Leita í fréttum mbl.is

Eru ESB-sinnar aumingjar? Já, oft eru þeir það

Hér hvílir 70 ára tímablið frá 1945 til 2015 e.Kr.

Mynd: Útför síðustu 70 ára fer nú fram

Það er mikil vinna og kostar mikið erfiði að viðhalda fullveldi og sjálfstæði þjóða. Auðveldast er að gefa bæði burt þegar á móti blæs. Láta aðra og ókjörna um þau mál. En mjög erfitt er hins vegar að fá þessa tvo hluti til baka. Mjög erfitt og oft vonlaust. Næstum alltaf vonlaust og krefst oft ofboðslegra hörmunga og fórna

Þeir sem nenna ekki að viðhalda fullveldi og sjálfstæði Íslands, eru oft aumingjar. Það verður að segjast eins og það er. Þannig er það

Tímabilinu frá 1945 til í dag, er nú lokið. Árangurinn af fjölþjóðaveldi fyrirbæra eins og Evrópusambandsins, svo kallaðra "alþjóðasamfélaga" og hámenntaðra teknókrata þannig samsteypa og annarra, er það sem fyrir augum okkar liggur í dag. Árangurinn er heimur í uppbroti. Heimur í upplausn. Þetta er þeirra árangur. Og þeir ætla sér ekki að deila kjörum með þeim sem þeir brugðust. Bara alls ekki. Þeir halda enn að allt sé ókei bara ef bankarnir hanga opnir. Að allt verði ókei bara ef meira fullveldi og sjálfstæði þjóða sé hent fyrir hunda þeirra

Réttast væri að stilla hinum ókjörnu vesalingum sem gerðu þetta upp við vegg. En þannig virkar heimurinn ekki þar sem þeir er héldu réttindum þjóðar sinnar á lofti, ráða ríkjum. Þar eru aumingjarnir umbornir, en kosnir burt. Hvað verður hins vegar á hinum stöðunum, vitum við ekki enn. En ekkert þakklæti mun koma frá þeim fyrir að vera umbornir sem aumingjar. Þannig virkar heimurinn ekki

En þeir verða samt að læra að það er þrotlaus vinna að viðhalda fullveldi og sjálfstæði þjóðar okkar. Þetta er allt sem við höfum. Og þetta er allt sem allir aðrir í heiminum hafa - eða hafa ekki lengur. Sjötíu ára sumarfríinu frá sögunni er hér með lokið. Spennið beltin

Fyrri færsla

Breskt þorskastríð í uppsiglingu?


Breskt þorskastríð í uppsiglingu?

Nú segja Danir við Breta að þeir hafi veitt svo lengi á Bretlandsmiðum að sagan hafi veitt þeim þann rétt til eilífðar. Þetta segja þeir af því að Evrópusambandið er að ganga úr sér og Bretlandið er því að forða sér frá þeim útgangi, sem breytist óðum í atgang

Svo virðist sem sambandið hafi fyrst og fremst verið stofnað sem endurtryggingafélag. Allir segjast nú hafa kröfur á hendur öllum. Nema auðvitað kjósendur í Evrópusambandinu, þeirra kröfur á hendur stjórnmálurum ESB-landa eru ekki teknar gildar. Engan áhuga hafa þeir kjósendur á kosningum til eins konar pólitísks skrípaþings ESB, sem sjálft kallar sig hinu gíslatakandi nafni: "Evrópuþingið". Það eru 52 ríki í Evrópu og rétt rúmur helmingur þeirra er í ESB. Þess vegna heitir þetta þing nefnilega "Evrópuþingið", ekki satt

ECB-seðlabanki Evrópusambandsins, sem einnig kallar sig "Seðlabanka Evrópu", hvorki meira né minna, hefur nú gert öllum það ljóst, eftir fyrirspurn frá þingi þessu, að ekkert land geti hætt á evrunni án þess að borga fyrst upp TARGET2 kröfukerfis skuldir sínar. Þarna fékkst staðfest að hið raunverulega banka- og fjármálabjörgunar-batterí á evrusvæðinu (e. bailout mechanism) er eitthvað sem almenningur í evrulöndum hefur ekki hina minnistu hugmynd um að sé þar að verki hvern einasta dag ársins. Að landið þeirra eigi án vitundar almennings ofboðslegar summur inni hjá löndum sem koma þeim ekki við og geta ekki borgað. Þegar þýskur almenningur loks gerist meðvitaður um þetta mál, er alls ekki útilokað að byltingin heppnist jafnvel eigi síðar en fyrir hádegi, þann sama dag

Evrópusambandið var því samkvæmt þessu stofnað til að allir gætu átt kröfur á hendur öllum. Fyrir þetta fékk sambandið sjálf friðarverðlaun Nóbels. Næsta skrefið er svo að nota heri landanna sem innheimtustofnanir til að innheimta þessar kröfur sem allir eiga á hendur öllum. Þetta var til dæmis reynt á Íslandsmiðum. Við það mun verðlaununum bókstaflega rigna yfir öll lönd sambandsins í einum friðarhvelli

Þetta er ESB. Þetta er það stjórnarfar sem hvetur Dani til dáða í kröfugerð sinni. Allir aðrir eru að gera kröfur á alla aðra, þannig að við munum heldur ekki sleppa þeim möguleika, þó svo að við sjálfir vitum að aldrei aldrei myndum við samþykkja svona nýlendufrat gagnvart okkur sjálfum

Danir hafa nú misst af einu stærsta tækifærinu í lífi lands síns til að verða fullvalda og sjálfstætt ríki: þ.e. með því að flytja alla þjóðina til Grænlandsheiða og lýsa þar yfir sjálfstæði hennar

En það er sem sagt þessi pokkers 60 prósent afli okkar á Bretlandsmiðum, sem við bara getum ekki sleppt. En við ætlum samt ekki að láta 60 prósentur af olíugrunni okkar renna til Bretlands; hold da kjæft mand, dét gør vi sgu ikke!

Þarna eru greinilega að myndast ný og glæsileg tækifæri fyrir Landhelgisgæslu Íslands og það næstum því á heimaslóð, í stað hinna fjarlægu miða Ódysseifs. Við munum að sjálfsögðu aðstoða NATO-félaga okkar gegn NATO-félaga okkar. Kröfur hljóta að koma fram um það. Málstaðurinn en ekki málstafurinn hlýtur þá að gilda. Þess verður krafist

Virðingarfyllst; Kommissar Ímat Úrmat

Vestfalíu hvað?

Fyrri færsla

Tyrkland hefur hér með viðurkennt rætur sínar


Tyrkland hefur hér með viðurkennt rætur sínar

Maður má líklega þakka fyrir að vera ekki laminn í klessu af Vantrúarmönnum, fyrir að segja að með þjóðaratkvæðagreiðslunni í Tyrklandi um helgina, hafi það gerst, sem hlaut að gerast, að fortíð Tyrkja myndi hljóta staðfestingu sem viðurkenndur hlutur í daglegu lífi fólksins sem býr í landinu. Saga og trú forfeðranna fær hér með að setja sig upp í opinberu rými landsins. Herinn er ekki lengur varðmaður stjórnarskrár Tyrklands

Hinn nýi forseti í nýju embætti segist ætla að tryggja það að bæði vesturlensk veraldarhyggja og íslamstrú forfeðranna geti þrifist hlið við hlið á hinu opinbera torgi landsins. Þetta leiðir af sér spurningar um hvers eðlis trú forfeðranna er; er hún hæf til undaneldis?, - og svo hvers eðlis veraldarhyggjutrúin einnig er. Margar ömurlegar trúarkenningar veraldarhyggjunnar fengu sín stóru tækifæri á 20. öld; Marxismi, kommúnismi, nasismi og fasismi. Þau tækifæri urðu ekki beint að penu blómabeði. Það að úthluta hjarta og öndunarfærum íverustað utan líkamans, gekk ekki sérlega vel. Toppstykkið varð að heilastöppu

Þarna eru þá að myndast ný skil á milli Vesturlanda og hins íslamska heims. Skil sem munu ekki standa kjurr í neinum sporum, ef Vesturlönd ætla að halda áfram að afneita uppruna sínum: að rætur ríkja þeirra séu í Kristni og Gyðingdómi. Hornsteinn Vesturlanda er og verður nefnilega alltaf í Jerúsalem

Veraldarhyggjan er komin úr Heilögum ritningum Vesturlanda: þar segir að lögin sem ráði og ríki í landinu skuli koma frá mönnunum. Líklegt er að Erdogan forseti sé ekki sá kúreki sem til þarf, til að halda sér lengi í söðlinum á svo öflugri skepnu Vesturlanda. Honum mun af landsmönnum verða hent af baki eða skepnan skotin undan honum, ríði hann henni ekki fast. Það sem á eftir kemur, vita allir hvað er

Hvað ætla frávita Vesturlönd að gera núna. Stúta sér áfram, eða taka upp hanskann fyrir sjálfum sér, áður en þeim af öðrum verður einfaldlega stútað utan- sem og innafrá. Ætla Vesturlönd að taka upp hanskann sinn eða ekki. Ætla þau að viðurkenna rætur sínar og gæta þeirra (í til dæmis stjórnarskrá). Sérstaklega í ljósi þess að sagan hefur á ný tilkynnt lendingu sína í veruleikanum. Henni var um stund neitað um lendingarleyfi. Það bann er nú liðin tíð. Fríið frá sögunni er búið

Ég hef átt mjög gleðilega Páska og vona að það hafir þú líka

Fyrri færsla

Evrópa er að rifna í sundur, þökk sé Evrópusambandinu


Evrópa er að rifna í sundur, þökk sé Evrópusambandinu

Perspektíf Þýskalands

HEFND LANDAFRÆÐINNAR

Suður-Evrópa er á leið burt frá Norður-Evrópu. Frakkland er eina landið sem er bæði í Suður- og Norður-Evrópu. París er því að falla ofan stórt gat sem myndast hefur við það að miðjan í Frakklandi er horfin vegna þarfa sem ekki er lengur hægt að uppfylla. Þar er bara pólitískt tóm hola ofan í jörðina. Frakkland er að breytast í útstrokað leðurblak Þýskalands

Norður-Evrópa er á leið burt frá Suður-Evrópu vegna þess að hún, með Evrópusambandið í rassvasanum, sökkti Suður-Evrópu

Austur-Evrópa er á leið burt frá Vestur-Evrópu af því að Vestur-Evrópa er á leið burt frá Austur-Evrópu, með því að skilja ekki þarfir hennar. Pólland og Intermarium-löndin þurfa að kljást við bæði Austur-Pútín og Vestur-ekkert. Þau munu rífa sig laus frá leðurblakinu

Í miðjunni er svo þetta Ekkert. Það er Þýskaland, sjálft miðflóttaaflið í Evrópu. Þýskaland er vandamálið sem er að tæta meginland Evrópu í tætlur. Áttavillt, pólitískt farlama og gelt svarthol sem verður að flytja út helming landsframleiðslunnar til að geta lifað af. Það notar Evrópusambandið og hinn innri markað þess sem pólitískt protektorat og sitt eigið Grosswirtschaftsraum Deutschlands, í hugmyndafræðilegum anda Adolfs Hitlers

Sæfara Evrópa, Skandinavía og Bretlandseyjar eru hvorki í ESB né Evrópu, nema að nafninu til. Þau eru sér á báti. Af því að Frakkland er bæði í suðri og norðri, veit það ekki enn með vissu hvort það eigi að vera í bátnum með sæförunum, eða ekki. Frakkland kann vissulega mjög vel á skip, en það getur líka siglt á Miðjarðarhafinu. Það getur norðrið ekki

Evrópa er ekki bara í efnahagslegri kreppu, hún er einnig í pólitískri kreppu sem er að breytast í afgerandi tilvistarkreppu. Allt kreppur sem tilvist Evrópusambandsins hefur skapað. Ófriður ríkir þar nú og hann mun á einn eða annan hátt þróast í styrjöld, innvortis sem útvortis

Kosningar eru það versta sem gerst getur í augum Evrópusambandsins. Sambandið hatar kosningar og myndi banna þær ef það gæti gert einmitt það. Og það styttist í þannig kosningar, þar sem bannað verður að kjósa um neitt sem skiptir máli. Reyndar hefur það nú þegar gerst. Engar kosningar geta því lengur lagfært neitt

Bremsurnar eru búnar og orðnar ónæmar. Engar kosningar í löndum sambandsins skipta lengur máli. Ekkert getur stöðvað upplausn Evrópusambandsins. Enginn þekkir lengur sambandið miðað við hvernig það var árið 2007. Á aðeins tíu árum er það orðið óþekkjanlegt. Og eftir næstu tíu ár verður það ekki lengur til. Það verður þá orðið ekkert. Þannig enda öll sólkerfi á sporbraut um svarthol

Hefnd landafræðinnar verður sæt

-sjá fyrirlestur Roberts D. Kaplan

Fyrri færsla

Stendur Kína í raun fyrir Norður-Kóreu? Trump sendir armöðu af stað


Stendur Kína í raun fyrir Norður-Kóreu? Trump sendir armöðu af stað

"we are sending an armada . . . far more powerful than the aircraft carrier" - Donald J. Trump

Er Kína heimsins stærsta blekking? Er það í raun Kína sem stjórnar Norður-Kóreu?

Fugl, reyndar örn, hvíslaði því að mér að Kína stjórni sennilega Norður-Kóreu og noti ríkisstjórn þess lands sem mola í kaffið sem það ber á borð fyrir gesti, sérstaklega þá bandarísku

Molakaffi Kína virkar svona

a) Þegar Kína var hleypt inn í alþjóða-viðskiptakerfið þá átti það að láta WTO í té skýrslu um ríkisstuðning í hagkerfi sínu. Nú eru liðin 16 ár og skýrslan hefur ekki borist enn

b) Í hvert skipti sem Bandaríkjamenn byrja að sækja að Kína í þessum efnum, þá er eldflaug skotið á loft frá Norður-Kóreu. Næstum alltaf

c) Þetta er reykský sem ætlað er að villa um fyrir þeim sem sækja að Kína vegna ofangreindra viðskipta- og efnahagsmála. Reykskýið segir: gestur minn góði, farðu nú varlega vegna rammskakkra svindlandi efnahagsmála okkar í Kína, því Norður-Kórea er að tryllast og þú þarft á aðstoð okkar í Kína að halda til að ná þeim niður. Molinn dettur út í kaffið og það sykrast. Gesturinn drekkur og finnur ekki með vissu skítabragðið af kaffinu sem malað er úr mold

d) Ef einhver lógík er í þessu máli þá ætti Norður-Kórea að hafa hljótt um sig þegar gesturinn snar-vondi nálgast þessi málefni Kína og með það fyrir augum að þrýsta einnig á kínversk stjórnvöld varðandi nágranna þeirra, Norður-Kóreu. Sem gesturinn er að tryllast yfir. En nei, þá sendir Norðrið bara upp rakettur

Hafa Donald J. Trump og Mattis séð í gegnum þetta? Trump tístir núna að hann sé ekki bara að senda flugmóðurskipið USS Carl Vinson og árásar-grúppu þess á staðinn (e. Carrier Strike Group), heldur heila armöðu af öllu og með því. Heila lúðrasveit

Hvað segið þið um þetta. Er Norður-Kórea proxí-ríki sem Kína notar sem fyrirbyggjandi kaffikorg. Er landið aukabúgrein Kína?

Og ekki nóg með það. Nokkur dagblöð í Japan og Suður-Kóreu segja að Kína sé að flytja 150 þúsund hermenn kíverska alþýðu-hersins í átt til Yalu landamæra-fljótsins. Um er að ræða 16. plús 23. plús 39. plús 40. hergrúppu kínverska plat hersins. En þetta eru samt óstaðfestar fréttir. Nokkur Evrópsk blöð eru með álíka fréttir, en einnig allar óstaðfestar

Fyrri færsla

Af hverju skutu Rússar ekki Tomahawk eldflaugarnar niður? [u]


Af hverju skutu Rússar ekki Tomahawk eldflaugarnar niður? [u]

Heimildarmynd: Lífið um borð í CVN70, USS Carl Vinson, fyrir 20 árum síðan. Takið eftir viðbúnaðinum þegar siglt er í gegnum ófriðarsvæði. Flugmenn látnir bíða klárir í sætum flugvéla á flugdekkinu allan sólarhringinn. Eldflaugaárásir á bandarísk herskip á alþjóðlegum siglingaleiðum eru því sem næst daglegt brauð á fimmta flotasvæðinu núna

*****

Ef marka má það sem sagt er svo víða í fjölmiðlum veraldar, þá ætti það ekki að hafa verið mikið mál fyrir Rússa að skjóta Tomahawk-flaugar Bandaríkjanna niður áður en þær hæfðu skotmarkið í Sýrlandi. Loftvarnar-batterí Rússa á að vera það gott

En hvað var að? Bandaríkin höfðu látið Rússa vita með 60 mínútna fyrirvara hvað væri í þann mund að gerast og hvar. Rússar hefðu getað undirbúið sig og skotið bandarísku flaugarnar niður. Hvers vegna gerðu þeir það ekki, fyrst þetta var svona illa gert af Bandaríkjamönnum að eyðileggja eitt af þessum efnavopnabúrum Assads Sýrlandsforseta og sem Rússar sögðu að væru ekki til

Satt að segja held ég að Rússar hafi verið fegnir, en geti eðli málsins samkvæmt ekki látið fögnuð sinn í ljós. Ég held að þetta hafi komið þeim í opna skjöldu og lamað þá - að þessi efnavopn voru þarna og að kúnninn þeirra, Assad, skyldi hafa farið svona á bak við þá. Ég trúi því frekar en hinu

Rússland hefur gert Bandaríkjunum mikinn greiða með veru sinni í Sýrlandi. Ekki er hægt að halda öðru fram. En hvers vegna eru Rússar þá ekki reiðari en þetta?

En það má ekki gleyma því að engin stórveldi hafa meðhöndlað deilur á eins ábyrgan hátt og Bandaríkin og Rússar. Í Kalda stríðinu voru tilefnin til átaka í þeirri deilu endalaus, en það kom aldrei til þeirra. Engin önnur stórveldi í sögunni hafa meðhöndlað deilur með slíkri ábyrgð og sóma eins og Bandaríkin og Rússland (Sovétríkin) gerðu þá. Það er hins vegar ekki hægt að segja slíkt hið sama um villimennina á meginlandi Evrópu. Þeir hafa aldrei sýnt slíka ábyrgð, eins og nú þegar má sjá á nýjustu hönnun þeirra; þ.e. á tortímingar-myntbandalagi Evrópusambandsins, sem er að rífa meginlandið í tætlur. Það fyrirbæri er ný útgáfa af villimennsku meginlandsins

Uppfært:

Háttsettur opinber bandarískur aðili segir nú að Pentagon trúi því að Rússar hafi vitað fyrirfram um efnavopnaárásina sem drap 70 borgara, segir í nýrri frétt AP-fréttastofunnar. Segir fréttin að Rússar hafi vitað um að þessi efnavopnaárás stæði fyrir dyrum, en engar vísbendingar eru hins vegar um þátttöku Rússa í henni. En Rússar áttu að hafa tekið þátt í að eyðileggja efnavopnabirgðir Sýrlands á árinu 2014. Donald J. Trump og Theresa May töluðu saman í síma í gær og sammæltust um að reyna að tala Rússa á að draga til baka verndarhöndina yfir Assad-ríkisstjórn Sýrlands

Persónulega efast ég þó um að Rússar geri það, því þeir þurfa á útlendum óvinum að halda til að þjappa þjóðinni saman að baki rússneska forsetanum. Rússland er vissulega hernaðarlegt stórveldi, en það hefur einungis heimshluta-áhrifavald. Landið hefur ekki lengur heimsáhrif. Þannig áhrifavald er ekki lengur til heimilis á landmassa Evrópu né heldur Asíu. Eftir fall Sovétríkjanna árið 1991 eru Bandaríkin eina veldið sem hefur heimsáhrif. Þar með lauk 500 ára heimsáhrifum Evrópu. En jafnvel heims-áhrifavald Bandaríkjanna lýtur takmörkunum

Í september árið 2007 eyðilagði flugher Ísraels kjarnorkuvopna samvinnustöðvar Assads forseta og Norður-Kóreu í austanverðu Sýrlandi, með Orchard-aðgerðinni. Sú kjarnorkuvopnasmíðastöð hafði þá verið fimm ár í smíðum. Leyniþjónusta Ísraels fann hana og lofher þeirra lagði stöðina skilvirkt í rúst

En kannski, og bara kannski, verður þetta til þess að Donald J. Trump fái að tala við og hitta Vladimir Pútín án þess að bandaríska pressan og stjórnlaus þunglyndisflokkur Demókrata tapi geðheilsunni, kasti viti sínu fyrir björg og sjálfum sér í harakírí á Rússagrýlukertin. Það er frekar tímafrekt verk að þurfa að senda símanúmerið til samskipta á milli forsetanna með Tomahawk-eldflaugum niður í þriðja land

Fyrri færsla

Mjög slæmur dagur fyrir Rússland í Sýrlandi


Mjög slæmur dagur fyrir Rússland í Sýrlandi

Loftárás bandaríska sjóhersins á herstöð sýrlenska flughersins var óvænt. Hún var gerð á þá herstöð sem sendi efnavopn á almenna borgara. Gera má ráð fyrir að herstöðin sé nú ónýt

Bashar al-Assad forseti Sýrlands er viðskiptavinur Rússlands. Árás hans með efnavopnum á almenna borgara er gagnslaus, frá hernaðarlegu sjónarmiði séð. Efnavopn eru lélegustu vopn sem til eru og geta snúist eins og hendi sé veifað í hönum þeirra sem nota þau

Bashar al-Assad var farinn að reikna með því sem Barack Obama sýndi af sér. Að engar rauðar línur dregnar í sand yrði staðið við. Sýrlandsforsetinn var því hér að færa sig upp á skafið. Hann setti með þessu Rússland í afar slæma klemmu. Hann sýndi heiminum að Rússland hefur ekki lengur stjórn á kúnna sínum. Honum sjálfum

Þessi forseti Sýrlands var í mörg ár viðskiptavinur Norður-Kóreu og hafði með þeim í fimm ár byggt upp kjarnorkuvopnastöð í austanverðu Sýrlandi sem flugher Ísraels lagði skilvirkt í rúst með Orchard-aðgerðinni í september 2007

Tilgangur Assads núna var að reyna að hræða þá íbúa landsins sem setja sig þvers á móti honum með því að kasta á nokkra þeirra efnavopnum. Þessi efnavopnaárás var því fyrst og fremst hugsuð sem hryðjuverk til að valda ótta og skelfingu meðal borgara landsins. Hún á að skelfa og hræða þá íbúa sem Assad veit að hvort sem er aldrei munu dá hann né hylla, hvernig sem allt fer

Flestir bjuggust við að Donald J. Trump myndi ekki bregðast við, þar sem hann hafði í kosningabaráttu sinni sett hagsmuni Bandaríkjanna sjálfra efst á sinn lista, ásamt uppbyggingar- og hvíldarinnlögn fyrir bandaríska herinn, sem háð hefur lengstu baráttu sína undanfarin 15 ár. Og engar línur hafði hann sjálfur dregið í þennan sand

Þarna var þó ekki um neitt annað að velja fyrir Donald J. Trump. Hann varð að gera það sem hann á staðnum gat gert: slá til strax með því sem hendi var næst án þess að um neinar skuldbindingar inn í framtíðina væri að ræða. Gerðu þetta ekki aftur, eru skilaboðin. En því sem hendi lá næst hafði Barack Obama að mestu komið fyrir kattarnef og því, í þessu tilfelli, fækkað möguleikum hins nýja forseta niður í aðeins einn, því aðeins þúsund bandarískir hermen eru á jörðu niðri í Sýrlandi

Þegar litið er upp að verki loknu, má segja að tilviljun hafi þarna gert bandaríska forsetanum vissan greiða. Á öxlum hans hvílir frest á frest uppsöfnuð Norður-Kórea þyngra en á nokkrum öðrum forseta Bandaríkjanna. Það skilgetna skrímsli kommúnista Sovétríkjanna er nú óðum að nálgast tvennt: að geta hæft stórborgir á vesturströnd Bandaríkjanna með kjarnorkuvopnum og að sanna sig sem verandi þeir brjálæðingar sem gera myndu slíkt sér til skemmtunar. Efinn um að staðan í Norður-Kóreu hafi náð einmitt þessu stigi, nagar nú forseta Bandaríkjanna að innan. Hvað á hann að gera?

Donald J. Trump sýndi hér að hann er fær um að taka ákvarðanir. Þungi ákvörðunarinnar féll beint á samningaborð hans og forseta Kína, sem svitnaði þegar borðið fyrir framan hann svignaði undan þunga ofureflis Bandaríkjanna. Sameinuð Kórea undir vernd Bandaríkjanna á tröppum kínverska forsetans myndi flá af honum bæði andlit og orður

Eftir situr Rússland og nagar sig í handarbök vegna viðskiptavinar sem fór illilega yfir á reikningi þess. Sá yfirdráttur mun ekki hjálpa Vladimír Pútín á versnandi heimavelli

Á meðan þetta er að gerast í túnfæti Evrópu, býr Evrópusambandið um sig í líkkistunni í gorkúlus píramída sambandsins í Brussel. En borgarastyrjöldin í Sýrlandi mun þó eftir sem áður halda áfram og ef til vill breiða á næstu árum úr sér til hins borgaralega eldfima ástands sem tilvist Evrópusambandsins hefur svo víða skapað

Fyrri færsla

100 ár síðan Bandaríkin lýstu stríði á hendur Þýska heimsveldinu


100 ár síðan Bandaríkin lýstu stríði á hendur Þýska heimsveldinu

Apollo 11 Saturn V  - Bandaríki Norður Ameríku 16 júlí 1969

Skipið, þrjú þúsund tonn, sem sigldi af stað tæpum 500 árum eftir ferð Kólumbusar frá Gamla heiminum, var 165 milljón hestöfl frá Boeing. Bara Bandaríkjamenn hafa gengið á annarri jörð en okkar. En litli stafræni sexkanturinn í ferðinni var, eins og áður, einna erfiðastur viðfangs: The Navigation Computer (You Tube, 45 mín)

****

Það var þessa dagana fyrir hundrað árum að þá, því sem næst, þriðja heims landið Bandaríki Norður-Ameríku, lýstu stríði á hendur þýska Wilhelmínu II heimsveldinu, þann 6. apríl 1917

Þar með hófust fyrstu fólksflutningarnir og útflutningur valdaáhrifa frá Nýja heiminum yfir í og á Gamla heiminn. Bandaríkin sendu eina milljón manns og meira til að skerast í leikinn. Til að tryggja sér að enginn einn myndi ráða yfir öllu meginlandi Evrópu, sem er næst minnsta álfa heimsins og útkjálki úr Rússlandi. Þeir endurtóku þetta í Síðari heimsstyrjöldinni

Þarna var Evrópa komin inn í 30 ára ferli, sem eftir 500 ára heims-áhrifatímabil álfunnar, stútaði henni fyrir fullt og allt. Hún endaði þann feril sem hernumin rúst. Síðasta veldi Evrópu með heimsáhrif féll svo um sjálft sig árið 1991, er Sovétríkin hættu að vera til. Frá og með þá hefur Evrópa lítið sem ekkert haft að segja á plánetu okkar

Árið 1985 hætti Atlantshafið að skipta Bandaríkin öllu máli því þá jafnaðist út verslun og viðskipti í stuðurum Bandaríkjanna, sem eru eyja; Kyrrahafsviðskiptin náðu því magni og mikilvægi sem flutt voru yfir Atlantshafið. Þarna breyttist heimurinn svakalega. Asía reis, en er nú að mestu hrunin aftur sem mögulegt stórveldi með heimsáhrif. Loftið fór úr Japan 1989 og Kína er þegar komið í sama ferli

Fram undan eru forsetakosningar í Frakklandi. Frakkland er eina landið í Evrópu sem er bæði í Suður- og Norður-Evrópu. Þetta gerir það að verkum að Frakkland verður alltaf í annarri stöðu en öll hin löndin í álfunni. Og þetta gerir stjórnmál landsins öðruvísi en í öllum hinum löndum álfunnar. Það er ekki hægt að para Frakkland saman við neitt annað land í nágrenni þess, því það hefur aðrar þarfir en þau lönd hafa. Allt aðrar þarfir. Og spennan vegna þessa, eykst bara og eykst

En nú má, með ánægju eða óánægju, segja það staðreynd að allur gamli heimurinn sé -vegna innvortis ólæknandi og erfðafræðilega óleysanlegra pólitískra meinsemda- algerlega fallin spýta. Allur hinn stóri landmassi EvrópuAsíu (e. Eurasia) er fallinn sem áhrifa-pólitískar stærðir. Þetta allt er meira og minna að brotna upp í pólitískar frumeindir sem enginn veit hvernig lenda, ef þær þá nokkru sinni lenda, ásamt Mið-Austurlöndum. En hvað hins vegar kemur út úr þeim, Mið-Austurlöndum, verður okkur ekki gott. Þar býr fjórðungur mannkyns í annarlegu ástandi. Og það vita Bandaríkjamenn manna best

Næstu 500 árin verða í nafni þjóðríkis Bandaríkja Norður-Ameríku. Þau eru eina veldið sem nokkru sinni hefur ráðið öllum höfum heimsins

Skál fyrir Bandaríkjum Norður-Ameríku og Nýja heiminum! Ísland er sem betur fer þar, og rísandi en ekki fallandi, vegna einmitt Bandaríkja Norður-Ameríku. Þetta þurfa íslenskir stjórnmálamenn að skilja og kunna. Þetta er Litla gula hænan þeirra og hana eiga þeir skilyrðislaust að kunna, utanbókar

Krækja: Army Chief of Staff Commemorates World War I Centennial (vefur bandaríska varnarmálaráðuneytisins)

Fyrri færsla

Utanríkisráðherrann skaffar íslenskum fyrirtækjum stjörnusjónauka


Utanríkisráðherrann skaffar íslenskum fyrirtækjum stjörnusjónauka

Það er um að gera að reyna að ná til Kínverskra heimila. Flest þeirra lifa á tveimur Bandaríkjadölum á dag. Þetta eru þá heimili um það bil 800 milljón manns sem hafa tvo dali á dag til að lifa á. En bíddu, já það eru heimili 300 milljóna Kínverja sem hafa þrjá dali til að lifa á hvern dag. Þetta munar öllu. En svo eru 200 milljón manns sem hafa meira. Þeir starfa í deildum bandaríska hagkerfisins í Kína, þangað til þeim verður lokað eða þau sett í hafnbann, þar sem hver sjöundi gámur sem fluttur er út frá Kína, fer til Wall Mart í Bandaríkjunum

Það er um að gera að einbeita sér að einkaneyslu í Kína, þar sem hver Kínverji, eins og í Bólivíu, notar 3.500 dali á ári til einkaneyslu, á meðan hver einasti bandaríkjamaður notar 40 þúsund dali til einkaneyslu - á hverju einasta ári

Utanríkisráðherrann gæti skaffað íslenskum fyrirtækjum stjörnusjónauka svo þau geti hafið leit eftir neytendum á landmassa Kína. Svo þau geti þannig kannað heimsveldi fátæktarinnar í Gamla heiminum með sínum eigin augum. En Bólivía krefst hins vegar minni stjörnusjónauka, auðveldara er því að einbeita sér að fátæklingum þess lands, fyrst það er markmið utanríkisráðherrans að einbeita sér að mörkuðum einna fátækustu ríkja veraldar

Hvað með að reyna fyrir sér í sjálfum Bandaríkjunum, herra ráðherra utanríkis? Þau verða ekki sett í hafnbann, því þau ráða heimshöfunum. Ekkert eitt stórveldi mannkynssögunnar hefur áður gert einmitt það. Bandaríkin eru rétt fyrir vestan Ísland. Þau eru nýi heimurinn og verndari okkar

Og svo er það Rússland, herra. Þar áttum við tryggan og dyggan markað fyrir vörur okkar. Hvað með Rússland herra utanríkis? Rússland getur varla beðið, fyrst að lokað verður á öll viðskipti við Evrópusambandið vegna Gíbraltar, sem sambandið hyggst taka og innlima í sjálft sig. Á að láta undan kúgunum ESB? Ætlar Ísland ekki að standa með Bandamönnum* í því máli?

*Bandamenn eru: Bandaríkin, Bretland og Rússland

Fyrri færsla

Krónan notuð sem boxpúði fjármálaráðherra undir vernd Sjálfstæðisflokksins


mbl.is Fjöldi fríverslunarsamninga á næstunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan notuð sem boxpúði fjármálaráðherra undir vernd Sjálfstæðisflokksins

Það er þyngra en hægt er að lýsa hér í nokkrum orðum að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa tekið að sér enn eina nöðruna til að ala upp sér við hjarta stað. Viðreisn er enn eitt útibú Samfylkingarinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn er að ala upp og veita brautargengi sem pólitísku eitri inn í æðakerfi íslenska þjóðríkisins á ný

Embætti forsætisráðherra er til vegna þess að það átti að gefa oft svo ömurlegu ríkisvaldinu persónulegt opinbert æðsta andlit sem talar til þjóðarinnar, þannig að hún sé bara örlítið sannfærð um að hafa ekki verið höfð að fífli

Brjálaður fjármálaráðherra sem notar gjaldmiðil þjóðarinnar sem boxpúða til að kýla upp hverfandi fylgi gegnóheiðarlegs pakka-lygavefs samfylkingarflokks síns, sem heitir Viðreisn, kallar á aðgerðir af hendi forsætisráðherrans

Ef þú bregst ekki við þessum blekkingarvef Viðreisnar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, þá verður það ekki bara ég sem kýs þig ekki næst, heldur kjölfast bakland Sjálfstæðisflokksins, sem er stærra en formaður þess

Þjóðin þolir ekki meira af þessum peningalega óheiðarleika, esb-pakka-pakki og fikti með framkvæmdaarm og gírkassa fullveldis hennar. Vinsamlegast klæddu þig í vinnufötin og gefðu manninum það spark sem hann á skilið fyrir pakka-pakk sitt. Þetta gengur ekki lengur. Þú ert æðsta pólitíska höfuð Lýðveldisins. Þetta má ekki líða. Út með pakkann. Nánar: Áhlaupið á íslensku krónuna

Fyrri færsla

Einu sinni talaði elítan frönsku - eða dönsku


mbl.is Óbreytt ástand „óforsvaranlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband