Leita í fréttum mbl.is

40 prósent evru-svæðis með lægra lánshæfnismat en Ísland

ESB er á leið niður, en Ísland upp

Nú er lánshæfnismat 8 af 19 evrulanda lægra en lánshæfnismat ríkissjóðs íslenska lýðveldisins. Þessi 8 evrulönd standa fyrir 40 prósentum af íbúafjölda allra evrulanda. Malta er með lægra mat en Ísland hjá Standard og Poors, en sömu A3-einkunn hjá Moodys og einn plús fram yfir Ísland, fyrir aftan einfalt A hjá Fitch, svo ég tel það ekki með í þessum bunka 8 evrulanda með lægra mat en Ísland. En í þann bunka fer Malta brátt, þrátt fyrir áróðursherferð DDRÚV á styrjaldarárum okkar Íslendinga við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna - og ríkisútvarp þessara flokka

Þetta þýðir að aðeins 31,5 prósent af landsframleiðslu allra evrulanda, til samans, verður til hjá 40 prósent af íbúum þeirra. Þriðja stærsta hagkerfi evrusvæðis, Ítalía er með lægra lánshæfnismat en Ísland. Sömu sögu er að segja um fjórða stærsta hagkerfi evrusvæðis, Spán. Í heild eru 13 af 28 löndum Evrópusambandsins með lægra lánshæfnismat en Ísland. Þessi munur á Íslandi annars vegar og ESB og evrusvæðinu hins vegar, mun bara versna þeim í óhag, því Ísland er að ná sér á meðan esb- og evrulöndin sökkva æ dýpra í fen sambandsins

Evrulönd með lægra mat en Ísland

Kýpur (peningaskömmtun)
Grikkland (peningaskömmtun)
Ítalía (peningaskömmtun á byrjunarstigi)
Lettland
Litháen
Portúgal
Slóvenía
Spánn
(Malta?)

Önnur ESB lönd með lægra mat en Ísland

Ungverjaland
Pólland
Rúmenía
Búlgaría
Króatía

Evrópusambandið er á leið niður en Ísland er á leið upp og út úr EES. Það er rökrétt niðurstaða þessa máls, því það er ekki hægt að byggja upp hagkerfi á sporbraut umhverfis svarthol

Í Evrópusambandinu og á evrusvæðinu virkar Þýskaland eins og svarthol. Það land hefur aldrei getað staðið á eigin fótum frá því að það var stofnað og það hefur sýnt sig ófært um að hvíla í jafnvægi í sjálfu sér. Þýskaland virkar því ávallt sem þeytivinduafl á Evrópu og mjaltavél á jaðra hennar. Singularitet Þýskalands í milliríkjasamstarfi er best lýst með eftirfarandi nýlegu dæmi; Áratugum saman hefur Þýskaland neitað að inna sinn samningsbundna skerf af hendi til NATO, sem er varnar-bandalag. Um daginn var landið því rukkað um að uppfylla NATO-skuldbindingar sínar. En í stað þess að standa við loforð sín, þá hótaði Þýskaland að smíða kjarnorkusprengjur. Sama gildir um skuldbindingar Þýskalands í ESB og um viðskiptahagnað þess á kostnað annarra ríkja -sá stærsti í heimi- enda er sambandið að leysast upp. Sjálf frumforsenda frjálsra viðskipta í heiminum er að viðskiptajöfnuður sé í jafnvægi. Svona hegðun þarf að stöðva því öll ríki á sporbraut um svartholið Þýskaland, taka einmitt upp hegðun þess í bæði Evrópusambandinu og NATO. Leikur Þýskaland í alþjóðlegu samstarfi er ávallt þessi; ef þið haldið ykkur ekki saman þá breytist ég í villimann. Og ekki nóg með það, þá viðhefur þýska valdastéttin sömu aðferðir gegn sínu eigin fólki. Hún er í engu sambandi við fólkið í landinu

Fyrri færsla

Lögregluþjónar heilsa með nasista-kveðju í Bæjaralandi


Bloggfærslur 4. september 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband