sem hindrar hjónaband þess við Rússland

En nánar um allt þetta má lesa í blaðaviðtali Die Weltwoche við bandaríska sagnfræðinginn Victor Davis Hanson bónda. Það blað er í eigu og undir ritstjórn Roger Köppel, sem er þingmaður SVP, Schweizerische Volkspartei. Sá maður hafði þetta að segja um hugsanlegan EES-legan samning Sviss við ESB, eins og Ísland álpaðist því miður til að gera. Slíkan samning mun Sviss því aldrei gera

Hér er viðtalið við VDH: Trump er einskonar kemóterapía. Þetta er stórskemmtilegt viðtal og vel þess virði að hugsa mjög svo nánar um. Þar segir til dæmis Victor Davis Hanson að ESB sé svo gott sem hrunið

Fyrri færsla

"Fimmta iðnbyltingin" komin í lesturinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Tek undir með Húsara nýlega að hér á þessari síðu má lesa kjarnyrta Íslensku skrifaða á mannamáli.

En ekki erindið; "og lægstu laun og nemalaun hafa þotið upp".

Hvað hefur þú fyrir þér í þessu??

Ef þetta er rétt, þá veit ég hverjir standa að baki nýjustu aðfararinnar að Trump.

Fyrsti stafurinn er Global.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.12.2019 kl. 12:02

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir fyrir væn orð Ómar.

Já já, það eru glóbellir demókrataflokksins sem líkar ekki þessi launaþróun. Hún sker nefnilega undan þeim.

Tilvitnun: "As of the second quarter of 2019, workers age 20-24 made 71% as much as workers age 25-34, the smallest gap in records dating back to 1985. One possibly positive byproduct: "Such pay compression is leading to higher labor turnover of more experienced workers who can easily find new jobs in this tight labor market," Messrs. Levanon and Steemers write. 

Þessi síðasta skýrsla frá Conference Board var til umfjöllunar í WSJ í gær. Get ekki krækt á hana því að ég býst ekki við að þú þurfir að vera áskrifandi þar. En ég er áskrifandi og les þar daglega 20 blaðsíður af gröfum og mælingum á alla vegu og kanta um flest efni og lönd heimsins. WSJ Daily Shot tölvupósturinn er einstakur að því leytinu. En hér er ein mynd frá því í gær sem ég hef stolið fyrir þig. Launamunur á byrjendum og reyndari (nánar á WSJ Daliy Shot í gær). Annars hafa gögn um þessa þróun verið að seytla inn síðustu tvö árin. 

Það er varla að maður muni svona á standandi fæti hvar ætti að bera niður í þeim. Þetta er almennt aðgengilegt á netinu, frá hinum ýmsu hagstofum, kontórum og vefsíðum. Hér er til dæmis ein sem ég fann frá því í vor, eftir 10 sekúndna leit á netinu (AEI: Wages rising: The US economy is now working best for lower-wage workers).

Ef þú ferð í að kanna þetta nánar, sem margir ættu að gera svona fyrir sjálfa sig, því ekki kemur þetta í DDRÚV, þá þarf að hafa nógu mikla breidd í leitinni og fá gögn úr sem flestum áttum. Þá getur maður myndað sér sæmilega rétta skoðun á málinu. 

Glóbellir það eru, já. 

Kveðja að vestan

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 13:18

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þá er fokin út í vindinn réttlætingin fyrir no-boarders nema, náttúrlega, til að fylla kjörkasa demókrata. 

Ragnhildur Kolka, 6.12.2019 kl. 14:54

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir þetta Gunnar.

Nei ég þarf ekki að leita, hef þig.

Ég veit eins og er að þegar menn eru kjaftforir, þá hafa þeir yfirleitt vaðið fyrir neðan sig til að verja athugasemdarkerfið sitt.

Þetta eru fróðlegar upplýsingar, koma mér ekki á óvart, veit alveg hvað felst í hagfræði andskotans, en skorti upplýsingar um hvort sjáanlegur vendipunktur væri um aukna grósku í USA í kjölfar þess að keyra á innlendum styrk í stað þess að útvista öllu í þrælabúðir.

Það sem kom mér á óvart var hins vegar að Trump tæki þennan slag.

En það er önnur saga.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.12.2019 kl. 15:22

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ranghildur og þakka þér fyrir.

Þetta snérist aldrei um neitt annað en kjörkassa þeirra.

Þeir sem hafa lesið ævisögu Ronalds Reagan vita vel við hvað VDH á, þegar hann talar um vinstriöfga Demókrataflokksins. Æska Reagans mótaðist af henni undir  öfgasósíalisma FDR og sem aldrei ætlaði að takast að losna við.

Já. Fyrst kom Nixon og rétti skútuna af eftir sukk Demókrata og braut jarðveginn fyrir Reagan, og nú er það jarðýtan Trump sem veður eld og brennistein fyrir landið og Vesturlönd öll, eins og hann einn er fær um að vera og GERA. Hann er ofboðslegur "doer".

Nixon, Reagan og Trump eru mennirnir sem móta Bandaríkin og Vesturlönd á borð við þá sjö Repúblikana sem byggðu ofan á það sem Lincloln setti í gang: svo kom Grant sem var einnig ofboðslega öflugur, Hayes, Garfield, Arthur, Harrison, McKinley, Teddy Roosevelt og Taft og byggðu landið upp frá því að vera rjúkandi rúst eftir þrælahaldara Demókrata, og yfir í það að framleiða helming alls þess sem framleitt var í heiminum er imperíalismi Þýskalands skall á Evrópu og kveikti í henni 1914 og lagði hana á endanum í þá rúst sem er að fremja sjálfsmorð álfunnar í dag.

Tollar væna mín, tollar. Og nota herinn sparlega. Mjög sparlega. En þegar hann er notaður, þá að dauðrota.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 16:13

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ómar.

Þetta með Trump þarf samt ekki að koma á óvart. Það er nefnilega þannig með "elítisma" að hann er óháður innistæðu-stærðinni á bankareikningi manns. Elítismi er nefnilega fyrst og fremst sálarástand. Hann er andlegt fyrirbæri. Það sést til dæmis ágætlega á embættismannaveldinu hér heima. Það er orðið elítuveldi.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 16:34

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Enginn tekur eftir því að í stjórnarskrá Mexíkó er klásúla sem bannar að kynþáttasamsetningu Mexíkóríkis sé breytt. Samsetningu kynþáttar Mexíkana er bannað með lögum að pilla við.

Síðan er umræðan um rasisma svo klikkuð að fólk veit ekkert hvað það er að tala um. Fólk veit ekki hvað rasimi er og það veit heldur ekki hvað fasismi er. Það hefur aldrei prófað slíkt á eigin skinni.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 16:44

8 identicon

Donald Trump er auðvitað okkar maður.

Af Ljóðhúsaættinni á Suðureyjum, norrænasta svæði Bretlandseyja.  Og forfaðir hans var Þormóður Ljótsson sem getið er um í Landnámabók.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.12.2019 kl. 17:02

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Ekki ónýtt að fá svona og vera ættaður svona. Takk fyrir það.

Ekki sá ég sjálfur Trump koma. Vissi varla hver hann var. En á meðan að ég sá ekkert, þá sá 91 árs gamall tengdafaðir minn, sem er 94 ára núna, að Donald J. Trump yrði næsti forseti Bandaríkjanna. "Ég segi þér Gunnar, þessi maður verður næsti forseti Bandaríkjanna, það er bara þannig", sagði hann. Þá fór ég að fylgjast með af alvöru.

Stuttu síðar kom Valdimar Alaskafari hingað inn á blogginn minn, og sagði það sama. Þá umlaði í mér.. já tja.. það getur bara vel verið, en það fór samt aðeins um mig, því þetta var svo skrítið.

En eftir fyrstu kappræðurnar sá ég hvers var. Þarna var komin jarðýta og fæddur leiðtogi, og að jörðin myndi byrja að hristast og skjálfa og málverkin á veggjum pena fólksins myndu heldur betur skekkjast þegar hann byrjar að mublera um og flytja fjöllin til. Sum hafa reyndar dottið niður og brotnað.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 17:35

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Markaðurinn er í góðu skapi í Trumplandi í dag. Bandarískir atvinnurekendur réðu 266 þúsund manns til nýrra starfa í nóvember. Þetta er nærri tvöfalt betra en menn áttu von á. Atvinnuleysi er þar með það lægsta sem mælst hefur í í Bandaríkjunum 50 ár.

Kína hvað? Demókratar hvað?

Jólin koma...

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 17:52

11 identicon

Já, jólin koma, enn og aftur.

Var að hlusta á viðtal við Steve Bannon og hann sagði að enginn gæti sigrað Trump, nema Trump sjálfur.  Demókrataflokkurinn væri allur í messi og múltimilljarðamæringurinn Michael Bloomberg skorti allan eldmóð og kjörþokka.

Svo það er bara win win fyrir okkar mann.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.12.2019 kl. 18:01

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mig minnir að Steve hafi unnið fyrir sér á öskuhaugunum með námi sem táningur, og að mamma hans hafi þurft að skrúbba hann áður en hann fékk að koma inn á þeim árum.

Já bardagamaðurinn Steve Bannon og flotaforingi hefur haft rétt fyrir sér. En samt held ég að það sé of snemmt að spá um þetta enn. Allur fjandinn getur gerst í pólitík á bara einni viku - og svo er það hin tifandi tímasprengja sem heitir Norður-Kórea og bandamenn hennar í Íran og víðar.

Þetta eru vægast sagt merkilegir tímar sem við lifum á núna, þar sem heimurinn sem settur var upp 1945, er að enda. Margar heimsmyndir eru bókstaflega að hrynja niður af gömlu veggjunum og að verða að gjalli. Nýr er í smíðum og því fylgir þessi hávaði og læti.

Það lítur út fyrir að andstaðan í Evrópu við annúlleringu Trumps á Íransamningum Obama sé að gufa upp og að meira að segja Rússland sé að komast á sömu skoðun.

Næst tæta kannski Evrópuþjóðirnar Parísarsáttmálasálminn í tætlur og panta sér flugfar heim frá Útópíu. En Þýskaland og có samþykktu hann aðeins til að eyðileggja hann innanfrá. Hann er hinn fullkomni skrípaleikur fyrir  apa og er leikinn af öpum. 

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 20:07

13 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hef haldið því fram leingi, að við eigum að stofna her, enda hafa allar sjálfstæðar þjóðir her. Það eru ekki margir sem sem hafa tekið vel í það mál og kom það mér ekkert á óvart þegar um var að ræða hálf komma og komma. 

Það kom mér hinsvegar verulega á óvart þegar ég nefndi þetta við góðann vinminn sem er fæddur sjálfstæðis maður og raunar alveg svarblár, að hann brást öndverður við og hæddist að með orðum um að við gætum ekkert varið ef einhver ætlaði að taka það af okkur.

 Sem sagt minnimátarkendin og aumingjaskapurinn í öndvegi.  Það er einmitt B.B  stefnan sem nú hefur heltekið Sjálfstæðisflokkinn sem var, en er nú svonefndur.  Þð er svipað með Komma og mauksoðna Sjálfstæðismenn að þeir eru ens og vagnhestar með augnhlífar svo þeir haldi stefnunni en fælist ekki.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 6.12.2019 kl. 20:40

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Hrólfur minn góði.

Já, þetta er sprenghlægilegt hjá þessum svokallaða "sjálfstæðismanni" sem þú nefnir. Hann er sennilega einungis sjálfstæðisflokksmaður. Nóg er af þannig liði sem aðstoðar flokkinn dyggilega við að liðast í sundur. Þeir gera engar kröfur til neins á þeim bæ og geta enga sjálfstæða skoðun haft á neinu.

Samkvæmt þessu er sæti okkar í stofnun Sameinuðu þjóðanna þá sjálfhætt ásamt öllu hinu alþjóðaglingrinu. Vill hann þá ekki leggja Landhelgisgæsluna niður og lögregluna kannski líka? Þetta er afsökun aula.

Það væri þjóðþrifaverk að stofna íslenskt varnarlið með væng- og flotastöð í tveimur landsfjórðungum. Hugsaðu þér þekkinguna sem því fylgdi. Nýr atvinnugeiri yrði til og Íslendingar myndu standa í biðröð eftir að fá að þjóna landinu sínu. Að vera með og taka þátt og að geta gert það brýnasta sem þarf að gera á meðan beiðið er eftir ofureflinu sem halda mun þá enn fastar og traustar í sjálfsbjargandi hendur okkar.

Þeir sem ekki vilja hjálpa sjálfum sér eiga varla mikla aðstoð skilið. Það get ég ekki séð - eins og ýmsir aðrir. Við höfum enga afsökun lengur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2019 kl. 20:57

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Aðeins meiri fréttir:

Eurointelligence greindi frá því í gær, föstudag, að  sú fyrirlitning sem forseta Bandaríkjanna var sýnd á NATO-fundinum í London í vikunni, sé nú komin sem rýtingur í bakið á þeim sem þar plottuðu sig saman gegn Trump.

Bandaríkin hafa nefnilega snúist algerlega og í einum grænum hvelli gegn fyrirhuguðum áformum G20-ríkjanna um að innleiða sameiginlega skattlagningu á alþjóðlegum fyrirtækjum, því að í þeim áformum hafði verið innbyggð sérstök aðför að stafrænum fyrirtækjum á borð við Google, Facebook, Amazon og Apple. Á þau átti að skella sérstökum stafrænum sérskatti með skattalögum sem sérsniðin voru gegn þeim einum, en ekki öðrum á sama sviði.

Það er skattfrjálsa OECD-bikkjan sem hefur haft forgöngu um þetta mál. En á meðan Trump var á NATO-fundinum sendi Steven Mnuchin viðskiptaráðherra Trumps fallöxina inn til OECD á öll þess konar plön, og sagði að bandaríska þingið myndi aldrei nokkru sinni láta aðra um að skattaleggja fyrirtæki landsins.

Þetta er til marks um það að fjölþjóðaismi síðustu aldar á öskuhaugana er endanlega kominn (e. mulitilateralism). Hann krefst nefnilega þriggja forsenda sem hvergi eru til staðar í dag: 1) Samhljóms í stefnu ríkisstjórna. 2) Trausts milli þjóðarleiðtoga og 3) þegjandi samþykkis kjósenda.

Ekkert af þessu er til staðar lengur og almenningur í flestum löndum hefur fengið algerlega nóg af þess konar svikráðum, sem öll byggjast á því að; ríkisstjórn eins ríkis lofi að gera sinni þjóð eitthvað vont, ef að ríkisstjórn annars lands lofar að gera sinni þjóð eitthvað sem er að minnsta kosti jafnslæmt.

Þarna fær Emmanuel Macron heldur betur á baukinn ofan í þá 800 þúsund opinbera franska starfsmenn sem gengu út í gær til mótæla á götum landsins.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.12.2019 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband