Leita í fréttum mbl.is

Ritskoðun í Austurríki og KGB komið inn á bankareikninga allra Ítala

Ritskoðun í Austurríki

Gríski hagfræðiprófessorinn Yanis Varoufakis segir að ekki sé nóg með að hann sjálfur hafi verið svartlistaður af gríska ríkisútvarpinu, heldur hafi ritskoðun einnig verið tekin upp í Austurríki. Það vitna skrif Kunibert Raffer um; um það sem á gengur í hinu nýja stormsveitabæli evrunnar í ESB í Austurríki. Raffer er prófessor í hagfærði við Vínarháskólann í landi þar sem konur eru helst geymdar inni á skápum í afdölum svo þær mengi ekki fræðimannatölur landsins á sviði ESB-atvinnuleysis og ekki-atvinnuþátttöku. Lesa má skrif beggja prófssora hér, og tek ég stranglega fram að þetta hefði að sjálfsögðu ekki getað gerst nema að Austurríki væri og sé í Evrópusambandi við evru þess. Tala verður því varlega um slík mál eins og snemma á síðustu öldum. Sennilega best að segja sem minnst, eins og áður

Aðfangadagaöld gengur í garð á Ítalíu 

Og nú hefur sama stormsveitamennska undir sömu Evrópusambandsvernd riðið valhoppandi nátttröllum sínum sigri hrósandi inn í einkamál allra borgara á Ítalíu. Þar hefur ríkisstjórnin sem er skattheimtuvaldhafi eilífrar óstjórnar í þessu landi einnar ítalskrar mafíu undir yfirmafíuveldi Evrópusambandsins, fengið beinan og algerlega sjálfvirkan aðgang að öllum bankaviðskiptum og peningafærslum allra þeirra sem í landinu búa, eða eru skráðir fyrir bankareikningi á Ítalíu. Sigurfari evrunnar. Ekki þarf lengur að bíða eftir úrskurði neinna dómara til að fá aðgang að öllum færslum allra í þessu stofnríki Evrópusambands Rómarsáttmálans, sem frá upphafi gekk einmitt út á akkúrat þetta; þ.e. varðarveislu gagna gegn fólkinu. Öll þessi gögn streyma nú bara beint til stjórnvalda, alsjálfvirkt og án aðstoðar ómerkilegra manna og skítugra handa þeirra. Þetta mun að sjálfsögðu gerbylta lífinu í þessu ríki Evrópusvoétríkja ESB. Kannksi fellur þetta undir skipulagsbreytingar Evrópusambandsins (structural reforms) á Ítalíu:La Repubblica

Fyrri færsla

ESB: Leiðin til heljar 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband