Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Bankakerfi Þýskalands knýr skuldasöfnun landsins áfram

Drivers of Public Debt Increase 2007-2011
 
Mynd AGS. Helstu drifkraftar skuldaaukningar fjögurra þjóðarbúa miðað við landsframleiðslu á tímabilinu frá 2007 til 2011: 1) Ríkissjóður Þýskalands er undir áhlaupi frá bankakerfi landsins. 2) Ríkissjóður Ítalíu er kominn í skrúfstykki versnandi lánskjara vegna lélegs lánstrausts evrulanda. 3) Tekjutap franska ríkissjóðsins er vegna ósamkeppnishæfni, minnkandi útflutnings, atvinnuleysis og aukins vaxtakostnaðar. 4) Tekjutap ríkissjóðs Bretlands færist sem þjóðarskuld og er vegna niðurskurðar og lækkunar t.d. virðisaukasaktts.
 
Það eru líklega ekki margir sem gera sér grein fyrir því að ríkisafskiptin af bankakerfi Þýskalands eru ein þau mestu í vestrænum heimi. Þýskaland gengur nú um evrusvæðið með móralskan bendipinna og skipar evrulöndum út og suður fyrir verkum á meðan ríkisstjórnin í Berlín safnar skuldum til að halda bankakerfi landsins ofansjávar. Skuldaaukning Þýskalands vegna björgunar gangandi gjaldþrota bankakerfa landsins er hrikaleg. Bankar í eigu þýskra stjórnmálamanna í Landesbankakerfi Þýskalands hafa hlotið hrikalega útreið vegna glæfra. (AGS: PDF)
 
TARGET2* greiðslukerfi seðlabanka evrusvæðis er á sama tíma að komast í þrot. Aðeins þýski seðlabankinn á nokkra fjármuni eftir - líklega til nokkurra daga. Hvað þá tekur við veit enginn (FT).

Eins gott er að þýskur almenningur skilur hvorki upp né niður í neinu. Ef hann vissi hvað á seiði er þá þyrði ég varla að mæta honum á næsta götuhorni.
 
 
* (Trans-European Automated Real-time Gross settlement Express Transfer system)

Portúgalska ríkið gerir lífeyrissjóði landsins upptæka

Ferkúlus Smèskavos yfirmaður göngudeildar Portúgals inn í Evrópusambandið hefur rétt í þessu þjóðnýtt nokkurt magn lífeyrissjóða og flutt eignir þeirra út úr bankakerfi landsins og yfir á reikninga ríkisins. Aðeins sjálfar eignir lífeyrissjóðanna eru fluttar yfir í bækur ríkisins. Allar hugsanlegar kröfur eru hins vegar látnar eftir í friði hjá þeim sem áttu. Þetta er gert til þess að bjarga myntinni evru frá því að leysast upp og leka ofan á Evrópusambandið í Brussel.

Fyrir vikið lítur taprekstur portúgalskra stjórnmálamanna á ríkissjóði landsins betur úr í augum Evrópusambandsins. ESB-hagstofan Eurostazi segist ætla að líta fram hjá, enda sé hér með verið að bjarga sjálfri evrunni. 
 
Bankakerfi Portúgals hefur brátt verið lokað af frá umheiminum í full tvö ár. Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn, Eurostazi og ECB-seðlabanki evrunnar stýra nú landinu.

Næst hafa Þjóðverjar heitið Portúgal aðstoð í formi ókeypis járnbrautarflutninga á gullforða landsins austur á hjartadeild Evrópusambandsins. En þar er kanslari frú Angela von Merkel nú á dráttarvélarnámskeiði með herfi.
 
 
 

  

Evruhamingja; 2000 læknar í Slóvakíu segja upp störfum

Kauphöllin í New York
 
Slóvakía asnaðist til að taka upp evru þann 1. janúar 2009 og hefur nú opnað pakka sína. Landið er því strax komið á niðurskurðarborð seðlabanka munkaklausturs Evrópusambandsins í Frankfurt og Brussel. Bankakerfi Slóvakíu og allra 17 landa evrusvæðisins eru í þessu sama klaustri og enginn vil heldur lána ríkissjóðum þeirra peninga nema á okurvöxtum.
 
Lífinu er nú haldið í þessum klausturbúum Evrópusambandsins með niðurkasti Bandaríkjadala úr flugþyrlu Ben S. Bernanke seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem flýgur yfir klausturgarða evrusvæðisins einu sinni á degi hverjum -frá og með í gær- og kastar niður til þeirra gjaldmiðli sem bankar evrulanda treysta.

Þessir 2000 læknar í evrulandinu Slóvakíu sem sagt hafa upp störfum sínum í evruparadís ESB, segja að laun þeirra séu svo lág að hámenntaðir sérfræðingar hafi sem svarar til 250-350 þúsunda í laun á mánuði við að vinnu sína í heilbrigðiskerfi Slóvakíu sem hvort sem er sé gjörónýtt, óháð lágum launum þeirra og störfum. Ástandið geti því varla orðið verra.

Íslenskir læknar staðsettir í norskum og sænskum krónum munu auðvitað koma hér ríðandi á íslenksum hestum sínum Slóvökum til aðstoðar. Eða verður það öfugt?
 
Evra Evrópusambandsins var innleidd í 17 ríkjum sambandsins svo húsmóðir í svörtum kjól með fimmtugan atvinnulausan heimabúnadi einkason sinn í Róm geti séð hvað franskbrauðið í bakaríinu á Hillasillalagötu 15 í Helsinki kostar.

Þetta er altså ekki frétt frá Samfylkingarútvarpinu ESB-pravda-RÚV
 
Krækjur: 
 

Sturtuvagnar markaða dumpa evruskuldum á öskuhauga sögunnar

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland
Mynd; evruupptakari
 
Hlössum af ríkispappírum gefnum út af evruríkjum í evrum er nú sturtað á ruslahauga sögunnar eftir 13 ára veruleikaflótta. Neyðin er orðin svo áberandi að bræðraþjóðir eins og Svíar og Finnar eru að skiljast að, því á milli þeirra var byggður Brusselmúr sem skilur á milli heims og heljar þjóðríkja. Finnska ríkið lét mynt sína detta inn í Brusselmúrinn og stendur nakið með evrumynt í upplausn. Enginn vill lána finnska ríkinu peninga nema það greiði tvöfalt hærri áhættuþóknun en krafist er af sænska ríkinu.
 
Svíþjóð er með sænska krónu sem er í himnesku jarðsambandi við seðlabanka þjóðríkis sænskra þjóðfélagsþegna. Finnland er hins vegar læst inni í seðlabankalingi Evrópu-Ekkertsambandsins og lyklinum hefur verið hent.
 
Bankakerfi evrulanda eru nú undir áhlaupi ríkisstjórna evrulanda, sem allar bjargir eru bannaðar. Þær þrýsta skammbyssunni hér að ofan að gagnaugum sínum og hóta að taka í gikkinn ef síðasti bankinn í ríki þeirra neitar að lána þeim síðustu evruna úr kassanum.
 
Áhrifin á hagkerfin eru þau að bankarnir geta ekki gengt hlutverki sínu sem áburðarverksmiðja atvinnulífsins. Fyrirtækin svelta því ríkið var svo heimskt að henda mynt sinni inn í Brusselmúr Evrópusambandsins. Og nú er ríkið á leið í þrot vegna myntar sem er í upplausn. Fyrirtækin í evrulandi búa sig nú undir endilok evrunnar. 

Á meðan skoðar íslensk ríkisstjórn steingeitar, gungu og druslu teiknimyndaseríur frá síðustu dögum Pompei í Der Untergang Stjórnarráðsins í 101 Reykjavík. 
 
Krækjur: 
 
Paul Krugman; The Euro Curse

Moody's varar við fjöldaríkisgjaldþrotum inni í evrusvæðinu

Matsfyrirtækið Moody's varar nú við fjöldaríkisgjaldþrotum evrulanda í nýrri skýrslu. 

Moody's segir enn fremur að í kjölfar fjöldaríkisgjaldþrota geti fylgt upplausn þeirrar myntar sem löndin hafa flotið saman á allt frá einu ári og upp í nokkur ár á evrusvæði. En fyrst þurfi þau öll að snæða ruslmat fyrirtækisins í forrétt. Þeirri kvöldmáltíð evrulanda miðar ágætlega.

Moody's segir enn fremur að köfnunarferli ríkissjóða og bankakerfa evrulanda sé nú orðið svo framskriðið að óvíst sé hvort þau lifi af þessa lausafjárkreppu sem orðin er ofan í líkkistum þeirra niðri í evrusvæðinu. Horfurnar á að Frankenstein sé kominn í farveg eru þar af leiðandi tölu verðar.  

Bönkunum vantar hátt í hálfa billjón evra strax og tæplega billjón í sömu mynt á næstu tólf mánuðum. Ríkissjóðum evrulanda vantar eitthvað hátt í alla peninga Þýskalands tvisvar til þrisvar sinnum. Þurrð ríkir áfram.
 
/skjaldburg
 
 
Mbl: Sendiráð Bretlands í ESB undirbúa viðbragðsstöðu; Varað við mögulegu hruni evrusvæðisins

Nokkur orð um gervitungl ríkisstjórnarinnar

Nú er rætt um verðtryggingu á sömu feilnótunum og rætt er um gjaldmiðilsmálin og ESB-málin. Í ríkisstjórn okkar situr hópur vitgrannra manna. Og í kringum þær vitsmunalegu beinagrindur sveima gervitungl úr efni sem ekkert er hægt að byggja úr nema spilaborgir af síðustu sort. Sem sagt; draugaskipið í Stjórnarráðinu siglir fyrir fullu útflaggi.

Í fyrsta lagi; og þessu þarf að slá föstu með sex tommu saum. Verðtryggingin heldur hendinni undir húsnæðismarkaðnum, hagvexti og kaupmætti til lengri tíma litið. Endurtaka þetta þar til það físar inn. Ef þið hefðuð ekki verðtrygginguna núna þá væri fasteignaverð hrunið um 60 prósent og staðan enn verri en hún er í dag. Það er eingöngu verðtryggingunni að þakka að þetta hefur ekki gerst. Og miklu auðveldara er fyrir markaðinn að komast í gang á ný, án algerra náttúrhamfara í landslagi hans. Ef þið pillið við verðtrygginunni núna, þá munið þið í leiðinni leggja markaðinn í rústir. Það er ekki hægt að skipta um markaðsfyrirkomulag án afleiðinga fyrir allan markaðinn og eðli hans. Og þær verða miklar því við erum í miðjum áföllum.

Fyrir hrun - árið 2007 - kom út skýrsla frá Morgan Stanley um evrópska húsnæðismarkaðinn og þær tegundir af lánum sem þar voru og eru enn í boði. Hvatinn að rannsókn Morgan Stanley's var hin sveiflukenda verðmyndun á evrópska húsnæðismarkaðnum. Þar gengur markaðurinn oft fyrir sig í boom bust cycle, eða í verðhruns-verðsprengju takti. Með öðrum orðum; verð húsnæðis sveiflast allt of mikið. Það er of flöktandi (e.volatile). Hér er bæði átt við sjálft sölu- og kaupverð svo og einnig greiðslur og greiðslubyrði af lánum. Þær sveiflast of mikið og oft í engum takti við þarfir og greiðslugetu lántakenda. 

Niðurstaða rannsóknarinnar er m.a. þessi; þegar húsnæðisverð í ríkum löndum er orðið svona hátt miðað við árstekjur fólksins í hagkerfinu - þ.e. fermetraverð í ríkum löndum er orðið afar hátt, - þá sveiflast kaup-söluverð og vextir-greiðslubyrði svo mikið að botninn fer reglulega úr markaðnum. Stór massi fasteignaeigenda verður þar með eignalaus og ræður ekki lengur við greiðslur af lánum sökum mikils flökts í greiðslubyrði miðað við kaupmáttinn og hagsveiflur. Eitt dæmi: Danmörk; tvívegis verðhrun fasteigna á síðustu 25 árum (35-40 prósent), frystur kaupmáttur sökum langvarandi fjarveru hagvaxtar og eyðnisýkingu í kaupmætti launþega; og þar af leiddum hækkandi vöxtum einmitt sökum þessa. Þorri ungs fólks verður eignalaus, getur ekki haldið eignum sínum, missir þær og situr uppi með óviðráðanlegar skuldir í áratugi. Eldra fólkið fer stórskuldugt inn í ekki svo helgan stein, eða í skuldafangelsi til æfiloka. Allir tapa. 

Ein leið til að lækna þetta mikla flökt (e. boom bust cycle) í ríkari löndum Evrópu er að bjóða upp á verðtryggð húsnæðislán, segir Morgan Stanley. Vísitölutenging við raunveruleikann getur leyst þetta mál í ríkari löndum þar sem kaupverð nemur margföldum árstekjum. Í Danmörku borga menn 30 ára lán þrisvar til baka á 30 árum og engum nema vitstola mönnum dettur í hug að bjóða 40 ára lán. Vextir eru háir ef þeir eru fastir, en eins og rúlluskautar ef þeir eru breytilegir. Sölutími upp á 2-6 ár er algengur, jafnvel í góðæri.

Morgan Stanely leggur sem sagt til að boðið verði upp á verðtryggð húsnæðislán í ríkari löndum Evrópu til að bjarga þeim frá reglulegu eyðileggjandi bólu- og hrunferli fasteingamarkaðs.   
 
Annað; álaupin á tvo grunnstólpa íslenska hagkerfisins 
 
Ég vona að stjórnvöld hérlendis (sennilega dauðborin von) skilji að Ísland er undir sameiginlegu áhlaupi massa fólks á lánadrottna og skattgreiðendur (e. a collective run on creditors and taxpayers). Þetta er þekkt fyrirbæri í hagfræði. Svona áhlaup þrífast vel undir ríkisstjórnum sem eru vitsmunalegar beinagrindur með um sig sveimandi gerfitungl úr efni sem ekkert er hægt að byggja úr nema spilaborgir af síðustu sort. 

Þetta áhlaup er gert til þess að massinn komist á ný í innkaupaferðir til Boston og geti tekið upp reglulegt áætlunarflug sitt til Mílanó og boom burstað sig þar í búðargluggum þess allra dýrasta.

Þið vitið þetta náttúrlega allt saman, auðvitað. Og tengið nú vinsamlegast krónuna okkar sem snöggvast við næstu rafmagnslausu álver sem fjármálaráðherra beinagrindasafns fortíðarinnar hefur lokað. Þá verða allir í svo miklu stuði, nema þjóðarhagur Íslendinga. En hvað varðar ykkur, beinagrindum fortíðarinnar, um þjóðarhag. Þið vilduð jú ganga í Sovétríkin á sínum tíma. Og það viljið þið enn.
 
Ég bið því til Guðs að þið finnið aldrei olíuna OKKAR. Og heldur ekki bláberin.

Norrænd velferð; 50 fjölskyldur eiga einn fjórða af auði Danmerkur. Mikil dýrtíð

Í Danmörku eiga 50 fjölskyldur auð sem svarar til eins fjórða hluta landsframleiðslunnar og af þessum 50 fjölskyldum eiga fjórar fjölskyldur helminginn af þessum einum fjórða hlut þjóðarauðsins.
 
Hryllileg dýrtíð í Danmörku 
 
Matvæli í smásölu í Danmörku eru nú þau dýrustu í Evrópusambandinu og svo dýr að hópur þingmanna hefur heimtað að málið yrði rannsakað. En þetta verður bara aldrei rannsakað. Einokun í dreifingarlið verslunargeirans og í smáölu er á við það besta sem tíðkaðist í Sovétríkjunum. Tvær matvöruverslanir eru í landinu þar sem þær keyra veldi sín undir hinum og þessum fánum. Tveir menn, innkaupastjórar tveggja kveðja, stjórna algerlega því hvað danska þjóðin borðar.
 
840 þúsund manns gera ekki neitt og eru á fullri framfærslu skattgreiðenda 
 
Í fréttatilkynnningu dönsku hagstofunnar kom fram um daginn að 841 þúsund Danir eru að fullu leyti á framfærslu hins opinbera. Og hér eru ein milljón danskir ellilífeyrisþegar ekki taldir með - og heldur ekki börn og námsfólk. Þessar 841 þúsund sálir eru allar á vinnualdri og vinna við að bora í 1682 þúsund norrænar velferðarnasir nefja sinna á hverjum degi ársins.
 
Fasteignamarkaður í frjálsu falli, tvisvar á 25 árum 
 
Fasteingamarkaður landsins — sem allur er í óverðtryggðum lánum og sem að meðaltali er skuldbreytt á þriggja ára fresti — hefur hrunið tvisvar sinnum síðan 1987 með hörmulegum aðfleiðinugm. Verðhrunið varð allt að 40 prósent í fyrra skiptið. 1800 nauðungaruppboð fóru fram í hverjum mánuði. Fólks sat uppi með óseljanlegar eignir á lægri launum, en með hærri greiðslubyrði miðað við ráðstöfunartekjur. 
 
Frá og með árinu 2007 hefur fasteignamarkðaurinn aftur verið frjálsu falli. Um 40 prósent húsnæðiseigenda undir 35 ára aldri í Danmörku skulda nú meiri peninga í fasteign sinni en hægt er að selja hana fyrir.
 
Alls er hver fimmti fasteignaeigandi í Danmörku er orðinn eignalaus. Skuldar meira en hægt er að selja fyrir. Kemst ekki út. Þetta eru helstu einkenni óverðtyggðra fasteingamarkaða. Þeir sveiflast meira og í hverri sveiflu er fólkinu hent úr úr húseignum sínum. Ekkert lát er á fallinu til lengri tíma litið. Og sjálfum litla fingri stjórnvalda verður ekki lyft neinum til aðstoðar, frekar en fyrri ferðina.  
 
Þetta er, eins og áður er um getið; norræn velferð.
 
 

Evrusvæðið: lán til þriggja mánaða

ACHTUNG! ORDNUNG!

Spain pays 5,1 pct for three month money

Das monetzary tranzmission mechanizm of ASÍ, ja!

Evruríkið Spánn nýtur nú (á)vaxtana af því að vera í myntbandalagi formanns Alþýðusambands Íslands, herra Gylfa Arinbjarnarsonar.

Á Spáni ríkir 22 prósent esb-atvinnuleysi og tæplega 50 prósent hjá ungu fólki. Hví skyldi atvinnumarkaður ESB-Spánar vera svona hörmulega hörmulegur? Landið er búið að vera í þessu Evrópusambandi í heil 25 ár. Og það er búið að vera í myntbandalagi þess frá upphafi. Allt er á kafi í evrum á Spáni. 

Nema hvað. Ef ríkissjóður Spánar vill fá fimmkall að láni til þriggja mánaða á alþjóðlegum mörkuðum, þá þarf þetta 25 ára esbland að greiða sömu vexti og þegar ríkissjóður Íslands tekur fimmkall að láni til fimm ára. Þriggja mánaða vaxtakjör ríkissjóðs Spánar hljóðuðu upp á 5,1 prósent í dag.  

Svona er að vera evruland. Massíft atvinnuleysi í samfleytt 25 ár kostar mikið. Og það kostar mikið að hafa haft gjörónýta mynt í 12 ár og þar að leiðandi fengið eyðilagt lánstraust og lánskjör landsins á þessu handónýtasta myntsvæði heimsbyggðarinnar frá upphafi siðmenningar.

Hvaða asna datt í hug að Spánn og Þýskaland ættu að vera með sömu mynt og sömu peningapólitísku vexti?

Síðustu dagar evrunnar eru að nálgast.

Spain pays 5.1% for three month money 

Uppbót; Last Days of the Euro


Skipbrot evrunnar undirbúið

Evruaðild hefur sett — og er að setja — mörg evruríki í varanlegt skuldafangelsi. Komið er í ljós að evran hefur að öllu leyti virkað þveröfugt við það sem lofað var frá upphafi. Hún hefur valdið örþrifamiklu atvinnuleysi alla tíð frá því að undirbúningur hennar hófst, því hún hefur jarðsett hagvöxt á myntsvæðinu til langframa í spennitreyju miðstýringar, hafta, ófrelsis og með því að afvopna þjóðríkin af allri sjálfsvörn. Ekkert nema rusl kom í stað gömlu vopnanna. Evrusvæðið er lélegasta hagvaxtarsvæði heimsins á eftir Japan.

Runnið er upp fyrir fjármálamörkuðum heimsins hversu galin hönnun myntbandalagið er og nú skilja þeir til fulls að engin leið er út úr myntinni nema í gegnum samfélags- og efnahagslegt sjálfsmorð þjóðríkja myntbandalagsins. 

Þessa daganna eru loforðin sem Evrópusambandið gaf fólkinu frá upphafi, myrt daginn út og daginn inn. Gerningsmaðurinn er Evrópusambandið sjálft. Þýska Der Spiegel spyr hvort ESB geti yfir höfuð risið úr öskustónni aftur. Blaðið segir Evrópu ESB ónýta. Það veit fjármálamarkaðurinn líka. Hann er hættur að lána peninga til evrulanda. Breskir bankar forða sér svo hratt af evrusvæðinu að fjórðungi viðskipta þeirra þar hefur verið hent á öskuhaugana á þremur mánuðum. Tekið er fast til fótanna burt frá þessu sprengjuklára efnahagslega og pólitíska hættusvæði heimsins. Markaðurinn er að reyna að búa sig undir hrun myntbandalagsins, hvor sem það verður í formi allsherjar myntsprengingar eða gereyðingar þess litla fullveldis þjóðríkjanna sem eftir er — undir yfirskini björgunar — og í kjölfarið, þar af leiddum hugsanlegum ófriði.

Á sama tíma eru svikahrappar á Íslandi að reyna að leiða íslensku þjóðina inn á þetta efnahags- og samfélagslega hættusvæði. Skammist ykkar! Það er leiðinlegt að segja það, en svik, óheiðarleiki og bolabrögð stjórnvalda í þessu máli eru miklu verri en svo að hægt sé að afsaka þau á neinn hátt. Já. Svona lítur vinstri hlið hinnar stjórnmálalegu bankastarfsemi þeirra út. Allt er til sölu fyrir stóla. Pólitísk grægði er alls ekki göfugri efnahagslegri græðgi, þvert á móti.
 

Ný ríkisstjórn peningavaxta installeruð á Ítalíu

dagur daganna
Mynd; stuttu síðar gáfu Bandamenn Þýskalandi nýjan seðlabanka, sem nú heitir Bundesbank. Hann er efst á aftökulista ESB-elítunnar.
 
Jæja, þá hefur ný ítölsk ríkisstjórn vaxtamismunar og bankaskulda verið uppfærð og installeruð með rekli Brussels inn á hinn harða disk Rómarríkis Ítalíu, þar sem sláttmálinn frægi um samruna Evrópu býr, eftir að hann fluttist skyndilega í síðasta hrakviðri frá Berlínarbungu.

Í sæti forsætisráðherra situr tæknimaðurinn Mario Monti; sérþjálfaður ráðgjafi í afleiðuviðskiptum hjá Goldman Sachs og heiðursforseti Bruegel hugveitunnar sem berst fyrir stofnun Bandaríkja Evrópu upp úr rústum þeim sem búið að að klessukeyra Evrópusambandsbrjálæðið í. Bíðið, það er meira. Monti verður líka fjármálaráðherra!

Der Spiegel um þýska seðlabankann
Afleiðuviðskipti með ríkisskuldbindingar voru notuð af mörgum ríkisstjórnum Evrópusambandsins til að flytja fjárskuldbindingar til og frá í rúmi tímans svo ríkisstjórninar gætu þannig svindlað sér upp í myntbandalag Evrópusambandsins, sem er mun ofar eldri himnum herra Himmlers. Aðeins eitt ríki af 11 uppfylltu í raun inngönguskilyrðin upp í myntina, en það var Luxembúrg, sem falsar hins vegar allar hagtölur landsins með því að sækja daglegt vinnuafl hagkerfisins utan landamæra hertogadæmisins. Þannig verður tekjuhliðin svo mikil á hvern íbúa og skuldir stórlega vanreiknaðar miðað við landsframleiðslu.

Corrado Passera bankastjóri Landsbankans Intesa Sanpaolo, sem er stærsti viðskiptabanki Ítalíu, verður súperráðherra yfir efnahagsmálum og innviðum ítalska ríkisins. Hann byrjaði starfið með því að halda fund með fjármálablaðamönnum í Lundúnum. Kaupþing og Price Waterhouse sjá svo væntanlega um afganginn af hagsmunum ítölsku þjóðarinnar, sem hvíla nú tryggt sem minjagripir í líkkistu lýðræðisins í EvrópuSovétSambandinu.
 
Adolf Hitler var þó þjóðkjörinn. En í Evrópusambandinu á slík vitleysa ekki við.
 
Grikkland er einnig að þróa þetta stjórnarform. Portúgal hugsar málið. Nú hljóta Samfylkingin og vinstri-græn að vera ánægð. Allir draumar þeirra eru hér að rætast.
 
 
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband