Leita í fréttum mbl.is

Spáð 20 ára núllvexti. Árið 1937 er afturgengið og menn hafa ekkert lært.

Verandi sjálfur íhaldsmaður, þá er sárast fyrir mig þegar aðrir íhaldsmenn krefjast að fá að berja áttavilltum hausum sínum við steina. Fólk annarra stjórnmálaskoðana gerir þetta líka, en þar er þó varla við öðru að búast og við engan að sakast nema þeirra eigin kjósendur sem eru hvorki ég né mig.

En það er þó öllu verra þegar kommúnistar breytast í póltíska transvestíta og taka það versta úr líksafni íhaldsmanna og gera að sínu eigin. Það hefur nú gerst á Íslandi: við fengum hinn pólitíska umpólunarsturlung Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra, sem var og er líklega enn síðasta endurómaða öskur tröllatímabils stjórnmála Sovétkommúnismans.  

Fyrir helgina kom út í Danmörku spá fyrir danska fasteignamarkaðinn. Hún segir að stöðnun muni ríkja þar á þeim markaði næstu 20 árin. Ekkert mun hækka í verði umfram neitt og salan verður afar erfið. Sem hún reyndar hefur alltaf verið frá árinu 1985, með fáum undantekningum eins og til dæmis þeirri hérna einu, nefnilega, í fjármálabólu evrusvæðisins frá 2004-2008. Með öðrum orðum; danski fasteignamarkaðurinn verður loksins alveg þýskur.

Maður þorir varla að hugsa þá hugsun til enda hvaða afleiðingar þetta muni hafa fyrir hagvöxtinn í þessu norrrænda DDRlight-hagkerfi. Danmörk er samfélag þar sem meira en helmingur þjóðarkökunnar er étinn af hinu opinbera og þar næst kastað upp aftur af hinu opinbera. Uppkastið er alltaf blástimplað sem "samneysla" (Tryggvi Þór), alveg sama hvað mætti koma upp úr súrum sarpi hinna opinberu snillinga. Uppkastið ER bara blástimplað. Þetta uppkast er alveg laust við að þurfa að líða undir því hroðalega heiti að vera kallað einkaneysla - bæði sem orð og hugtak - og sem orðið er að einu versta klámyrði í þjóðnýttum hugum svo margra íbúa meginlands Evrópu. Omg, einkaneysla, ríkið forði okkur frá henni.
 
En óneitanlega léttir þetta tilveru þjóðnýttra þegna því þeir komast sjálfir að mestu hjá allri ákvarðanatöku. Ríkið ræður fyrir þá og tekur ákvarðanir þeirra. Stjórnmálin hafa þar með verið þjóðnýtt, því hver kýs svo undan sér ríkiskassann aftur? Og allir flokkar eru komnir inn á miðju kassans þar sem auðveldast er að detta ofaní hann og klæðast honum sem dópsalar hins opinbera við næstu kosningar. Skattgreiðendur borga þennan fatnað stjórnmálamannanna. Kassafötin og allt opinbera dópið líka.   

En er eitthvað að því að hagvöxtur verði enginn í Danmörku? Nei, ekki ef þú sættir þig við stöðnun, hnignun, niðurslit innviða, úreldingu velmegunar og velferðar (helferðar í þessu tilviki). Kúba komst næstum alveg hjá hagvexti? Þar ríkir ennþá árið 1954. 

Allur hagvöxtur í Danmörku undanfarna marga áratugi hefur alltaf að mestu leyti verið framkallaður af lántökum fasteignaeigenda þegar eignir þeirra hækka í verði. Þegar eignirnar hækka í verði er farið út og lánum breytt þannig að þau nái alveg upp í efri brún skorsteins. Ekki má myndast nein eign. Svo er hárklippingin pöntuð hjá rakara hagkerfisins. Þetta hefur haldið hagkerfinu uppi og er það næsta sem maður kemst kenningu varaþingmanns Samfylkingarinnar sem nú ætlar að klippa alla þá sem rúnir verða inn að skinninu vegna Icesave skulda íslenska ríkisins fram til ársins 2045. Og ástæðan fyrir hinni dapurlegu spá um fasteignamarkað Danmerkur, hver var hún? Jú, einmitt hinn lélegi hahahagvöxtur! Hárið vex sem sagt ekki handa rakra hagkerfisins lengur. 

En hvað gerist þegar hinir stóru árgangar fólks sem hætta á vinnumarkaði á þessu tímabili í Danmörku ætla að selja eignir sínar og flytja úr DDR-light og lifa rauðvínstilverunni á fimm fermetra terrassi í Próvance? Þá mun gamanið nú kárna. Hver á að kaupa húsin af þeim? Þetta er fólkið sem tímdi ekki að eignast börnin, sem fékk flest gratís svo og einnig fasteignaskuldir sínar heflaðar niður fyrir gólffjalirnar í verðbólgunni og skattafrádrætti vaxta frá 1960 til 1985, þegar það var að byggja sér hreiður. Hvað mun þetta fólk segja þegar það fær ekki neitt fyrir ekki neitt í Danmörku? En auðvitað hefur það þegar hugsað fyrir þessu; það leggst bara upp á risavaxið ríkið sem það bjó sjálft til. Hin örfáu og örþreyttu börn þeirra munu auðvitað borga á meðan bakið ekki brestur í skattpíningunni. Sem það mun gera og börnin því kjósa með fótunum.

Icesave er raunar eins konar afleiða þeirra stjórnmála sem áttavilltir íhaldsmenn úti í hinum stóra bólugrafna heimi kalla nú allt í einu fyrir "þensluskapandi niðurskurð" (expansionary austerity). Hagvöxtur fer af stað ef við skerum niður velferð í kreppunni, það virkar svo vel. Ríkið dregur saman seglin. Skrúfar fyrir bensínið á meðan einkageirinn er í áfalli. Hér heima er útgáfa þessara stjórnmála svona: Hagvöxtur fer af stað ef við hlöðum enn meiri skuldum á þegar ofurskuldsett ríkið, þannig að við verðum hreinlega að skera og skera og skera niður velferðina. Ha ha ha ha hah. Ha ha ha ha hah! Og menn halda að þetta virki!  

En því miður þá er stór hluti hins vestræna heims staddur í sömu sporum og hagkerfi ömmu okkar og afa var árið 1937. Menn í dag hafa bara ekkert lært af dýrmætri reynslu þeirra. Þá, í dagrenningu batans, var farið út í massífan niðurskurð því sú hagfræðikenning varð að tískufyrirbæri í seinni hluta kreppunnar miklu. Batinn steindrapst, auðvitað. En þetta er þó enn verra hér heima á Íslandi því hér hafa menn næstum alveg lokað fyrir allt bensínflæði til hreyfla hagkerfisins, jafnvel áður en það kemst í stellingar flugtaks. Þetta mun fara inn í íslensku hagsöguna sem mestu og stærstu hagstjórnarmistök nokkurn tíma. Og mistökin eru þar að auki framkvæmd af hinni svo kölluðu "hreinu vinstristjórn" sem á allt sitt undir því komið að einhvern tíma sé hægt að afsaka og sanna gangsemi hins núverandi risavaxna opinbera geira. Það var því ekki nema eðlilegt að ég spyrði sjálfan mig að því hvort ég væri geðveikur. Þetta er svo súrrealistískt. 

Hér á þessum erfiðu tímum er allt gert nema það sem með nokkru móti og yfir höfuð nokkurn tíma getur réttlætt hina tröllvöxnu stærð ríkisins. Þetta er eins hjá sumum sem eiga Jagúar inni í stofu hjá sér í Danmörku. Þeir sleppa þá við 180 prósent bílatollinn sem heitir skráningargjald, ef þeir nota ekki bílinn. Eða eins og bóndi sem á eina dráttarvél með sláttuvél en sem hann notar eingöngu til að klippa hárið á sjálfum sér - jafnvel þó nauðasköllóttur sé. 
 
Krækjur:
Fyrri færsla
 

Frá hverju ætti að bjarga Portúgal? Sjálfsmorði?

Vaxtakostnaður evrulandsins Portúgals - 10 ára ríkisskuldabréf.
Mynd Bloomberg; Vaxtakostnaður evruríkisins Portúgals síðustu 12 mánuði. Meiri skuldir, lægri lánshæfni, verri vaxtakjör, meri áhætta. 10 ára ríkisbréf pr. 31. mars 2011.
 
Þegar ég las þessa grein á Bloomberg, vísað til hér að neðan, datt mér Icesave ósjálfrátt í hug. Að samþykkja Icesave fjárkröfurnar hér á Íslandi gæti hæglega leitt til greiðsluþrots ríkissjóðs; ríkisgjaldþrots. Þegar og ef það gerist; hvað munu þeir sem nú hræða þjóðina til að samþykkja þessa tröllvöxnu fjármálaáhættu ríkissjóðs okkar segja þá? Hvaða rök myndu þeir færa að samningaborðinu við gjaldþrot ríkissjóðs íslenska lýðveldisins? Að þeir vissu ekki hvað þeir voru að gera? En þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera. Taka áhættu. Mikla áhættu. 
 
It is hard to conclude that the problem was anything other than the currency itself -- and the way it affects countries that aren’t able to stay competitive with Germany. After this bailout, it will be impossible to claim that the euro represents a functioning monetary system with just a couple of rogue members. Its flaws will be impossible to ignore. 

Þannig er það með Portúgal. Engin fjármálabóla, ekkert uppsvíng, ekkert falsað ríkisbókhald og engin byggingabóla. Það eina sem Portúgal gerði af sér var að taka upp evru, samkvæmt læknisráði elítu Evrópusambandsins. En evran drap hagvöxtinn hjá þeim og hefur sú fjarvera hagvaxtar aukið stórkostlega á skuldabyrði landsins. Svo litlir og fáir peningar koma frá atvinnu í ríkissjóð þjóðarinnar því vöxtur hefur verið svo lélegur og atvinnuleysi massíft. Ríkissjóður Portúgals er að verða þurrausinn og landinu er ekki lengur treyst til að taka á sig fleiri lán. Greiðslugeta portúgalska lýðveldisins er að þorna upp vegna evrunnar. Nú þarf því að bjarga Portúgal frá áhrifum evrunnar. Kostnaðurinn við evru Evrópusambandsins hefur reynst landinu því sem næst banvænn. 

Mun samþykkt Icesave fara eins með ríkissjóð Íslands? Verður það þá túlkað sem sjálfsmorð?

Ég stofnaði ekki til skulda Landsbankans. Það gerðu hins vegar þeir sem fengu himinháu launin greidd fyrir það. Ríkisstjórn Íslands er talsmaður þeirra.
 
Ég vel að berjast til síðasta lagabókstafs og til síðasta dropa af sæmd. Ég ætla ekki að kála mér. Ég segi því nei.  
 
 
Fyrri færsla
 

Hvað á maður að segja?


Tryggvi Þór Herbertsson - þingmaður Sjálfstæðisflokksins? 
 
 
 
SIGNOFF
 
 

Icesave: 'Upplýst' afstaða tekin til hins óþekkta. Danmörku vantar fjárfestingar [u]

Upplýst stöðutaka
 
Miðilsfundur með m.a. Tryggva Þór Herbertssyni var haldinn um aldin Icesave peningajurtar Evrópusambandssinna á Íslandi. Fjármálasnillingar Íslands spáðu þar í andaglös úr þrotabúi Landsbankans. Þema fundarins var upplýst stöðutaka. Ekki var komið inn á nein þekkt né óþekkt undirmálslánasöfn. Nein. 
 
 
Torture equipments

Á meðan gerist sá hreint ótrúlegi og algerlega ófyrirsjáanlegi hlutur að 60 af hverjum 100 fyrirtækjum með meira en 100 starfsmenn í Danmörku munu helst eingöngu fjárfesta erlendis og ekki heima í Danmörku í framtíðinni. Útlendingar vilja heldur ekki fjárfesta í Danmörku. Hvernig gat þetta gerst? Danmörk hefur jú verið í Evrópusambandinu í rúm þúsund ár og afhent stóran fullveldis landsins til Bjørnebanden í Brussel. Svo og einnig tjóðrað mynt landsins við evrustaurinn í peningagarði seðlabanka Evrópusambandsins í Frankensteinfurt í Þýskalandi.
 
Danmark mangler udenlandske investeringer. Et af de bekymrende udviklingstræk er, at Danmark i stigende grad synes at blive fravalgt som investeringsland. Der er således sendt flere direkte investeringer ud af landet, end der er kommet til Danmark fra 2005 til 2009
 
Og ekki nóg með það. Það eru ekki bara lélegu og lásý störfin sem Danir þurfa að horfa á eftir til til útlanda, nei, hin svo kölluðu góðu störf alltaf og enn meiri og meiri menntunar Sósíaldemókrata flytjast einnig til útlanda; rannsóknir, þróun, dreifing og umsjón flytur til þrælamarkaða erlendis. En auðvitað vilja þau hins vegar öll selja vörur sínar til Danmerkur þ.e.a.s. á meðan Danir eiga pening, sem verður varla lengi úr því svona er komið. 
 
I alt udvidede fremstillingsindustrien kapitalapparatet inden for Danmarks grænser med under 0,5 pct. fra 2005 til 2009. Samtidig har kapitalapparatet skulle holde til brug i flere timer
 
Það skyldi þó ekki hanga þannig saman að dönsk fyrirtæki sortera Evrópusambandið og alveg sérstaklega evrusvæðið frá þegar þau ákveða hvar á að staðsetja fjárfestingarnar í framtíðinni? Enda virðist ESB vera að springa í loft upp. Ekkert hefur hinn svo kallaði inni markaður gert fyrir Danmörku umfram það sem almennt hefur gerst í aukinni hnattvæðingu alls staðar í heiminum (sjá; Sameiginleg mynt hefur ekki leitt til meiri viðskipta á milli evrulanda). Auðvitað vita dönsk fyrirtæki að framtíð þeirra í Evrópusambandinu er kolsvört. ESB er deyjandi.
 
Investeringerne i nye maskiner, bygninger etc. har ikke været store nok til at opveje nedslidning og ældning af det eksisterende kapitalapparat 
 
Danmörk getur því miður ekki gengið í Evrópusambandið því Danmörk er í Evrópusambandinu og Danmörk er í myntbandalagi Evrópusambandsins og Danmörku vantar lífsnauðsynlega innlendar sem erlendar fjárfestingar.
 
Lausn; Ljóst er að Danmörk þarf bráðnauðsynlega að segja sig úr Evrópusambandinu sem er ekki hægt og landið þarf á öflugri gengisfellingu að halda sem er útilokuð. Hvorugt mun gerast því bæði ESB-aðildin og myntmálin í Danmörku eru trúarlegs eðlis, eingöngu. Læst og lokuð. Og gengisfelling er líka of flókið fyrirbæri til að danskir sérfræðingar geti látið sér detta slíkt í hug. Hún er handan andans. Miðaldir eru lífsseigar í Evrópu.
 
Þetta er svo gott. Hlýtur bara að auka við fullveldið. 
 
Íslendingar ættu að selja Dönum Icesave málið. Þeir borga bara við búðarkassa númer eitt í versluninni Áfram Ísland - og fá síðan allar fjárfestingar þeirra í staðinn. Allar. Svo verður fána flaggað.
 
Krækjur 
 
 
Fyrri færsla
 

Má bjóða yður 64 milljónir tómar íbúðir í Kína?

Fíll í herberginu

Fundað í framkvæmastjórn ESB

Berlingske Business skrifar að margt bendi til þess að Kína standi nú með 64 milljónir tómar íbúðir sem búið er að "fjárfesta" í; samkvæmt áætlun. Það er að segja, peningar svo kallaðra fjár-festa sitja nú fast-fastir í kínverskri eigna- og fjármálabólu af epískri stærðargráðu. Þegar hún brestur mun það gerast eins skyndilega og þegar Asíu-kreppan tók fjárfesta fasta á nærbuxunum rúmum áratug fyrir miðnætti aldaskiptanna árið 2000. Aldaskiptin sem sjálf höfðu engin áhrif á þáverandi Icesave-tölvukerfi heimsins, þrátt fyrir miklar og margar spár. Þetta segir Albert Edwards hjá franska Société Générale sem fékk rétt í því að tí-grís hagkerfi Asíu voru byggð úr pappír og eru því eignasöfn bláeygðra blábjánafjárfesta þar ennþá 85 prósent þurrkuð út - og munu aldrei jafna sig.

1998; When Albert Edwards rubbished the economic miracle of the Tiger economies in a briefing note in January 1996 and warned its bubble was about to burst, he was hardly thanked for his prescience. [. . ] Mr Edwards now believes that Europe is in danger of developing an economic bubble very similar to Asia's. 

Hvað gott mun gjaldþrot kínverska hagkerfisins hafa í för með sér fyrir eignasafn Landsbankans? Er ekki hægt að setja þetta inn í Excel og gera úr því fallegar glærur. Þekkingin á því er til staðar hjá okkur. Fjármálaráðuneytið gæti staðið fyrir kynningunni. Og þegar kveikjan verður ríkisgjaldþrot nokkurra evruríkja sem nú - ofan í alla erfiðleikana heima fyrir - eru orðin skuldbundin til að leggja sjálf fram 40 miljarða evrur til bjargar öllu evrusvæðinu sem þau sjálf eru gjaldþrota hluti af. Storm P. hefði ekki einu sinni getað dottið þetta í hug. 

Krækjur:| 64 millioner tomme lejligheder i Kina | Horfið á: Dateline: China's Ghost Cities and Malls |

Tengt

10 February 1998; Scorned sage of Asian crisis fears nascent bubble in Europe 

Iceland's krona: By then the delayed cluster bomb of Europe's unemployment will have detonated 

Fyrri færsla

Icesave sett fram myndrænt II


Icesave sett fram myndrænt II

Evrópsambandsfáni

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland

 

Jóhanna Sigurðardóttir

Steingrímur J. Sigfússon

 

Bjarni Benediktsson, Jr. Lítil mynd.  

Borgarísjaki

nálgast lýðveldi Íslendinga 

 

Fyrri færsla

Icesave eldveggir settir upp í Evrópusambandinu 


Icesave eldveggir settir upp í Evrópusambandinu

Þar sem Írland gekk í ESB og þar sem Írland tók upp evrur og þar sem Írland er að kröfu fjármálamarkaða Brussels að skera hagkerfi sitt á háls svo sem mest blóð hætti að streyma til heilans svo hann spari nú súrefnið sem kostar svo mikið í ESB - já - þá hlýtur landið að vaða í klofstígvélum um bústnar myntlendur sínar í erlendu lánsfé. Ekki satt? En nei, það er ekki satt. Írum er ekki treyst fyrir einni evru yfir nóttina á fjármálamörkuðum heimsins. Fjármálakerfi Írlands er lokað af frá umheiminum. Hvað skyldu samtökin Sterkara & Áfram Írland segja nú? Ef þau þar að segja væru til, sem ég efast stórlega um.  
 
“A firewall is what we are hoping for and the price action in the markets appears to support it,” 
 
Þar sem Portúgal gekk í ESB og þar sem Portúgal tók upp evrur og þar sem Portúgal er að verða gjaldþrota vegna þess að það tók upp öllum þessum evrum of mikið - já - þá undirbúa allir þeir fjármálamarkaðir Brussels sem alltaf sögðu Portúgal að svo lífsnauðsynlegt væri að ganga í ESB og taka upp evrur, því annars myndi landið einangrast frá öllu - já - þá undirbýr þetta sama ESB uppsetningu fjármálalegs eldveggs umhverfis landið inni í miðju öryggisbúri þess í myntbandalagi Evrópusambandsins. Evruríkin undirbúa fjármálalegan eldvegg gegn evrulíkinu Portúgal. Er þetta ekki yndislegt? Lengi má myntina þá reyna. Hvað segir Sterkara & Áfram Portúgal nú? 
 
Reyndur maður rak fjármálafyrirtæki í Evrópu. Þegar mikið fjármálahrun skall eins og flóðbylgja á mörkuðum heimsins á níunda áratug síðustu aldar, kom aðstoðarmaður hans hlaupandi inn á skrifstofuna og hrópaði: Allt er að hrynja, markaðurinn er allur að hrynja, hvað ætlarðu að gera? Maðurinn horfði undrandi á aðstoðarmann sinn og sagði: Hvað ætla ég gera? Ég hef verið í Auswitch!
 
 
Paul Krugman; 
The Euro Straitjacket - Suffering from a single currency. 
The Austerity Delusion - The confidence fairy won’t save us from the consequences of our folly
 
Fyrri færsla
 

Af síðustu salernisferð evru

 vantraust2 

Síðast þegar evran féll um 30 prósent gegn Bandaríkjadal fór skjálfti um valdafíkla myntbandalags Evrópusambandsins. Myntbandalagið sem engin þjóð í Evrópu hafði nokkurn tíma beðið um. Þetta gengishrun evrunnar varð að helmingi þess sem íslenska krónan féll þegar allt bankakerfi lands okkar var stráfellt af okkar eigin bankamönnum og um leið sett á svartan lista sem hryðjuverkasmiðjur. Seðlabanka lýðveldis okkar var einnig um stund komið fyrir á glæpabekk sem stórþjóð ein smíðaði handa okkur. Þegar stórþjóðir trampa um á stígvélum þá fá smáþjóðir að finna fyrir því. Verst er þó þegar ríkisstjórn fórnarlambsins sleikir síðan skítug stígvél yfirmanna stórþjóðarinnar.

Traders at one of Germany's leading banks are said to have nick-named it the 'toilet currency'. 

Snemma undir þessu kinnroðafulla 30 prósent falli evrunnar fóru valdafíklar ESB á stjá og heimtuðu strax stýrivaxtalækkun. Seðlabanki Bandaríkjanna var kallaður til aðstoðar tvisvar. En ekkert dugði. Fallið hélt áfram. Ef Hans Tietmeyer seðlabankastjóri Þýskalands hefði ekki haldið við skjálfandi hendur yfirmanna seðlabanka evrunnar, er eins líklegt að evran hefði orðið að liðnu líki og fall hennar hefði aldrei stoppað. Svitadropar spruttu fram á enni Dana sem voru og eru enn tjóðraðir fastir við þessa evru sem svo fáir höfðu trú á nema ESB-söfnuðurinn í Brussel.

Handverksmenn fjármálamarkaða í stærstu bönkum Þýskalands kölluðu evruna fyrir kamar-myntina, eða klósett-myntina (toilet currency). Það gera þeir eflaust enn í dag.

Tíu árum síðar er þessi mynt orðinn stærsti leiksoppur spákaupmanna fjármálamarkaða og hefur myntinni þegar tekist að sprengja efnahag margra evrulanda í tætlur.  

Evran er mynt sem dregin var yfir lönd Evrópusambandsins eins og lambhúshetta. Peningayfirvöld hennar eru nú að breytast í eins konar ríkisfjármála Gestapó þeirra landa sem voru svo heimsk að falla fyrir auglýsingaskiltum valdafíklanna í Brussel. Gössur Skarphéðinsson* smellur þarna inn eins og sannur evru-api.

En nú er allt evruliðið varanlega komið á stóra klósettið í myntbandalagi Evrópusambandsins. Bandalagið er að verða að eins konar eftirmanni Gestapó, eða EUR-Stasi a la DDR. Af evrum urðu löndin apar.

* (© PV) 

Söguleg krækja: BBC 7. mars 1999; Sinking euro worries ECB 

Fyrri færsla

Lok & læs á evruríkið Portúgal. Lýðveldið fer í þýska Blaupunkt öndunarvél


Lok & læs á evruríkið Portúgal. Lýðveldið fer í þýska Blaupunkt öndunarvél

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996
Brusseldagar 1996
 
Standard & Poor's lækkaði lánshæfnismat portúgalska lýðveldisins í gærkveldi. Fitch Ratings gerði stuttu seinna hið sama. Skjaldborgir Samfylkingarinnar í DDR-Evrópu virðast ekki virka hið minnsta. Hvað er að? Mun það sama gerast ef Icesave skuldaklafinn verður samþykktur hér á Íslandi? Svo álít ég. Engin ríki hafa þolað að svo tröllvaxinn efnahagslegur borgarísjaki sé dreginn inn í kjarna hagkerfisins, án alkuls til lengri tíma litið.  
 

*** ÚR SKJALDBORGUM ESB & EMU ***

REUTERS March 24, 2011 -- Standard & Poor's Ratings Services lowered its long-term sovereign credit rating on the Republic of Portugal today to 'BBB' from 'A-' (the 'A-2' short-term sovereign credit rating is unchanged). The long- and short-term ratings on Portugal remain on CreditWatch with negative implications. We believe that this rating action could have a negative impact on the creditworthiness of the five Portuguese banks, and two related subsidiaries, that we rate, namely:

 

Caixa Geral de Depositos S.A. (A-/Watch Neg/A-2);

Banco Comercial Portugues, S.A. (BBB+/Watch Neg/A-2);

Banco Espirito Santo, S.A. (A-/Watch Neg/A-2) and its core subsidiary Banco Espirito Santo de Investimento, S.A. (A-/Watch Neg/A-2);

Banco Santander Totta, S.A. (A/Watch Neg/A-1); and

Banco BPI S.A. (A-/Watch Neg/A-2) and its core subsidiary Banco Portugues de Investimento S.A. (A-/Watch Neg/A-2).

*** STOPP *** 

 
Samkvæmt guðlegum samfylkingar reglugjörðum ónytsamasta seðlabanka heimsins, seðlabanka Evrópusambandsins ECB, hefði allt lýðveldi Portúgals nú verið útilokað frá því að geta, og náðarsamlegast mega, sækja eigin peninga í sinn eigin seðlabanka sem landið deilir nú með 16 öðrum löndum í Evrópu. Það er að segja, ef ekki ríkti peningalegt neyðarástand á öllu myntsvæði þessa gagnslausasta seðlabanka gagnslausustu myntar veraldar: evrunni. Portúgal er komið í undanþágufall.
 
Neyðarástandið er til komið vegna þess að engin lönd myntbandalagsins þoldu lyfin sem áttu að lækna sjúkdóminn sem Brussel ákvað að þau væru með. Brussel segir því nú að löndin verði fyrst að verða heilbrigð svo þau geti þolað lyfið sem lækna átti sjúkdóminn sem lyfið var framleitt gegn. Náðir þú þessu? Nei, og ekki lái ég þér það.  

Það sem átti að sameina Evrópu er að rífa hana í tætlur. Eins og spáð var. En ekki var hlustað og því er hryllingsapótek Evrópu enn aftur komið í full umsvif. Næsta skref verður svo nýr ófriður: made by the EU in Brussels.   

Eins og dópsalar sem setja á stofn björgunarsjóð sem bjarga á fórnarlömbum þeirra frá dauða dópsins, svo þeir fyrir alla muni geti haldið áfram að selja efnin, og græða tonn peninga á því, þá á nú að redda mesta stórslysi hagsögunnar með meira dópi til þeirra landa sem þoldu ekki að missa fullveldið í eigin peningamálum. 

Herr DDR doktor doktor seðlabankastjóra Íslands finnst þetta líklega mjög gott mál. Ekki hef ég heyrt annað á honum þegar hann þylur passívitetssálma Evrópusambandsins inni í Iceasve ofninum við sinn kalkaða veg. Þar undirbýr Már nú brunnann á landsframleiðslu Íslendinga. Afrakstri af svita og erfiði Íslendinga skal þar brennt í ESB-líkbræðslu fullveldisins. Til þess var hann ráðinn af fársjúkri forsætisráðherraínu íslenska lýðveldisins sem vill lýðveldi okkar feigt fyrir nokkrar evrur. Fjármálaráðherrann hefur skaffað henni eldspýturnar. 

Már Guðmundsson seðlabankastjóri er fagleg strengjabrúða af asna. Og gunga
 
Fyrri færsla
 

Portúgal var úthlutað plássi í hinum efnahagslega kirkjugarði Evrópusambandsins í kvöld

Í apríl í fyrra sagði portúgalski blaðamaðurinn og hagfræðingurinn Domingos Amaral í blaðinu Correio da Manhã, að myntbandalagið væri spennitreyja fyrir Portúgal og að hagvöxtur landsins hefði aldrei verið eins lélegur hin síðustu 50 ár og undir evrunni. Allt væri orðið of dýrt. "Ef það var velmegun og hagsæld sem myntbandalagið átti að leiða af sér þá höfum við uppskorið akkúrat hið gagnstæða", sagði hann. Hrikalegar reglur myntbandalagsins hafa breytt Evrópu í kirkjugarð fyrir ríkisstjórnir. "Það er kominn tími til að gera sér grein fyrir því að evran virkar ekki og að það verður að koma breyting. Að yfirgefa myntbandalagið yrði hrikalegt, en það sama gildir ef ekkert er gert. Evran refsar þeim saklausu og lokar á allar útgönguleiðir út úr óförunum", sagði Amaral þá. Hvað skyldi Domingos Amaral hafa hugsað í kvöld?

Nú jæja. Síðan þetta var skrifað hafa evrukirkjugarðar Evrópusambandsins haft nóg að gera. Lík Írlands er komið í kistuna. Lokinu hefur verið rennt yfir kalt Grikkland og nú féll ríkisstjórn Portúgals í kvöld, því þingið neitaði að hlýða og skera undan hagkerfinu.
 
Allt er bara að gera sig hér. Þá verða c.a 7 af 27 löndum Evrópusambandsins komin í teboðið hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum. Maður fer brátt að vorkenna sjóðnum.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því þegar ríkisfjármála fallhlífahersveitir lýðræðis evrusvaðsins og Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins svífa til jarðar í borginni frægu, Lissabon í Portúgal. Bankakerfi landsins hefur verið afskorið frá umheiminum í heilt ár og ríkissjóður landsins getur ekki fjármagnað sig lengur nema á VISA-vöxtum eins og þeim sem frú Kaupakerling Morðfjár nýtur á æðisferðum sínum um öngstræti Lissabonmarkmiða Evrópusambandsins. Samkvæmt þeim áttu allir að vera orðnir ríkir í ESB fyrir 448 dögum síðan. 

Ó já. Þetta gengur líka allt svo vel eftir að Lissabon sáttmálanum var þvingað ofan í 500 milljón manns Evrópusambandsins. Aumingja Lissabon. Hvers á sá staður að gjalda. 

Á meðan funda kjánaherdeildir hér heima um "valkosti í gjaldmiðlamálum". Ha ha ha ha hah ha. Næstum er öruggt að hér er um miðilsfund með gjaldi að ræða. Sérðu nokkra mynt í glasinu? . . er hún blá? . . hvernig er gengið? . . ha? . . ekkert samband í kvöld? . .
 
SPYRJIРPORTÚGAL, ÍRLAND OG GRIKKLAND um "valkosti í gjaldmiðlamálum".  
 
Getur þetta orðið meira geggjað?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband