Leita í fréttum mbl.is

Síðasta skip frá Kína í smíðum [u]

Uppfært: Tímamótaræða Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna um Kína, hinn 4. október 2018, sem haldin var á meðan leikskólaveldi fjölmiðla voru önnum kafin við slúður og falskar fréttir

****

Nú eru ekki nema örfá ár þar til að Kína kemst aftur á bak við það járntjald sem kínversk stjórnvöld elska svo heitt. Að halda að kommúnistískt Kína geti haldið áfram að vera kommúnistískt Kína nema innan veggja síns eigin múrs, var ávallt svo skrýtin hugsun að í dag er hún farin að virka sem móðgun við skynsemi þeirra sem yfir höfuð höfðu bara smáskammt af slíku í sínum höfðum. Aðeins útópískar nálastungur af 1991-árgangi náðu svo langt inn í heilabú manna á Vesturlöndum að formalínið sem í þeim var, steypti heilabú of margra Vesturlandabúa föst í ólæknandi kratisma eins og sést svo víða á þeim vestrænu stjórnmálaflokkum sem eru hnignandi flokkar í dag, en sem ættu bara alls ekki að vera það, heldur ættu þeir flokkar að vera að styrkjast. Dómgreindarskortur og pólitískt hug- og getuleysi er það sem ræður hnignunarför slíkra flokka inn í smjattpattísk grasker

Kína er því að læsast inni í sjálfu sér eins og náttúrulögmál og Bandaríkin munu varla hleypa því út aftur eins og það er. Ekki verður hlustað á væl bandarískra fyrirtækja, né heldur á vol og væl þeirra bandamanna sem byggja þjóðaröryggi sitt á efnahags- og hernaðarlegu heilsufari Bandaríkjanna

Flokksrústir Demókrata í Bandaríkjunum eru því akkúrat núna að byrja að skríða upp úr gígaröð eigin sjálfskaparvíta og leita hælis hjá þeim sem sem halda höfði. Fyrst að Rússlands-harka var demókratísk dyggð, þá hlýtur ný Kína-stefna Trumps og Pence að þýða nýtt pólitískt himnaríki fyrir sanna Demókrata. En til að komast þangað verða þeir að styðja eða kjósa Repúblikana. Annars er það bara hin gamla gígaröð þeirra sjálfra til helvítis, sem bíður

Nýr kafli í endalokum evrunnar er nú að hefjast. Vaxtaálagið á dauðvona ítalska ríkið er orðið slíkt að ítalskir ríkispappírar eru við það að týna húsbónda sínum fyrir fullt og allt. Beðið er með öndina í hálsinum eftir næstu lækkun lánshæfnismats ítalska ríkisins. Og ef matsfyrirtækin setja mínus fyrir aftan nýtt og lægra mat, sem þýðir neikvæðar horfur, þá er næsta þrep þar fyrir neðan, ruslatunnan sjálf

Á meðan dunda S.þ sér við nýjustu súperstrengja-kenningar þeirra "vísindamanna" sem þá misstu vinnuna - og æruna. Við skulum ekki minnast á alla þá sem misstu vinnuna þegar súperstrengja-kenningar vísindamanna peningamála fuðruðu upp árið 2008 og urðu að loftslagi

****

Svo hér að lokum, eitt gott mix eftir einn Kanadamann, frá sumrinu 2003, eiginlega eina mixið sem ég hef haldið upp á. En þá reyndu ýmsir menn að skapa eitthvað nýtt á tónlistarsviðinu. Þessum tókst það ágætlega

Bein krækja: Crystal Tokyo | Allt með Masaki

Fyrri færsla

Hæstiréttur Bandaríkjanna aftur á réttri leið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar flott grein og Crystal Tókýó frábært. Hlusta á Pence í kvöld. Ég var einmitt að lesa grein um Kínverjana og skýrteina fals þeirra en þeir selja ýmis gögn út um allan heim s.s. fullkomin bílpróf með öllum rafrænum merkjum og þetta fyrir flest öll lönd. Kanarnir geta ekki einusinni sannað að þau séu fölsuð.

Við reyndar erum búnir að láta öll rafræn gögn um hvern einasta íslending í hendur lægstbjóðandi þjóða sem útbúa passa okkar og bílpróf. Með kveðju Valdimar. 

Valdimar Samúelsson, 9.10.2018 kl. 16:17

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlit og skrif Valdimar.

Já ég hef alltaf hrifist af hljómborðinu og velti því stundum fyrir mér hvað einn helsti byltingarmaðurinn á því sviði, uppáhaldið mitt Chopin, hefði sagt um og gert við tölvutæknina í dag, hefði hann verið uppi þarna þegar það eina nýja sem gerst hafði í afþreyingartónlist í langan tíma var að gerast þegar galdrar nútímans í kringum árþúsundskiptin hétu MP3-straumar og endalaust magn af straumstöðvum, en sem næstum allar eru dauðar í dag.

Já Kínamálið, eða réttara sagt Kína-kálið, er rétt að byrja. Bara rétt að byrja. Fæstir taka eftir því sem er að gerast fyrir framan nef þeirra núna. Þannig hefur mannkynssagan ávallt streymt fram, án þess að menn taki eftir því.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.10.2018 kl. 21:19

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ræðan var æðisleg hjá Mike. Þeir eru tilbúnir að takast á við Kína en sjáum til

Valdimar Samúelsson, 10.10.2018 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband