Leita í fréttum mbl.is

Tveggja millimetra veruleika-sjónauki utanríkisráðherrans

Boris Johnson puts industry on war footing - Telegraph 14 mars 2020

Mynd: Forsíðufyrirsögn hins breska Telegraph í gær: "Boris Johnson setur bresk iðnaðarfyrirtæki á styrjaldarviðbragðsstig". Rolls Royce og fleiri bresk fyrirtæki skuldbinda sig til að framleiða græjur fyrir breska heilbrigðiskerfið, sem nú eru ófáanlegar víða um heim. Ætla má að ný bresk lyfjafyrirtæki spretti einnig upp. Bretland gerir ráð fyrir allt að sex prósentu hruni í landsframleiðslunni á næstu mánuðum. Það yrði verra en var í fjármálakreppunni 2009 og er Bretland þó alls ekki tilvistarlega háð útflutningi eins og Þýskaland. Það hefur þess utan sína eigin mynt. Bjartsýnt er þó að mínu mati að reikna aðeins með nokkrum mánuðum. Þetta mun taka ár eða meira | Telegraph

****

AFNEITUNAR-LINSUR

Þið munið sennilega öll eftir því þegar esb-alvöruþrútin fréttastöð DDRÚV birti seríos-fréttir ríkisstöðvarinnar um hið komandi vesalings aumingja-stakkels voðalega hræðilega ástand Bretlands, skyldi það nú voga sér að ganga burt af lögsögu Evrópusambandsins. Seríos-fréttir DDRÚV um niðursuðudósa-hamstrandi sérútvalda Corbyn-sovét-Breta sem valdir voru af frú Pravda-pólít-sovét-fréttaböðli DDRÚV í Londinium –í Rómarveldi ESB– voru sendar út með svo þrunginni sovétssósualvöru að engin súrefniseind komast hálfa leið upp í heilabú þeirra áhorfenda sem urðu fyrir moldviðri hennar. Allt var, og á átti eftir, að farast þar. Allt Stóra-Bretland myndi fara til heitasta makkarónulausa helvítis hinna esbguðlausu

Íslandi blæðir vegna Schengen: Europe Daily Bulletin No. 12435: 27/02/2020 (Agence Europe) – A group of experts from EU governments agreed that reintroducing controls at the EU’s internal borders to stop the Covid-19 outbreak would be counterproductive, a European source confirmed on Thursday (27 February), but said this position should be reviewed weekly. She believes that it is better to quarantine individuals who show suspicious symptoms. Moreover, according to the Schengen Borders Code, health grounds can only come into play at the external borders..

En allt öðru máli gegnir núna, þegar heimsfaraldur Schengen-innfluttrar Wuhan-veiru frá Kína geislar stjórnlaust um Ísland og hinn vestræna heim, þökk sé ábyrgðarleysi yfirvalda Evrópusambandsins sem höfnuðu alfarið að gera neitt í málunum á Ítalíu, sem ofsasmitaði síðan yfir 30 önnur lönd, algerlega óheft, óáreitt og með þvílíkum glans, að hingað inn sturtuðust Wuhan-veirurnar undir kvakkór heilalausra esbhólista, um að "veiran virðir ekki landamæri". Grasansar og þurrkögglar sungu

Kanínu-önd Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna

Mynd: Önd-kanína Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna:
Paradigm shift = Grænt þýðir frá og með nú mygla, bakteríur og heimsfaraldur Wuhan-veiru. Aukin eftirspurn eftir hálfvitapólitískum strokleðrum mun geisa, þar sem sá fær sem strokar þvælu síðustu 30 ára út fyrstur. Þvottavélar verða stilltar á 90 gráður á ný, til að forða þeim og þér frá grænum veiru-skemmdum og smitum

****

Öllum takmörkunum á ferðum til og frá Ítalíu var algerlega hafnað af sömu ráðamönnum í Evrópusambandinu, á fundi þeirra þann 25. febrúar síðastliðinn; hér og hér og hér og hér. Húla-búla-stöð DDRÚV leggur því allsherjar áherslur sínar í dag á að ekkert sé að óttast núna, þveröfugt við Brexit bálförina, því Vinstri helgrænir séu við völd ásamt hamflettum aulabráðum Sjálfstæðisflokksins - og Framsóknar, sem enginn man lengur eftir að er í ríkisstjórn líka, undir leiðsögn Sigurðar skoðandi Ingamann. Þá er nefnilega allt í þessu fína frá Kína og allir hafa stjórn á öllu og enginn þarf á neinum niðursuðudósum að halda. Hamstur í matarbúri passar ekki við lengur, því þetta er jú ekki Brexit maður! Aðeins er um heimsfalaldur að ræða. Guði sé lof!

But, once Italians reemerge from their homes and count their dead: "Her comments even managed to shake Italy’s president Sergio Mattarella. It is very unusual for the Italian president to issue a statement that effectively accuses Lagarde of counter-acting the country’s effort at a time of crisis. Italians, once again, feel abandoned by the EU. The country has other priorities right now. But, once Italians reemerge from their homes and count their dead, they will remember that a French president tried to stop the delivery of face masks, and that a French [ECB] central bank president took away the bond guarantee." – Eurointelligence 13. mars 2020

Í millitíðinni, eða fram að þeim degi er Guðlaugur Þór –með 2veggja millimetra útkíkkslinsu utanríkismála– "pantaði" nú þegar aflýstan símafund og annan, er þessi listi hér fyrir neðan orðinn sístækkandi staðreynd. Á þetta mun Bjarni orkupakka-öryrki Benediktsson síðan taka reiðiköst, hvert land fyrir sig, og Svandís-sovét halda áfram að leggja hinn einkarekna hluta heilbrigðiskerfisins í rúst, því við höfum jú svo yfrið og aukalega ofsamikið að því sovéska. Ekki er því lengur hægt að aflýsa "óþarfa aðgerðum", því það hefur hún þegar gert á undanförnum árum, og hyggst því senda sjúklingana með sovéskum kafbát inn í hvellsprungin heilbrigðiskerfi Múrmansk-útlanda á Kólaskaga Evrópu. Engum aðgerðum er lengur hægt að aflýsa, sökum pólitísks ofstækis á hendur einkaframtakinu, og heldur ekki flugi, nema ef vera skyldi næstu kosningum, sem sópa munu þessu clueless baunagrasliði samrunnins esb-sósíalisma og sovétpesta burt af yfirborði jarðar

SÍMAFUNDA- OG REIÐIKASTALISTINN

Þau lönd sem þegar hafa bannað breskum ferðamönnum landgöngu eru þessi. Listinn á þá væntanlega einnig við um Ísland. Lengist hann nú dag hvern

Italy
Spain
United States
Malta
Croatia
Denmark
New Zealand
Ukraine
Czech Republic
Latvia
Iran
Bhutan
Vietnam
China
South Korea
The Maldives
India
Israel
Saudi Arabia
Oman
Kiribati
Solomon Islands
Papua New Guinea
North Korea
Benin
Comoros
Marshall Islands
Gabon
Uganda

Listinn yfir þau lönd sem nú þegar banna komur fólks frá Ítalíu –sem Bretar gera ráð fyrir að vera orðnir sjálfir eftir tvær vikur– og sem þar með banna munu komur Breta, og Íslendinga sennilega líka, er þessi. Hann lengist daglega:

Antigua
Bahamas
El Salvador
Fiji
Guatemala
Haiti
Indonesia
Iraq
Jamaica
Jordan
Kazakhstan
Lebanon
Madagascar
Malaysia
Mauritius
Mongolia
Nauru
Qatar
Romania
Russia
Samoa
Serbia
Seychelles
Singapore
Sri Lanka
St Lucia
Tajikistan
Thailand
Turkey
Uganda

Hvert hyggst ríkisstjórn Íslands sigla afneitunarkafbáti sínum næst. Hvert? Hún kemst ekki einu sinni til Norður-Kóreu lengur

Fyrri færlsa

Wuhan-veiran: Að hræða vit í fólkið. Danir loka landamærum. Heimtar Guðlaugur Þór símafund. Hverjum reiðist Bjarni núna [u]


Bloggfærslur 15. mars 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband