Sunnudagur, 8. júlí 2018
Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram
Hinn sænskættaði Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um útboraða háskóla Vesturlanda - Kína-Norður-Kóreu bandalagið - Mið-Austurlönd og útópíuveldi vinstrisins
****
Kína
Í nýju plaggi sem þeir er fylgjast með ritskoðunarmálum í Kína komust yfir, kemur í ljós að einræðisherravaldið í Kína er í vaxandi örvæntingu að reyna að þjappa íbúum landsins að baki einræðisherra Xi Jinping. Kínverskum fjölmiðlum er nú bannað að birta neitt sem útskýrir afstöðu Bandaríkjanna varðandi það viðskiptastríð sem er í uppsiglingu. Bannað er að birta bandarísk gögn og tölur. Bannað er að minnast á sjónarmið Bandaríkjamanna. Bannað er að minnast lengur á "Framleitt í Kína 2025"- stefnu kínverskra stjórnvalda, sem byggja átti á stolinni tækni og tækni-tilþvingunum á bandarísk og evrópsk fyrirtæki. Vara einræðisherravöldin við afleiðingunum, brjóti fjölmiðlar þessar fyrirskipanir. Komandi viðskiptastríði er af einræðisherradæminu stillt upp sem aðför alls heimsins að Kína. Við erum ofsótt og allir aðrir eru vondir, við okkur. Kannski að þessi uppskrift sé sótt til rakettumannsins í Pyongyang, en þangað fer Xi-einræðisherrabatterí Kína í opinbera heimsókn í september. Heilastöppukássan í sjálfsfróunar-háskólum Vesturlanda, með Marxískt-þrungið Parísarloftslag í heilastað, verður hér léttilega auðveld bráð og endurnýtanlegur her nytsamra fábjána fyrir áróðursbatterí kínverska einræðisherraveldisins. Heilastöppukássan sú mun ekki bregðast einræðisherraveldinu
NATO
Angela Merkel hefur brugðist með lygum við bréfi Bandaríkjaforseta til þýsku ríkisstjórnarinnar, þar sem þýsk stjórnvöld eru hvött til að standa við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO. Sem svar við bréfinu lét Merkel senda bréf til Washington sem sagði að "í ljósi NATO-samkomulagsins, mun annað ákveðið skref þegar hafa verið tekið í átt að markmiðasvæði NATO". Þetta er lygi þar sem 2 prósent er ekki "markmiðasvæði" heldur tala, og fjárframlög Þýskalands eru fallandi og verða fallandi, en ekki hækkandi, eins og sósíaldemókratar hafa mótað stefnuna í sjálfri ríkisstjórn Angelu Merkels, og sem hún sjálf blessaði í fjárlögum í maí, þar sem hún laug þessu sama að bandaríska forsetanum. Fölsuð aðild Þýskalands að NATO er orðin að tilvistarvanda fyrir varnarbandalagið sjálft, Austur-Evrópu og þar með Þýskalands líka. Það sama gildir um NATO og ESB, þar sem Þýskaland lætur aðra um að borga en er sjálft svarhol fyrir framlög annarra
Fyrri færsla
Þýski bardaginn heldur áfram: Seehofer aðvarar Merkel og ESB
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:31 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 11
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 107
- Frá upphafi: 1387426
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Sæll Gunnar.
Það er undarlegt upphafið á þessari greiningu þinni á stöðu mála í Kína, að vitna til ónefnds plaggs, sem þú segir að fylgist með ritskoðunarmálum þar í landi og byggir að því virðist eftirfylgjandi greinargerð þína þeirri trú og fullvissu þinni að um heilagan sannleikann sé þar að ræða.
Ég nenni annars ekki að reyna að breyta lífsskoðunum þínum og hugsjónum, en bendi þér vinsamlegast á að plögg og skýrslur geta verið jafn óáreiðanlegar og þú virðist álíta um kínversku fréttastöðina CGTN, sem ég efast ekki eitt augnablik um að þú fylgist líka með.
Jónatan Karlsson, 8.7.2018 kl. 12:33
Í stað þess að skrifa mér Jónatan, þá ættir þú að skrifa stjórnvöldum Kína og spyrja þau að því af hverju allt sé ritskoðað í Kína, fjölmiðlum hótað öllu illu - og svo af hverju almenningur sé skyldaður að búa í sérhönnuðu helvíti Kommúnistaflokksins og engu öðru.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 8.7.2018 kl. 12:51
Ég er þín megin Gunnar. Kannski Jónatan viti hve miklu við töpum að þjóðarauð okkar með því að versla við Kína. Það er örugglega yfir helmingur að Kína verslun sem fer í ruslið vegna galla og ónothæft drasl sem kaupandinn hefði ekki keypt hefði hann séð vöruna.
Valdimar Samúelsson, 8.7.2018 kl. 13:24
Þakka þér Valdimar.
Já og svo þeirrar fjárhagsaðstoðar sem Kína lofar þeim þróunarlöndum sem það kaupir sig inn í til að hafa þar áhrif, en sem koma bara aldrei því allt er svikið.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 8.7.2018 kl. 13:32
Það er sannarlega ánægjulegt að heyra hvað þið eruð sammála um skoðanir ykkar á kínverskum málefnum, en í fúlustu alvöru, þá álít ég t.d. , að staða mannréttindamála sé að mörgu leyti lakari hér á Íslandi heldur en þar, hvort sem þið félagarnir trúið því, eður ei.
Jónatan Karlsson, 8.7.2018 kl. 18:20
Ég hef áður komið fram með kenningu um að stundum verður dýrt ódýrt og ódýrt dýrt. Það á við um kínverska draslið, menn spara nokkrar krónur en flytja atvinnuna úr landi, yfir hálfan hnöttinn, til svitasjoppanna í Kína, þar sem mannréttindi eru eitthvað ofan á brauð.
Gott hjá Trump að taka á þessu rugli, rétt eins og áskrift Þýskalands og annarra Evrópuríkja, þ.á.m. Íslands, að hernaðarmætti USA, sem eins og Gunnar bendir á, kemur ekki í Cheerios-pakka, heldur er greiddur af skattgreiðendum í Bandaríkjunum og stundum með blóði þeirra.
Theódór Norðkvist, 9.7.2018 kl. 21:31
Allir vita að NATO er algerelega gagnslaust apparat orðið, og verra en það. NATO er ein aðal ástæðan fyrir ófriði í okkar heimshluta.
Sumir eru svo einfaldir að þeir halda að Trump sé að krefjast þess að Evrópulöndin eyði meiru til varnnarmála til að efna varnir. Það sem Trump er að krefjast er að Evrópubúar kaupi meiri Bandarísk vopn.
Evrópubúar vita hinsvegar að þeir þurfa ekkert á þeim að halda,af því það er enginn óvinur. Enginn er að fara að ráðast á Evrópu.
Raunar vita þetta allir. Það er hörmulegt að Bandaríska hernaðarmaskínunni sé leyft að ganga ljósum logum um heiminn og kúga ríki til að eyða dýrmætu fé í að kaupa drápstól sem engin þörf er fyrir.
Á sama tíma gerir þessi maskína út þúsundir manna og kvenna til að spilla samskiftum ríkja í þeim tilgangi að raka saman skattfé í almennings í hirslur sínar í gegnum vopnasölu og manndráp.
Af einhverjum ástæðum hefur Gunnar tekið að sér að vera sjálfboðaliði í þessari grúppu.
Bandaríkin bera í dag öll helstu einkenni fasísks ríkis ,þar sem herinn,vopnaframleiðslan,ríkisstjórni,þingið,menntakerfið og fjölmiðlarnir er allt á einni hendi.
Eins og flestum hlýtur að vera orðið ljóst ,er Bandaríska þingið bara grúppa af mútuþegum sem standa vörð um hagsmuni þessarar klíku. Á sama tíma grotnar landið niður og skuldir almennings hrannast upp.
Vonandi tekst að kveða þennan óþverra niður áður en ástandið versnar ennþá meira. Nóg er samt af manndrápum þessa djöflamaskínu.
Ekkert ríki á jörðinni er eins gjörspillt og Bandaríkin.
Borgþór Jónsson, 10.7.2018 kl. 10:02
Mér varð aðeis á í messunni.
Hernaðarmaskínan gerir að sjálfsögðu ekki út þúsundir til að spilla samskiftum ríkja. Hið rétta er að þau eru tugir þúsunda sem gera ekkert alla starfsævina annað en að skapa spennu og óvild milli ríkja.
Ef einhversstaðar er ófriður á jörðini,eru Bandaríkjamenn þar. Ekki oftast heldur alltaf.
Borgþór Jónsson, 10.7.2018 kl. 10:09
Það er eitt glóðvolgt dæmi í gangi núna sem sýnir hvernig þessi djöflamaskína virkar,en það er "efnavopnaárásin" í Douma.
Það eru sjálfsagt flestir búnir að gleyma þessu af því að fjölmiðlar fjalla ekki mikið um málið í dag.
En eins og einhverjir kunna að muna var gífurlegt fjölmiðlafár um þetta á sínumm tíma. Áróðurinn var yfirþyrmandi.
Nú hefur verið staðfest að það var engin slík árás.
Málið var allt lygi ,alveg frá upphafi.
En það var engin venjuleg lygi sem fékk fætur og varð að stórmáli.
Þessi lygi var hönnuð og kostuð af Bresku og Bandarísku hernaðarmaskínunni með aðstoð hryðjuverkamanna í Sýrlandi.
Hún kemur frá hópi hryðjveerkamanna sem eru kallaðir White Helmets og eru kostaðir af Bretlandi Japan, Danmörku,Og Bandaríkjunum fyrst og fremst. Milljónir dollara.
Þessi ósköp enduðu með því að það var skotið 100 eldflaugum á Sýrland og það skaðpaðist gríðarleg spenna í heimsmálunum.
Allir hlutaaðeigandi vissu að þetta vaar lygi,enda höfðu þeir sjálfir útbúið lygaherferðina.
Trump ,sem var í forsvari fyrir eldflaugaárásinni vissi að þetta var allt lygi. Bretar og Frakkar vissu það. Fjölmiðlamennirnir sem sáu um að dreyfa lyginni vissu það. En þeir fá borgað fyrir þetta og þetta er það sem þeir gera.
Ef menn halda að þetta sé eitthvað einangrað dæmi er það alger missilningur. Við eru fóðruð á lygi af þessu tagi,daginn út og inn. Við lifum meira og minna í lygavef þessarar djöflamaskínu.
Þegar flett var ofan af lyginni reyndu fjölmiðlarnir að endurnýta lygina ,meðal annars hin "virta" sjónvarpstöð BBC.
Þeir urðu þó að láta undan síga vegna mótmæla almennings og breyta fyrirsögnumm sínum um málið.
En hlutabréf hergagnafyrirtækjanna hækkuðu í verði vegna nýrra pantana. Og almenningur mátti sjá á bak meira en 100 milljonum dollara í ný eldflaugakaup.
Þó það kosti pening að halda úti svona hryðjuverkaliði eru það smáaurar miðað við hagnaðinn sem fæst af því.
Takmarkinu var náð.
Borgþór Jónsson, 10.7.2018 kl. 12:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.