Leita í fréttum mbl.is

Eyðileggingarafl Merkels að sökkva Þýskalandi

Í nýrri skoðanakönnun Insa myndi bæverska CSU-útgáfan af íhaldslokki fá 18 prósent fylgi á landsvísu ef hann losaði sig við CDU-flokk Merkels. Slíkt blýbákn er flokkur Merkels orðinn fyrir íhaldsmenn sem varðveita vilja þýska menningu og Þýskaland. Flokkur Merkels myndi sjálfur ekki fá nema 22 prósentur. Bandalag þessara flokka mælist hins vegar með 29 prósentu blýfylgi, þ.e. fyrir neðan allar hellur hins þekkta, og nálgast nú ormabeltið

Angela Merkel hefur lagt í rúst þann draum þýskra manna að fá að lifa bærilegu lífi meðal jafningja í Evrópu. Hún neitar að verja land sitt, sama hvert litið er. Hún fyrirlítur Bandaríkin og NATO og ryksugar ESB-ríkin. Hún tortímir menningu Þýskalands og segir áhyggjufullum Þjóðverjum bara að lesa í bók í stað þess að verja allt það mikilvægasta sem menning Þjóðverja hvílir á

Konan er svo DDR-löskuð að hún á á hættu að vekja upp gamlan draug. Hún er á góðri leið með að verða sá Versalasamningur sem notaður var sem pólitískar eldspýtur síðast. Angela Merkel mun renna inn í söguna sem öflugasta tortímingarafl Evrópu á 21. öld

Kaflaskipti hafa nú orðið meðal Þjóðverja. Og þau eru ekki lítil. Það hlaut að koma að þessu, því þannig virka þjóðsvika-stjórnmál Evrópusambandsins á heilbrigt fólk, þegar upp er staðið. Spennið beltin

Fyrri færsla

Angela Merkel fékk 14 daga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Óttalegt hægriöfgabull er þetta.

Þorsteinn Briem, 21.6.2018 kl. 14:55

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Tyrkir hafa átt stóran þátt í velgengni Þýskalands og innflytjendur hafa haldið sjávarútveginum gangandi hér á Íslandi.

Turks in Germany

Þorsteinn Briem, 21.6.2018 kl. 14:56

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

27.3.2015:

"The number of people of working age in Germany will fall by around a third by 2050 if the biggest economy in Europe does not increase immigration from countries outside the European Union, a study published on Friday said.

Germany will need between 276,000 and 491,000 net immigrants from non-EU countries each year to safeguard its levels of prosperity and economic activity, said the study by the Bertelsmann foundation.

It predicted the working-age population would drop to under 29 million from about 45 million today if immigration did not pick up. Raising the retirement age to 70 and increasing the number of women in the workforce would only add around 4.4 million to the number of employed, the study added.

According to latest statistics, the number of foreigners living in Germany grew by 519,340, or 6.8 percent, in 2014 against the previous year -- many of them Syrians fleeing war and Romanians and Bulgarians seeking work."

Germany needs more immigration from non-EU-countries - study

Þorsteinn Briem, 21.6.2018 kl. 14:58

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þann 31.  mars síðastliðinn bjuggu 350.710 manns hér á Íslandi, þar af 39.570 erlendir ríkisborgarar (11,3%), samkvæmt Hagstofu Íslands.

Íslendingar sem bjuggu hérlendis voru því þá 311.140 og búi um 46 þúsund íslenskir ríkisborgarar erlendis eru Íslendingar því um 357 þúsund.

Þorsteinn Briem, 21.6.2018 kl. 15:06

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Verst Steini að þú skyldi ekki benda íslenskum sjávarútvegi á erlendu þrælalausnina fyrir 1980. Þá hefði til dæmis mátt koma í veg fyrir að tæknifyrirtækið Marel hefði orðið til til að leysa vandamál.

Mér liggur við að óska þér til hamingju með að hafa tekist að þurrka heilabú þitt harðara en vestfirskan harðfisk í þessum efnum. Og þegar þrælarnir fara Steini, þá hrynur sem sagt íslenskur sjávarútvegur. En snjallt. Þú ert greinilega það undrabarn sem þú segist vera á gargandi tómri bloggsíðu þinni.

Já, þetta sögðu menn líka í kondfederasíu Suðurríkjanna. En Bandaríkin hrundu hins vegar ekki þegar þrælahaldinu lauk. Þau urðu stórveldi. Já, þrælahald hefur lengi loðað við ykkur vinstrimenn, sérstaklega þegar uppruni þess er erlendur.

Ég vona að þú látir ekki þurr-ljós þitt skína meira hér, heldur á þinni eigin bloggsíðu "Steini", hún hlýtur að eiga ljós þitt skilið. Kannski getur þú fengið innflytjendur til að skrifa síðuna fyrir þig, þ.e. bjargað henni - og þér um leið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.6.2018 kl. 02:59

6 identicon

Það á sér stað tæknibylting í íslenskri fiskvinnslu um þessar mundir sem mun fækka einhæfum störfum um helming og fjölga betur borguðum tæknistörfum. Þessi bylting kemur í formi tölvustýrðra skurðarvéla sem byggir á íslenskri þróun og hugviti. Vélarnar auka verðmætasköpun mikið og nýta hráefnið mun betur heldur en áður hefur þekkst. Þörf fyrir innflutt vinnuafl mun minnka á meðan þörfin fyrir vel menntaða tæknifólk mun aukast. Næstu tæknistig í fiskvinnslu á næstu áratugum munu áfram fækka einhæfum störfum við fiskvinnslu og fjölga áfram tæknistörfum með tilheyrandi verðmætasköpun. Íslensk hugvit mun því áfram bjarga íslenskri fiskvinnslu eins og hún hefur alltaf gert og tryggja okkur forystu á þessu sviði í heiminum. Það er engin framtíð fyrir þjóð eins og Ísland að byggja allt sitt á gamaldags vinnubrögðum með ódýru innfluttu handafli.

https://marel.is/vorur/fiskur/skurdarvelar

https://valka.is/ 

Jónsi (IP-tala skráð) 22.6.2018 kl. 06:45

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Vel að orði komist Jónsi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.6.2018 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband