Fimmtudagur, 1. ágúst 2019
Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008 !
Mynd: Munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins; skv. Gallup. Síðasta mæling 27. júní til 30. júlí 2019: 9,5 prósentur
****
Já það er víst þannig. Enda ekki nema von þar sem forysta þess er einu sinni var alíslenskur stjórnmálaflokkur, og öll tromp hafði á sínum höndum, hefur afsalað flokknum öllum pólitískum frama með því að raðbrjóta alla þá mikilvægustu stólpa, stuðla og fætur sem hugsast gat undan Sjálfstæðisflokknum, í höndum eins konar sjálfspyntingarforystu frá og með mars mánuði 2009. Í því ljósi séð er um eðlilega og skilvirka ofanafvindu fylgismála Sjálfstæðisflokksins að ræða. Bjarna Benediktssyni tekst þetta; að eyðileggja flokkinn með humar-hummi og metoo-gaggi í höll þeirra sem kalla sig "þingflokk" flokksins. Nýlenda skal Ísland helst verða á ný, virðist vera mottó þeirra sem gert hafa sig að raðdómgreindarskertum flokki í flokknum
Miðflokkurinn étur upp fylgi Sjálfstæðisflokksins eins og að um umhirðulaust poppkorn á borði ofdekraðra en fullvaxinna smábarna á miðjum aldri sé að ræða. Frá því að Miðflokkurinn bauð sig fram hefur munurinn á fylgi hans og Sjálfstæðisflokksins aldrei verið minni en mælist nú; eða aðeins 9,5 prósentur. Bilið samkvæmt Gallup mældist mest í september 2017, er Miðflokkurinn komst fyrst á mæliblað: þá var hann 20,8 prósentur. Og fyrir hálfu ári síðan, í febrúar á þessu ári, var munurinn 18,3 prósentur. Í dag er hann 9,5 prósentur og fer hratt minnkandi. Miðflokkurinn gæti orðið stærsta og öflugasta stjórnmálaafl íslensks almúga, sem elítan fyrirlítur
Orkupakkaþingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur nú þegar óskað eftir því að eldra fólk en í orkupakkaþingflokknum getur verið, yfirgefi og hætti að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, aldurs síns vegna. Þar losna töluvert margar prósentur. Og svo eru það þeir hallærislegu sem standa fast í vegi fyrir þeim hamförum sem orkupakkaþingflokkurinn kallar framfarir. Þar losna nokkrar prósentur í viðbót. Orkupakkaflokkur ESB í xD þarf ekki nema fimm prósentu losun yfir í Miðflokkinn til að hann sé stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Og það verður hann
Og þetta er svona þrátt fyrir tvennar aðfarir fjölmiðla og annarra að baráttumanninum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Það borgar sig að heita Davíð, þó svo að það kosti. En þeir hafa aldrei vílað fyrir sér persónulegan kostnað í baráttu sinni fyrir Íslandi sem pólitískri hugmynd íslensku þjóðarinnar í sínu eigin landi. Sú hugmynd er orðin ansi fjarlæg orkupakkaþingflokknum í (ó)Sjálfstæðisflokknum. Hann á því orðið skilið að deyja. Tími hans er greinilega liðinn. Stjórnmálaflokkar þola ekki fjandsamlegar yfirtökur innherja
Þetta er mikill frændsemisgreiði við gorkúlus Benedikt evrusvitabols-frænda Bjarna Ben í Viðreisn, sem áður messaði ESB-fagnaðarerindið í Valhöll. En þar sem esb-altari Benedikts stóð í Valhöll, stendur nú Þriðji Orkupakkapáfi Evrópusambandsins, uppreistur og klár til að rústa þeim rústum sem Bjarni Ben er svo sérfróður í að fullkomna fyrir fullt og allt. Þorgerði kjötfjall þarf víst ekki að minnast á í þessu samhengi. Það fjall sjá allir og muna með því að líta upp og til austurs þessa dagana. Hvert annað? Sannarlega ekki til vesturs, þar sem birtan býr. Myrkrið úr austri skal það því vera. Alltaf austur
Ótíðindi þriðja orkupakka Evrópusambandsins fyrir Ísland kalla til allra Íslendinga: Upp með Fánann! Upp með Fánann!
Nú er að duga eða láta flokkshollustuna drepa Ísland og gera okkur hægfara að nýlendu á ný. En það er greinilega orðið allra efst á óskalista orkupakkaflokksins í xD flokknum, eins og allir sjá sem sjá vilja
Niður með orkupakkaflokk Evrópusambandsins. Upp með Fánann!
Fyrri færsla
Naktar staðreyndir á jörðu niðri
****
AUKABLAÐ UTANRÍKISMÁL
HLAÐVARP MEÐ VICTOR DAVIS HANSON = UM ÍRAN
Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt 2.8.2019 kl. 06:39 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 15
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 111
- Frá upphafi: 1387430
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Hugmyndin með að yngja svona rækilega í forystunni var að ná til ungs fólks. Hefur það tekist? Eina sem flokkurinn hefur uppskorið er að flæma burt það fólk sem annt er um Ísland og íslenska þjóð. En svona fer þegar ungviðið vill hlaupa áður en það lærir að ganga.
Ragnhildur Kolka, 1.8.2019 kl. 07:57
Já þá hlýtur hið svo kallaða unga fólk orkupakkaþingflokks Sjálfstæðisflokksins að vera ánægt með þetta Ragnhildur. Ánægt með litla flokkinn sinn. Því hefur tekist að búa til litla flokksholu úr sófapullum.
Og ef það yngir enn meira þá geta þau talað um hver sé og sé ekki kúkarass í holunni. Ég tala stundum við barnabörnin mín um það; uppáhaldsumræðuefnið þegar maður er tveggja til þirgga ára og þykist ekki vilja matinn og vill ganga í augun á hinum, sem er á næstum sama aldri.
Þeir borða hann samt alltaf þegar afi segist ætla að borða ALLAN matinn, og þeirra mat líka.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 1.8.2019 kl. 08:20
Ég vil sjálfstæðismanninn Gunnar Rögnvaldsson á þing, fyrir Miðflokkinn.
Ég mun ganga til liða við Miðflokkinn. Það gerir allt íslenskt sjálfstætt fólk sem þykir vænt um land sitt og þjóð, íslenskuna, menningu okkar og sögu.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.8.2019 kl. 08:30
ESB sinnar hafa yfirtekið öll völd í Sjálfstæðisflokknum. Hann er maðkétinn inn að merg og beini. Hann er að hruni kominn.
Flokkur okkar sjálfstæðisfólksins er Miðflokkurinn og hann er kominn í kraftmikla sókn fyrir sjálfstæði og fullveldi lands okkar og þjóðar.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.8.2019 kl. 08:46
Þakka þér traustið Símon.
Já ég held að þú hafir rétt fyrir þér með Sjálfstæðisflokkinn. Hann er farinn að minna óþægilega á gamalt og gróið fyrirtæki sem lendir í höndum ættmenna sem ekkert geta og sem áttu aldrei að koma nálægt rekstrinum. Og sporin hræða flesta þá sem koma vilja fyrirtækinu í lag aftur og geta það. Þeir vita hvað er í bókunum eftir ættarpartýið.
Þetta verður maður sem "fjárfestir" að viðurkenna fyrir sjálfum sér. Sporin hræða og það eru aðrir möguleikar.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 1.8.2019 kl. 09:09
Mig grunar að þessi nýja Gallupkönnun bendi sterklega til þess að fylgi Sjálfstæðisflokksins sé umtalsvert undir 20%, því að yfir 50% neituðu að svara, en það gæti einmitt átt við um margan hefðbundinn sjálfstæðismanninn, sem getur ekki lengur stutt flokkinn vegna orkupakkamálsins, en vill þó bíða með að lýsa yfir stuðningi við annan flokk.
Jón Valur Jensson, 1.8.2019 kl. 15:13
Hárétt athugað Jón Valur.
Það er enginn vafi að fylgi Bjarnabófaflokksins er komið umtalsvert undir 20%.
Og fylgi við ríkisstjórn Engeyinga og Steingríms Joð hrynur með hverjum deginum sem líður. Skiljanlega.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.8.2019 kl. 21:51
Þakka ykkur.
Skyldi Framsóknarflokkurinn komast á þing á ný, eftir næstu kosningar?
Hann er að mælast með sama fylgi og Kommúnistaflokkurinn fékk þegar hann gafst upp eftir kosningarnar 1937, þ.e. með 8,5 prósent fylgi. Kommarnir fengu 8,4 prósent þá en Framsókn fær 8,5 í þessari Gallupkönnun sem Jón Valur bendir á að aðeins helmingur úrtaks hafi svarað.
Kúnnahollustan hjá Gallup fer sennilega minnkandi í takt við pólitíska rétthugsun hjá smekksdómaraveldinu (áður var það kóngahirðin sem hafði það hlutverk). "Já ég vil endilega svara því ég er með allar skoðanir réttar".
Og nú þegar Lilja hefur gert konur að einmenningskyni, með því að segja á þingi að ef maður segi eitthvað um eina konu að þá gildi það um allar konur. Allar. Þvæluveldið heldur áfram að grafa sig niður.
Gunnar Rögnvaldsson, 1.8.2019 kl. 23:19
Aðstandendur Kommúnistaflokks Íslands voru nú alls ekki á þeim buxunum að "gefast upp" eftir kosningarnar 1937, heldur fylgdu þeir bara áfram línunni frá Moskvu, og þá gekk hún út á að samfylkja með sósíaldemókrötum, og það gerðu þeir einmitt með vinstri-krötum eins og Héðni Valdimarssyni og stofnuðu Sameiningarflokk alþýðu -- Sósíalistaflokkinn. KFÍ réð sér aldrei sjálfur, hann var einfaldlega (jafnvel skipulagslega skv. flokkslögunum) deild í Komintern, alþjóðasamtökum kommúnista, undir stjórn Dimitroffs, hægri handar eða þjóns Stalíns. Og heimsbylting hætti ekki að vera markmið þessara manna, sem vitaskuld þjónuðu Moskvu fram yfir íslenzku þjóðina og voru reiðubúnir (eins og Lenín) til að láta tilganginn helga meðalið.
Jón Valur Jensson, 2.8.2019 kl. 01:33
Já mikið rétt hjá þér Jón Valur. Hárrétt.
Það sem ég átti við var að kommúnistar gáfust upp á að nota vörumerkið Kommúnistaflokkurinn og dulbjuggu sig og landráð sín undir öðrum nöfnum, svona eins og ESB-sinnar á borð við Björn Bjarnason starfa nú út frá starfsstöðinni Sjálfstæðisflokknum, þaðan sem þeir beita sér fyrir landssölumálum af verstu sort. Svona fólki þurfa Íslendingar ávallt að vara sig á, því það er hættulegt landi okkar og þjóð. Þeir segja eitt, en gera annað, þegar á reynir. Ekki er því skrítið að vörumerkið Sjálfstæðisflokkurinn sé að verða útrunnið og útbrunnið. Ekkert vörumerki þolir svona vörusvik.
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 03:39
Best gæti ég trúað því að Björn, Bjarni og Benedikt séu kommúnistar líka, þar sem þeir aðhyllast ótakmarkað yfirríkisvald Evrópusambandsins. Yfirríkisvald (internationalism = nallinn) sem tekur sjálfsákvörðunarréttinn frá íslensku þjóðinni.
Heimastjórn í okkar málum minnkar, en stjórn Evrópusambandsins yfir Íslandi eykst. ESB er að reyna að auka fullveldi sitt á kostnað sjálfsákvörðunarréttar þjóða.
Það getur aðeins gerst með því að taka það frá löndum ESB og EES og dæla því yfir til sín.
Fólk þarf að vara sig á þessum fölsku mönnum.
Ótíðindi! Upp með Fánann!
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 04:01
Björn Bjarnason reynir að breiða yfir landsölumálin með því að beina sjónum landsmanna að aukinni stálframleiðslu og framgangi í ríkisbúskapnum, eins og gert var í Sovétríkjunum þegar fólkið fór að láta sig dreyma um of um að ráðsstjórnin og miðstýringin fari burt og landið verði frjálst á ný. Þá komu bara stálfréttir frá Kreml, svona eins og ESB-Fréttablaðið fjallar um stálfátæktar-evrur ESB núna.
Þetta er sama liðið og síðast. Enda er Evrópusambandið út í gegn há-sósíalistískt verkefni, þar sem jafna á allt við jörðu og búa til nýjan homo evrópíus úr lýðnum.
Hmpf!
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 07:20
Já, vel mæltvog réttilega, Gunnar:
" Ekki er því skrítið að vörumerkið Sjálfstæðisflokkurinn sé að verða útrunnið og útbrunnið. Ekkert vörumerki þolir svona vörusvik."
Og líka þetta:
"Evrópusambandsins yfir Íslandi eykst. ESB er að reyna að auka fullveldi sitt á kostnað sjálfsákvörðunarréttar þjóða.
Það getur aðeins gerst með því að taka það frá löndum ESB og EES og dæla því yfir til sín.
Fólk þarf að vara sig á þessum fölsku mönnum."
T A K K !
Jón Valur Jensson, 2.8.2019 kl. 09:03
Þarna átti að atanda:
Og líka þetta:
"Heimastjórn í okkar málum minnkar, en stjórn Evrópusambandsins yfir Íslandi eykst ..."
Jón Valur Jensson, 2.8.2019 kl. 09:09
Það er hlægilegt þegar OP3-sinnar reyna að telja okkur trú um að pakkinn sé algerlega óháður sæstrengnum, þegar sæstrengurinn er ESB nánast einskis virði án pakkans. En það er dapurlegt að sjá Björn Bjarnason dásama þjóðarhaginn, sem stendur og fellur með yfirráðum okkar yfir auðlindum, á sama tíma og hann grefur undan eignarhaldi okkar á auðlindum.
Ragnhildur Kolka, 2.8.2019 kl. 10:58
Ég þakka
Já Ragnhildur. Mikið rétt hjá þér. Svona vinna moldvörpur ávallt. Þær skyldu Íslendingar varast. Þær verður alltaf að varast, því þetta fólk svífst einskis. Fólk verður að vera á varðbergi gagnvart hættum sem fylgja svona fólki.
Greiningarferlið þarf að vera svona:
1. Upplýsingar berast
2. Koma auga á áróður
3. Koma auga á kerfisbreytingar í álitum og sýn
4. Umræða um frumreglur og frumsendur
5. Koma auga á forsendur og kenningar
6. Koma auga á yfirlýsingar sem stangast á
7. Skýr hrein greining
Orkupakki-ESB fyrir Ísland er þvæla frá upphafi til enda. Og kenningin um að EES-samningurinn sé ekki hrein eign okkar Íslendinga, og til fyrir okkur aðeins, en ekki aðra, er þvæla líka. Hún er jafnmikil þvæla eins og sú sem borin er á borð í Bretlandi um "útgöngusamning". Ekkert slíkt var kosið um og um ekkert slíkt var rætt í kosningabaráttunni þar.
Og hvorki xD, xB né xGrænkommar töluðu um orkupakkamálið fyrir kosningar og Bjarni Ben hafnaði því á Alþingi áður en hann missti móðinn og fór í gömlu Icesave-gúmmíbuxurnar til að gera í þær.
Þessu liði þyrfti helst að stinga inn fyrir þvaður, blekkingar, lygar og fals, væri slíkt löglegt, áður en það hengir heilan heimsendir á þetta orkupakka makkverk sem EES samningurinn býður þeim því miður upp á. Hann verður að fara áður en þeim tekst að misnota hann enn frekar og drepa lýðveldi okkar Íslendinga.
Hvað efnahaginn varðar: Aðeins aulum hefði tekist að klúðra þeim hagfelldu aðstæðum sem gengisfall krónunnar bjó til fyrir þjóðarbúið í kjölfar hrunsins. Hún kom ferðaþjónustu á Íslandi landakortið og jók samkeppnishæfni vöruútflutnings.
En slíkt varðar þessa ESB-ríkisbubba ekkert um. Þeir synda bara áfram í sínum ESB-trúarbrögðum og hræra þar að auki lýðskrumi um veðurfar og "loftslag" út í stöppu sína. Grænir að utan en rauðir að innan. Enda er þetta það eina sem ESB- og vinstrimenn eiga eftir í kommabuddu sinni. Allt annað er gjaldþrota, glóbalismi þeirra líka.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 12:01
Glögg ævinlega hún Ragnhildur.
Gott áttu, Gunnar, að eiga hér á góðu liði að skipa, henni, Símoni Pétri, Gunnari Heiðarssyni og öðrum, en sjálfur ertu stríðsglaður herforingi sem berst fyrir landið og miðin -- já, gleymum þeim ekki, þau eru líka í sigti hjá plottandi Brussel-bossunum, þegar allt annað yrði um garð gengið --- en það er einmitt það sem við ætlum ekki að láta eftir þeim!
Jón Valur Jensson, 3.8.2019 kl. 02:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.