Föstudagur, 4. janúar 2019
Skyndilegt sölustopp Apple í Kína
Fyrirlestur Michael Pettis um Kína á gamla vinnustað Alberts Einstein. Takið vel eftir. Pettis rak um skeið punk-bar í Kína en honum lokuðu yfirvöld
****
Er Apple kanarífuglinn í kolanámunni?
Í fyrrakvöld kom afkomuviðvörun frá Apple. Salan verður minni en áætlað var í byrjun nóvember og sem þýðir 4-5 prósentu fall í veltu á milli ára, skrifaði Tim Cook forstjóri Apple. Öll aðvörunin tengist Kína, sem hæglega gæti verið að leggjast inn á bráðamóttöku. Annars kemur Apple-árið út með hæsta EPS nokkru sinni (hagnaður á hvern hlut)
Sem sagt: Apple sat með eigendum fyrirtækisins (almennings-hluthöfum þess) og greinendum þann 1. nóvember 2018 og gerði grein fyrir síðasta fjórðungsuppgjöri á símaráðstefnu með eigendum, öllum heiminum í vefvarpi og helsti greinendum. Tim Cook kom þar með íhaldssamar leiðbeiningar um lykiltölur fyrir næsta fjórðung, sem kemur til uppgjörs í byrjun febrúar n.k. En í fyrrakvöld kom svo skyndilega afkomuaðvörun frá Tim, sem meðal annars segir þetta:
[..While we anticipated some challenges in key emerging markets, we did not foresee the magnitude of the economic deceleration, particularly in Greater China. In fact, most of our revenue shortfall to our guidance, and over 100 percent of our year-over-year worldwide revenue decline, occurred in Greater China across iPhone, Mac and iPad.]
Sem sagt: Frá 1. nóvember til og með næstu nokkrar vikur, þá rekst Apple á skyndilegt stopp? í Kína (e. sudden stop). Í byrjun desember vita þeir hjá Apple sennilega þá þegar hvað er að gerast, en bíða í nokkrar vikur til að fá það staðfest. Og þá eru tvær vikurnar fyrir jól komnar, og þá er ekki hægt að koma með aðvörun, því þá er allur markaðurinn eins og hann lagði sig kominn á klósettið í svartsýniskasti um allan heim, en sem enginn þekkir í raun og veru skýringarnar á, séu þeir heiðarlegir og viðurkenni staðreyndir. Tim bíður því þar til 2. janúar með afkomuaðvörunina. Hún mun svo taka mesta gasið úr málinu og fá eigendur (fjárfesta) Apple til að líta raunsætt á málin þegar uppgjörið kemur í febrúar. Það sem gerðist hjá Apple í Kína gerðist fyrirvaralaust. Um er að ræða einn ákveðinn viðburð, sem breytti öllu
En það er eitt sem er dálitið merkilegt. Og hvað er það Gunnar? Jú, Þann 14. nóvember skrifaði Michael Pettis eftirfarandi (Pettis veit manna mest Vesturlendinga um kínverska hagkerfið, enda kennir hann Finance (fjármál) við Pekingháskólann og er búinn að reyna að vara Vesturlönd við því sem er að gerast í Kína árum saman. Hann skrifaði þetta:
[.. As long as the countrys bubble economy can be prolonged, Singles Day will continue to grow and break sales records. But as nervousness deepens in China and as economic worries spread, Singles Day itself will be threatened. In fact, while this years 22 percent increase in sales may seem impressive, at least part of this increase may simply reflect the fact that many new vendors joined the program; if so, the sales these newcomers would have made anyway will have been added to the Singles Day total as if they represent new economic activity.
One year on November 11, maybe next year or maybe in a few years, the dizzying sales growth of Singles Day will suddenly reverse. At that point, the exuberance of Chinas bubble economy will almost certainly have ended and, as that happens, young Chinese people will probably increasingly reject the extraordinary commercialization of Singles Day as the very symbol of what went wrong in China..]
Þetta er það sem er að gerast. Eins og Tim benti óbeint á, þá hefur 11-nóvember bóla einhleypra ungmenna sprungið einmitt þann 11. síðasta nóvember. Eða - aðeins 10 dögum eftir að Tim Cook gerði grein fyrir síðasta fjórðungsuppgjöri á símaráðstefnu með eigendum, öllum heiminum og greinendum - og leiðbeindi þeim líka um nánustu framtíð í meðal annars Kína. Tíu dögum síðar klessir Kína á vegg einhleypra ungmenna
Það er engan veginn hægt að kenna viðskiptastríði um klessukeyrslu kínverska hagkerfisins undanfarin mörg ár. Mjög mörg erlend stórfyrirtæki á borð við Pegatron, Samsung, Suzuki, Nikon og Panasonic sem eru að yfirgefa Kína, voru þegar með það á átætlun sinni löngu áður en Trump var kjörinn forseti. Kína er að úldna að innan og rotnuninni er stýrt innan frá. Fyrir utan 11. nóvember klikkunina í Kína, þá er allt annað hagkerfislegt fyrir langa löngu sprungið innvortis í því landi. Og nú sprakk 11. nóvember bólan líka og neytandinn með
Samsetningarfyrirtækið Foxconn sem Apple notar í Kína, er á leið út úr Kína, til Víetnam, sem Bandaríkin eru að byrja að vernda gegn einmitt Kína, því að Víetnam óttast Kína
Michael Pettis á skilið Nóbelsverðlaunin í hagfræði fyrir kenningar sínar um hvað gerist í alþjóðavæddum heimi undir offramboði sparifjár. Slíkt ástand er algerlega nýtt í sögunni
Heimurinn er dauður. Það er að segja: eftirstríðsheimurinn er dauður. Hann er farinn. Enginn veit enn hvaða og hvernig uppsetning hans tekur við. En það sjást samt vissar útlínur í þokunni
Fyrri færsla
10. stærsti banki Ítalíu settur í handjárn
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:03 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.11.): 41
- Sl. sólarhring: 42
- Sl. viku: 401
- Frá upphafi: 1387166
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 224
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Blessaður Gunnar.
Er ekki nærtækara að benda á vaxandi markaðshlutdeild kínverskra snjallsíma, svona í ljósi þess að vestverjar finna upp, en Kínverjum er látið eftir að framleiða. Og mikið mega þeir vera heimskir ef þeir kópera ekki framleiðsluleyndarmálin.
Allavega þá eru kínverskir farsímaframleiðendur með viðunandi gæði, en langtum ódýrari vöru.
Væri ekki nær að stöðva þá ónáttúru vestrænna stórfyrirtækja að nýta þrælavinnuafl til að lágmarka framleiðslukostnað??
Að ekki sé minnst á vitlekann frá vestrænum skólum og hátæknifyrirtækjum í gegnum kínverska námsmenn.
Það er eins og fólk haldi að samkeppni þjóða hafi horfið við glóbalbvæðingu stórfyrirtækja, og eftir sé einhver samsuða þar sem hagsmunir fjármagns og auðs hafi þurrkað út öll landamæri.
En Kínverjarnir vita allavega betur.
Og það er ákaflega mikill misskilningur að halda að þeir séu á fallandi fæti, með vísan þá í einhver kapítalísk viðmið eins og offjárfestingar eða fasteignabólu.
Því slík viðmið hafa nákvæmlega ekkert með þeirra miðstýrða ríkishagkerfi að gera.
Því samkeppni þjóðanna snýst um tækni, þekkingu og styrk, það síðasta hafa Kínverjar í krafti stærðar, það fyrra er þeim sent í meili í nafni græðgivæðingar vestrænna stórfyrirtækja sem telja sig æðri þjóðum og ríkjum, en eru nákvæmlega ekkert þegar þjóðir takast á.
Og það hafa menn vitað í árþúsundir.
Þeim mun fjölga eplunum.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 4.1.2019 kl. 13:35
Þakka þér Ómar.
Æi hættu nú þessu venjulega Vinstri-græna anti-vestræna kommarugli og reyndu að hugsa skýrt eða taktu afleiðingum skoðana þinna og fluttu þig til útópíu.
Markaðshlutdeild breytist ekki á 15 dögum. Hún er hægfara skepna. Og þess utan er Apple ekki verðmætasta fyrirtæki veraldar vegna markaðshlutdeildar, heldur vegna hugarhlutdeildar um allan heim. Kína framleiðir enga lófatölvu sem keppt getur í efri lögum markaðarins og mun aldrei geta það, svo lengi sem það er knúið áfram með kommúnisma. Allir geta framleitt GSM síma með grunnþjónustu og tapað fé á því, eins og þeir gera flestir. Meira að segja Sovétríkin gátu stolið tækni Vesturlanda og látið Robotron í Dresden framleiða eftirhermur eftir henni undir umsjá Valdímírs Pútín, sem var þar árum saman á vegum KGB. En þeir duttu hins vegar bara alveg af vagninum um leið og tækniframfarir urðu það harðar að ljósritunarvél þeirra hafði ekki við.
Finnst þér ekki sanngjarnt að Apple láti framleiða iPhone í þrælaríkinu Kína fyrir þrælaríki kínverska kommúnistaflokksins í Kína. Hvað heldur þú að myndi heyrast frá kommum eins og þér ef allt fyrir þrælaríkið Kína væri framleitt í Bandaríkjunum? Varst þú kannski efst á barriköðunum þegar Ísland framleiddi síld fyrir þrælaríki kommúnismans í Rússlandi og Varsjárbandalagslöndum?
Það er greinilegt að þú ert með háskólamenntun, hafandi þessar skoðanir. Hvað með smá jafnvægi? Til dæmis það að við Íslendingar framleiðum sjálfir að minnsta kosti það sem við étum sjálfir. Það getum við!
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 4.1.2019 kl. 14:43
Æ,æi Gunnar minn.
Látum það vera að þér hafi tekist að móðga ekki minni íhaldsmenn en Bishmarck og Churchil, báðir ekki verandi VinstriGrænir, en þekktu vel til samkeppnislögmála þjóðanna, og látum vera að þú hafir farið rangt með ákveðnar staðreyndir, eins og samkeppnishæfni snjallsíma Kínverja, en það er illt, að þú sem telur þig vera national, ekki global, að þú gangir svona erinda þeirra sem hámarka skammtímagróða með því að senda öll sín framleiðsluleyndarmál til vaxandi stórveldis, sem Kína sannarlega er.
Hefur þú til dæmis einhverja græna glóru um hve mörg bandarísk framleiðslufyrirtæki hafa horfið vegna þessa skammtímagróðasjónarmiða. Það er að birginn í Kína hóf sambærilega framleiðslu undir eigin vörumerki, enginn merkjanlegur munur á vörunni, en gekk frá vestrænni samkeppni í skjóli hins kínverska þrælavinnuafls??
Appel er aðeins nýjasta dæmið þar um og stóryrði annað fá þar engu breytt, jafnvel þó háskólamenntaður VinstriGrænn sé skotspónn þeirra stóru orða, sem reyndar nótabene ég er ekki.
Og vitlekinn sem er fjármagnaður með viðskiptahalla frjálshyggjunnar, það er að leggja niður innlenda framleiðslu, en borga mismuninn með pappírspeningum, hann kostar skólavist þúsunda ungra Kínverja, og þeir eru ekki að læra til að finna sér farveg innan glóbal fyrirtækjanna sem þú af einhverjum ástæðum telur þig knúinn til að verja.
Ólíkt Trump félaga þínum.
Hann er ólærður, en veit betur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 4.1.2019 kl. 16:33
Þakka þér Ómar
Mér tókst greinilega að pota aðeins í þig.
Hvað varðar Apple þá voru þeir síðastir Bandarískra tölvufyrirtækja til að flytja samsetningar til útlanda. Fyrst fóru þeir til Írlands og eru þar enn að vissu marki.
En svo var öllum sagt að þökk sé vestrænum fjárfestingum myndi Kína verða eins og Japan og Þýskaland urðu eftir síðari heimsstyrjöldina undir handleiðslu, tækniyfirfærslum og fjárfestingum Bandaríkjamanna. Og enginn vildi að sjálfsögðu missa af þeirri lest og verða undir í samkeppninni.
Þetta reyndist bara ekki vera rétt. Þrátt fyrir að 60 þusund bandarískar verksmiðjur hafi verið rifnar upp með rótum og fluttar til Kína, og fólkið sem í þeim vann skilið eitt eftir á fjóshaug alþjóðavæðingar, þá varð Kína bara enn harðara kommúnistaríki og enn verri þjófur, eins og Þýskaland er líka, á kostnað viðskiptahallalandanna. Þetta var látið viðgangast þar til viss maður að nafni Donald J. Trump var kosinn til valda til að reyna að breyta þessu og taka á Kína eins og taka ber á því, (og vonandi Þýskalandi líka).
En samt sem áður, þá er auðvitað ekki sanngjarnt að allt sem Kínverjar neyta sé framleitt í Bandaríkjunum eða erlendis. Vörur Apple í Kína eru því að hluta til unnar þar. En nú er því að ljúka vegna þess að það sem allir sögðu við upphaf þeirrar ferðar, reyndist ekki rétt. Hvorki fyrir Vesturlönd né Kína. Bandaríska og evrópska hagkerfið við sjávarsíðuna í Kína er því að loka.
Nýjar framleiðsluaðferðir munu að sjálfsögðu verða til og ef til vill gera mannshöndina minna mikilvæga. En einnig það, mun bitna á þeim sem frekar hefðu kosið að frá þrælalaun en að fá ekkert og enga þróun. Einu sinni vorum við svona og Bandaríkin líka. Við vorum í saltfiski og þeir í baðmull og tóbaki. En við vorum sem betur fer ekki kommúnistaríki.
Útaf þessu, finnst mér að við Íslendingar eigum ekki að feta í þessi fótspor og að við étum það sem íslenskt er og við hlúum að okkar landbúnaði, sjávarútvegi og Marel og bönkunum auðvitað líka.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 4.1.2019 kl. 19:21
Sæll Gunnar
Gott að fá Ómar til að vinda ofurlítið ofan af Svartholi Trumps. Kenningar forsetans eru alla vega ekki að virka. Bandaríkin verða ekki áfram stór nema að treysta á alþjóðlega samvinnu í viðskiptum. Minni höft. Mexíkóar eru ekki að fara að greiða fyrir múrinn eins og hann boðaði. Hann er hvað eftir annað að steyta á skerjum og draga í land hótanir um tolla verði ekki brugðist við hans óskum. Sextíu þúsund bandarísk fyrirtæki fara ekki til Kína með framleiðsluna nema ávinningurinn sé mikill.
Kína með alla tækniþekkinguna frá háþróuðust tæknifyrirtækjum heims eru ekki á flæðiskeri. Eplið er eins og með önnur hátæknifyrirtæki á markaði, ná hæstu hæðum og síðan dofnar stjarnan þegar áhrifavaldarnir, tískan og nýsköpun minnkar. Margt bendir til þess að að sterkustu kaupendurnir af Eplavörum hafi misst trúna á forystu tæknirisans í Ameríku. Óvissan sem forsetinn skapar með óvönduð yfirlýsingum sem hann hefur ekki stjórn á er að skapa ringulreið út um allan heim. Varla ábætandi á óróa íhaldsmanna, Brexit og ESB sem er í umbreytingaferli.
Að tala um þrælakistuna Kína er ekki raunhæft. Stærsta ríki heims getur eflaust orðið á í messunni, mengun og innanlandsórói vegna breytinga, en að halda því fram að allt sé í aumasta þrælahaldi er ekki að ganga upp. Við sjáum að hingað koma tugþúsundir Kínverskir ferðamenn á ári. Athuglir, kurteisir og þeir sem fara með gát. Að ferðast hálfan hnöttinn til að sjá eyríkið í Norðri er afleiðing af því að þeir eru að gera eitthvað rétt, hafa fjárhagslega burði? Kynning sem Ísland hefur fengið í kínverska sjónvarpinu er undraverð. Stór hluti Kínverja á sér draum um að sjá Evrópulönd og vita meira um sína helstu viðskiptamenn.
Þegar heimsverslunin minnkar með höftum eru menn að fara inn í eigin svarthol. Geimfarinn veit varla hvað verður næst, þyngdarsviðið breytist ört. Eins og Stephen Hawking sagði: Togið í fætur geimfarans verður sterkara en togið í höfuð hans. ... slítur hann að lokum í sundur." Í höfði Trumps snýst allt um að ná næstu kosningum, ná hylli kjósenda sem eru með skammtíma markmið. Forysturíkið í Ameríku mun þá dragast inn í skel sína. Fiska aðeins á heimamiðum?
Sigurður Antonsson, 5.1.2019 kl. 10:23
Þakka þér Sigurður
Sjá: 2018 var gott ár fyrir Bandaríkin: þau stækkuðu og urðu betri
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 5.1.2019 kl. 12:56
Blessaður Gunnar.
Það er eiginlega það eina sem hægt er að móðga okkur Hriflunga með er að bendla okkur við VG, þann arma svika flokk. Ekki að ég hafi ekki kosið Steingrím, gamla blakfélaga minn, nokkrum sinnum áður en hann gekk fyrir björg. En kommatittur er gamalt og gott skammaryrði, enda alltaf upp með mér þegar Halldór verkfræðingur sér ástæðu til að sæma mig þeirri nafnbót.
En það er gott að byrja nýtt ár á að vera sammála, tek því undir þessi orð þín. "Útaf þessu, finnst mér að við Íslendingar eigum ekki að feta í þessi fótspor og að við étum það sem íslenskt er og við hlúum að okkar landbúnaði, sjávarútvegi og Marel og bönkunum auðvitað líka.".
Vel mælt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 5.1.2019 kl. 14:16
Höfðinglegur ertu Ómar, þrátt fyrir pot mitt, og þakkir fyrir það.
Ekki amalegt að vera Hriflungur.
Er að lesa bók Jakobs F. Ásgeirssonar um Jón Gunnarsson, sem Jóans kenndi.
Bestu kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 5.1.2019 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.