Leita í fréttum mbl.is

Er Trump að svæla Biden upp úr kjallaranum?

Truman-Dewey-polls-1948

Veggur skoðanakannana: Dewey - "Til hvers yfir höfuð að halda þessar kosningar í nóvember?

Vert er að minnast bandarísku forsetakosninganna 1948 þar sem repúblikaninn Thomas Dewey var í könnunum viðstöðulaust langt fyrir ofan Harry Truman næstum alla daga kosningaársins, þar til talið var upp úr kjörkössunum og hann sendur í kjallarann. Truman vann öruggan sigur, öfugt við hróp og köll kannana

Demókratar binda vonir sínar við kínversku Wuhan-veiruna. Þeir binda vonir sínar við að með henni takist þeim að fela forkalkaðan Biden í byrgi sínu, þar sem hann heldur bunker-stemmingunni uppi með því að elliæra sjálfan sig og geta þannig ekki svarað fyrirfram innsendum spurningum, sem hann var búinn að fara yfir

Daily New Cases in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný tilfelli

En nú virðist vont fyrir Biden en gott fyrir þjóðina vera á leiðinni. Nýjum Wuhan-veiru tilfellum fækkar í Bandaríkjunum og dánartölurnar hafa ekki náð að rísa, því læknar vita meira núna en þeir vissu þegar Biden gekk í björg í mars. Og síðan eru kúrfurnar þannig vaxnar núna, í þeim ríkjum sem ófréttamenn segja að séu í nýrri sveiflu, að þær benda til þess að sveiflan sú sé sú fyrsta og eina þar

Daily New Deaths in the United States 2020-08-25

Bandaríkin - ný dauðsföll

Ástandið er enn mun verra í heildina í stjórnlausri Belgíu, Spáni, Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu en það er í Bandaríkjunum, þ.e. fleiri dauðsföll á hverja milljón íbúa. Og sennilegt er að Frakkland sé að gjósa á ný núna þegar kúrfan þar af nýjum tilfellum er að mynda svipaða kryppu og snemma í vor. Nýtt uppsving kúrfunnar er að mynda hið strategíska bros Wuhan-veirunnar á milli nú tveggja kryppa þar - og víðar í Evrópu, Þýskalandi líka

Daily New Cases in France 2020-08-25

Frakkland - ný kryppa af nýjum tilfellum að myndast

Gildir það um mörg önnur ríki Evrópuskagans sem stingst út úr móðir-Rússlandi. Dánarhlutfallið í Frakklandi er 26 prósent núna (e. mortality rate). Það er að segja að 26 af hverjum hundrað manns sem greinast með veiruna deyja. Sú tala bendir til að Frakkar séu aðeins að greina brot vandans eins og Svíar, sem aldrei hafa viðurkennt hann

Daily New Cases in California 2020-08-25

Kalifornía - ný tilfelli

Bandaríkin hafa nú skimað 77 milljón manns eða 230 þúsund íbúa af hverri milljón, Frakkar aðeins 91 þúsund á hverja milljón og Svíar einungis 100 þúsund af hverjum milljón íbúum þess lands. Svíþjóð er hætt að gefa upp hversu margir ná sé af veirunni, sem þeir segja að 87 þúsund Svíar hafi fengið og 5800 látið lifið af. Þar er dánarhlutfallið hreint út sagt skuggalegt

Daily New Cases in Texas 2020-08-25

Texas - ný tilfelli

Takist Trump að ná veirunni nægilega niður þá verður Biden að sýna sig og opna munninn - og þá tapar Biden. Slík er blekkingariðja flokksins

Nú er afar líklegt að atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði komið niður sex prósent á kjördag og það mun hjálpa kjósendum svo um munar. Biden fær enga þökk þar, því kom hann þar hvergi nærri. Og þá tapar Biden

Plús það að Demókratar minntust ekki á nein stefnumál á flokkssýndarráðstefnunni í síðustu viku og láta þar með Repúblikönum eftir að kynna þau fyrir bandarísku þjóðinni. Ákafinn í að ná sér niðri á einum manni er slíkur að Trump fjarstýrir nú stefnulausum Demókrataflokknum með iPhone-tísti sínu og tungu

Veiran niður => Trump sigrar
Atvinnuleysi niður í 6 prósent => Trump sigrar
Meiri skrílslæti úr herbúðum Demókrata => Trump sigrar

HLAÐVARPIÐ: LIÐIN ERU 75 ÁR SÍÐAN ÞÁ

Aukaútsending með Victor Davis Hanson sagnfræðingi og bónda: Þetta er einkum fyrir vinstri-manntegund kertafleytara og Þýskalands-fetista í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá lokum Síðari heimsstyrjaldarinnar

Fyrri færsla

Trump er sá sem litlir menn vilja taka niður


Bloggfærslur 25. ágúst 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband