Fimmtudagur, 14. október 2010
Nauðungaruppboð í Danmörku - september
Í september fóru 422 fasteignir á nauðungaruppboð í Danmörku. Talan er árstíðaleiðrétt. Annars hefðu nauðungaruppboðin á pappír dönsku hagstofunnar verið 451 talsins (DST)
155.000 íbúðir standa tómar í Danmörku. Um er að ræða bæði fjölbýli og sérbýli. Hver þriðja eign selst á lægra verði en hún var keypt á. Meðalsölutími allra eigna er um 8-10 mánuðir. Á Norður-Sjálandi selst annað hvert hús með tapi. Þar eru dýrustu eignir landsins.
Eignalaust ungt fólk
Um 40 prósent húsnæðiseigenda undir 35 ára aldri í Danmörku skulda meiri peninga í fasteign sinni en hægt er að selja hana á. Alls er hver fimmti fasteignaeigandi í Danmörku eignalaus (staða 22/04/2010). Mörg ár munu líða þar til hægt er að komast út úr þessum festum. Fari allt á versta veg mun skuldari verða eltur uppi með rest-skuldina þar til yfir lýkur. Þess ber auðvitað að geta að Danmörk er í Evrópusambandinu og er norrænt velferðarsamfélag, stundum. Þar fást líka vínarbrauð. Allir Danir vita að ekkert verður gert þeim til aðstoðar, því Danmörk er jú í Evrópusambandinu - og getur því ekkert gert. Nánari upplýsingar (krækjur) um danskan húsnæðismakað er að finna í viðhengdri skrá neðst í þessari færslu.
Svona er að vera í ESB
Í samfleytt 5 ár voru nauðungaruppboð í Danmörku yfir 1400 í hverjum mánuði. Þetta var á árunum 1988 til 1992. Þið hafið eflaust ekki heyrt neitt um þetta. Þarna lækkaði húsnæðisverð um 40 prósent. Í samfleytt 6 ár voru nauðungaruppboð yfir 1000 talsins í hverjum mánuði í þessu norræna velferðarríki. Það voru árin 1988 til 1994.
Þarna var verðbólgan um það bil eitt til þrjú prósent en stýrivextir voru iðulega nálægt 8-10 prósentum. Þeim var fjarstýrt frá útlöndum. Allt sem gat farið á hausinn fór á hausinn. Engum datt í hug að það yrði gert neitt neinum til hjálpar. Enda var það ekki gert. Svoleiðis er ekki gert í norrænum velferðar samfélögum né í ESB. Atvinnuleysi var 9-12% í samfellt 14 ár. Það er einmitt svona sem það er að vera í ESB. Eiginlega má segja að Íslendingar séu núna að upplifa í fyrsta skiptið hvernig það er að vera í Evrópusambandinu.
Hvernig kemur maður í veg fyrir nauðungaruppboð?
Jú, með því að eiga ekki neitt. Með því að vera öreigi. Það er galdurinn. Á ekki neitt, gerði ekki neitt, sá ekki neitt og heyrði ekki neitt. Það borgar sig svo vel í mörgum löndum ESB þar sem svo fátt borgar sig lengur. Enda er það það sem Þjóðverjar gera. Þeir eiga ekki neitt. Svíar eignast heldur sjaldnast neitt. Þegar meðalsænskur deyr á hann um 40.000 SEK. Svona er það að þora ekki að hætta fé sínu í norrænum velferðarsamfélögum og í ESB.
ESB verðtrygging og "Evrópuvextir" (ekki til) Össurar Skarphéðinssonar
ESB verðtrygging Össurar fer þannig fram að þú skuldbreytir lánum þínum að meðaltali á þriggja ára fresti, eða jafnvel oftar í sumum löndum ESB. Þú færð sem sagt nýtt lán í stað þess gamla. Í hvert skipti koma til nýir vextir til eins, þriggja eða fimm ára í senn og það kostar oft mikið að komast út úr þeim gömlu. Bætist sá kostnaður við nýjan höfuðstól. Í hvert skipti myndast sem sagt nýr höfuðstóll og skuldbreytingar kostnaður leggst einnig við hann. Þessum kostnaði græða lánafyrirtækin mikið á. Svona virkar þessi verðtrygging. Þú eignast oft bara skuldir því verðin lækka eða þá að laun þín lækka því ESB-atvinnuástandið er oftast svo slæmt. Eða þú missir bara vinnuna til langframa - færð aldrei aftur vinnu á æfi þinni.
Svo er líka til önnur verðtrygging. Verðtrygging skatta og verðtrygging mikils atvinnuleysis. Þar sem svo fáir eiga neitt því lífeyrissjóðir í ESB eru oft ekki til, eða litlir, þá er þessi útgjaldaliður hagkerfisins skattafjármagnaður. Bótagreiðslur til almennings eru oft dýrtíðartengdar. Því þolir ESB ekki neina verðbólgu án þess að ríkissjóðir þess fari hreinlega á hausinn. Níðþung framfærslubyrði ríkissjóða er því svo að segja verðtryggð. Skattar þar með líka. Fólkinu í ESB er ávalt tryggt hátt og langvarandi atvinnuleysi. Stjórnvöld Evrópusambandslanda sjá fyrir því. Í Þýskalandi eru engin lágmarkslaun til. Fjórir af tíu áhættusömustu ríkissjóðum heimsins eru nú í Evrópusambandinu. Ísland er ekki á þessum topp 10 lista. Vaxtakrafa fjárfesta endurspeglar þessa áhættu á hverjum tíma (bls. 2 vaxtamismunur á evrusvæði 6. október umfram þýska vexti og áhættumat CMA 3.ársfj. 2010).
Í nýrri greinagerð hagfræðinga Bank for International Settlements (BIS) er gert ráð fyrir að húsnæðisverð í Þýskalandi og Spáni muni lækka um 75% á næstu 40 árum. Þetta vita þýskir líklega mæta vel, innra með sér. Enda hefur raunverð þýskra fasteigna fallið um 20% frá aldamótum. Engin fasteignabóla hefur verið í gangi í Þýskalandi. Þessi 75% lækkun til viðbótar bíður þeirra. Í Danmörku er "aðeins" gert ráð fyrir 35% lækkun á næstu 40 árum. Það sem ræður þessari þróun er öldrun samfélaga Evrópusambandsins. Þar mun ekkert borga sig næstu hundruð árin. Ekkert. (BIS)
Svona líta sumar verslunargötur úr í öldrunarhagkerfum. Myndin er frá bakhlið gjaldþrota verslunargötu í einu fremsta öldrunarhagkerfi heimsins; Japan - og er fengin að láni úr greininni: þúsund gjaldþrota verslunargatan. Óðaöldrun (e. hyper ageing) hinna barnlausu samfélaga Þýskalands, allrar Suður-Evrópu, allrar Austur-Evrópu, Eystrasaltsríkja og Japan er ekkert grín. Hver vil fjárfesta í deyjandi eignum?
Svona lítur niðurrif þriggja miljón þýskra íbúða út. Glæsileg þróun í hinu útflutningsháða öldrunarhagkerfi Þýskalands. Myndin er úr þættinum "dauði Evrópu" sem sýndur var danska sjónvarpinu í fyrra. Hin eina óendurnýjanlega náttúruauðlind Evrópusambandsins er að deyja: fólkið í ESB. Mikið verða þingkosningar spennandi í svona samfélögum þar sem 70 prósent kjósenda verða komnir yfir sextugt. Um helmingur kjósenda í Þýskalandi eru orðnir sextugir nú þegar.
Þýskaland; öldrun samfélagsins
Tengt efni
Fyrri færsla
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:42 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 1387451
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Þakka fyrir greinina.
Það er furðulegt hve einlit umræða er í miklu uppáhaldi hjá stjórnvöldum og fréttamiðlum þessa land.
Nær einu rök elítu Íslands eru að úthrópa hvern þann sem hefur samfélagsýns sem ekki falla innan skilgreinds ramma hennar sem öfgamenn og vitleysinga.
Merkilegt hvað þetta virkar jú enn líkt og það gerði á sínum tíma í Þýskalandi Hitlers.
Kristján Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 15:55
Mjög fróðleg samantekt.
Þetta þyrfti að komast í skólabækurnar.
Annars merkilegt að hver Svíi eigi 40.000 sænskar krónur þegar hann deyr. Það er satt að best er að reyna sem minnst á sig þar og ekki taka ábyrgð.... Það er bara vesen og mest fer í skatt hvort eð er..
Er það af því flestir eiga ekki neitt eða þeir séu svo forsjálir venjulega að svíkjast undan erfðafjárskattinum? Hann er auðvitað ekkert grín í krataveldi.
Credit Suisse segir annars í fréttum að Svíar séu 6. ríkastir í heimi.
http://www.zerohedge.com/article/us-drops-first-seventh-average-wealth-adult-behind-singapore-sweden-and-france
Ætli ríkið "eigi" svona mikið þar? Annars frekar undarlegur listi.
-----
Takk fyrir skemmtilegar skriftir.
Jón Ásgeir Bjarnason, 14.10.2010 kl. 21:45
Tengt efni: Hvers vegna ungir ítalir eru að flytja frá Ítalíu:
http://www.time.com/time/magazine/article/0,9171,2024136,00.html
Kári Harðarson, 14.10.2010 kl. 22:39
Þakka ykkur kærlega fyrir innlitið og athugasemdir
Takk Kári fyrir krækjuna á grein Times. Þetta virðist svara vel til þess sem bæði börnin mín hafa upplifað í samskiptum sínum við ítalska skiptinema og kynnum þeirra af Ítalíu. Dóttir mín sagði mér sjokkeruð að eftir háskólanám ynni ungt fólk á Ítalíu kauplaust í nokkur ár til að reyna að komast inn á vinnumarkaðinn. Engin launuð vinna, ekkert húsnæði er þá hægt að leigja eða kaupa. Vinkona hennar sem vinnur í aðalstöðvum fjandans í Brussel segir að skriffinnskubákn ESB sé að krökkt af ungu fólki frá Ítalíu sem vinnur þar ókeypis. Gerir allt til að reyna að komast með tærnar inn á vinnumarkaðinn.
Bestu kv.
Gunnar Rögnvaldsson, 14.10.2010 kl. 23:51
Takk kærlega Jón Ásgeir fyrir krækjuna:
Athugið; Credit-Suisse tekur eftirfarandi fram:
====================
Notes to Editors
- The Report defines wealth as the value of financial assets and non-financial assets (mainly real estate), minus household debt.
- All current data relate to mid-2010 and are at then-current market exchange rates (not purchasing power parity).
- The figures presented in the Report are based on the best available data on household assets and debts, updated and estimated where necessary. Full information on sources and methodology is provided in the 120-page Credit Suisse Wealth Databook.
- Projections to 2015 are made by the Credit Suisse Research Institute and are based on regressions of the correlation between Gross Domestic Product (GDP) growth, wealth and starting levels of wealth per adult, combined with the International Monetary Fund’s forecasts for GDP.
====================
Sem sagt: þetta er byggt á spot rate gjaldmiðla en ekki á kaupmætti. Þar sem allt er miklu ódýrara í BNA þarf að borða töluvert salt með þessu. Þetta er Svíþjóð mikið í óhag því þar er allt svo dýrt miðað við Bandaríkin.
Nánar: Credit-Suisse Press Release
Gunnar Rögnvaldsson, 15.10.2010 kl. 00:26
Þegar maður hugsar nánar út í þessa skýrslu Credit-Suisse og leggur tvo og tvo saman, þá fæ ég eftirfarandi út:
1) Credit-Suisse segir að fjármálakreppan hafi skekkt myndina mikið. Það er afar líklegt því fasteignaverð í Bandaríkjunum hefur lækkað mjög mikið á mörgum stöðum (40-50%). En eftir sitja skuldir landsmanna BNA eftir sem áður. Það er töluverður verðhjöðnunar þrýstingur í bandaríska hagkerfinu. En það hefur seðlabankastjórinn Ben Bernankie þar vestra lofað landsmönnum sínum að muni ekki koma til á hans vakt. Engin verðhjöðnun á hans vakt.
2) Ef þetta er rétt, að einka-efnahagur Bandaríkjamanna sé svona illa farinn eftir kreppuna (þeir fóru fyrst inn kreppuna og þar hefur húsnæðisverð lækkað hraðast, mest og fyrst) þá sannfærist ég meira og meira um það að Ben Bernankie muni ekki láta sitja við orðin tóm og horfa aðgerðalaus á að eignir á móti skuldum Bandaríkjamanna brenni upp í verðhjöðnunarspíral. Hann mun því opna gáttirnar og kaffæra þá sem neita að skilja að Bandaríkin munu ekki þegjandi láta hin útflutningsháðu öldrunarhagkerfi ESB/Asíu kaffæra sig í þeim varningi sem þau neita sjálf að neyta heima, en vilja ólmir senda til Bandaríkjanna svo verksmiðjur þeirra megi keyra áfram í skuggavernd kolrangs gengis gjaldmiðils.
Því er ég sammála Martin Wolf og var það reyndar frá byrjun: Why America is going to win the global currency battle
Svo er bara að bíða og sjá.
Gunnar Rögnvaldsson, 15.10.2010 kl. 01:18
Ef 155.000 íbúðir standa auðar í DK þýðir það um það bil 8600 íbúðir ef leiðrétt er fyrir mismunandi íbúafjölda. Þetta er sennilega amk. faktor 2 miðað við Ísland þannig að ekki er þetta jákvætt, amk. veit þetta ekki á gott...
Magnús Orri Einarsson (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.