Leita í fréttum mbl.is

Jæja. Wuhan-veiran leikur marga grátt

Fyrrum Obama-forsetafrúin lýsir því þarna yfir að núverandi forseti Bandaríkjanna sé rangur forseti fyrir landið. Það er ekki að spyrja að því. Svipað gerði fyrrum forsetafrú úr sama flokki er hún sagði að sá hluti bandarísku þjóðarinnar sem styddi Donald J. Trump, væru undirmanneskjur og hennar kjósendur þar með yfirmanneskjur. Svo talar þetta sama fólk um rasisma! Þarna hefur ekkert breyst og ekkert verið lært. Demókratar sem frá byrjun sáu að þeir gátu ekki komið í veg fyrir kjör Trumps í kosningum nema með því að eyðileggja hann á milli kosninga, halda áfram á þeirri braut sinni beint til heljar núna

Það versta sem Trump gerði þeim og því ríkisbubba-embættismannaliði, sem í yfirgnæfandi mæli aðhyllist demókrata, er það að hann lýsti því yfir að hann þyrfti ekki á því liði þeirra að halda. Það væri gagnslaust og ofborgaður óþarfi sem enginn þyrfti á að halda. Og við það hefur hann staðið. Hann hlustar ekki á þetta fólk og fer sínar eign leiðir. Það þola ríkisbubbarnir og kerfishershöfðingjarnir ekki og heldur ekki hugveiturnar og allar "stofnanirnar", sem allt eru að sliga með naggrísa-nagi sínu á skattgreiðendum. Hefur það lið hrúgað til sín réttindum og launum áratugum saman

Ég-get-sjálfur-aðferð Trumps hefur virkað afskaplega vel. Átta arfavitlausum árum Obama hefur verið sturtað á öskuhauga sögunnar, efnahagurinn tók því að blómstra og einkafórnarlömb aumingjavæðingar Demókrata fengu vinnu og gátu þar með sannað að þeir gerðu gagn í þjóðfélaginu og væru ekki upp á ölmusur Demókrata komnir. Algjör hryllingur fyrir Demókrata

Utanríkispólitík Trumps hefur einnig virkað vel. Stofnanavætt vesalingaveldi ESB-sukksins á meginlandi Evrópu þorði ekki öðru en að kaupa vasahnífa á kústsköft herja sinna og hætta að taka því sem gefnu að Bandaríkin myndu verja það fyrir sjálfu sér og eyðileggingarmætti Evrópusambandsins. Enginn nennir lengur að vera blásari í þokulúðrasveitum Miðausturlanda-sírenusveita vinstrisins á Vesturlöndum, og sögulegar sættir Araba og Ísraela fara nú fram og vinskapssambönd þar á milli er verið að formfesta einmitt núna, þökk sé Trump

Fimm ára styrjöld Demókrata á hendur Trump hefur því farið heldur betur illa fyrir Demókrata sjálfa. Sumir toppar þeirra eru á leið í fangelsi og margir þeirra hafa verið reknir úr opinberum störfum með skömmina eina í skilnaðargjöf. Moldvörpustarfsemi, drottinsvik, misnotkun og þjóðníð var það sem þeir reyndu að nota gegn Trump forseta bandarísku þjóðarinnar

Nýjasta vopn demókrata á Trump er hins vegar kínverska Wuhanveiran ásamt nýjum aukaflokki rasista innan Demókrataflokksins, sem kallar sig Svört líf skipta máli. Sú hreyfing er ekki nýnasistahreyfing eins og MeToo var. Hún gekk nefnilega út á að ræna störfum og lífsviðurværi frá öðru fólki sem annars hefði ekki verið hægt, og alls ekki fyrir rétti í réttarríki. Um eins konar Iittala-kristalnótt hinna löngu kristalvasahnífa góða fólksins var bara að ræða og sem stöðvaðist um leið og hún náði til Hollywood og demókratans Joe Biden. Hreyfingin Svört líf skipta máli er hins vegar hrein rasistahreyfing með mottóið "við erum æðri, þið eruð rusl og sek um allt milli himins og jarðar" (svipað og sagt var um Gyðinga)

Á þennan vagn ofurheimskunnar sem virðist hafa það sérstaklega gott á tímum heimsku-símanna, hoppa nú bjánar út um allt. Þar er tungumálið "já, nei, æði, líkar, þú skilur" eða með öðrum orðum eins konar háhraða-rafeindasuð nýbjána á borð við þá sem klesstu hlutabréfamarkaðnum þegar þeir tóku í notkun háhraðaviðskipti með hlutabréf í tölvum

Þarna klessa nýbjánar og barnafullorðnir sér næstum daglega núna og birta um leið myndir af hruni sínu í beinni. Möguleikarnir á að gera sig að fífli þarna eru svo gott sem endalausir, fyrir nýbjána. Kannski hófst þessi sjálfsklessuferð á félagshrunsmiðlum á því að vesalingar fengu borgað fyrir að koma fram í sjónvarpi og útstilla sér þar sem til dæmis óhæfir uppalendur barna (einræðisherrabörn sem þetta fólk hafði búið til var sýnt) eða til dæmis fólk sem bjó á fjóshaug sem það sjálft hafði skapað með leti sinni, subbu- og aumingjaskap. Þetta varð því miður vinsælt sjónvarpsefni

Nú geta hins vegar hverjir sem er, ráðherrar líka, sent sjálfa sig beint út sem vesalinga og raðdómgreindarskerta fávita

Er þetta ekki æðislegt. Jú jú, endilega meira af þessu!

Fyrri færsla

Kínaveiran: Þingflokksvindur nú (ó)Sjálfstæðisflokksins


mbl.is „Donald Trump er rangur forseti fyrir land okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. ágúst 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband