Sunnudagur, 10. mars 2019
Hættulegra að segja nei en að vera ólöglegur í ESB [u]
Í ESB-Evrópu standa málin þannig, aðeins 30 árum eftir endursameiningu Þýskalands, að þar er orðið hættulegra að segja nei við innflæði ólöglegra innflytjenda og lýsa yfir efasemdum um þá, en að vera ólöglegur innflytjandi í sambandinu. Nú ert þú settur í ESB-gúlag ef þú efast um alræði Þýskalands í þessum málum, sem lét sturta milljónum af innflytjendum frá annarri plánetu, ástamt glæpa- og vígamönnum, yfir Evrópu og sem flæða þar um á milli landanna. En brjótir þú hins vegar lögin og ryðjist inn yfir ytri sem innri- gatasigta-landamæri landanna í sambandinu, þá færðu peningapoka frá hinu opinbera, sem þvingar þá út úr skattgreiðendum landanna, sem settir hafa verið í eins konar gúlag
Norðmenn þorðu heldur ekki að segja nei við þriðja orkupakkanum af sömu ástæðu. Þeir hræddust að vera settir gúlag með þeim sem sett hafa spurningarmerki við evrópusamrunann, sem verja á Þýskaland og Frakkland gegn alþjóðlegri samkeppni, með því að þau hafi völdin yfir öllum ríkjum Evrópu í gegnum ESB, sér í hag. Það er á þá leið sem Reuters skrifar um samþykki Noregs, þegar að þriðja orkupakkanum kemur. Norðmenn hafa aldrei þorað að segja nei við neinu frá ESB. Þeir hafa bara þorað að segja nei við Íslendinga
Þetta er að verða frekar súrrealistískt ástand í ríki líberalismans, sem Þórdís Kolbrún þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins dásamar í Moggapistli sínum nú um helgina. ESB (og EES) er orðið að de-facto gúlagkerfi, þar sem sjálf háborg líberalistanna, París, er að verða svipað apartheit-samfélag og Suður-Afríka var. Gildir hið sama um fleiri borgir í löndum Evrópusambandsins. Líberalistaríki hennar stendur á barmi borgarastyrjaldar og er þegar orðið að apartheit-einangrunarbúðum
Það tók Þýskaland ekki nema 30 ár að verða að nýrri og þrúgandi ógn yfir Evrópu. 1) Það lemur Suður-Evrópu í efnahagslegan plokkfisk og hefur gert svo allt frá því að það bjó til og fékk EMU-verkfærin í hendur sínar. 2) Þýskaland er þegar komið í stríð við Austur-Evrópu sem vogar sér að andæfa þýsku gerræði. 3) Þýskaland reynir allt hvað það getur að berja Bretland niður og út í brexit. Og 4) Grikkland fær enn og fékk í 10 ár verri meðferð úr lófa Þýskalands en ólöglegir innflytjendur frá annarri plánetu fá, og sem þýski kanslarinn veifaði bara inn og yfir Evrópu
Norðmenn þegja sem fastast 1933-sænskri þögn um allt, á meðan hin gamla aristókratíska undirgefni Svíþjóðar í garð Þýskalands, frá tímum Síðari heimsstyrjaldarinnar og fyrr, lepur það ábyrgðar- og stjórnleysi gagnvart Svíum úr hönd Þýskalands, sem sænsku ríkisstjórninni er skammtað þann daginn og hinn, af einskærum ótta við þær afleiðingar sem allar tilraunir til fullveldis í sænskum málum hefðu í för með sér. Svíþjóð er því að verða óþekkjanlegt stórslys
Hvað á svona "samvinna" að þýða? Þetta er að sjálfsögðu að nálgast geðklofaástand sem ekkert hefur með samvinnu að gera. Þvert á móti!
Sektarkennd Þýskalands vegna Síðari heimsstyrjaldarinnar hefur nú þegar að miklu leyti breyst í sektarkennd yfir því að hafa tapað henni. Ameríkuandúðin blómstrar og hefur gert svo áratugum saman, svæsin allar götur frá að minnsta kosti 1981. Og Ísrael og Gyðingar færast óðum efst upp á listann. Það var engin tilviljun að Ameríkuandúðarmiðillinn Der Spiegel skyldi á þremur árum birta tugi upploginna frétta um Bandaríkin, kosningabaráttu og forsetakjör Donalds Trump 2016, en sem blaðið afsakar sig með að hafi aðeins verið birtar vegna eins rotins og svikuls blaðamanns, sem skáldaði þær allar upp frá a til ö. Enginn fótur var fyrir neinu. Allt var upplogið og falsað, blaðsíðunúmerin líka. Hinn þýski stjörnu-blaðamaður tímaritsins færði hins vegar yfirmönnum sínum á Der Spiegel bara það sem þeir vildu heyra. Þess vegna runnu lygar hans niður eins og heitar lummur hjá ritstjórninni, því í hennar augum voru þær hinn hreini sannleikur um landið í vestri, sem hið aristókratíska "æðra Þýskaland" og skáldskapur þess um Sonderweg, hefur að miklu leyti fyrirlitið og jafnvel hatað frá fæðingu Bandaríkjanna sem lýðveldi fólksins. "We the people" hljómar þar ekki vel. Íslenskir Þýskalandsfetistar eru í hópi tryggustu áskrifenda að þessum miðli og margir til pólitísks heimils í Sjálfstæðisflokki mínum og á kratagervihnöttum. Þeir æmtu því; þessi maður verður aldrei forseti!
Á sama tíma -að sögn fréttaveitu Bloomberg, GPF og Stratfor og fleirum- neitaði Þýskaland að verða við bón varaforseta Bandaríkjanna í kjölfar öryggisráðstefnunnar í Munchen um daginn, um að sjófrelsis-sigla litlum þýskum herskipum um Kerchsundið, sem tengir Svartahaf og Azovhaf, og sem er alþjóðleg siglingarleið. Því neitaði Þýskaland með þeim rökum að slíkt væri "óþarfa áreitni" í garð Rússlands! Hið sama gerði Frakkland, það neitaði líka. Bæði löndin þykjast þó vera í NATO. Heldur virkilega einhver að þessi "fjölþjóðlegu-samvinnulönd" muni lyfta litla fingri Austur-Evrópu til varnar, þegar Rússland slær til og étur sig lengra vestur í álfunni. Eða Grikklandi, þegar Ottómankolin hitna upp fyrir suðumarkið þar. Þar stóð Grikkland varðstöðu fyrir norðrið í 500 ár og hún kostaði Grikki það mikið að það sést enn þann dag í dag
Svo kallar Þórdís Kolbrún ráðherra xD þetta bara "alþjóðlega samvinnu". Ég vona svo sannarlega að þetta sé ekki viðhorfið hjá fleiri Sjálfstæðismönnum, því þá er illa komið fyrir okkur, og Ísland á á hættu að glatast þjóðinni sem á landið. Að mæra Evrópusambandið er að verða eins og að dásama nýtt alræði yfir Evrópu sem "samvinnu" um fjölþjóðlega eyðileggingu
Við þurfum öldungadeild sem bremsuvirki á þannig fólk sem krefst ofangreinds ömurlegs sambands við önnur lönd. Bremsuvirki
Fyrri færsla
Sósíalistar komnir á ískalt hlaðborð xD ?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt 11.3.2019 kl. 08:00 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 441
- Frá upphafi: 1389084
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 246
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Ég segi bara Ólafur Ragnar komdu heim!
Davíð Oddson og Jón Baldvin,myndið öldungadeild Íslands!
Helga Kristjánsdóttir, 11.3.2019 kl. 02:04
Þakka Helga.
Já, ég fyrir mitt leyti myndi með glöðu geði kjósa þá, ákaft! Davíð yrði þó margsinnis númer eitt á mínum kjörseðli, sem er bara eitt atkvæði.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 06:57
Það er eitthvað sem veldur því þegar fólk fær vinstri sannfæringu að göfgi til heimabrúks heltekur það og það hættir að gera greinarmun á löglegur og ólöglegur. Hvað er það sem veldur að það sér ekki þetta ó þegar sjálfshelgunin heltekur það?
Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2019 kl. 09:11
Alveg rétt Gunnar, Ég held að það sé komin tími að við höfum ...elderly... commision sem fer yfir allar ákvarðanir alþingis já og ráðuneytanna. Það eru fleiri í hópi eldra fólks en öðrum þjóðfélagshópum. Vona ég :-). Allaveganna þá kunna Eskimóar að stjórna betur fólkinu sínu en þessir Alþingismenn okkar.
Valdimar Samúelsson, 11.3.2019 kl. 10:26
Gott hjá þér Valdimar!
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 12:24
Þakka þér Jón Steinar.
Góð spurning. Hér heima var það hrunið sem breytti miklu. Við Íslendingar erum þannig að við erum ávallt sundruð þjóð til hversdagsbrúks, af því að við getum það. Við búum á eyju sem Atlantshafið verndar á alla kanta og þurfum því ekki að að standa sameinuð alla daga. Það er aðeins við áföll að við sameinumst eins og klettur, um það sem þarf að sameinast gegn. Þá búum við til einn sameiginlegan járnkall úr okkur. En þegar hættan er liðin hjá, þá er eins og til of mikils hafi verið ætlast, og fólk byrjar að svífa, og taka til sín erlent rugl í leit að nýjum tilgangi í lífinu. Og svo eru það ríkisfjárlögin sem eru orðin allt allt of stór. Og vegna þeirra er stór hluti af fólki búið að gleyma því að á undan peningum sem fara til háskóla, þarf að draga feikilega mörg tonn af fiski úr sjó og byggja upp alvöru mannvirki og bora alveg svakalegt magn af borholum til að hægt sé að henda peningum í fóður handa háskólum, til að unga þar út einverju öðru en lífsnauðsynlegum verkfræðingum, læknum og fólki sem kann og getur eitthvað í alvörunni. Hitt, fræðimannapuntið sem ungar út þvaðrinu ofan í sósíal-stríðsmanna-liðið og landmæra-geggjun, er merki um svakalega velmegun, sem búin er til af þeim sem geta eitthvað í alvörunni. Og af því að við erum eyja þá tökum við til okkar alls konar erlent rugl úr sömu skúffum erlendis. Einu sinni hét þetta fólk hippar, og það lét sér vaxa skegg, en hefur nú náð þeim aldri að skilja hvað foreldrar þeirra máttu þola bara við að umbera það í einn dag.
En nú eru rugltímarnir að byrja að snúa sig sjálfir niður sem ein allsherjar sósíal-stríðs-manna úrkynjun, og tímarnir eru að byrja að breytast aftur. Náttúrubólan sem ferðamannabólan átti heima í, er byrjuð að springa; græna hagkerfið er á leið í þrot, áður en það yfirhöfuð gat hitað hagkerfin upp fyrir tómstunda-frostmarkið; og margt sveiflukennt fólk er almennt orðið kalið í náttúru-skallanum vegna veðurbarnings, og framhaldið þekkið þið; Skeggið dettur af; heil árslaun fara í að láta fjarlæga tattóverkin, ef það yfir höfuð reynir að sækja einhversstaðar um vinnu, í mun hærra atvinnuleysi en er í dag; og lambalifur í raspi með steiktum lauk, kartöflustöppu og rabarbarasultu kemur í stað grænnar myglu og sveppavexti í andlitum þess, sökum næringarskorts og óhamingju. Þar með er þessi fjórða iðnbylting búin, og við tekur glíman við neikvæðar afleiðingar hennar. Vinstrið dettur úr batikinu um háls sér og verður aftur eðlilega súrt, eins og við fæðingu þess.
Þetta kemur vonandi. Háskólinn í Wyoming, sem neitaði að láta undan sósíal-stríðsmanna-dansinum, hefur heldur betur tekið við sér og er byrjað að græðast fé og nýir nemendur, vegna þess að hann fann upp nýtt en gamalt landnema-koncept sem hann auglýsir sig upp með: "The world needs more cowboys" - og fjallaði leiðari Wall Street Journal um skólann á föstudaginn undir yfirskriftinni. It Pays to Be A Wyoming Cowboy.
Skólinn neitaði að dansa villimannadansinn. Hann sagði: "The campaign lauded self-reliance, grit and courage and suggested that anyone with this caliber of character can be a cowboy." Hér má sjá kynningarmyndband skólans; The World Needs More Cowboys || University of Wyoming
Ég varð ansi hugfanginn þegar ég sá þetta hér myndband frá WSJ í fyrra, því það minnti mig svo á margt hjá okkur hér á Íslandi. Tump er að reyna að vinna í þessu máli, en hjá honum kemur fé í nýja borholu, nýja brú og betri fælnimátt, alltaf á undan peningum í þvaður.
Kveðjur norður.
Gunnar
Íhald
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 12:44
Hugsa sér Gunnar það eru þá fleiri Bundi mál í gangi. Ég vissi að Trump gaf mörgum fylkjum lönd til baka. Ég held að Fed-arnir hafi stolið mest af Alaska en þar ráða þeir um 70% af lendum sem þeir hafa ekkert með að gera. Bara græðgi Deep state manna.
Valdimar Samúelsson, 11.3.2019 kl. 13:59
Fréttir bárust:
Í dag bárust þær fregnir að Donald Trump sé að senda tvö varðskip bandarísku landhelgisgæslunnar til þeirra í Kiev, ásamt ratsjárkerfi til strandgæslu, og einnig til þiggja nágrannaríkja Úkraínu við Svartahaf. Trump ætlar líka að aðstoða þá við að byggja upp sjóferða-stjórnstöð og mun senda herskip í heimsókn, fyrir utan tundurspillirinn sem er í Svartahafi. Svo sagði hann Þýskalandi að ef það henti ekki kínverska Huawei út úr 5G innviðum landsins, þá myndu upplýsingar hætta að berast til Þýskalands frá Bandaríkjunum.
..fullt stopp
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 17:21
.. og þá hættir líklega Schengen-gagnagrunnurinn, svo hátíðlega kallaði, að virka.. nema til pólitískra tómstundiðkana...
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 17:29
Já Valdimar.
Okkar íslensku bændur þurfa heldur betur að halda fast í jarðirnar og afréttina ef illa á ekki að fara, nú þegar græna myglan með batikhalana leikur enn lausum hala í stjórnlausri Reykjavík sósíalismans.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 18:21
Frétt barst:
Bild segir að Angela Merkel hafi hleypt 5000 eftirlýstum stríðsglæpamönnum inn í Þýskaland, þ.e. inn á Schengensvæðið, án þess að rannsaka nema fáa af þeim sem komu inn í landið þegar hún veifaði þeim inn. Kannski að þeir séu komnir Schengen-vottaðir hingað til Íslands í dag, með gagnagrunninn í símanum sínum. Það verður auðvitað að passa að þeir komist inn eins og kjötið sem Vörður (hvers?), heiladinglandi stuttbuxnaklúbbur Sjálfstæðisflokksins, fagnar í dag. Það styttist í endalok flokksins.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2019 kl. 18:47
Flottur pistill hjá þér og skrif (eins og þetta kl. 18:47 í gær), fyrir utan 3. síðustu klausuna í greininni. Ég held það væri vísdómsleg varúðarráðstöfun að senda ekki fullvopnað erlent herskip inn um Kerch-sundið, Bandaríkin eiga þangað ekkert erindi.
Jón Valur Jensson, 12.3.2019 kl. 14:29
Kærar þakkir Jón Valur.
Erhem. Ekkert erindi? Ættu þá Bretar og Danir að segja að rússnesk skip (herskip sem og önnur skip) eigi ekkert erindi um alþjóðlegar siglingaleiðir á Ermasundi, Eystrasalti, um Stórabelti og Kattegat?
Kerch-sundið er alþjóðlegt farvatn.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 13.3.2019 kl. 06:29
Það á enginn leið um Kerch-sund nema til Rússlands eða Úkraínu.
Og til Úkraínu er hægt að sigla á margar hafnir aðrar, jafnvel þótt þeir hafi misst Krímskagann.
Sízt eiga erlend herskip neitt erindi þangað nema til að espa til óspekta!
En þakka þér samt svarið, vinur.
Jón Valur Jensson, 14.3.2019 kl. 05:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.