Leita í fréttum mbl.is

Hin heimska þjóð pírata

SUNNUDAGUR

Píratar segja bresku þjóðina heimska, vegna þess að hún kaus ekki eins og píratar vildu að hún kysi. Breska þjóðin ákvað að hlusta á innbyggðar aðvörunarbjöllur sínar í stað þess að hlusta á pírata. Og Bretar hringdu bjöllum sem glumdu "forðum okkur út úr Evrópusambandinu áður en það verður of seint". Eftir 40 ára reynslu af Evrópusambandsaðild ákvað þjóðin að nóg væri komið. Að síðasta skip væri enn sjófært til að forða sér í, áður en sjálfir björgunarbátar þjóðarinnar með lögum yrðu brotnir í spón og frá henni teknir. Bretland er tæplega 20 prósent af Evrópusambandinu, efnahagslega séð. Lýðæðislega séð er landið hins vegar stærsti og rótgrónasti hluti þess lýðræðis sem eftir var í sambandinu

Síðast þegar Bretland vaknaði upp við vondan evrópskan draum, þá hoppaði öll breska þjóðin í þessa sömu gömlu björgunarbáta, þ.e. þjóðríkið sitt, landamærin og sjálfsákvörðunarréttinn, og hringdi öllum bjöllum hjá vinveittum nágranna í vestri og setti dælurnar í gang. Aðstæðurnar voru þær að tvö ný stjórnmálaöfl höfðu því miður nýlega komist til valda á meginlandi Evrópu. Tvö ný og aðlaðandi öfl með snjallar lausnir, héldu of margir þá; a) kommúnismi sósíalista og b) nasismi sósíalista. Þriðja augað á afturenda sömu skepnu opnaðist á Ítalíu og kallaði sig fasisma

Mikil nýsköpun varð þarna í stjórnmálalífi meginlands Evrópu. En svo varð hins vegar ekki raunin í stjórnmálalífi Bretlands, vegna þess að, eins og píratar hafa sagt, Bretar eru svo heimsk þjóð. Of heimskir til að hoppa á glæsivagninn sem brunaði fram á stjórnmálavöllinn á meginlandi Evrópu, bæði þá og núna. Ég vona að heimskir íslenskir kjósendur átti sig á þessum mistökum Breta og kjósi sjálfir samkvæmt hinum nýju píratísku kosningalögmálavísindum um heimsku þjóða. Þessi heimska og þrjóska Breta bjargaði hinum siðmenntaða heimi frá villimennsku á öllum stigum. Innistæða bresku þjóðarinnar í mannkynsögunni fyrir heimsku sína er óendanlega stór af þakklæti. Fólk tárast enn af stolti og sársauka, því þetta kostaði Bretland næstum allt. Enn skal þeim því refsað nú, eins og áður, fyrir útgöngu sína af Evrópulandi samrunans. Fyrir að svíkja einræðið áður en of seint er að forða sér

Þegar svo hið nýja og öfluga stjórnmálafl meginlandsins var fullklætt komið í nýju fötin, þá varð lífið skyndilega enn og miklu erfiðara fyrir hinn almenna réttlausa rússneska keflaða kjósanda, því hann var í einu hendingskasti kvaddur til baráttu við samskonar ófreskju og hann sjálfur bjó við heima, með þeim furðulegu og ótrúlegu rökum, að nú yrði hann að fórna lífinu og bjarga því Rússlandi sem honum árum saman hafði verið innrætt að gersamlega ónýtt væri. Alveg gerónýtt. Nú var það allt í einu hið gamla og góða rússneska þjóðríki, sjálft veldi hins vonda, menning, saga, trú og arfleið sem hann átti að bjarga. Allt saman ónýtir hlutir samkvæmt byltingarsöng kommúnisma sósíalista. Honum var standandi skipað að bjarga því sem honum hafði verið sagt að algerlega óendanlega úrelt og ónýtt stjórnarfar væri, því að alþjóða, já alþjóðabylting kommúnista, væri framtíðin fyrir hann sjálfan og þar með undantekningarlaust fyrir alla aðra al þjóð. Hófst þar með barátta bandalags fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja við heimsveldi nasismans. Bandalag þjóðríkja sigraði þá baráttu því ekkert annað afl getur ráðið niðurlögum heimsvelda. Þjóðfrelsið og þjóðríkin tóku musteri samrunans bókstaflega í nefið

Valkostum hins óbreytta rússneska manns var þarna af einræði alþjóðabyltingarinnar stillt fram sem þessum; þú peð, þú getur valið á milli þess að verða skotinn fyrir að neita að bjarga því sem ónýtt er, eða verða skotinn af óvinum okkar sem var samrunavinur minn í síðustu viku. Veldu nú, þú keflaða kartöflubónda peð. Svo var alþjóðabyltingaráróðri kommúnista sósíalismans stungið niður í skúffu og skrúfað upp var upp á hæsta glym í gömlum þjóðsöngvum hins ónýta auðvalds um gjörvöll hátalarakerfi þrælaveldis sósíalismans. Hinn evrópski draumur varð svo hroðaleg martröð að ekkert gat stöðvað hana nema bandalag sjálfstæðra þjóðríkja. Stalín henti alþjóðabyltingu kommúnismans út um gluggann og höfðaði til þjóðerniskenndar Rússa. Alþjóðabylting kommúnista krafðist dauða þjóðríkjanna eins og Evrópusambandið og píratar gera í dag. Það eina sem gat ráðið niðurlögum hins alþjóðlega og yfirríkislega nasisma, var bandalag fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja. Þetta var vitað því það stendur í hinum Heilögu ritningum, sem eru hornsteinn Vesturlanda. Til þeirra var því leitað eins og ávallt á hættustund og síðast í hinu Kalda stríði

Þegar selja á almúganum vonlausa svarta framtíð þá er ávallt sminkað yfir hana með "alþjóða-alþjóða" hugtakinu. Al þjóða = al þýða = al ræði, úr kynjafræðum sósíalismans. Þess vegna verður stjórnmálahreyfing pírata auðvitað einnig að vera alþjóðlega alþjóðleg alþýða - en það merkir í raun það sama og algerlega-alræðisleg, þ.e.a.s. alþjólega-alræðisleg, þar sem einn ræður á endanum yfir öllum, eins þegar sést á blóðugum gluggum grasrótar gasklefa pírata. Sama Lenín brunalyktin með skegg og gleraugu leggur frá henni. Svik, útboranir, úthreinsanir, baktjaldamakk, alræði, algrím, kosningaforritun og hið venjulega stuff hins alþjóða alþjóðlega vinstris, eins og sést best á sósíalistaflokki pírata og vinstri grænna. Lýðræðið fótum troðið við hverja einustu snertingu við það. Hvert einasta tækifæri notað til að bylta en ekki þjóna. Kollvarpa en ekki uppfylla. Kosningar sviknar, samviska höfð að engu, stjórnarskrá fótum troðin og alþjóðlega alþjóðlegt vald ávallt tekið fram yfir hið þjóðbernska afl, sem byggði land okkar upp frá grunni. Þjóðaraflið sem byggði upp þann stökkpall sem ESB-vinstrið notar síðan til að kollvarpa honum frá

Hið alþjóðlega-vinstri tók ástfóstri við Evrópusambandið þegar sambandið með Maastricht-sáttmálanum varð sjálfstætt ríki sem fékk yfirríkislegt (e. supra national) vald yfir öllum löndum sambandsins árið 1992. Þetta Evrópusamband er þó ekki orðið fullvalda enn, en verið er að dæla fullveldinu úr aðildarríkjunum og yfir í sambandið með lögum og ógnum, því það getur bara verið á einum stað í einu: annaðhvort hjá mér og þér þ.e. kjósendum, eða hjá yfirríkinu, án umboðs. Áður hafði vinstrið lítinn áhuga á valdalitlum ístruklúbbi áttavilltra íhaldsmanna hins gamla Efnahagsbandalags Evrópu (e. EEC). En alræðisblossinn sem kom frá stofnun Evrópusambandsins árið 1992 sem nýs yfirríkis yfir aðildarríkjunum, tendraði lostann hjá vinstrinu og stjórnborð þess svissaði sjálfkrafa yfir á blikkandi Code Red; því hvílíkir möguleikar voru ekki þarna komnir til að drottna og eyðileggja það sem þeir flestir, en þó ekki allir, ávallt hötuðu mest; þjóðríki Vesturlanda sem grunnstofnalegan uppruna sinn eiga í hinum Heilögu ritningum, þar sem útgangan (Exodus) af Egyptalandi markar upphaf Vesturlanda: uppreisnin mikla gegn imperial heimsveldi sem var þrælaríki, og sem Evrópusambandið er því auðvitað einnig að verða. Þar þræla kjósendur fyrir elítur sem enginn bað um. Sú staðreynd fær til dæmis rótgróin verkalýðsfélög vinstrisins til að hendast sem pendúll á milli enginn-ostur og pong engin-pylsa músagildrunnar, og sarga þar áttavillt af sér höfuðið sem fellur niður í fötur ESB á færibandi. Nema í Noregi, því þar heimtar verkalýðshreyfingin að klippt verði á alla beina viðkomu þjóðríkis Norðmanna við alræði ESB og að EES samningnum verði því sagt upp

Hinir íslensku ESB-feluflokkar geta ekki bakkað út af þeim villigötum sem þeir eru á, né heldur út úr þeim umboðssvikum sem kjósendur voru og eru viðstöðulaust beittir, því þá fellur gríman og þeir standa opinberlega rúnir siðferði og álits gagnvart öllum. Þetta er í hnotskurn sú staða sem sjálf Evrópa er höfnuð í fyrir tilstilli margra áratuga umboðsleysis Evrópusambandsins, en þar er hins vegar stjarnfræðilega stærri pólitísk summa í húfi. Bakki sambandið út úr sjálfu sér og viðurkenni þannig misgjörðir sínar, þá verða afleiðingarnar án efa borgarastyrjöld, því reiðin í borgrunum er orðin svo djúp og rótgróin og þeir vita að sjálfsögðu mætavel, að allt klambrið mun þá hrynja yfir þá, en ekki yfir elítur sambandsins, sem þá verður still upp við veggi. Flestir vita hvað gerst getur við þannig aðstæður. Bakki Evrópusambandið hins vegar ekki út úr sjálfu sér, þá verða afleiðingarnar í fyrstu aukið einræði, því ekki er lengur hægt að ráða við stöðuna í Evrópu nema utan ramma hins lýðræðislega stjórnarfars, sem þýðir þungt vaxandi einræðislegt stjórnarfar til viðbótar við það sem þegar er, en sem síðan, vegna pólitísks eðlis hinnar vonlausu upphafstöðu ferðalagsins, mun leiða álfuna inn í enn blóðugra uppgjör og langdregnari borgarastyrjöld. Engir góðir kostir eru í hinni vonlausu stöðu sem Evrópusambandið hefur komið álfunni í. Stjórnmálamenn munu því halda áfram að sparka dósinni lengra niður eftir götunni, sem á endanum læsir þá inni í aðeins einum möguleika, þ.e. hinum síðari. Þetta vita og óttast flestir innst inni, en bannað er að tala um það og enn forboðnara er að fara fram á að eitthvað sé gert til að koma í veg fyrir hin óhjákvæmilegu örlög sem bíða meginlands Evrópu

Og eins og þið vitið þá er Ísland algerlega "ónýtt" eins og alltaf áður í sögu vinstrisins, því það er ekki enn komið ofan í vasa þess Evrópusambands sem brennt og skelkað Bretland er að forða sér úr. Þangað skal Ísland inn segja píratar og öll önnur sósíalistísk afkvæmi steypustöðvar sósíalismans á Íslandi: þar eru hinar gömlu járnbentu kommaafsteypur kremlar í Vinstri grænum, hraðsteypan Samfylking með sjálfseyðingarbeltið um sig miðja, öskrandi krónískt ESB og á dulinn pólitískan samkvæmisleik við sósíalistíska pírata. Viðreisn er áttavillta sölugengið á kauphallargólfi misskilinnar frjálsrar verslunar með fullveldið. Hún staðfestir bara vitfirringuna. Allir þessir ESB-flokkar fela skömmustulega hinn geislavirka pólitíska ESB-úrgang í farfarteski sínu, af skömm yfir alræðis-fíkn sinni og hugleysi. Þeir þora ekki að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Þora því ekki. Þeir ætla að blekkja kjósendur áfram inn í rauðan dauðann. Þetta eru óhjákvæmileg sjúkdómseinkenni allra þeirra landa sem fikta við kjarnakljúf fullveldisins í ESB. Þeir skaddast og veikjast. Flokkarnir rotna og falla ofan í kirkjugarða stjórnmála í Evrópusambandinu sem þjóðnýtt hefur öll stjórnmálin á meginlandi Evrópu, einu sinni enn. Þeim er gert skylt að vinna öll í þágu ákveðins málstaðar: Evrópu-samrunans. Þetta er hin erfðafræðilega uppskrift að einræði, eins og síðast. Já, sú sama og síðast, þar sem jafnvel sjálft fólkið var þjóðnýtt í þágu eins málstaðar: kommúnisma og nasima. ESB stendur þó betur að vígi, því það hefur til umráða heilan dómstól og stjórnarskrá sem enginn hefur kosið. Það hafði Hitler ekki því hann var sjálf stjórnarskráin í praxís. En Sovétríkin höfðu svipaða stjórnarskrá og ESB hefur í dag. Þar var það kommúnisminn sem var eini löglegi lífsmátinn sem fólki var heimilt að lifa og deyja samkvæmt. Í Evrópusambandinu er það hins vegar Evrópusamruninn sem er eina löglega lífsfyrirkomulagið. Ekki er því skrítið að Bretar með sína Magna Carta frá 1215 skyldu yfirgefa pólitíska nýsköpun ESB, því Magna Carta fyrirskipaði að jafnvel kóngurinn væri ekki yfir lögin hafinn

En þegar upp er staðið í öllu þessu þá verðum það við, mótmælendur hinnar íslensku Þjóðkirkju og annarra slíkra um öll Vesturlönd, sem mótmælum einir áfram. Vér mótmælum því að ríki hafi neinn spámann nema fyrir sína eigin þjóð. Öll alþjóða alþjóðleg pólitísk samsæri spámanna, hverju nafni sem þau nefnast, gegn hornsteinum Vesturlanda, eru stranglega bönnuð. Alþjóðlegir alþjóða spámenn eru allir sem einn boðberar Egyptalands. Boðberar imperial heimsvelda sem verða að þrælaríkjum og terror. Þannig uppstillingum mótmælum vér áfram að eilífu. Og vér munum ávallt keppast við að vera eftirlitsmaður allra ríkisstjórna og forseta um bindandi skyldur þeirra við upphafssáttmála vora af fjallinu, sem ruddi braut þjóðríkja Vesturlanda og alls ríkidæmis og frelsis þeirra á öllum sviðum, hverjar svo sem þær ríkisstjórnir og forsetar verða, til enda tímans. Varðstaða okkar um hornsteina Vesturlanda, eins og áður, er staðin af gömlum bandamönnum þess Gamla og Nýja, en ekki nýsköpunarsinnum hins gamla Egyptalands í öllum myndum, sem sannarlega var ónýtt eins og sést enn þann dag í dag. Engir bandamenn eru eins máttugir til varna og frjálsir við. Vér einir munum endurreisa Vesturlönd, því það erum við sem erum mótmælendurnir. Við tökum ykkur í nefið

Fyrri færsla

Neyðarfundur boðaður kl. 18 vegna geislavirks lýðræðisleka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar.

Stundum er ekki annað að gera en að
beygja höfuð sitt bljúgur fyrir
staðreyndum lífsins: Píratar eru raunverulega
Drottni sjálfum líkir og þó svo að menn hafi
undir drep reynt að koma þeim inní eldsofninn
þá skulu þeir koma þaðan út alheilir og tvíelleftir.

Best er að vera ekki með neitt múður og viðurkenna
eigin heimsku og yfirburði Pírata.

Í Daníelsbók segir frá draumum Nebúkadnezzar
og ráðning þeirra.

Vissulega mátti sá konungur margt mótlætið
þola þar sem hann át gras sem grasbítur
á völlum búandkarla á sinni tíð.

En hann sá ljósið! Hann sá Pírata þeirra tíma!
Og eins og má lesa í lok 4. kafla Daníelsbókar
þá má reikna með að hann hafi farið að þeim ráðum
að losa sig við syndir sínar með réttlætisverkum
og með "líknsemi við aumingja". (þýðing 1981)
Svo Jón Gnarr var ekki fyrstur í þessu hlaupi
og Píratar áreiðanlega ekki þeir síðustu en þetta
sýnir svo ekki verður um villst að sá þeirra er
kynni að hafa ætlað hluta öryrkja aumingja hafði
ekki annað en satt eitt að mæla og allt var það
hábiblíulegt í alla staði.

Kjósum Pírata!

Húsari. (IP-tala skráð) 23.10.2016 kl. 13:08

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Húsari

Íslenskur stjórnmálamaður sem opinberlega kallar breska þjóð fyrir heimskingja kjósi hún ekki rétt, verður aldrei annað en það sem hann er: íslenskur ESBfíkill og kommúnisti á réttum stað í sósíalistaflokki alræðis.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2016 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband