Leita í fréttum mbl.is

Hvernig er staðan í heimsfaraldri kínversku Wuhan-veirunnar?

WUHAN-VEIRU MARTRÖÐIN

Wuhan - Dauðsföll pr milljón íbúa þann 6 apríl 2020

Mynd: Dauðsföll í Wuhanveiru-heimsfaraldrinum á hverja milljón íbúa. Staðan þann 6. apríl 2020. Smellið vinsamlegast á myndina til að sjá hana skýra (eða hér: bein krækja). Nánar hér

****

NÚ JÆJA. HVERNIG ER STAÐAN?

Þessi mynd sýnir samanlögð dauðsföll á hverja milljón íbúa. Hún er ekki falleg. Nei, hún er sorgleg. Ísland er ekki að standa sig sérlega vel miðað við landfræðilegar aðstæður og þjóðarhætti. Við erum með aðeins einn inngang inn í landið okkar, og hann er fullkomlega auðveldur og framkvæmanlegur til herts eftirlits og viðeigandi sóttvarna, og við erum afar strjálbýlt land. Og hér býr þjóð sem yfirleitt er öll á sömu blaðsíðunni þegar eitthvað bjátar á. Við erum heldur ekki land "almenningssamgangna" og þurfum sem betur fer ekki að hýrast í pestartúbum lestar- og neðanjarðarbrauta tvisvar á dag. En það er samt það sem vinstri-borgarstjórnin í Reykjavík hefur efst á sinni pervertu pólitísku dagskrá, með fyrirbærinu "þéttingu byggðar" - plús eitt síldartunnupakkað sjúkrahús út í mýri fyrir heila þjóð á 18. stærstu eyju veraldar. Ef ekki væri fyrir einkaframtak Kára DeCode þá væri sýnataka okkar á hverja milljón íbúa á borð Gíbraltar og Lúxemborg, og þar með hvergi nándar nærri eins mikil og hjá bræðrum okkar, hinum skynsamlega íhaldssömu Færeyingum. Og Svandís-sovét hefur notað allar sínar vökustundir til að koma einkaframtakinu í heilbrigðismálum endanlega fyrir kattarnef. Það vita allir, og sést það langa vegu að

Menn verða að horfast í augu við að blossi faraldurinn upp aftur verður ekki tekið á honum með sömu silkihönskum og eyrnapinnum og gert var hér og víða annars staðar á Vesturlöndum í byrjun þessa máls. Ekkert þróað ríki mun þola né líða að þurfa að fara í gegnum þessa sömu martröð vanrækslu og sofandaháttar á ný. Öllum gömlum og gildum sögubókum um sóttvarnir og skynsamlega almenna varúð hafði verið hent fyrir róða. Þau lönd, sem enn sem komið er skara fram úr, eru til dæmis Vísegrád löndin fjögur og Færeyjar. En það kann auðvitað að breytast, því lönd og heimshlutar eru alls ekki stödd á sama staðnum á tímaás kínversku Wuhan-drepsóttarinnar

Þannig; að það er ýtrast mikilvægt að hlustað sé á skynsamar raddir eins og þeirra Frosta Sigurjónssonar og Ólínu Þorvarðardóttur. Það er mjög brýnt. Ekki þýðir að stinga hausnum í sandinn og láta sem svo að Landlæknir –sem að mestu leyti aðeins er Borgarlæknir– og Sóttvarnarlæknir, séu neitt annað en ófullkomnir embættismenn. Þetta er ekki gagnrýni heldur staðreynd. Ég sjálfur er til dæmis ekki fullkominn, eins og flestir lesendur kannast við. Það er hroðalega leiðinlegt að vera fullkominn, því þannig manneskja, sé hún til, getur ekki tekið framförum. Ég vona því að ég verði aldrei fullkominn

HVAÐ ER AÐ?

En sé myndin hér fyrir ofan höfð í huga þá er áberandi hversu illa lönd Vestur-Evrópu standa sig í þessu máli, en þó sérstaklega ferðamannalöndin. Það kann þó að breytast í takt við faraldursferðina á tímaásnum. En ég efast samt um það. Lönd geta ekki verið þróuð ríki svo lengi sem þau ætla sér að lifa á erlendum ferðamönum að miklu leyti. Þau lönd verða alltaf smám saman vanþróaðri og vanþróaðri og hlutfallslega fátækari og fátækari

BANDARÍKIN

Bandaríkin standa sig enn sem komið er mjög vel. Mega-stórborgir á borð við París og New York eru erfiðir staðir þegar að farsóttum kemur. Í gær var staðan í Bandaríkjunum þannig að 36 af 50 ríkjum þeirra höfðu staðið sig betur en Ísland, þegar að dauðsföllum á hverja milljón íbúa kemur. Á síðustu 8 dögum hafa Bandaríkjamenn tekið milljón sýni til viðbótar og eru nú komin upp á tvær milljónir sýna. Mjög stutt er síðan að skriffinnskuveldi embættismanna í heilbrigðismálum viðurkenndu og samþykktu sýnatökugræjur og aðferðir við greiningu sýna. Í þeim efnum eru aðferðirnar margar og mismunandi eftir löndum, sem sýnir að embættismenn eru auðvitað mismunandi eftir því hvar þeir eiga heima og gengu í skóla

Þeir sem hafa haft fyrir því að fylgjast með blaðamannafundum forseta Bandaríkjanna og alríkisteymi hans í glímunni við kínverska Wuhan-veiru málið, vita að fátt af því er rétt sem Trump-truflaða haturspressan á Vesturlöndum skrifar í sneplum sínum um kínverska Wuhan-veirumálið í Bandaríkjunum. Besta sönnun í þeim efnum var þegar hinn upplýsti einræðisherradæmis-aðdáandi ESB-Bifrastar kom út úr kalkkofahýði sínu í gær og lýsti yfir algleymishamingju með að ókjörnir embættismenn séu við næstum öll völd í málinu hér á Íslandi

Þeir sem hafa fylgst með blaðamannafundum embætta Land- og Sóttvarnarlæknis og Víðis löggu, vita einnig að þar hafa menn unnið mjög gott verk, en sem alls ekki er hafið yfir hvorki endurskoðun né gagnrýni, enda hefur sóttvarnalæknir okkar ítrekað undirstrikað að þannig á það að vera. Og Víðir lögga hefur frábeðið sér "Ísland er best" hjal í þessu máli. Við erum góð já, en gætum hins vegar vel verið mun betri

Kissinger 3 apríl 2020: The Coronavirus Pandemic Will Forever Alter the World Order

Mynd: Wall Street Journal

****

TVÖ NÝ HUGTÖK

Tvö enskumælandi hugtök eru nú að komast í notkun í heiminum:

1. Post-Plague Order (eftirpestar-heimurinn)
2. Economic Ice Age (efnahagsleg ísöld)

Henry Kissinger skrifar í WSJ að með tilurð heimsfaraldursins sé heimurinn breyttur til frambúðar og um alla eilífð. Vesturlönd voru tekin í rúminu og verða að bregðast við með því að byggja aftur á þeirri góðu og upplýstu hugmynd frá upphafi siðmenningar, að borgarmúrar voru reistir til að vernda þá sem þar búa. Þeir voru síðan færðir út þar til að þeir umluktu allt ríkið. Sé þetta ekki gert og meira til mun kvikna í veröldinni. Endurheimta veður þjóðaröryggið í lýðræðisríkjum og sjá fyrir því að líf okkar sé í okkar eigin höndum, en ekki annarra. Sóttvarnir verður að ofur-efla og birgðum af öllu í þeim efnum verður að hrúga upp á algerum stórskala og það getur ekki gerst nógu hratt. Kissinger sér yfirleitt stóru myndirnar manna best. Lesa má grein hans hér

GOS-KATLA xD GÝS Á NÝ

Önnur af tveimur Gos-Kötlum Sjálfstæðisflokksins, ráðherrann Þórdís Kolbrún, er enn með höfuð sitt fast í strategískum öskubakka þess sem eftir er af Sjálfstæðisflokknum í Valhöll og sem virðist óendanlega stór bakki. Séu fyrstu viðbrögð Bjarna Benediktssonar og Guðlaugs Þórs skoðuð, þá sést þar mjög svo gjörla hversu takmarkaðar tengingar við veruleikann þeir hafa. Næstum alls engar. Enda var það Bjarni sem tók Ísland inn í AIIB-veiruhreiður kínverska kommúnistaflokksins og gafst fyrirfram upp í raforkumálum þjóðarinnar, eins og í Icesave

Fréttir af bjánum

Mynd: Wall Street Journal

****

FRÉTTIR AF BJÁNUM

Nú er það sem dýrkað var á altari glóbalismans orðið að "tail-risk-event" (fyrirsjáanlega ófyrirsjáanlegri áhættutöku) sem matsfyrirtækin eru að byrja að kortleggja. Skuldbindingar stórfyrirtækja í "glóbal-supply-keðjunni" hafa ekki verið bókfærðar rétt og alls ekki færðar á réttu "risk weighted" reikningana í bókunum. Þetta á sennilega eftir að verða "credit-event mega-strúktúr" sem fer að byrja að falla eins og spilaborg í kjölfar kínverska Wuhan-veiru-faraldursins. Á fagmálinu þýðir "credit event" greiðslufall. Flækjustig keðjunnar þýðir einnig aukna hættu á deilum og styrjaldarátökum, eins og sést ágætlega í Evrópusambandinu í dag, þar sem skammta verður jafnvel verkjalyf fyrir sjúklinga í heilbrigðiskerfum landa, á meðan þau ásaka hvort annað um að stela nýjum birgðum af einföldum hlutum á borð við andlitsgrímum frá hvort öðru. Samþætting, samruni og samhæfing er ófriðarvaldur

Venjulegur bíll er til dæmis gerður úr 25 þúsund hlutum. Enginn bílaframleiðandi í "Post Plague World" mun lengur sætta sig við að þeir hlutir séu framleiddir hjá 2000 til 2500 birgjum um allan heim (suppliers). Fáir en öflugri birgjar í næsta og nánasta nágrenni verður krafan, og þeir verða að vera í löndum sem eru strategískir bandamenn "okkar" vegna sameiginlegra þjóðarhagsmuna, og sem "við" getum treyst. Það mun líka minnka pappírsvinnuna, því hún er ofboðsleg eins og er. Algerlega óstjórnanlega rosaleg, sagði til dæmis Toyota, sem nýlega lét rannsaka þetta mál og fann út að um 2000 til 2500 birgja/suppliers var að ræða þegar að framleiðslu einnar venjulegrar bifreiðar kemur

Það tekur sig ekki að minnast á ferðamannabransann hér. Hann er einfaldlega steindauður til margra næstu ára. Enda má hann aldrei verða annað en sjálfsprottin aukabrúgrein sem öll lönd geta verið án, og ættu að setja sér sem markmið að vera án, nema að markmið þeirra sé að verða kryppluð fátæktarríki til frambúðar

World Health Coronavirus Disinformation

Mynd: Wall Street Journal

****

WHO: ALÞJÓÐASTOFNUNIN SEM BRÁST

Leiðari Wall Street Journal í gær var ómyrkur í máli. Þar eru lygar og svik kínverska kommúnistaflokksins raktar í Wuhan-veirumálinu og sagt er frá því að á Bandaríkjaþingi sé rætt um að hefja rannsókn á þeim óskapnaði og hvernig hann teygir sig inn í innsta og rotna búr Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þar situr pólitíkus við völd og sem spilar með Kína á móti heiminum. Bandaríkin ættu að taka alþjóðasamtök í gegn og best væri að byrja það verk með því að stöðva fjármögnun WHO

World Health Coronavirus Disinformation
The coronavirus pandemic will offer many lessons in what to do better to save more lives and do less economic harm the next time. But there’s already one way to ensure future pandemics are less deadly: Reform or defund the World Health Organization (WHO).

Last week Florida Senator Rick Scott called for a Congressional investigation into the United Nations agency’s "role in helping Communist China cover up information regarding the threat of the Coronavirus." The rot at WHO goes beyond canoodling with Beijing, but that’s a good place to start.

The coronavirus outbreak began in Wuhan, China, sometime in the autumn, perhaps as early as November. It accelerated in December. Caixin Global reported that Chinese labs had sequenced the coronavirus genome by the end of December but were ordered by Chinese officials to destroy samples and not publish their findings. On Dec. 30 Dr. Li Wenliang warned Chinese doctors about the virus, and several days later local authorities accused him of lies that "severely disturbed the social order. [..]

On Jan. 30 Dr. Tedros also said that "WHO doesn’t recommend limiting trade and movement." President Trump ignored the advice and announced travel restrictions on China the following day, slowing the spread of the virus. U.S. progressive elites echoed WHO and criticized Mr. Trump. WHO didn’t declare the coronavirus a pandemic until March 11. Allur leiðarinn er hér

ÞJÓÐARSTOFNUNIN THE FEDERAL RESERVE

Stjarnan í efnahagsmálum veraldar núna er sennilega bandaríski seðlabankinn. Menn og lönd virðast sammála um það. En sá banki er sem kunnugt ekki nein "alþjóðastofnun". Hann er þjóðríkisstofnun og þess vegna virkar hann. Segja má að í þessu heimsfaraldursmáli hafi alþjóðastofnanir fallið fyrstar af öllu sem fyrir honum falla. Það er gott, því þær eru orðnar fullar af einræðisherradæmum og oft mun verri en engar. Við þurfum að segja skilið við þær margar og líka þá stjórnmálamenn sem dýrka þær. Númer eitt er að losna við EES og Schengen áður en þær tvær stofnanir glóbalista taka okkur af lífi

****

Pete Drake: Lagið Forever 1964

EITT LAG ENN

Eitt ljúft lag í lokin. Það varð vinsælt um víða veröld svo seint sem 1964. Sjálfur heyrði ég hins vegar ekki þessa tækni í notkun fyrr en sennilega hjá Peter Frampton í laginu Show Me the Way 1975. Það var líklega Bell Telephone Laboratories sem fann tæknina upp, svo að Winston Churchill og Franklin D. Roosevelt gætu talað saman á öruggan hátt í Síðari heimstyrjöldinni, með aðstoð fyrstu stafrænu samskiptatækni veraldar. Hún hét SIGSALY og vó 50 tonn:

Fyrri færsla

Wuhan-veiran: Öllum bókum var hent og fálmað er í blindni


mbl.is „Ég vil að þetta sé rætt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. apríl 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband