Þriðjudagur, 9. apríl 2019
Raflagnameðferð fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins
Mynd, Wall Street Journal í dag: Hve mikil nýtanleg orka er geymd í hverju kílói af efni (bein krækja @trevornoren)
****
Geggjað, en auðvitað vissi maður þetta. Bensíntankurinn minn tekur 70 lítra eða um 70 kg. Ef ég ætti að hlaða sömu orku á rafmagnsbíl þá þyrfti ég 1330 kg þunga baneitraða innflutta (og svo útflutta) rafhlöðu. En ekki nóg með það, ég þyrfti þess utan að draga 1,2 tonna aukalega-þunga rafhlöðuna á hjólum eða eins og að vera með kerru aftan í bílnum sem er 70 prósent af þyngd bílsins (Cherokee SRT8), hvert einasta hænufet sem ég ek. Kemst ég þá fyrir vikið aðeins rúmlega helming þeirrar vegalengdar sem ég annars kæmist. Ef þetta er ekki sovésk hagfræði beint frá læknunum á sovésku geðveikrahæli, þá veit ég ekki hvað. Hvaða fífli dettur svona rugl í hug!
Sem sagt: Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur keypt þessa þvælu af Vinstri grænum og hyggst láta íslenska raforku fara í það að láta bílaflota landsmanna draga 100 þúsund tonna flugmóðurstálstykkið USS Gerald R. Ford eftir vegum landsins, hvern einasta ekinn kílómetra hvern einasta dag ársins - án nokkurs árangurs, nema stjarnfræðilegrar sóunar og absalút klikkunar. Og ef að allur bílafloti landsmanna væri úti að aka samtímis þann daginn, þá þyrfti hann að draga minnst þrjú þannig stálstykki eftir vegum landsins: Þrjú hundruð þúsund tonn. Og við skulum ekki minnast hér á þungavinnuvélar og trukkana. Heldur forysta Sjálfstæðisflokksins að fólk sé almennt fífl? Já það hlýtur að vera. Enginn nema sannur grasasni kaupir svona þvælu. Enginn annar!
Og svo er það orkupakkaþvæla3 sem náð hefur að skjóta sérstökum arfagrösum í heilabúi forystunnar. Og sem í Sunnudagsmogga reynir að halda því fram að ferðamannabransinn sé undirstöðuatvinnugrein á Íslandi. Það er eins og að segja að sjoppurekstur með kók og prins póló hafði byggt upp Ísland og gert því kleyft að taka á móti erlendum ferðamönnum: fjármagnað vegina, brýr, flugvelli, sjúkrahús, þyrlur, flugvélar og bara nánast allt sem þarf til að geta tekið á móti erlendum ferðamönnum, hýst þá og gefið þeim mat sem er ekki innflutt rusl að borða. Ráðherrann veit ekki um hvað hann er að tala. Hann er úti að aka í rafhlöðu Visinna heilagrænna. Einu sinni var það Herbalife en nú er það Batterílife. Hvað er að ykkur!
Það er greinilegt að íslenskir læknar þurfa að bæta tveimur spurningum í viðbót á þann spurningalista sem þeir neyðast til að nota þegar spurt er um lífsvenjur fólks og verðandi mæðra sem leita til þeirra. 1) neytir þú fíkniefna. 2) Ertu á Herablife. 3) Trúir þú á rafmagnsbíla (nýtt). 4) Er sjoppa undirstaða byggðar á Íslandi? (nýtt)
Þeir sem líkja rafmagnsbílaþvælunni við það þegar hitaveitan kom á Íslandi, ættu að prófa að setja hjól undir húsið sitt og negla súrheysturn á það. Þá heldur samlíkingin - og ferðafrelsið blasir við, alla leið upp í Öskjuhlíð. Þá er þvælan um "orkuskiptin" fullkomnuð, þar sem Orkupakki3 er sjálft gufubaðið
****
Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Andvaraleysi í orkumálum stórhættulegt þjóðaröryggi Íslands
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Facebook
Nýjustu færslur
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 247
- Sl. sólarhring: 259
- Sl. viku: 686
- Frá upphafi: 1389329
Annað
- Innlit í dag: 189
- Innlit sl. viku: 434
- Gestir í dag: 183
- IP-tölur í dag: 180
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Frábær grein. Ég hélt að það væri ekki svona mikill munur á bensíni og Metan gasi. Það er enn undarlegra að stjórnvöld vilja forðast framleiðslu á því en allt er gert til að gera endurvinnslu stöðvum erfitt í þeim efnum en þeir fá hjálp ef þeir vilja flytja sorp til Kína.
Við erum með samansafn af kjaftliðugum tossum sem eru gersamlega snauðir allri tækni kunnáttu eða getu til að skilja eðlis og efnafræði.
Nú er að róa sig miður og horfa á síðasta káboinn. :-) Er nefnilega að lesa um einn upp í BC sem gerðist veiði guide og Rancher. Sörensen, Red danskættaður algjör nagli.
Valdimar Samúelsson, 9.4.2019 kl. 12:24
Þakka þér kærlega Valdimar Alaskafari.
Hljómar sem athyglisverð lesning. Sjálfur er ég að lesa hina nýju bók "The Case for Trump", eftir Victor Davis Hanson bónda og sagnfræðing. Hún er tileinkuð okkur hinum fyrirlitlegu (the deplorables).
Var enda við að horfa á ljóskuna hér og öfundast út í bílinn sem hún er á: Supercar Blondie.
Nú er hægt að tengja venjuleg heimilistæki við nýja Jeep Trackhawk módelið hér. Örbylgjuofn, brauðrist, en þó sennilega ekki þriggja fasa Miele þvottavélina.
Er þó samt heitastur fyrir nýjum Jeep Wrangler.
Jæja best að fá sér súran lundabagga og harðfisk í hádegismat.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2019 kl. 12:53
The Last Cowboy er skýrt dæmi um yfirráð ríkisstjórna og í þágu þeirra. Fed´s in USA er skýrasta dæmið með land yfirráð. Þeir eignuðu sér fljótt um 70% af lendum í Alaska og mest þar sem orku var að finna. Tré var talin orka á þeim tíma en á tíma voru járnbrautirnar keyrðar á við. Ég hef ekki fylgst með hvernig Trump hefir komið út með að endurheimta Fed reserve lands en hann var einhvað að reyna en hann er að berjast við sterk öfl.
Valdimar Samúelsson, 9.4.2019 kl. 13:37
Gaman að fylgjast með ykkur. Getur verið að vandamálið með gasið sé rúmmálið, reyndar undir miklum þrýstingi er það ekki vandamál, en þá þarf öflugan kút. Ég var með kút fyrir ferða hellu, svo komu fréttit um að lekur kútut hefði orsakað sprengingu í íbúðarhúsi.
Ég var fljótur að henda kútnum út.
Bið ykkur vel að lifa.
Egilsstaðir, 09.04.2019 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 9.4.2019 kl. 15:39
Þakka þér Jóns.
Já, er ekki mikið hrifinn af gasi (natural gas) innandyra heldur. En það er ofboðslega mikil orka í því.
Jæja loksins. Hrossagaukurinn lenti hér í gær og byrjaði strax að stinga sér og djuggu djugga sig í lendingum. Vorið er komið!
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2019 kl. 16:12
Jónas átti það að sjálfsögðu að vera.
Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2019 kl. 17:35
Þarna er því sleppt algerlega að orkutapið í rafhreyflinum er aðeins 10% en 70% í sprengihreyflinum.
Þess vegna sparast um fjórðungur eldsneytisins í hybrid bílum við það að bensínhreyfillinn er látinn framleiða orku að hluta til fyrir rafhreyfil í sama bíl sem er bæði með rafhreyfil og bensínhreyfil.
Og það er hægt að endurheimta raforku fyrir rafhreyfilinn, þegar ekið er niður brekkur og hægt á sér, en slíkt er ómögulegt hvað bensínið varðar.
Ég fór í sérstaka hringferð á rúmum sólarhring um landið á léttu vélhjóli í ágúst 2017 undir kjörorðinu "Orkunýtni - koma svo!" til að sýna fram á, hve furðu langt er hægt að ná án rafafls.
Eins og er, eru nýjustu lithium rafhlöðurnar í langdrægustu rafbílunum um 350 kíló, en samsvarandi bensín myndi vera átta sinnum léttara.
Þessi mikli munur kemur í veg fyrir að hægt sé að knýja flugvélar með rafafli.
Síðan er ótalið, að olía/bensín er takmörkuð auðlind og mun þverra.
Ómar Ragnarsson, 9.4.2019 kl. 23:16
Þakka þér kærlega Ómar.
Hvorki bensín né rafmagn er auðlind Ómar. Olía er unnin vara og rafmagn er ein dýrasta afurð sem til er.
Og stofnkostnaður rafmangs úr fallvötnum okkar er svo hár að sú orka sem úr þeim kemur er ekki samkeppnishæf við neitt. Enda kostar meira að framleiða rafmagn hér á landi en til dæmis í Danmörku, þar sem það er framleitt úr milljónum tonna af innfluttum kolum og trjámassa.
Það sem gerir orkuframleiðslu okkar hins vegar aðlaðandi er stóriðjan sem réttlætir stórskalarekstur sem leiðir til hagvæmni. Annars væri raforkuframleiðsla okkar bara hobbý snobb.
En annars staðar og ákaflega víðar, er raforka enn takmarkaðri afurð en jarðefnaeldsneyti.
Hókus-pókus kerlingafræði þín úr naglasúpupotti tískufyrirbæra, til að réttlæta þá gerræðislegu sóun sem verður við það að nota verstu hugsanlegu og óhreyfanlegustu orku sem til er til að knýja hreyfanlega hluti, er út í bláinn eins og allt sem ég hef heyrt frá rafmagns-ofsatrúarsöfnuðinum.
Þetta er geðbilun og massahystería á háu stigi, dauðfæddur svarti galdur og aflátsbréfasala af verstu sort. Að ætla sér að rafvæða bílaflota heimsins myndi leggja umhverfi jarðar í rúst.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2019 kl. 23:36
Corsi og hans skoðana bræður segja að næstum takmarkalaust framboð sé á olíu. Einnig að hægt sé að búa til olíu með Eischer-Tropsch aðferðinni. OPEC stjórnar 80% af framleiðslunni. Öllum verðum er stjórnað, olíunni, gullinu, lyfjunum og kaupgjaldinu.
16.9.2018 | 22:29
Jónas Gunnlaugsson, 11.4.2019 kl. 08:28
slóð
Efnarafalar.
17.3.2012 | 23:30
000
Ísrael var með ál fuel sell ca. 2009-2010, til að hægt væri að nota raforku, frá kjarnorku, vatnsorku, sólarorku til að OPEC ríkin græddu minna, en þá fundu Ísraelar olíu vestur af ströndinni og uppi á landi.
Þá var spurt, ætlar þú að selja olíu, eða kjarnorku, vatnsorku, sólarorku. Ef við eigum að vinna olíuna, þá dragið þið ál efnarafalinn, fuel sell, til baka.
Grein Björns Kristinssonar var í Morgunblaðinu 3. júní 2001
ÁL - MÁLMUR ORKUNNAR
Ál er fullt af efnaorku, segir Björn Kristinsson, alveg eins og olía og kol
slóð
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/609466/
slóð
Rafgeymar, efnarafalar
22.11.2014 | 02:54
Egilsstaðir, 11.04.2019 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 11.4.2019 kl. 09:01
Sannleikurnn og ekkert nema sannleikurinn um orkuskiptin Gunnar. Takk fyrir þessa skörpu greiningu.
Ómar sleppir kostnaðarliðunum við rafvæðinguna alveg eins og hann neitar þeirri staðeynd að CO2 í andrúmsloftinu á jörðinni hefur ekki verið lægra í 600 milljón ár og hitastigið að miklu leyti líka. Þessir umhverfisspekingar neita að trúa því að sólin sé áhrifavaldur í orkubúskap jarðarinnar. Þar hafi AlGore meiri áhrif og betra sé fyrir stjórnvöld allstaðar að hlusta á þann olíufjárfestir á einkaþotunni heldur en Judith Curry og fleiri vísindamenn.
Halldór Jónsson, 11.4.2019 kl. 12:19
Þeta var fallega sagt Gunnar:
Hókus-pókus kerlingafræði þín úr naglasúpupotti tískufyrirbæra, til að réttlæta þá gerræðislegu sóun sem verður við það að nota verstu hugsanlegu og óhreyfanlegustu orku sem til er til að knýja hreyfanlega hluti, er út í bláinn eins og allt sem ég hef heyrt frá rafmagns-ofsatrúarsöfnuðinum.
Þetta er geðbilun og massahystería á háu stigi, dauðfæddur svarti galdur og aflátsbréfasala af verstu sort. Að ætla sér að rafvæða bílaflota heimsins myndi leggja umhverfi jarðar í rúst.
Halldór Jónsson, 11.4.2019 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.