Leita í fréttum mbl.is

Pólitískt tómarúm í heiminum? Á Vesturlönudum?

Reuters - Heiðursvörður tekur á móti James Mattis í Víetnam 25 janúar 2018

Mynd, Reuters: Heiðursvörður tók á móti James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Hanoi í Víetnam 25. janúar 2018. Fyrsta bandaríska flugmóðurskipið frá stríðslokum árið 1975, mun leggja að í Víetnam í mars 2018. Ástæða: Víetnam þolir ekki Kína

****

Styrmi Gunnarssyni finnst það: Hann skrifar: Heimspólitíkin: Pólitískt tómarúm á Vesturlöndum - Kína bíður

En er það virkilega þannig? Reynum að gera dæmið upp:

Þýskaland er enn nokkuð stjórnlaust land, hálfu ári eftir kosningar. Beðið er eftir landinu. En á yfirborðinu er sagt að þessi bið-staða skipti ekki máli, því síðasta stjórn sé enn við völd. En þessi nýopnaða biðstofa -Grossdeutschland - í Evrópsku samhengi, er samt það sem allir kvarta yfir. Texas er ekki í þessari stöðu. Það er ekki í biðstöðu. Það þarf ekki að bíða eftir neinum því Bandaríkin virka og eru á fullu við leiðtog, hvern einasta dag ársins. Pólitískar erjur innanlands í því landi eru heilbrigðismerki. Verið er að lækna sárin eftir misheppnaða alþjóðavæðingu Líberalista og hreinsa þá út úr íhaldsflokki Repúblikana. Heimspressa Líberalista er því að breytast í salernissandpappír vegna sjálfvígsstefnu Líberalista*, sem sitja á nær öllum hobbí-snobb fjölmiðlum veraldar. (*Bleyjumerki)

Flokkur Angelu Merkel beið afhroð í kosningunum. Hið sama gerðist hjá stjórnaandstöðunni, sem sængaði hjá pólitískum andstæðingum sínum í 13 ár. Þessir tveir flokkar gerðu með sér eins konar bandalag um að kjósendur gætu hvergi umflúið þá. En kjósendur eru hins vegar flúnir núna, vegna meðal annars nýs Valkosts fyrir Þýskaland, og þeir eru áfram að flýja þá hvern einasta dag. Þess vegna er pólitíska tómarúmið svona mikið í Þýskalandi, að varla er hægt að koma saman nýrri ríkisstjórn. Fylgi þýskra sósíaldemókrata er nú komið niður í 17,5 prósent í könnunum. Það var 32 prósent árið 2012 og 41 prósent í kosningunum 1998

Bretland hefur yfirgefið hið sökkvandi skip Evrópusambands Líberalista og snýr til baka til róta sinna; þ.e. Anglosphere

Nýkjörinn forseti hins fimmta misheppnaða lýðveldis Frakkalands; já hann situr nú einmitt þar, "bara-heima", einn og einsamall á stórri og fallegri biðstofu og bíður eftir húsbónda sínum, Þýskalandi, og hrapar svo í vinsældum meðal þjóðar sinnar að þær eru nú jafnlitlar eða lítið-miklar og þær voru hjá Hollande á sama tíma liðnum frá kosningum. Sá forseti, Hollande, fór frá völdum með fjögur prósent vinsældir og tók sósíaldemókrata-flokk sinn með sér í gröfina

Þriðja stærsta kjördæmi ókjörins Þýskalands, Ítalía, er að detta af pólitískum hengslum og tengslum við rætur sínar, vegna hins bágborna efnahags landsins, sem evran hefur lagt að velli. Peningar Ítalíu eru á kistubotnunum uppi í Þýskalandi. Sú efnahagslega niðurlagningar-fabrikka sem evran er, hefur þar með náð djúpt inn til ítalskra stjórnmála, sem því eru í pólitískum krampaköstum. Svört framtíð blasir við Ítölum. Algerlega kolsvört

Spánn, fjórða stærsta hagkerfi ESB, er þessa stundina að rífa í tætlur stjórnaskrá sína, með hörmulegum afleiðingum. Katalónía vill yfirgefa landið sem er ekki lengur það land sem það hélt að Spánn væri. Lömun færist yfir og var hún þó næg fyrir vegna þess hve evran hefur rústað efnahagnum. Beðið er eftir skipunum frá Berlín

Finnland er að þrotum komið í Evrópusambandinu og það er skuggalegt hversu algjört efnahagslega frostið hefur verið í Finnlandi, samfellt síðustu 10 árin. Þetta var "fyrirmyndarríki" ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, en staða þess er svipuð og Jóhönnu sjálfrar; engin. Grikkland þarf enginn að minnst á því allir vita hver staða þess er; hún er vonlaus, vegna evru og esb

Kína er að falla saman eins og uppblásnar lofbólur alltaf gera. Og þeir sem hafa trúað blint á landið munu bláir missa anda sinn, þegar í ljós kemur að stærð kínverska hagkerfisins er aðeins rúmlega einn þriðji hluti af uppgefinni stærð. Það sama og gerðist þegar Japan féll saman frá því að vera 17 prósent af hagkerfi veraldar niður í sex prósentin sem það er í dag. Og um þessar mundir eru japanskar framleiðsluaðferðir -töfraorð á sínum tíma- að hrynja saman sem fyrirmynd annarra. Og það sama gildir um þýskar framleiðsluaðferðir. Hver japanski forstjórinn fer rauður í andliti frá stjórn eftir annan. Það sama er líka að gerast í Þýskalandi. Gæðastjórnun bandarískra framleiðsluaðferða er orðin betri en beggja þessara landa. Mismunurinn á 17 og 6 prósentum, var froða sem búin var til með pólitískum og fjárhagslegum brellum

"Einn-vegur og eitt-belti" útþenslustefna Kína eru pólitískar sjónhverfingar ætalaðar til heimabrúks í því harðræði sem þar ríkir núna. Svipað og skemmtiferð Pútís til Sýrlands, vegna komandi kosninga. Nýr kínverskur alræðisherra er mættur til valda yfir Kína, sem annars dytti í sundur. Þetta "veg-og-beltis" fyrirbæri undirstrikar hins vegar aðeins vanda Kína. Í reynd er aðeins um að ræða "Enn einn stoppklossann eftir annan" á götum Kína til umheimsins. Landið er læst inni í sjálfu sér og getur sig hvergi hreyft nema með samþykki annarra. Það er og verður staðsett í miðju landfræðilegs tómarúms sem skilgreinir og ákveður stjórnmálin innvortis í Kína. Kína er eins og eyja með stjórnarfar sem heldur því ávallt sem lokaðri eyju, sem að öðrum kosti brotnar upp í eyjaklasa og sundrast. Að baki eyjunnar er landfræðilegur fangelsismúr Mongólíu og í vestur er einnig lokað. Suður-um-höf Kína, er verndar- og valdasvæði stærsta flotaveldi mannkynssögunnar; bandaríska sjóhersins, sem er eini flotinn í mannkynssögunni sem ræður og skilgreinir leikreglurnar á öllum höfum veraldar samtímis

Bandaríska þjóðríkið ræður með öðrum orðum því hver fær leyfi til að gera innrás og útrás hvert, og hvenær. Þegar Bandaríkin aðhafast lítið þá er það vegna þess að þau vilja láta lönd um kála sér með eigin hendi, eða hins vegar, vaxa og dafna. Eða þá vegna þess að þau eru að safna kröftum fyrir næsta gamlárskvöld, eins og í aðdraganda Síðari heimsstyrjaldar. Bandaríkin eru og verða aldrei einangrunarsinnar, einfaldlega vegna þess að þau geta það ekki. Þau eru einn þriðji af hagkerfi heimsins. Þau geta ekki hreyft litlu tá án þess að sú hreyfing hafi áhrif um víða veröld, algerlega óháð því hver forsetinn í Hvítu húsi og á þingi er

Það felst ákveðin strategía í því að láta aðra um að kála sér sjálfir og mæta svo til leiks og handjárna stöðuna með uppsöfnuðu ofurefli. En slíkt tekur tíma, því ekkert mikilvægt fær leyfi til að gerast í sjálfum bakgarði Bandaríkjanna, heima fyrir, heldur fer það allt fram á Austurhveli jarðar. Og það er einmitt sú stefna sem er þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna. Að láta "þá" um að kála sér sjálfir áður en "þeir" komast í aðstöðu til að sameina sínu vondu krafta gegn Bandaríkjunum. Já þeir eru vondir þeir kraftar og hafa alltaf verið. Þess vegna fjármagnaði Reagan til dæmis Íran og Írak samtímis, svo þau yrðu duglegri við að kála hvort öðru, því á meðan þau gera það, þá kála þau ekki Bandaríkjamönnum, þ.e. Amerykanski eins og Pólverjar segja. It just plain works

Tómarúm? Nei því fer fjarri. En mannkynssagan er þannig að á öllum tímum eru til lönd sem annað hvort eru að sökkva eða rísa. Í Evrópu er það Intermarium sem er að rísa vegna þess að Bandaríkin vilja það. Þau lönd sem eru að falla? Tja, þau útskýra sig sjálf, þegar grannt er skoðað - og menn hætta að trúa því sem stendur og sést í svo kölluðum fjölmiðlum. Það er svona sem breytingar ganga fyrir sig

Fyrri færsla

Framsóknarmenn hugi að mörkum sínum


Bloggfærslur 5. febrúar 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband