Leita í fréttum mbl.is

Heimsendir: varnarmálaráðherra segir af sér

Vesturlöndum: Olivia Newton John í hvítu og meira í hvítu með henni hér. Þetta hófst allt saman með útgöngunni af Egyptalandi. Annars værum við ekki Vesturlönd í dag. Jólin nálgast..

****

22.12: Gáttaþefur   

Nú er komið í ljós að James Mattis sem sagt hefur af sér sem varnarmálaráðherra Tumps (sjá: Mattis hættir hjá Trump), lagðist gegn flestum þeim mikilvægu málum sem leiddu til kjörs Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna. Mattis var á móti því að bakkað væri út úr svo kölluðu Parísarsamkomulagi og hann var á móti flutningi sendiráðsins í Ísrael til Jerúsalem. Hann var einnig á móti því að senda Íran-samkomulag Obama í tætarann

Obama hafði fjóra varnarmálaráðherra í sinni stjórnartíð og ég minnist þess ekki að nýgeggjunardeildir fjölmiðla og "sérfræðinga" hafi lagt lesendur sína i einelti með geðklofnum fréttum um brottför þeirra úr ríkisstjórn hans. Harry Truman hafði einnig fjóra varnarmálaráðherra í sinni stjórnatíð. Þess utan þá rak Barack Obama James Mattis án svo mikið sem eins símtals á sínum tíma. Donald Rumsfeld sagði af sér hjá Bush yngri, sem þannig hafði tvo varnarmálaráðherra í stjórnartíð sinni

Trump ákvað að senda bandaríska hermenn inn í Sýrland í sex mánuði, hann hafði jú lofað kjósendum því að leggja ISIS í rúst. Nú er 99 prósent af kalífati þeirra horfið af yfirborði jarðar, landsvæðinu, en sjálft ISIS mun þó aldrei hverfa alveg, því það liggur ætíð latent/sem óspírað fræ meðal íslömsku þjóðanna og bíður næsta tækifæris. Útilokað er annað en að það reyni einhvern tíma að rísa upp á ný. Enginn veit hvenær það gerist næst

Mattis skilaði góðu verki og beittari her, en hann fékk samt ekki, þrátt fyrir það, að standa í vegi fyrir áframhaldandi útfærslu MAGA-stefnu Trumps (Make America Great Again). Já, kannski var Mattis eins konar krati (of mikill?) eins og Trump orðaði það - "a sort of a Democrat"

Í dag bakaði ég laufabrauð og parta. Fallegt hrím var úti  

Fyrri færsla

Myndir sem passa fordómum blaðamanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Okkur vantar lifsnauðsynlega einn Trump á Íslandi.

Góð byrjun væri að fækka þingmönnum um helming.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 24.12.2018 kl. 12:14

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Kristinn.

Já.

Gleðileg jól!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 24.12.2018 kl. 17:21

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki einn einasti stjórnmálamaður heldur kerti á við Trump. Menn lítilla sæva

Halldór Jónsson, 27.12.2018 kl. 13:27

4 Smámynd: Halldór Jónsson

okkar

Halldór Jónsson, 27.12.2018 kl. 13:27

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðileg jól Halldór!

Já.

Okkar já.

Gunnar Rögnvaldsson, 27.12.2018 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband