Sunnudagur, 23. október 2016
Hin heimska þjóð pírata
SUNNUDAGUR
Píratar segja bresku þjóðina heimska, vegna þess að hún kaus ekki eins og píratar vildu að hún kysi. Breska þjóðin ákvað að hlusta á innbyggðar aðvörunarbjöllur sínar í stað þess að hlusta á pírata. Og Bretar hringdu bjöllum sem glumdu "forðum okkur út úr Evrópusambandinu áður en það verður of seint". Eftir 40 ára reynslu af Evrópusambandsaðild ákvað þjóðin að nóg væri komið. Að síðasta skip væri enn sjófært til að forða sér í, áður en sjálfir björgunarbátar þjóðarinnar með lögum yrðu brotnir í spón og frá henni teknir. Bretland er tæplega 20 prósent af Evrópusambandinu, efnahagslega séð. Lýðæðislega séð er landið hins vegar stærsti og rótgrónasti hluti þess lýðræðis sem eftir var í sambandinu
Síðast þegar Bretland vaknaði upp við vondan evrópskan draum, þá hoppaði öll breska þjóðin í þessa sömu gömlu björgunarbáta, þ.e. þjóðríkið sitt, landamærin og sjálfsákvörðunarréttinn, og hringdi öllum bjöllum hjá vinveittum nágranna í vestri og setti dælurnar í gang. Aðstæðurnar voru þær að tvö ný stjórnmálaöfl höfðu því miður nýlega komist til valda á meginlandi Evrópu. Tvö ný og aðlaðandi öfl með snjallar lausnir, héldu of margir þá; a) kommúnismi sósíalista og b) nasismi sósíalista. Þriðja augað á afturenda sömu skepnu opnaðist á Ítalíu og kallaði sig fasisma
Mikil nýsköpun varð þarna í stjórnmálalífi meginlands Evrópu. En svo varð hins vegar ekki raunin í stjórnmálalífi Bretlands, vegna þess að, eins og píratar hafa sagt, Bretar eru svo heimsk þjóð. Of heimskir til að hoppa á glæsivagninn sem brunaði fram á stjórnmálavöllinn á meginlandi Evrópu, bæði þá og núna. Ég vona að heimskir íslenskir kjósendur átti sig á þessum mistökum Breta og kjósi sjálfir samkvæmt hinum nýju píratísku kosningalögmálavísindum um heimsku þjóða. Þessi heimska og þrjóska Breta bjargaði hinum siðmenntaða heimi frá villimennsku á öllum stigum. Innistæða bresku þjóðarinnar í mannkynsögunni fyrir heimsku sína er óendanlega stór af þakklæti. Fólk tárast enn af stolti og sársauka, því þetta kostaði Bretland næstum allt. Enn skal þeim því refsað nú, eins og áður, fyrir útgöngu sína af Evrópulandi samrunans. Fyrir að svíkja einræðið áður en of seint er að forða sér
Þegar svo hið nýja og öfluga stjórnmálafl meginlandsins var fullklætt komið í nýju fötin, þá varð lífið skyndilega enn og miklu erfiðara fyrir hinn almenna réttlausa rússneska keflaða kjósanda, því hann var í einu hendingskasti kvaddur til baráttu við samskonar ófreskju og hann sjálfur bjó við heima, með þeim furðulegu og ótrúlegu rökum, að nú yrði hann að fórna lífinu og bjarga því Rússlandi sem honum árum saman hafði verið innrætt að gersamlega ónýtt væri. Alveg gerónýtt. Nú var það allt í einu hið gamla og góða rússneska þjóðríki, sjálft veldi hins vonda, menning, saga, trú og arfleið sem hann átti að bjarga. Allt saman ónýtir hlutir samkvæmt byltingarsöng kommúnisma sósíalista. Honum var standandi skipað að bjarga því sem honum hafði verið sagt að algerlega óendanlega úrelt og ónýtt stjórnarfar væri, því að alþjóða, já alþjóðabylting kommúnista, væri framtíðin fyrir hann sjálfan og þar með undantekningarlaust fyrir alla aðra al þjóð. Hófst þar með barátta bandalags fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja við heimsveldi nasismans. Bandalag þjóðríkja sigraði þá baráttu því ekkert annað afl getur ráðið niðurlögum heimsvelda. Þjóðfrelsið og þjóðríkin tóku musteri samrunans bókstaflega í nefið
Valkostum hins óbreytta rússneska manns var þarna af einræði alþjóðabyltingarinnar stillt fram sem þessum; þú peð, þú getur valið á milli þess að verða skotinn fyrir að neita að bjarga því sem ónýtt er, eða verða skotinn af óvinum okkar sem var samrunavinur minn í síðustu viku. Veldu nú, þú keflaða kartöflubónda peð. Svo var alþjóðabyltingaráróðri kommúnista sósíalismans stungið niður í skúffu og skrúfað upp var upp á hæsta glym í gömlum þjóðsöngvum hins ónýta auðvalds um gjörvöll hátalarakerfi þrælaveldis sósíalismans. Hinn evrópski draumur varð svo hroðaleg martröð að ekkert gat stöðvað hana nema bandalag sjálfstæðra þjóðríkja. Stalín henti alþjóðabyltingu kommúnismans út um gluggann og höfðaði til þjóðerniskenndar Rússa. Alþjóðabylting kommúnista krafðist dauða þjóðríkjanna eins og Evrópusambandið og píratar gera í dag. Það eina sem gat ráðið niðurlögum hins alþjóðlega og yfirríkislega nasisma, var bandalag fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja. Þetta var vitað því það stendur í hinum Heilögu ritningum, sem eru hornsteinn Vesturlanda. Til þeirra var því leitað eins og ávallt á hættustund og síðast í hinu Kalda stríði
Þegar selja á almúganum vonlausa svarta framtíð þá er ávallt sminkað yfir hana með "alþjóða-alþjóða" hugtakinu. Al þjóða = al þýða = al ræði, úr kynjafræðum sósíalismans. Þess vegna verður stjórnmálahreyfing pírata auðvitað einnig að vera alþjóðlega alþjóðleg alþýða - en það merkir í raun það sama og algerlega-alræðisleg, þ.e.a.s. alþjólega-alræðisleg, þar sem einn ræður á endanum yfir öllum, eins þegar sést á blóðugum gluggum grasrótar gasklefa pírata. Sama Lenín brunalyktin með skegg og gleraugu leggur frá henni. Svik, útboranir, úthreinsanir, baktjaldamakk, alræði, algrím, kosningaforritun og hið venjulega stuff hins alþjóða alþjóðlega vinstris, eins og sést best á sósíalistaflokki pírata og vinstri grænna. Lýðræðið fótum troðið við hverja einustu snertingu við það. Hvert einasta tækifæri notað til að bylta en ekki þjóna. Kollvarpa en ekki uppfylla. Kosningar sviknar, samviska höfð að engu, stjórnarskrá fótum troðin og alþjóðlega alþjóðlegt vald ávallt tekið fram yfir hið þjóðbernska afl, sem byggði land okkar upp frá grunni. Þjóðaraflið sem byggði upp þann stökkpall sem ESB-vinstrið notar síðan til að kollvarpa honum frá
Hið alþjóðlega-vinstri tók ástfóstri við Evrópusambandið þegar sambandið með Maastricht-sáttmálanum varð sjálfstætt ríki sem fékk yfirríkislegt (e. supra national) vald yfir öllum löndum sambandsins árið 1992. Þetta Evrópusamband er þó ekki orðið fullvalda enn, en verið er að dæla fullveldinu úr aðildarríkjunum og yfir í sambandið með lögum og ógnum, því það getur bara verið á einum stað í einu: annaðhvort hjá mér og þér þ.e. kjósendum, eða hjá yfirríkinu, án umboðs. Áður hafði vinstrið lítinn áhuga á valdalitlum ístruklúbbi áttavilltra íhaldsmanna hins gamla Efnahagsbandalags Evrópu (e. EEC). En alræðisblossinn sem kom frá stofnun Evrópusambandsins árið 1992 sem nýs yfirríkis yfir aðildarríkjunum, tendraði lostann hjá vinstrinu og stjórnborð þess svissaði sjálfkrafa yfir á blikkandi Code Red; því hvílíkir möguleikar voru ekki þarna komnir til að drottna og eyðileggja það sem þeir flestir, en þó ekki allir, ávallt hötuðu mest; þjóðríki Vesturlanda sem grunnstofnalegan uppruna sinn eiga í hinum Heilögu ritningum, þar sem útgangan (Exodus) af Egyptalandi markar upphaf Vesturlanda: uppreisnin mikla gegn imperial heimsveldi sem var þrælaríki, og sem Evrópusambandið er því auðvitað einnig að verða. Þar þræla kjósendur fyrir elítur sem enginn bað um. Sú staðreynd fær til dæmis rótgróin verkalýðsfélög vinstrisins til að hendast sem pendúll á milli enginn-ostur og pong engin-pylsa músagildrunnar, og sarga þar áttavillt af sér höfuðið sem fellur niður í fötur ESB á færibandi. Nema í Noregi, því þar heimtar verkalýðshreyfingin að klippt verði á alla beina viðkomu þjóðríkis Norðmanna við alræði ESB og að EES samningnum verði því sagt upp
Hinir íslensku ESB-feluflokkar geta ekki bakkað út af þeim villigötum sem þeir eru á, né heldur út úr þeim umboðssvikum sem kjósendur voru og eru viðstöðulaust beittir, því þá fellur gríman og þeir standa opinberlega rúnir siðferði og álits gagnvart öllum. Þetta er í hnotskurn sú staða sem sjálf Evrópa er höfnuð í fyrir tilstilli margra áratuga umboðsleysis Evrópusambandsins, en þar er hins vegar stjarnfræðilega stærri pólitísk summa í húfi. Bakki sambandið út úr sjálfu sér og viðurkenni þannig misgjörðir sínar, þá verða afleiðingarnar án efa borgarastyrjöld, því reiðin í borgrunum er orðin svo djúp og rótgróin og þeir vita að sjálfsögðu mætavel, að allt klambrið mun þá hrynja yfir þá, en ekki yfir elítur sambandsins, sem þá verður still upp við veggi. Flestir vita hvað gerst getur við þannig aðstæður. Bakki Evrópusambandið hins vegar ekki út úr sjálfu sér, þá verða afleiðingarnar í fyrstu aukið einræði, því ekki er lengur hægt að ráða við stöðuna í Evrópu nema utan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars, sem þýðir þungt vaxandi einræðislegt stjórnarfar til viðbótar við það sem þegar er, en sem síðan, vegna pólitísks eðlis hinnar vonlausu upphafstöðu ferðalagsins, mun leiða álfuna inn í enn blóðugra uppgjör og langdregnari borgarastyrjöld. Engir góðir kostir eru í hinni vonlausu stöðu sem Evrópusambandið hefur komið álfunni í. Stjórnmálamenn munu því halda áfram að sparka dósinni lengra niður eftir götunni, sem á endanum læsir þá inni í aðeins einum möguleika, þ.e. hinum síðari. Þetta vita og óttast flestir innst inni, en bannað er að tala um það og enn forboðnara er að fara fram á að eitthvað sé gert til að koma í veg fyrir hin óhjákvæmilegu örlög sem bíða meginlands Evrópu
Og eins og þið vitið þá er Ísland algerlega "ónýtt" eins og alltaf áður í sögu vinstrisins, því það er ekki enn komið ofan í vasa þess Evrópusambands sem brennt og skelkað Bretland er að forða sér úr. Þangað skal Ísland inn segja píratar og öll önnur sósíalistísk afkvæmi steypustöðvar sósíalismans á Íslandi: þar eru hinar gömlu járnbentu kommaafsteypur kremlar í Vinstri grænum, hraðsteypan Samfylking með sjálfseyðingarbeltið um sig miðja, öskrandi krónískt ESB og á dulinn pólitískan samkvæmisleik við sósíalistíska pírata. Viðreisn er áttavillta sölugengið á kauphallargólfi misskilinnar frjálsrar verslunar með fullveldið. Hún staðfestir bara vitfirringuna. Allir þessir ESB-flokkar fela skömmustulega hinn geislavirka pólitíska ESB-úrgang í farfarteski sínu, af skömm yfir alræðis-fíkn sinni og hugleysi. Þeir þora ekki að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Þora því ekki. Þeir ætla að blekkja kjósendur áfram inn í rauðan dauðann. Þetta eru óhjákvæmileg sjúkdómseinkenni allra þeirra landa sem fikta við kjarnakljúf fullveldisins í ESB. Þeir skaddast og veikjast. Flokkarnir rotna og falla ofan í kirkjugarða stjórnmála í Evrópusambandinu sem þjóðnýtt hefur öll stjórnmálin á meginlandi Evrópu, einu sinni enn. Þeim er gert skylt að vinna öll í þágu ákveðins málstaðar: Evrópu-samrunans. Þetta er hin erfðafræðilega uppskrift að einræði, eins og síðast. Já, sú sama og síðast, þar sem jafnvel sjálft fólkið var þjóðnýtt í þágu eins málstaðar: kommúnisma og nasima. ESB stendur þó betur að vígi, því það hefur til umráða heilan dómstól og stjórnarskrá sem enginn hefur kosið. Það hafði Hitler ekki því hann var sjálf stjórnarskráin í praxís. En Sovétríkin höfðu svipaða stjórnarskrá og ESB hefur í dag. Þar var það kommúnisminn sem var eini löglegi lífsmátinn sem fólki var heimilt að lifa og deyja samkvæmt. Í Evrópusambandinu er það hins vegar Evrópusamruninn sem er eina löglega lífsfyrirkomulagið. Ekki er því skrítið að Bretar með sína Magna Carta frá 1215 skyldu yfirgefa pólitíska nýsköpun ESB, því Magna Carta fyrirskipaði að jafnvel kóngurinn væri ekki yfir lögin hafinn
En þegar upp er staðið í öllu þessu þá verðum það við, mótmælendur hinnar íslensku Þjóðkirkju og annarra slíkra um öll Vesturlönd, sem mótmælum einir áfram. Vér mótmælum því að ríki hafi neinn spámann nema fyrir sína eigin þjóð. Öll alþjóða alþjóðleg pólitísk samsæri spámanna, hverju nafni sem þau nefnast, gegn hornsteinum Vesturlanda, eru stranglega bönnuð. Alþjóðlegir alþjóða spámenn eru allir sem einn boðberar Egyptalands. Boðberar imperial heimsvelda sem verða að þrælaríkjum og terror. Þannig uppstillingum mótmælum vér áfram að eilífu. Og vér munum ávallt keppast við að vera eftirlitsmaður allra ríkisstjórna og forseta um bindandi skyldur þeirra við upphafssáttmála vora af fjallinu, sem ruddi braut þjóðríkja Vesturlanda og alls ríkidæmis og frelsis þeirra á öllum sviðum, hverjar svo sem þær ríkisstjórnir og forsetar verða, til enda tímans. Varðstaða okkar um hornsteina Vesturlanda, eins og áður, er staðin af gömlum bandamönnum þess Gamla og Nýja, en ekki nýsköpunarsinnum hins gamla Egyptalands í öllum myndum, sem sannarlega var ónýtt eins og sést enn þann dag í dag. Engir bandamenn eru eins máttugir til varna og frjálsir við. Vér einir munum endurreisa Vesturlönd, því það erum við sem erum mótmælendurnir. Við tökum ykkur í nefið
Fyrri færsla
Neyðarfundur boðaður kl. 18 vegna geislavirks lýðræðisleka
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 22. október 2016
Neyðarfundur boðaður kl. 18 vegna geislavirks lýðræðisleka
ESB hefur það hlutverk á höndum að grafa lýðræði í sambandinu svo djúpt og kyrfilega niður í jörðina, að elítum sambandsins stafi ekki hætta frá því. En nú hefur hið hroðalega gerst einu sinni enn. ESB-land segir nei. Belgía vill ekki fríverslun við Kanada. Belgía vill ekki gera eins og til er ætlast. Hún segir nei. Og henni var lofað að segði hún nei, þá myndi það þýða nei og ESB-lestin stoppa. Því var lofað þegar Belgía og öll önnur lönd sambandsins gengu í það. Að nei þýddi nei
Hvað gerir ESB-Kreml þá. Jú boðar til neyðarfundar klukkan átján! Ha ha ha ha ha. Byssukjaftaverk sambandsins mæla sér mót við geislavirka rest af lýðræði. Skothríðin verður látin dynja á litlu Belgíu þar til hún gefst upp. Hótanir og aftur hótanir verða notaðar
Af hverju má Belgía ekki gera sína samninga eins og hún vill. Eða láta vera að gera þá samninga sem hún vill ekki? Jú vegna þess að hún er orðin niðursett hersetin Prag í víti Evrópusambandsins. En hér heima segja íslenskir ESBhólistar að þetta sé svona vegna þess hve fullveldi Belgíu hafi aukist svo hroðalega við að ganga með handjárn og hækjur Evrópusambandsins um heilabúgarða Fábjániztan
Þegar Danir sögðu nei við Maastricht þá átti það að stoppa. En það stoppaði ekki. Heimtað var bara að kosið yrði aftur. Hið sama gerðist á Írlandi. ESB lestin átti líka að stoppa ef að þjóðþing landanna toguðu í "neyðarhemilinn", sem fékk hið súrrealistíska og fjálglega nafn: nærhedsprincipp. Í þá bremsu hafa þjóðþingin í sambandinu togað að minnsta kosti 120 sinnum, en ekkert gerist. Ekkert. Lestin rúllar bara áfram með löndin til sovétríkjanna. Sambandið er orðið algerlega notbremsenresistent eins og Hitler. Af hverju ekki bara kveikja í helvítis þinghúsbyggingunum strax!
Næsta skref verður að hóta lofa Belgíu aðeins hreinni stalínisma ef hún drepur lýðræðið svo dautt að það leki aldrei út aftur
Krækja: ESB getur ekki gert samninga
Fyrri færsla
Brotið tekjublað í sögu Viðreisnar komið út á leiðaraformi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 21. október 2016
Brotið tekjublað í sögu Viðreisnar komið út á leiðaraformi
Yoram Hazony og George Weigel í Jórsölum í fyrra: Framtíð Vesturlanda. Öskrað er frjálslyndi. Frelsis til að gera hvað?
Leiðari Morgunblaðsins fjallar um "frjálsa verslun" Viðreisnar með hlutabréf í dag. Hér er hins vegar afleiðarinn:
Það er ekki undarlegt að hin nýja stjórnmálahreyfing Viðreisn skuli hafa séð sig knúna til að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn fyrir fullt og allt, til að geta loksins orðið það sem þeir auglýsa sjálfir í dagblöðum sem verandi "frjálslyndir". Líklega eru þetta náttúrleg örlög þeirra sem urðu algerlega frjálslyndir af að misskilja heilar Tvær ritgerðir um ríkisvald eins og Locke höfundurinn gerði líka svo hroðalega sjálfur
Formaður Viðreisnar er því orðinn algerlega frjáls. Frjáls frá skyldum. Pólitískt frjáls frá fjölskyldu, foreldrum og umfram allt eins og svo margir aðrir eru í dag; frjáls frá gamlingjanum honum Móses og mannasáttmála hans við einn Guð: sem eru eitt-tvö-þrjú-fjögur-fimm-sex-sjö-átta-níu-tíu fyrirmælin, eða lágmarkssáttmálann, sem engin ríkisstjórn nokkurs staðar er kenna vill sig við Vesturlönd, er æðri, hvað svo sem þeim ríkisstjórnum sjálfum kann að þykja í oft svo ömurlegum lagasetningum sínum. Oftast á þingi, nema náttúrlega í ESB sem er ný gömul hugmyndauppskrift til einræðs
Já, Móses-sáttmálann sjálfan sem auðvitað anti-imperial Mótmælendahreyfing Þjóðkirkju okkar uppgötvaði og tók til sín eftir endalausan hroða esblegra imperial heimsvelda Egyptalands, Assýríu, Babýlon, Persíu, Rómar og sem veitti enduruppgötvun sinni brautargöngu til okkar hér og nú sem þjóðríkjum Vesturlanda, að hætti fyrirmyndarþjóðríkis Davíðs konungs, sem fjallað er ítarlega um í Hinum heilögu ritningum, sem jafnvel Patton sagðist lesa í "hvern einasta helvítis dag". Engin önnur bók mun nokkru sinni koma út í stað Ritninganna
Vesturlönd eiga líf sitt þessari bók að þakka, en ekki frjálsri verslun með bæði litlum og stórum bókstaf, og heldur ekki tekjublaði né vísbendingum um hvað sem er annað. Stóra bókin gaf okkur skiptingu ríkisvalds, hógvært ríkisvald, landamærin, þjóðríkið og þau sannindi að frelsinu fylgir ábyrgð og skyldur. Hún gaf okkur metnað, samkeppni, göfuglyndi og þjóð, ættjörð og þjóðarstolt, svo fátt eitt sé nefnt og einnig heilan Sjálfstæðisflokk, en ekki hálfan
Bókin heilaga hataði imperial heimsveldi og bannaði að stjórnmál yrðu að alþjóðavæðingu undir neinum merkjum, eins og til dæmis alþjóðavæðingu morða og úthreinsana á stóriðnaðarskala sem síðast fóru fram í allri Evrópu til Rússlands niður í Norður-Afríku og til Shanghai, en á öllum þessum glóbal stöðum var Gyðingum samkvæmt regluverki þýska imperial heimsveldisins, varpað í fangabúðir svo hægt væri að flytja þá þaðan til útrýmingar. Svona heimsveldi bannar bókin stóra algerlega. Hún harðbannar því einnig allt Evrópusambandið, þó svo að það sé enn sem komið er ekki orðið eins ömurlegt, en það mun það verða, eins og öll slík fyrirbæri verða
Forstjóri Viðreisnar hefur um langan tíma æft sig í útgáfu á nafngreindum skattatekjum landsmanna og grætt á þeim mikið fé. En aldrei þessu vant þá neitar hann nú að gefa upp hvar, hversvegna og hve mikið hann varð einmitt svona algerlega frjálslyndur. Ekki varð hann það í Sjálfstæðisflokknum, svo mikið er víst, því annars hefði hann ekki neyðst til að yfirgefa þann flokk minn og manna til að geta orðið svona algerlega frjálslyndur ESB-stalínisti
Algerlega frjáls viðskipti Viðreisnar eru þess eðlis að Viðreisnarmenn þurftu auðvitað að fórna foreldrum sínum til að geta stundað þau, svo frjáls er Viðreisn. Þetta algera frelsi var bara alls ekki hægt að stunda í Sjálfstæðisflokknum. Segja þurfti því bless við foreldrana. Fórna þeim og fara burt, því að við Sjálfstæðismenn vorum, erum og verðum ávallt svo íhaldssamir og algerelga ófrjálslyndir að við tímum ekki að fórna sjálfstæði þjóðríkis Íslendinga í þágu Benedikts, Þorsteins og Þorgerðar
Hve lengi mun þetta fólk lifa af svona frjálslynt? Seríurit formanns Viðreinar, Vísbending, varð mér eitt sinn svo mikið og gott efni að ég gat notað það í grein: Áhlaupið á íslensku krónuna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 20. október 2016
Sundrung þjóða
Þjóð sem þarf tíu stjórnmálaflokka í herlausu landi er illa stödd. Hún hættir lífi sínu til óþurftar. En það eru stjórnmálamenn sem eru að sundra þjóðinni. Það er ekki þjóðin sem hefur sundrað stjórnmálunum
Og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að stjórnmálamenn hafa sundrað þjóð með því að selja henni falskan pólitískan varning. Í okkar tilfelli; ábyrgðarlitlir vegna þrúgandi velmegunar sem sameinuð íslensk þjóð um þjóðríki sitt skaffaði þeim
Gengis Kahn klíka hins yfirríkislega alþjóðaisma er á ný að reyna að læsa klóm sínum í stjórnmál þjóða. Hún boðar tortímingu hornsteina Vesturlanda, eins og sósíalistar kommúnisma og nasisma gerðu einnig. Hið sama gera ESBistar í dag
Sumir stjórnmálaflokkar samrýmast ekki framhaldslífi þjóða. Þeir binda enda á líf þjóða því að þeir boða upplausn þjóða og endurkomu alþjóðlegs og yfirríkislegs alræðis, sem ávallt endar sem skrílræði. Píratar eru til dæmis slíkt alþjóðlegt svart afl. Þeir eru endastöð en ekki upphaf. Segja má svipað um fleiri nýjustu tíma flokka
Kjósendur verða að gera sér grein fyrir því að allt er ekki gott í veröldinni. Sumt er vont, eins og sést. Og sumt hefur alltaf verið vont, og verður ávallt vont - fyrir þjóðir og þjóðríki þeirra
Fyrri færsla
Það hitnar: og volgnar nú Þrakía á ný
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 19. október 2016
Það hitnar: og volgnar nú Þrakía á ný
Það hitnar
Einkafjölmenningarvinur Þýskalands, Erdogan forseti næstum alls Tyrklands og hins þriggja milljón manna tyrkneska minnihluta einmitt Þýskalands, hélt mikla ræðu í háskóla einum í Tyrklandi um helgina. Hann sagði að Þrakía tilheyrði svo gott sem Tyrklandi, en ekki Grikklandi. Svo fór hann sömu orðum yfir til Kírm og Kýpur og upp Balkanskagann. Ekki er skrítið að Grikkir neiti að skera niður herinn sinn að kröfu Þýskalands, sem Bandaríkjaforseti sagði í gær við ítalska forsætisráðherrann, að væri sjálf orsökin fyrir stjórnmálaástandinu á Ítalíu. Hvað skyldi frú uppstoppuð Merkel segja við þessu á safni sínu
Og það hitnar
Um 96 prósent af íbúum Anbar héraðs (Sunni meirihluti) og 55 prósent íbúa Mosúl (Sunni meirihluti), þ.e. flestir þeir sem búa á landsvæðum sem Mosúl er helsta borgin fyrir, sögðu á sínum tíma, árið 2005, nei við þeirri nýju stjórnarskrá Íraks sem nú hefur sent herafla sinn til að frelsa þá ekki frá en með því sem þeir vildu ekki samþykkja. Ekki er nándar nærri allt sem sýnist, frekar en fyrri daginn
og hitnar
Það styttist óðum í allsherjar upplausn og enduruppstillingu á því sem varð niðurstaðan úr bæði fyrri og síðari heimsstyrjöldinni - og kalda stríðinu. Mikil og ófriðsamleg ný uppstilling á útskaganum Evrópu, sem er minnsta heimsálfa veraldar út úr meginlandi Evrasíu, er fyrirstandandi, ásamt mestum hluta Austurhvels jarðar. Þeir sem fastir eru í heiminum sem varð til úr síðustu þremur stóru stríðum, munu eiga erfitt með að fóta sig héðan af. Hollt er að muna að Rússland er meginland útkjálkans Evrópu
Fyrri færsla
Andófsmenn fá enn gamla pakka Stalínistanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 18. október 2016
Andófsmenn fá enn gamla pakka Stalínistanna
Þegar sovéskum andófsmönnum tókst að flýja meint sæluríki vinstrimanna á Íslandi, þá var þeim af vinstrinu alltaf tekið sem svikurum hér á landi og víðast í Evrópu. Sérstaklega þegar andófsmennirnir sögðu frá raunveruleikanum í bákni kommúnismans. Þá fengu þeir það óþvegið frá sanntrúuðum vinstrimönnum og málgoggum þeirra
Í dag er þetta svipað. Þegar sagt er frá raunveruleikanum í hinu nýja sæluríki vinstrimanna, löndum Evrópusambandsins, þá eru viðbrögðin nær undantekningarlaust þau, að höfðinu er stungið í sandinn, steypu sprautað í eyrun og afturendinn látinn moka skít yfir staðreyndir. Til dæmis þær að tilvist Evrópusambandsins hefur hvorki skilað hagsæld, öryggi né friði til þeirra sem búa við það - til þeirra sem búa við samband sem enginn bað um nema elíta, alveg eins og var í sovét1 - og að Evrusvæðið er hvorki meira né minna en versta efnahagssvæði veraldar
Oft er bara hringt í böðulinn -eða nokkrir dálkar af fátækum stálevru sannleika klipptir út úr Brusselblaði- og hann látinn gefa út nýtt fæðingarvottorð fyrir líkin, svo þau geti talað það sem þarf til að viðhalda trúnni á sæluna út við sokkið sólarlag sambandsins. Aldrei er komið með annað en skít undan skáldanöglum króníska vinstrisins. Ekkert varðar þeim um það sem er að gerast, frekar en á fyrri öld fangabúða vinstrimanna og gluggatjalda hókus pókuss. Aular
Fyrri færsla
Frétt: Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl - er það?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. október 2016
Frétt: Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl - er það?
Er þetta raunhæft? Það leyfi ég mér að efast um
Mosúl er milljón manna borg. IS hefur haft tvö ár til að byggja vígi sitt í borginni. Þeir hafa haldið borginni í tvö ár. Nefna má að til dæmis Bandaríkjaher hefur aldrei náð svo stórri borg á sitt vald með því að berjast frá götu til götu, sem er eina leiðin ef ekki á að gera borgina að þeirri rúst sem einmitt byggir varnir óvinarins enn sterkari og torveldar alla sókn að honum. Rauði herinn missti 300 þúsund manns þegar hann fór inn í Berlín. Mannfallið gæti orðið stjarnfræðilegt og hér er að mínu mati einungis um áróður að ræða. Enginn her mun voga sér þarna inn
Þriðja eldaflaugaárásin á einni viku var á föstudaginn gerð á skip bandaríska flotans á alþjóðlegri siglingarleið í Rauðahafi. Um það bil 10 prósent af öllum siglingum á heimshöfunum fer um þetta svæði. Lokist það þá þarf að sigla suður fyrir Gróðrarvonarhöfða, sem oft tekur tvær vikur. Allt er reynt til að inndraga Bandaríkin enn frekar í fjölmenningarstyrjöld Mið-Austurlanda, sem legið hefur og marrað og úlmað síðan að kalífat Ottómanska heimsveldisins gaf upp öndina 1919
Hefur einhver tekið eftir því hversu hin efnahagslegu bönd Tyrklands og Þýskalands eru orðin svakaleg. Hvað segir ESB-Evrópa við því?, fyrst að ESB var stofnað til að allir gætu aukið friðinn með því að vera með nefið niðri í öllum pottum allra annarra ríkja samsteypunnar, nema auðvitað Þýskalands og Frakklands. Svo tryllast ESB-menn þegar Pólverjar hætta við 50 Airbus vesalingaþyrlur og ætla í staðinn að gæta hagsmuna sinna með því að smíða þær sjálfir í þeim Black Hawk verksmiðjum sem Sikorsky Lockheed Martin er með í Póllandi. Frakklandsforseti hótar því Pólverjum með "pólitískum afleiðingum". Ætlar hann kannski að siga Rússum á Pólverja? Mikið gengur þetta allt vel og fallega fyrir sig þarna í afglapasæluríki ESB-beljunnar
Ekki veit ég enn hvernig mér líst á fyrirætlanir franskra yfirvalda að gera borgara landsins að vopnuðum varð- og eftirlitsmönnum vegna hryðjuverka íslamista í landinu. Var þetta tilgangurinn með frönsku byltingunni? - að láta borgarana um að hafa eftirlit með borgunum? eða er hugmyndin austurþýsk að uppruna. En kannski er ég bara svona vitlaus að sjá ekki glæsileikann í þessari skelfilegu vanþróun niður á lægsta plan. En allt ber að sama brunni á meginlandi Evrópu: sagan er að endurtaka sig þar í nýrri mynd. Einskis góðs er þaðan að vænta
Fyrri færsla
Af hverju vilja píratar útrýma Sameinuðu þjóðunum ?
![]() |
Reynt til þrautar að endurheimta Mosúl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 16. október 2016
Af hverju vilja píratar útrýma Sameinuðu þjóðunum ?
SUNNUDAGUR
Að sameinast um - er ekki sameining
Birgitta Jónsdóttir hafði skuggalegan áhuga á Sameinuðu þjóðunum. Ekki veit ég á hverju hún og flokkur hennar hafði áhuga þar, nema þá helst tortímingu þjóðanna sem eru í samtökunum. Þessa dagana er enn einn Íslendingur úr alþjóðaelítuhreyfingu pírata staddur þar á framfærslu íslenskra skattgreiðenda
Eins og aljóðavæðing viðskipta- og fjármála vill og krefst í dag, þá krefst alþjóðavæðing stjórnmála einnig þess að þjóðríki þjóðanna séu þrædd upp á lyklakippur hinna alþjóðlegu elíta, til að láta þau vinna í þeirra þágu. Þessar elítur ætla ekki að vinna fyrir þjóðríkin né þjóðir þeirra, heldur krefjast þær að þjóðríkin vinni fyrir þær. Séu þrælar þeirra. Elítur þessar tala eigið tungumál og eiga lítið sameiginlegt með litla manninum sem talar íslensku sína í næsta hverfi eða næsta bæ. Þær eiga meira sameignlegt með elítum í öðrum löndum, jafnvel hinumegin á hnettinum, og þær nota sömu brandarana um þá sem tala ekki tungumál þeirra
Þetta er illilega þveröfugt við allt gott sem unnist hefur síðan að breska iðnbyltingin réði niðurlögum furstaklíkudæma elítuvelda hins vestræna heims. Og það var einnig það sem hin nýja alþjóðavæðingin átti upphaflega að gera, hún átti að vinna fyrir þjóðríkin, en þau ekki fyrir hana. Þjóðríkin og þjóðir þeirra áttu ekki að vinna fyrir alþjóðavæðinguna. En hin alþjóðlegu og ríkisfangslausu elítuveldi viðskipta- og stjórnmála hafa því miður tekið alþjóðavæðinguna yfir og sú fjandsamlega yfirtaka hefur staðið yfir síðan 1989, eða í tæplega 30 ár. Og sömuleiðis voru það einnig alþjóðastjórnmálin sem áttu að vinna fyrir þjóðríkin en ekki öfugt. Þjóðirnar áttu ekki að þræla fyrir alþjóða stjórnmála elíturnar, né hvað þá heldur fyrir hinar alþjóðlegu elítur viðskipta og fjármála
Breska iðnbyltingin vann fyrir þjóðríkin og þjóðirnar, en ekki öfugt. En alþjóðavæðing viðskipta, fjármála og stjórnmála er hins vegar að reyna að eyðileggja þjóðríkin og þjóðir þeirra í þeim tilgangi að gera þau að þrælum hinna nýju furstaklíkudæma elítuvelda nýjustu tíma. Færa þjóðríkin inn í furstadæmin sín og einangra þjóðir þeirra frá hinni nýju alþjóðlegu yfirstétt elíta, sem er að yfirtaka stjórnmál þjóðanna og gera sjálft hugtakið þjóð dirty
Fyrsta grein stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem undirritaður var 26. júní 1945 í San Fransisco í Bandaríkjum Norður-Ameríku, er sjálfur hinn tilvistarlegi hornsteinn Sameinuðu þjóðanna. Íslendingar fengu aðild að Sameinuðu þjóðunum þann 19. nóvember 1946. Í þessari allra fyrstu grein stofnsáttmálans stendur:
"Markmið hinna sameinuðu þjóða er að efla vinsamlega sambúð þjóða á milli, er byggð sé á virðingu fyrir grundvallaratriði jafnréttis og sjálfsákvörðunarréttar, og gera aðrar hæfilegar ráðstafanir til að styrkja alheimsfrið"
Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna gengur sem sagt ekki út á að útrýma þjóðum og leggja landamæri þeirra niður, heldur að elfa sjálfsákvörðunarrétt og öryggi þjóða. Og þjóðir geta einungis í öryggi þrifist vel í þjóðríkjum sínum. Landamæri eru frumforsendur þjóðríkja þjóðanna, tilvistar þeirra og öryggis. Landamærin og þjóðríkið eru pólitísk hönnun úr hinum Heilögu ritningum, sem jafnframt eru hinn tilvistarlegi hornsteinn Vesturlanda
Landamæri stuðla meðal annars að því að koma í veg fyrir að reynt sé að þenja ríki út og éta önnur ríki. Að halda ríkjum innan landamæra sinna. Hinn 3500 ára lærdómur hinna Heilögu ritninga er sá, að enginn má nokkru sinni komast í þá aðstöðu að drottna yfir heiminum. Þetta var vitað þegar Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar í rústum ríkis sem braut niður landamæri, þandi sig út og gleypti önnur ríki og reyndi að gleypa allan hinn siðmenntaða heim. Bæði nasismi og kommúnismi eru alþjóðlegar stjórnmálahreyfingar stjórnmálaelíta sem ávallt hafa ætlað sér að þræða þjóðir og þjóðríki þeirra upp á lyklakippu sína - til að drottna yfir þeim
Píratar hafa á stefnuskrá sinni að eyðileggja þann merka áfanga sem náðist með því að gefa þjóðum sjálfstæði, sjálfsákvörðunarrétt og fullveldi í eigin málum svo að þær geti með öðrum þjóðum stuðlað að betra lífi fyrir þjóðirnar
Forsenda þess að Sameinuðu þjóðirnar gátu orðið til er sú, að til séu þjóðir sem standa sameinaðar um eitt að minnsta kosti eitt: Að vera áfram þjóðir. Tilgangurinn var ekki að sameina þjóðirnar. Það er alveg stranglega bannað og það er jafnframt það versta sem hægt er að gera mannkyninu
Píratar eru enn ein kynslóð af kjánum í fjölskyldu síðustu fífla mannkynssögunnar: alþjóðabyltingu kommúnista. Kommúnisminn og nasisminn kröfðust þess að þjóðin og þjóðríkið ynni fyrir kommúnismann og nasismann og yrðu þrælar þeirra. Og auðvitað voru þær hreyfingar alþjóðahreyfingar, eins og píratar eru alþjóðahreyfing kjána sem leggja vilja niður landamæri og útrýma þjóðríkjum þjóða. Þessi slæmu fyrirbæri lykta öll banvænt fyrir allar þjóðir og þjóðríki þeirra. Svo ekki skaltu ganga í neinar þeirra glansandi gildrur
Alls þessa vegna, er Brexit svona ofboðslega mikilvægt og áríðandi. Og þessa vegna er Brexit svona óskaplega mikið og stórt mál. Það getur að mínum dómi orðið að stærstu breytingum sem orðið hafa á Vesturlöndum síðan að breska iðnbyltingin breytti heiminum. Brexit er ekki bara Brexit, það er miklu stærra og dýpra mál en bara útganga Bretlands af elítuveldi Evrópusambandsins. Þetta hefur breska Íhaldsflokknum orðið ljóst þegar sest var niður og dómur kjósenda skoðaður niður í kjöl og einnig í skuggalegum aðdraganda kosninganna, sem tryllti alþjóðaelítuna úr hræðslu og gerði flest málgögn hennar að stikandi ómarktækri hlandfor til eilífðarnóns. Afsakið orðbragðið, en þetta er því miður satt og rétt
Og dómur kjósenda verður tekinn grafalvarlega því að þetta er síðasti séns sem Bretland hefur til að beygja af braut eyðileggingar sem tortímt getur flestu því góða sem vannst með iðnbyltingunni fyrir sérstaklega litla manninn, sem setið hafði fastur og fjötraður í fangageymslum elítuvelda í fimm þúsund ár. Hvorki meira né minna
Við lifum á afar sögulegum tímum, því að árið 2008 breytti heiminum til frambúðar og hvert eitt rangt skref í viðbót getur eyðilagt margt það góða sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í dag. Þetta er síðasti séns sem Bretland hefur innan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars til að framkvæma þær nauðsynlegu breytingar sem verður að gera. Sé hann ekki virtur og vandlega nýttur, þá munu breytingarnar fara fram utan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars: þ.e. annað hvort með byltingu eða borgarastyrjöld
Í komandi kosningum til Alþingis Íslendinga er mikilvægt að hafa þetta efst í huga: að segja nei við því sem er rangt og slæmt fyrir þjóð vora og hið íslenska þjóðríki okkar. Ekki kjósa alþjóðaelítuflokka, hverju nafni sem þeir nefnast - og er Evrópusambandið og aðild að því þar efst á listanum yfir banvænt eitur fyrir þjóðir og þjóðríki okkar
Ég sendi Theresu May forsætisráðherra Bretlands mínar ýtrustu baráttukveðjur í baráttu Íhaldsflokks hennar fyrir því að endir sé bundinn á yfirríkisleg völd ríkisfangslausra elítuvelda í landinu. Ég margtek hatt minn ofan fyrir henni og breska Íhaldsflokknum fyrir Brexit, og ég veit að systurflokkur þeirra hér á Íslandi mun taka við keflinu og sýna okkur 1944 á ný. Því trúi ég og treysti og þess vegna gekk ég í Sjálfstæðisflokkinn um daginn. Fagna ég brottför Viðreisnar úr Sjálfstæðiflokknum. Af því fólki mun líklega aldrei renna. Þú ættir að gera hið sama eða að öðrum kosti ganga til liðs við Framsóknarflokkinn, sem einnig er massíft bolverk gegn elítumusteri Evrópusambandsins. Kjóstu með Íslandi, en ekki á móti því
Fyrri færsla
Fátæktin dafnar og vex í Evrópusambandinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 14. október 2016
Fátæktin dafnar og vex í Evrópusambandinu
Þegar Bretland yfirgefur Evrópusambandið á næstu tveim árum, þá minnkar sambandið um tæplega 20 prósent, fjárhagslega. Einn fimmti hluti fer, en fjórir sitja fastir eftir. Og ESB-báknið losnar þá við um helming af öllu lýðræði og ekkert land verður þá eftir í sambandinu sem hefur hernaðarmátt sambærilegan við þann breska. Næst stærsta ríki sambandsins er að fara úr því. Bless, bless og haldið endilega áfram á leið ykkar niður til fjandans, en sú vegferð ykkar verður algerlega án okkar
Þegar Bretland er farið þá hefur áhuginn á lýðræði sem pólitísku stjórnarfyrirkomulagi minnkað í heild um 60-70 prósent í öllu Evrópusambandinu, og var hann ekki sérlega mikill fyrir. Allt niður í 40 prósent í mörgum ESB-ríkjum. Yfirgnæfandi verður restin af ESB hinu vaxandi einræði sennilega mjög fegin, því að þeir sem eftir sitja trúa flestir mikið á einn "sterkan mann". Og Þýskaland er ennþá í gangi með frumtilraun sína til lýðræðis, og ferst það illa úr hendi, eins og sést á ríkisstjórn landsins, sem ennþá er næstum því bankakerfið að innan og utanþings
Nettó-framlag Bretlands til reksturs Evrópusambandsins var tæplega 15 milljarðar evra á síðasta ári. Bretar borguðu 15 milljarða meira til ESB en þeir fengu þaðan. Til samanburðar þá var nettóframlag Frakklands til sambandsins 7,2 milljarðar evra það árið. Beint fjárhagslegt framlag Bretlands var því tvöfalt stærra en framlag Frakklands. Og það munar um minna. Það munar um tvö Frakkalönd
Núverandi sjö ára fjárlagatímabili Evrópusambandsins lýkur árið 2020. En löngu áður þarf að koma sér saman um rammann fyrir næsta sjö ára fjárlagatímabil. Það verður skrautleg samkunda. En á hverju ári þurfa aðildarríkin og framkvæmdastjórn sambandsins að koma sér fyrir innan þess ramma, sem áratugum saman aldrei hefur fengist samþykktur af endurskoðenda, og semja í kröppum dansi um bókhaldslega falsaða tilvist sína þar. Þeir sem fá mest vilja að sjálfsögðu dansa harðast á bökum annarra. Þeir sem borga mest dansa ekki við neinn. Hvorki Svíþjóð né Finnland hafa nokkru sinni fengið einn grænan eyrir frá ESB. Eru þau farin að þreytast á dansinum og fyrir alvöru byrjuð að tala um brottför. Finnaland kemst hvergi því það er frosið fast í evru sem gerir landið fátækara með hverju árinu sem líður í skrúfstykki evrunnar
Um fátt er að velja fyrir þau 27 ríki sem eftir eru í sambandinu því að 11 af þeim eru gömul Sovétríki og geta ekki borgað. Þá eru vonandi 16 ríki eftir til að borga brúsann. En 5 ríki af þeim 16 eru gjaldþrota, geta ekki borgað og bíða eftir að fá að komast í þjóðargjaldþrot á réttum tíma. ESB-aðildin byggði upp gjaldþrot Grikklands á 30 aðildarárum með fé annarra ríkja og tókst að koma landinu í eina samfellda rjúkandi rúst, sem er heimsmet, fyrir 113 milljarða evra, í ekki neitt! Þá eru heil 11 ríki eftir. En 9 af þeim 11 ríkjum sem þarna eru eftir og sem ekki eru enn gjaldþrota eða orðin að gömlum Sovétríkjum, eru einungis smáríki sem engan veginn geta haldið fimm gjaldþota og ellefu Sovétríkjum uppi. Þá er bara um tvenn stór ríki að ræða sem eftir eru á listanum
Og hvað skyldi nú þeim tveim stórríkjum, sem eftir eru, detta í hug til að leysa fjármögnunarvandann. Banakerfi Þýskalands hristist og skelfur og Frakkland getur ekki mikið lengur nauðgað sér og barið niður franska byltingarandann, sem varðveita átti neista hennar öllu landinu til framtíðar lífsviðurværis, án þess að hún endurtaki sig sjálfkrafa. Atvinnuleysi í Frakklandi er 10 prósent og hefur verið svo í 30 ár. Og Þýskaland hefur bara blásið út og gnæfir nú algerlega yfir því
Það verður fróðlegt að sjá hvaða nýja tröllslega og eyðileggjandi skattheimta verður lögð á þau ríki sem enn yfir höfuð eru sköttunarleg í sambandinu, því ekki mun báknið sætta sig við minna spillingar- og mútufé til sinna umráða
Fyrri færsla
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum ekki einsdæmi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 12. október 2016
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum ekki einsdæmi
Staðan 1968
Í gær horfði ég á aðrar kappræður bandarísku forseta-frambjóðendanna. Fyrirkomulag þeirra var haft í félagsheimilastíl þar sem viðstaddir kjósendur áttu orðið og spurðu framjóðendur spurninga. Á Íslandi virðast félagsheimili landsins vera komin út í kuldann sem blæs yfir landið frá Reykjavík
Heldur ekki núna, get ég tekið undir að Hillary Clinton hafi gengið út úr félagsheimilinu sem sigurvegari. Sigurvegarinn var hin opna umræða og taparinn voru þeir felustaðir sem eru helstu vígstöðvar Reykjavíkurstjórnmála
Þessi kosningabarátta í Bandaríkjunum núna er ekki neitt miðað við kosningabaráttuna 1952 og 1968. Þar var spennan tífalt magnaðri, segja þeir sem þekkja hve best til
Árið 1952 var það þreytan vegna Kóreustyrjaldarinnar, undir fána Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar og svo kommúnistaskelfingin frá Heimsveldi illskunnar í Sovét sem var að gera útaf við sálarró bandarísku þjóðarinnar
Truman neitaði að gefa kost á sér þó svo að honum væri það heimilt. Stevenson og Eisenhower urðu forsetaframjóðendur undir tættum, mögnuðum og eldfimum innanríkis-aðstæðum og McCarthy kynnti undir kötlunum sem voru við það gera útaf við geðheilsu kjósenda, sem vissu vel að Kreml var með njósnara í Bandaríkjunum á sömu kjörum og Bandaríkin höfðu sína njósnara í Kremlarhöll. Kalda stríðið var að skella á, Berlín var að farast og sigur í Kóreu var algerlega undir bandarísku þjóðinni kominn, en hann var samt þoku hulinn inni í óvissri framtíð
Það er ávallt erfitt fyrir lýðræðisþjóðir að hefja varnarstyrjöld, halda hana út og umfram allt að enda þær. Klofningur meðal þjóðarinnar veðrur oft reyndin, en samt ekki alltaf
Árið 1968 var bandaríska þjóðin klofin sem aldrei fyrr. Robert Kennedy frambjóðandi Demókrata var ráðinn af dögum kvöldið sem hann sigraði forkosningarnar í Kaliforníu, aðeins tveimur mánuðum eftir að Marin Luther King var drepinn. Víetnamstríð Demókrata klauf þjóðina í herðar niður og Johnson, eins og Truman, neitaði að gefa kost á sér því hann vissi að hann myndi tapa. Valið stóð á milli hins óvinsæla Nixons og hins óvinsæla Humphrey, sem álitinn var dulbúið framhaldslíf Johnsons
Flokksþing Demókrata í Chicago fór fram undir mótmælum 10 þúsund manna í svo kallaðri "friðarhreyfingu" þar sem bæði lögregla og þjóðvarðlið reyndu að halda hinni lýðræðislegu samkundu Demókrata opinni. Meira en þúsund manns særðust í átökum, lögreglan stormaði kosningaskrifstofur eins framjóðanda flokksins og handtók allt starfsfólk hans
Í þessum kosningum tefldi Nixon framboði sínu fram undir fána "hins þögla meirihluta" og sigraði
Árið 2016 er það exit úr styrjöld sem er eitt helsta þrætueplið, eins og svo oft áður
Flokka baklands-apparöt bæði Demókrata og Repúblikana hafa gefið skít í Donald Trump. Það mun brátt koma í ljós hvort að "hinn þögli meirihluti" sem líkar ekki það sem hann sér í uppgjafarherbúðum beggja flokka, muni leiða Donald Trump til sigurs
Hvort að ný styrjöld sé að skella á í Evrópu og víðar á Austurhveli jarðar, landmassa Evrasíu, get ég ekki vitað, frekar en neinn annar. En of margt bendir til að svo muni verða. Staðan er orðin það eldfim og flókin að ólíklegt er að ennþá sé hægt að bakka út úr henni. Og fjarvera kjarnorkuvopna í stöðunni, eykur líkurnar á hefðbundinni styrjöld til muna. Utanríkisráðherra Þýskalands, vopnaður evru á kústskafti, er því orðinn hræddur
Fyrri færsla
Rauði október fundinn á Íslandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 23
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 1407566
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008