Leita í fréttum mbl.is

Trump aflýsir G20-fundi međ Pútín. Lögregla stormar Deutsche Bank. Merkel nauđlendir. Öld Asíu ađ enda

Eftir ađ hafa lýst ţví yfir ađ fyrirhugađur fundur međ forseta Rússlands myndi eiga sér stađ á G20-toppfundinum sem hefst í Argentínu í dag, ţrátt fyrir ađgerđir Vladímírs Pútín á innhafinu á milli Úkraínu og Rússlands, uppi í hafkrikanum á milli Krímskaga og Rússlands, ţar sem Pútín lagđi hald á ţrjú skip Úkraínu, ţá tilkynnti Donald J. Trump eftir fund međ utanríkisráđherra og ţjóđaröryggisráđgjafa sínum í forsetaflugvélinni á leiđ ţeirra til Argentínu, ađ hćtt vćri viđ fundinn međ Pútín

Vinsćldir Vladímírs Pútíns á heimavelli eru hratt fallandi, nú stuttu eftir kosningar. Svo seint sem í október höfđu ţćr falliđ niđur í 66 prósent úr 82 prósentum í apríl. Hlutfall ţeirra sem treysta Pútín féll úr 59 prósentum niđur í 39 prósentur á sama tíma, og hlutfall ţeirra sem vantreysta honum tvöfaldađist. Ađeins 40 prósent kjósenda segjast myndu kjósa Pútín á ný og 81 prósent segja hann ábyrgan fyrir slćmum gangi mála í Rússlandi

Ađgerđir Pútíns Rússlandsforseta gegn Úkraínu eru ađ margra mati tilraun rússneska forsetans til ađ reyna ađ bćta úr óvinsćldum hans á heimavelli. Bćđi Vladímír Pútín og Evrópusambandiđ berjast nú viđ kjósendur sem ţola varla meira af imperíalisma ţeirra, og bćđi fyrirbćrin eru ađ mestu umbođslaus í sessi. Líta bćđi fyrirbćrin fullveldi ţjóđ-ríkja afar illum augum og bćđi fyrirbćrin líta á almenna kjósendur sem nytsaman úrgang til ađ smyrjast ofan á brauđ elíta

Ađgerđir Rússlands gegn Úkraínu núna minna mjög svo á ađdraganda innrásarinnar í Georgíu. En ţar sem Donald J. Trump hefur veriđ mun harđari gegn imperíal-látum Rússlands -og Evrópusambandsins líka međ hiđ lamandi Ţýskaland sem fordćmisgefandi skemmdarvarg innanborđs í NATO- ţá standa ríkin í jađri Rússlands betur ađ vígi núna, en ţegar Barack Omaba var viđ völd. Trump hefur rétt Úkraínu sterkari hjálparhönd en Obama og beitt Rússland harđari ţvingunarađgerđum en Obama og stóraukiđ viđ bein hernađarútgjöld Bandaríkjanna til styrktar ríkjum Austur-Evrópu og viđ Eystrasalt. En ţrátt fyrir ţetta skrifa veruleikafirrt dagblöđ á Vesturlöndum allt annađ en sannleikann í ţví máli

James Mattis varnarmálaráđherra Bandaríkjanna sagđi í kynningu sinnu á nýrri ţjóđaröryggisstefnu í fyrra ađ Bandaríkin vilja alls ekki, ég endurtek: vilja bara alls ekki, sjá Rússland falla saman sem ríki, en sú hćtta er fyrir hendi og hún kemur innan frá úr sjálfu Rússlandi. Hćttan á ađ Evrópusambandiđ falli saman hefur einnig stóraukist frá og međ ţeim degi er veruleikinn reyndi í fyrsta skiptiđ á ţađ áriđ 2008. Sambandiđ er ađ falla saman enda er ţađ ekki ţjóđ-ríki heldur sáttmálapokaílát ókjörinna elíta gegn fólkinu í ríkjum ţess

Og fyrst viđ erum ađ ţessu, ţá má einnig geta ţess hér ađ hin svo kallađa öld Asíulanda er nú ađ renna sitt síđasta skeiđ, ţar sem Asía er ađ enda sem misheppnađar byltingar, einsflokks lýđrćđisafskrćmingar, skortsvćđi fyrir ţjóđfélagslega samheldni í löndum hennar, stríđshćttusvćđi og misheppnađur efnahagur. Misheppnuđ efnahagslíkön ráđa ţar för ásamt miđstýrđri óđaöldrun, elítuspilling ríkir, skortur á einstaklingsfrelsi er krónískt, takmarkađ siglinga- og ferđafrelsi er reglan, tölvurárásir og persónunjósnir alla daga ársins, draugaborgir rísa, ávísanaheftastjórn er útbeidd, ríkisrekstur er krónískur og tollamúrar hafa gert ţađ ađ verkum ađ álfan Asía er ađ hníga niđur í sólarlag sitt sem geld heimsálfa áđur en hún náđi ađ efnast og er ţví líđa undir lok sem heimsálfa fátćktar. Ţessi stappa gamla heimsins mun hins vegar ekki stappast í komandi mús ţegjandi og hljóđalaust

Alţjóđa gjaldeyrissjóđurinn sagđi í vikunni ađ 1/4 hluti landsframleiđslu Japans muni hverfa á nćstu fjórum áratugum vegna óđaöldrunar Japana, nema ađ til stórkostlegrar framleiđniaukningar komi. En vandamáliđ viđ ţannig framleiđniaukningar er hins vegar ţađ ađ ţćr tortíma restinni af áhuga ţjóđarinnar á ađ taka ţátt í lífinu í landinu. Kína og restin af útflutningafíklum Asíu, ásamt Ţýskalandi og Rússlandi, munu svo fylgja Asíu til grafar, ţví ţar er ástandiđ síst skárra

Angela Merkel kemst ekki á réttum tíma á ţennan svo kallađa G20-fund vegna flugvélabilunar. Ţýski herinn annast viđhald flugvélar hennar og ţurfti hún ţví ađ snúa viđ og nauđlenda í Köln

Ađalstöđvar hins ţýska fjármálaflaggskips, Deutsche Bank, var í gćr stormađ af lögreglu í Frankfurt, skammt frá Köln ţar sem Angela Merkel var nauđlent, og lögreglan lagđi hald á gögn bankans. Hann er tengdur viđ peningaţvćttis-rúllettu Danske Bank. Ţađ mál er ađ vinda uppá sig sem eitt stćrsta mál sinnar tegundar í heiminum. Danska fjármálaráđuneytiđ hefur sćtt sundurlemjandi gagnrýni í ţví máli og stjórn Danske Bank er ekki stćtt

Fyrri fćrsla

ESB-leitin ađ stađ fyrir greiđslukerfi [u]


Bloggfćrslur 30. nóvember 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband