Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Þriðjudagur, 31. mars 2009
Evruþátttaka lækkar lánshæfni Slóvakíu
Moody's Investor Service lækkar lánshæfnismat Slóvakíu
Það sem er athyglisvert við þessa lækkun á lánshæfni ríkissjóðs Slóvakíu er sú staðreynd að það eru einmitt langtímahorfurnar fyrir efnahag Slóvakíu sem hafa leitt til lækkunar á lánshæfnismatinu. Það gerðist nefnilega þann 1. janúar á þessu ári að Slóvakía tók upp evru sem sinn gjaldmiðil
Lesið allan pistilinn hér á vefsetri mínu
Evruþátttaka lækkar lánshæfni Slóvakíu
Fyrri færsla:
Forsíða þessarar bloggsíðu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 28. mars 2009
Fréttir frá Danmörku: ESB mun koma og passa að fiskimið Íslands verði ekki eyðilögð af íslenskum sjómönnum og útgerðarmönnum
ESB mun bjarga Íslandi
Já kæru lesendur. Þetta er inntakið í frétt danska ríkisfjölmiðilsins, Danmarks Radio. Venjulega er blóðþrýstingur minn alveg ágætur. Ég mæli hann reglulega sjálfur, því þegar ég fer til læknis þá hækkar hann alltaf en lækkar svo aftur þegar ég er kominn út. Mín innri sál virðist ekki treysta læknum neitt sérstaklega vel, eða jafnvel hræðast þá góðu menn, enda fer ég aldrei til þeirra. En ég þorði samt ekki að athuga blóðþrýstinginn i mér eftir að hafa lesið þessa frétt. Svo í staðinn settist ég við takkaborðið með mína 110 þumalputta - sem einnig hafa innbyggða þroskaða meðfædda stafavíxlun og ásláttar glundroða - og sendi Danmarks Radio einn tölvupóst. Gerði þetta í staðinn fyrir að mæla mig eða reikna mig fram til þess að ég væri ókei
<><><><> SÍMASKEYTI <><><><>
Der er nye toner fra det konservative Selvstændighedsparti i Island. Partiet, der er Islands største oppositionsparti, er fortsat en indædt modstander af EU, men i forbindelse med finanskrisen, der har tvunget østaten i knæ, er Selvstændighedspartiet gået med til, at islændingene kan stemme om optagelse i EU.
<> ÚRFELLING Í SKEYTI <>
Men blandt andre fiskere og ansatte i fiskeindustrien er imod, og generelt var islændinge inden krisen skeptiske over for EU af frygt for, at Bruxelles ville gribe ind over for den islandske fiskeri- og energiindustri
<><><><> FULLT STOPP <><><><>
Fréttin segir að sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn hafi haldið ársfund og þar hafi komið fram nýjir tónar sem hljóma þannig að sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi gangi með til þess að halda þjóðaratkvæða greiðslu(r) um að afnema fullveldið og lýðræðið á Íslandi. Þannig að landið sem ber nafnið Ísland, sem varð fullvalda ríki fyrir aðeins 65 árum, geti átt það á hættu að verða afnumið sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Að hægt verði að kjósa (reikna) um að afnema fullveldi og lýðræði á Íslandi. En verður þá nokkurn tíma hægt að fá það aftur spyr ég? Það virðist nefnilega ekki gerast annarsstaðar. Ef einusinni er kosið undan sér fullveldið og lýðræðið þá virðist það ekki koma aftur til baka. Samanber þá nýju stjórnarskrá sem er verið að þvinga ofaní 500 milljón manns í ESB, í heildsölu
Svo verður þessum 500 milljón manns smá saman gefir kostur á að kjósa sig til auðæfa hvors annars. Kjósa sig til auðæfa þinna. Sagan segir okkur nefnilega að allsstaðar þar sem kjósendum er gefinn kostur á því að kjósa sig til auðæfa annarra, þar mun þeir einmitt gera það. Svona gufa auðæfin smá saman upp, þ.e.a.s ef þú þá átt einhver auðæfi eða auðlindir. Þetta gerist að sjálfsögðu ekki í einum grænum hvelli, en það mun samt gerast. Tönn fyrir tönn, atkvæðaseðil fyrir atkvæðaseðil - 20 ár, 50 ár, 100 ár, 150 ár, já þá er jöfnunin á auðæfunum um garð gengin og þá verður nú allt gott (sjá: Málefni Nýfundnalands)
Rúsínan
En rúsínan í trollenda fréttarinnar er enginn venjulegur fréttafiskur. Ekki einusinni flugfiskur í skötulíki eða í smjörlíkisljóma og heldur ekki einu sinni í Saxbauta, ef forstjórinn skyldi nú koma óvænt í heimsókn um borð í dallinn. Nei í þessari veiðiferð fréttamanna Danmarks Radio - sem pr. ríkishefð örlátra skattgreiðenda hér í landi veita 3.000 mönnum þess atvinnu - og sem næstum allir eru villuráfandi ríkis-íhaldsmenn, vinstrisinnaðir hálfkommar, ESB-sósíal-demó-kratar og álíka - þá kemur hinn raunverulegi boðskapur fréttarinnar fram. Hann blasir við þeim sem skilja hið skrifaða mál. Boðskapur fréttarinnar er nefnilega sá að íslenskir sjómenn og útgerðarmenn eru hræddir við að ganga í ESB vegna þess að þá myndi hið algóða ESB koma og passa uppá að þeir gætu ekki haldið áfram að eyðilegga fiskimiðin og fiskistofnana í fiskilögsögu Íslands
Já kæru lesendur, þarna hafið þið það. Auðvitað mun ESB koma og bjarga fiskimiðunum við Ísland. Bjarga þeim frá Íslendingum. Frá eyðileggingu Íslendinga. Því auðvitað hefur ESB bjargað Evrópu frá sjálfri sér. Það hljóta allir að sjá sem lesa, heyra og sjá fjölmiðla á borð við Danmarks Radio og Risa Ríkisútgerðar Ríkisútvarp Íslands (RRRUV). Skoðið bara hin glæsilegu fiskimið í núverandi fiskilögsögu ESB, hún er stútfull af spriklandi ekkifisk. Svo vel hefur ESB passað uppá þessar auðlindir hér
Ykkur verður bjargað
Þá vitið þið þetta kæru Íslendingar. ESB mun koma og bjarga ykkur frá ykkur sjálfum. Þetta vita að minnsta kosti næstum allir hér í Evrópusambandinu, þar sem ég bý. Það er m.a vegna þess að miklir villuráfandi miðjumenn, sósíal-demó-kratar og miklir ESB-sinnar í þessu einsflokka alríki ESB segjast heldur vilja rökræða við nazista en rökræða við okkur sem viljum ekki ESB. Já, þetta sagði fyrrverandi Moskvu fréttaritari Danmarks Ríkis Radio, Poul F. Hansen. Hann hefur þó reynt að afsakað þetta núna. En hann er núna í framboði til þings Evrópusambandsins, hvað annað? Í framboði fyrir þá sem kalla sig Venstre hér en þykjast samt ennþá vera eitthvað smávegis til hægri. En já, þetta passar svosum mjög vel því nazistar voru jú sósíalistar. Þeir þjóðnýttu bara þegnana en ekki atvinnutækin. Svo tóku þeir aðalinn af lífi og slátruðu Gyðingum í leiðinni. Mörgum milljónum. Svo auðvitað vilja svona menn heldur tala við þá en við okkur sem erum á móti Evrópusambandinu (EU-modstandere værre end nazister)
En já. Það er svona sem sannleikurinn verður til. Fyrst er hann búinn til inná ríkisveitum á borð við Danmarks Radio, Risa Ríkisútgerð Ríkisútvarps Íslands og BBC. Svo er honum pakkað inn og hann er sendur inn í stofuna til þín þar sem hann fer inn um hornhimnurnar tvær sem sitja ofarlega á andliti þínu. Svo festist hann inni í hausnum á þér, þ.e.a.s ef hann fær að fara þangað inn nógu oft. Þetta eru sterk vopn. Þau eru svo sterkt að miklir sósíal-íhalds-demó-kratar vilja heldur rökræða við nazista heldur en við okkur sem viljum ekki Evrópusambandið. Þetta virkar. Just plain works!
Elta peningana
En þetta er svo sem ekkert undarlegt því það fjármagn sem Evrópusambandið hefur til umráða við að heilaþvo þá sem sitja inni á fréttastofum og búa til raunveruleikann fyrir okkur er svo mikið að það er meira og betra en þeir fjármunir sem risafyrirtækið Coca Cola notar í öllum heiminum á hverju ári (ESB eyðir tveim miljöðrum punda í áróður fyrir eigin ágæti - á hverju ári!). Fjármunir til að markaðsfæra vörur sínar og fyrirtækið sjálft. Mikill er máttur peninganna og þeim á Evrópusambandið nóg af. Sand af þeim. Þeir koma frá þér. Frá skattgreiðendum sjálfum. Vissir þú að þú sjálfur fjármagnar Evrópusambandið? Þetta er svona já. Get ég ekki fengið svona peningavél?
En hvað sem öllu líður þá þurfa Íslendingar ekkert að óttast. Evrópusambandið mun koma og bjarga ykkur. Það segir DR.DK, svo það hlýtur að vera rétt. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ætla að aðstoða ESB við þessa björgunaraðgerð. Eða er þetta einhver misskilningur hjá mér? Eru það bara erlendir fréttamenn sem eru að flækja sig í steinullinni sem er að vaxa á haus Sjálfstæðisflokksins núna? Eða er reiknivélin kanski biluð. Eða er þetta allt saman einn stór misskilningur? Getur það hugsast?
Skeyti sent í höll sannleikans - í moðull og físmoll
En allavega, þá sendi ég blaðamanni Danmarks Radio tölvupóst og reyndi að útskýra þetta með sjómennina og útgerðarmennina, það gat ég þó, því það er mjög auðvelt. Ef einhversstaðar eru til sjálfbær gjöful fiskimið ennþá, þá eru þau við Ísland og það er Íslendingum sjálfum að þakka. Þetta er ekki svona í ESB og það er svo sannarlega ESB að þakka. Það væri sem sagt ryksuga ESB sem íslenskir sjómenn og útgerðarmenn óttuðust. Ekki öfugt.
En það var öllu verra með E-málefni Sjálfstæðisflokksins. Ég vona að mér hafi tekist að útskýra e-málefni flokksins á mannamáli því ekki getur Sjálfstæðisflokkurinn útskýrt þau sjálfur á mannamáli. En eigum við ekki barasta að treysta því að Danmarks Radio fari með rétt mál? Það er bara það að eftir 25 ára búsetu í Danmörku þá veit ég betur en svo. Þeir búa jú til raunverulekann samkvæmt sínu pólitíska landakorti. Hann hlýtur bara að vera "réttur". Það þarf bara að segja raunverulekann nógu oft. En ef hann er ekki réttur þá er bara að kjósa og kjósa hann þangað til hann verður réttur. Tra la la. Reikna og reikna, þá veður allt gott
En svo er það atkvæðið dýrmæta - á meðan það hefur eitthvað að segja
Svo hvar á ég að kasta atkvæði mínu núna? Þetta var ekki neitt vandamál fyrir mig hér áður fyrr. Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn. En hvað gerir Gunnar núna? Þarf ég að fara að læra reikna aftur? Þetta er orðið svo flókið - og það boðar venjulega aldrei neitt gott. Mér líkar illa við flækjur. Sérstaklega illa við opna enda, því maður veit ekki hvort það er morgunbirtan sem lýsir þarna fyrir endanum á jarðgöngunum - eða hvort það er ljósið frá öskrandi járnbrautarlest sem er að koma æðandi - og sem svo mun keyra yfir mann
Fyrri færsla
Er Bretland ennþá sjálfstætt og fullvalda ríki?
Forsíða þessarar bloggsíðu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Er Bretland ennþá sjálfstætt og fullvalda ríki?
Breska Bruges Group spyr:
Er Bretland ennþá sjálfstætt fullvalda ríki?
smellið og lesið pistilinn á vefsetri mínu www.tilveraniesb.net
Er Bretland ennþá sjálfstætt og fullvalda ríki?
Fyrri færsla
Fyrrverandi seðlabankastjóri Belgíu: Engin leið út úr evru aftur án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs
Forsíða þessarar blogsíðu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 22. mars 2009
Engin leið út úr evru aftur án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs
Yrði afleiðingin evruúrsagnar þjóðfélagslegt og efnahagslegt sjálfsmorð?
Fyrrverandi seðlabankastjóri belgíska seðlabankans, Alfons Verplaetse, segir að við hönnun myntbandalags Evrópusambandsins hafi því alls ekki verið veitt nein athygli að lönd gætu sagt sig úr myntbandalaginu aftur - þ.e. að ríkin sem einusinni ganga í myntbandalagið gætu skilað evrunni sem gjaldmiðli ef þeim líkaði hún illa sem gjaldmiðill þjóðar sinnar. "Þetta var einfaldlega ekki rætt því allir vissu að það eitt að segja sig úr myntbandalaginu myndi þýða "þjóðfélagslegt og efnahagslegt sjálfsmorð" fyrir viðkomandi ríki (socio- economic suicide). Þetta var samhljóða skoðun allra þeirra sem stóðu að stofnun og hönnun myntbandalagsins, segir Verplaetse
<><><><> SÍMASKEYTI <><><><>
Bloomberg: would be socio- economic suicide
When the euro was on the drawing board, nobody expected a bust like the current one, said Verplaetse, now an honorary governor, with an office at the central banks headquarters. Even a year ago, I personally -- and I have a lot of experience -- I didnt think what happened was possible. And I think we are not alone.
When asked to grade the ECBs handling of the slump, Verplaetse simply applauded. Speaking a day before the bank cut its main rateto a record low of 1.5 percent, he said the ECB will stop before getting to zero.
While that forecast reflects the market consensus, Verplaetses reasoning is different. The dominant force in the euro region, he said, continues to be the German postwar obsession with stability andlow inflation.
An interest rate of much lower than 2 percent for a long period of time is not possible, Verplaetse said. The Germans will not accept that.
<><><><> FULLT STOPP <><><><>
Ekki ný ályktun
Í grein minni sem birtist í Þjóðmálum síðastliðið haust (Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?) kom ég einmitt inná þessa hluti því sumir óskhyggju- og draumóramenn á Íslandi hafa einmitt verið að halda því fram að það sé ekkert vandamál að taka upp evru því líki manni hún ekki þá sé ekkert mál að skila henni aftur. Þetta er því miður það vitsmunastig sem ESB og evruumræðan hefur að stórum hluta til verið á - á sjálfu Íslandi. Fæstir á Íslandi virðast gera sér grein fyrir að gjaldmiðlamál þjóða er næstum óendanlega miklu dýpra og flóknara mál en það virðist við fyrstu sýn. Það er einfaldlega ein af forendum sjálfstæðis og sjálfstæðrar tilveru fullvalda þjóða. Einn af hornsteinum fullveldis.
Einnig kemur það fram í viðtalinu við Verplaetse að seðlabaki Evrópusambandsins (ECB) mun ekki lækka vextina niður í núll eins og rétt væri að gera þegar verðhjöðnunarþrýstingur verður of mikill. "Þetta verður aldrei" segir Verplaetse því "Þjóðverjar munu aldrei leyfa það". Þá vitum við hver ræður í bankaráði ECB: Þjóðverjar, auðvitað, enda vissu það allir, en gleyma því þó oftast þegar þeir eru að störfum við að selja sjálfstæði Íslands í skiptum fyrir efnahagsleg handjárn á íslensku þjóðina - að eilífu.
En markaðurinn hugsar sitt
En engu að síður þá eru markaðsöflin farin að huga að skipbroti nokkurra þjóða í myntbandalaginu. Af þeirri ástæðu varar fyrrverandi seðlabankastjóri þýska seðlabankans, Karl Otto Pöhl (sat frá 19801991), við hættunni á að segja sig úr myntbandalaginu. Hann segir að gengi landa sem segja sig úr myntbandalaginu myndi falla um 50-60%.
En þá segir markaðurinn: þetta þýðir aðeins að fyrir þessar þjóðir þá er gengi evrunnar 50-60% of hátt metið, - og markaðurinn heldur því áfram að gera ráð fyrir því að sum lönd verði svo illa farin efnahagslega að þau kjósi að taka þeim hörmungum sem því mun fylgja heldur en að deyja þjóðfélagslegum og efnahagslegum dauða innan myntbandalagsins.
Roger Helmer þingmaður á 10 ára afmæli myntbandalagsins
Móðir allra fjármálakreppna
Þær raddir hafa heyrst á Íslandi að ef gangi illa að bindast og taka upp evru sé alltaf hægt að hætta við hana aftur! Að segja sig úr myntbandalagi Evrópusambandsins er vissulega hægt í orði en nánast útilokað á borði. Úrsögn myndi krefjast langs undirbúnings. Heimili og fyrirtæki myndu gera ráð fyrir gengisfellingu þeirrar myntar sem myndi koma í stað evru. Þau myndu því einnig undirbúa sig vel og flytja bankainnistæður sínar yfir í banka í öðrum evrulöndum eða skipta innstæðum yfir í aðrar myntir. Fjárfestar skuldabréfa myndu skapa kreppu á skuldabréfamörkuðum og hin óskilvirka vél skuldatryggingaálaga myndi einnig fara í gang á ný. Allar alvarlegar umræður um úrsögn úr evru myndu alveg sjálfkrafa vekja ótta, og það ekki að ástæðulausu, um yfirvofandi gengisfellingu þjóðarmyntarinnar því með úrsögninni er verið að segja umheiminum að efnahagsstjórn undir evru hafi skaðað efnahag og efnahagsstjórnunarmöguleika landsins.
Það er ekki kostnaður, eins og stundum heyrist, sem væri vandamálið við úrsögn úr evru-myntbandalaginu heldur sú staðreynd að allir mundu gera ráð fyrir að úrsögnin hefði gengisfellingu í för með sér. Þetta blasir við. Þeir sem hyggjast segja sig úr myntbandalaginu vilja fá aftur fullan umráðarétt yfir eigin mynt, stýrivöxtum og stjórn peningamála. Svo hvað annað en gengisfelling kæmi til greina?
Eitt land hefði þó möguleika á úrsögn undir öðrum formerkjum, en það er Þýskaland. Þá myndu viðbrögð allra verða örðuvísi, því það myndi þýða að rykið yrði dustað af altari hins gamla Deutsche Mark. Allir aðilar markaða myndu samstundis skilja að sú ákvörðun yrði flestum Þjóðverjum og þýsku efnahagslífi gleðifréttir, því það var með miklum efasemdum sem Þjóðverjar gengust undir evru á sínum tíma. Úrsögn Þjóðverja yrði á hinn bóginn miklar sorgarfréttir fyrir þau lönd sem eftir sætu með evru sem gjaldmiðil.
Kæru evruáhugamenn, úrsögn allra leppríkja úr evru-myntbandalaginu, þ.e. allra evrulanda sem heita ekki Þýskaland, myndi einungis þýða að móðir allra fjármálakreppna yrði gangsett í viðkomandi löndum. Úrsögnin myndi skapa stærsta áhlaup allra tíma á fjármálastofnanir, skuldabréfamarkaður yrði lagður í rúst, vextir á erlend lán ríkisins myndu líklega hækka, og kjarasamningum yrði sagt upp. Allir myndu gera sér ljóst að það eitt að yfirgefa evru og taka upp gömlu mynt landsins aftur myndi aðeins leysa hluta af þeim vanda sem kom úrsögninni af stað. Allir myndu jafnframt gera ráð fyrir meiriháttar stefnubreytingum og víðtækum umbótum flestra þátta efnahagsstjórnar og beinlínis krefjast þess. Ef halli á ríkisfjárlögum væri vandamál, þá yrði þess krafist að tekið yrði á þeim vanda strax í sjálfu úrsagnarferlinu. Um leið og úrsagnarferlið hæfist yrði landið gengisfellt um alla eilífð niður í neðstu kjallaradeild Evrópusambandsins og dæmt sem skaðvaldur samstarfsins. Aðeins fáar ríkisstjórnir myndu lifa af þá streitu sem úrsögnin hefði á alla þá sem hafa eitthvað með peninga, skuldabréf, fjármál, kjarasamninga og bankamál að gera.
Það er því fullkomlega glórulaus bjartsýni að tala sem svo að ef Íslendingum líki ekki hið takmarkandi og hið frelsisskerta athafnasvigrúm sem er í löndum sem enga peningastjórn hafa, þá sé hægt að yfirgefa félagsskapinn og fara í gömlu vinnufötin aftur. Þetta eru einungis villtir draumórar sölumanna Evrópusambandsins á Íslandi, veruleikinn yrði allur annar . . .
Lesið alla greinina hér:
Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?
Slóð: Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?
Fyrri færsla
Sögulegur atburður: viðtal við seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Ben Bernanke
Forsíða þessa bloggs
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 19. mars 2009
Sögulegur atburður: viðtal við seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Ben Bernanke
Viðtal við Ben Bernanke, formann stjórnar seðlabanka Bandaríkjanna
Það hefur varla gerst áður í sögunni að sitjandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna veiti viðtal. Þegar þáttagerðarmenn sjónvarpsþáttar CBS, 60 minutes, höfðu samband við bandaríska seðlabankann (The Federal Reserve, sem í daglegu tali er bara kallaður The Fed) til að biðja um viðtal, var þeim sagt að þeir gætu beðið alla æfina eftir því, það myndi aldrei verða veitt. En hér viðtalið samt, en bara heilu ári eftir að beiðni þáttagerðamanna 60 minutes var send til The Fed. Ástæðan? Jú það er hin sögulega kreppa. Þetta er tækifæri seðlabankans til að tala við þjóðina. Og það er sonar sonar sonur innflytjenda frá Austur Evrópu sem situr þarna fyrir svörum, sem seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben Bernanke
Fyrri hluti
Smella hér til að horfa á fyrri hluta (opnast í nýjum glugga)
Seinni hluti
Smella hér til að horfa á seinni hluta (opnast í nýjum glugga)
Fyrri pistill
Bara ef Finnar hefðu evru: þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að hrynja um 40%
Forsíða þessa bloggs
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.3.2009 kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 17. mars 2009
Bara ef Finnar hefðu evru: þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að hrynja um 40%
Ef Finnar hefðu evru þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki hrunin um 40%. Iðnaðarframleiðsla Finnlands er hrunin - með evrum
Finnish Jan manufacturing orders down 38 pct yr/yr
13.3.2009 at 15:53
The value of new orders won by Finnish manufacturers in January fell by about 38 per cent from the year-ago period, Statistics Finland (SF) said in a statement Friday.
"The exceptionally strong decline in new orders in manufacturing that started in September 2008 continued through January 2009," the agency added.
"The value of new orders fell in all the examined main industries." Finnish Jan manufacturing orders down 38 pct yr/yr
Athugið að þetta eru tölur fyrir janúar síðastliðinn. Þetta á því miður eftir að versna mjög mikið í viðbót. Það er því alveg greinilegt að vandamál efnahags Finnlands væru mun auðveldari viðfangs ef þeir myndu lýsa því yfir núna að þeir ætluðu að taka upp evru og nota hana sem vörn geng illum öndum heimsins. Þetta segja sérfræðingar á Íslandi. Samt er allt bankakerfi Finnlands ekki á hliðinni - ennþá.
Illir andar? - samsæriskenning? Með evrum.
Hvað gæti komið í veg fyrir kínverska gengisfellingu núna? Jú, kæru lesendur; útflutningur Kína til ESB er mjög mikill. En hann er einnig stór og mikill til Bandaríkjanna. Málið er þó það að Kínverjar eru hræddir við Bandaríkin, því Bandaríkin hafa tennur. En hvað með ESB? Eru Kínverjar hræddir við ESB? Hefur ESB tennur? Nei ESB hefur engar tennur. Evrópusambandið er alveg tannlaust því á síðustu 20 árum hafa tennurnar verðir dregnar úr ESB og bræddar niður í eina evru handa öllum. Það þarf því enginn að vera hræddur við ESB. Svo já, ef ég væri einráð kommúnista ríkisstjórn Kína, þá myndi ég halda uppi gengi evrunnar, því þannig þarf ég ekki að fella mitt eigið gengi og því mun ég ekki þurfa að móðga vígtennta Bandaríkjamennina. Svona gerum við þetta. Málið er nefnilega það að evran er leiksoppur spákaupmanna gjaldeyrismarkaða. Það sagði m.a einn af þekktustu hagfræðingum Evrópu:
Since 2001, the euro has more than doubled in value against the dollar. This appreciation can be interpreted only as a bubble driven by speculation gone wild. By Paul De Grauwe - Financial Times Published: September 4 2008
Hér er slóðin á grein Paul De Grauwe á mynd númer 6: Flökt íslensku krónunnar : : Evra gegn bandaríkjadal - japanska yeni - breska pundi - svissneska franka
Afstaða ASÍ til hagsmuna íslenskra launþega
Það er einnig staðreynd að evran hindrar atvinnusköpun og drepur hagvöxt. Ég leyfi mér að benda á pistil minn frá 12. ágúst á síðasta ári: Hindrar evra atvinnusköpun? Það er því undarlegt að hagsmunasamtök íslenskra launþega (ASÍ) skuli vilja innleiða Evrópusambandslegt atvinnuleysi á Íslandi um alla eilífð. Sjá: Atvinnuleysi á evrusvæði síðastliðin 28 ár Er ASÍ steinrunnið?
Fyrri pistill
| Bara ef Þýskaland hefði haft evru. Þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að falla um 50% | Forsíða þessa bloggs |
Tengt efni
Ísland lærir hratt: það fór finnsku og sænsku leiðina strax. En getur Samfylkingin lært?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Laugardagur, 14. mars 2009
Bara ef Þýskaland hefði haft evru. Þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að falla um 50%
Horfur á að iðnaðarframleiðsla Þýskalands muni falla um 51% á þessu ári
Iðnaðarframleiðsla Þýskalands er hrunin - beðið eftir Bandaríkjunum - með evrum
Ótti hinna allra svartsýnustu manna um galla efnahagslíkans þýska hagkerfisins er því miður að rætast. Samdrátturinn í þýska hagkerfinu er nú orðinn svo mikill að iðnaðarframleiðsla í þýska hagkerfinu mun dragast saman um 51% á þessu ári (á ársgrundvelli)
Keyrt í gegnum Google Translation:
<><><> SÍMASKEYTI <><><>
We have been among the biggest pessimists about the German economy, but it appears that our own forecast for a 4-6% fall in German economic growth this year is looking a tad optimistic after yesterdays horrendous data for industrial orders in January. The orders were down 8% with respect to the previous month, and 37.9% lower than a year before (foreign orders were down 42%), reports the FT. Apart from Japan, Germanys economy is among the worst-affected by the slump in global demand.
Fæðingatíðni |
|
|
Ár | 1995 | 2005 |
Poland | 1,62 | 1,24 |
Slovakia | 1,52 | 1,25 |
Slovenia | 1,29 | 1,26 |
Lithuania | 1,55 | 1,27 |
Czech Republic | 1,28 | 1,28 |
Bulgaria | 1,23 | 1,31 |
Latvia | 1,27 | 1,31 |
Hungary | 1,57 | 1,31 |
Italy | 1,19 | 1,32 |
Romania | 1,41 | 1,32 |
Greece | 1,31 | 1,33 |
Germany | 1,25 | 1,34 |
Spain | 1,17 | 1,35 |
Malta | : | 1,38 |
Portugal | 1,41 | 1,4 |
Austria | 1,42 | 1,41 |
Croatia | : | 1,41 |
Cyprus | 2,03 | 1,42 |
Switzerland | 1,48 | 1,42 |
Macedonia, the former Yugoslav Republic of | 2,12 | 1,46 |
Liechtenstein | : | 1,49 |
Estonia | 1,38 | 1,5 |
Luxembourg | 1,7 | 1,66 |
Netherlands | 1,53 | 1,71 |
Sweden | 1,73 | 1,77 |
United Kingdom | 1,71 | 1,78 |
Denmark | 1,8 | 1,8 |
Finland | 1,81 | 1,8 |
Norway | 1,87 | 1,84 |
Ireland | 1,84 | 1,86 |
France | : | 1,94 |
Iceland | 2,08 | 2,05 |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 5. mars 2009
Lifandi land - Ísland
Jæja kæru lesendur
Þá tók þessi Ísalandsferð mín enda. Ég var sem sagt á Íslandi í 10 daga og kom aftur heim í kotið í fyrra gær.
Lifandi land - Ísland
Þetta var ákaflega ánægjuleg ferð. Það sem sló mig mest var hið virka, öfluga, ríka og fjölbreytta mannlíf á Íslandi ásamt almennum áhuga Íslendinga á sveita- lands- og alþjóðamálum. Á Íslandi er ennþá "allt hægt" í hugum fólksins, sem betur fer segi ég. Mikil og virk umræða er meðal nánast allra Íslendinga um lýðræðið, stjórnarfar, þjóðarhag og stöðu Íslands í hinu stóra alþjóðlega samfélagi. Hér eiga Íslendingar að mínu mati "heimsmet", eins og í svo mörgu öðru. Lýðræðið er virkt á Íslandi því það er lítil sem engin fjarlægð á milli þjóðarinnar og hinna kjörnu fulltrúa hennar. Sama gildir um embættismannakerfið. Nánast allir sem ég talaði við höfðu mikinn og jafnvel brennandi áhuga á atvinnu- og samfélagsmálum og ekki skorti fjölbreytt viðhorf. Einnig er vídd umræðunnar það mikil á Íslandi að fyrir venjulegan ESB-búa - sem er vanur því að geta aðeins kosið um, eða haft áhrif á, þau fáu málefni sem ennþá eru á valdi þjóðþinga þeirra - er víddin svo mikil að hann myndi ekki skilja nema hluta af þeim málefnum sem fullvalda Íslendingar takast á um.
Menningarlíf Íslendinga virðist einnig vera afskaplega virkt og fjölbreytt. Flestir Íslendingar eru virkir í menningarstarfi á einn eða annan hátt og framboð menningar er stórt og fjölskrúðugt. Söngur og tónlist, leiklist, bókmenntir, raun- og félagsvísindi blómstra. Ísland á sennilega "heimsmet" í kaffihúsamenningu og það er sláandi hversu hugmyndaflug Íslendinga er frjálst og óheft ennþá. Allir eru "í einhverju".
Útför í kjölfar útrásar
Maður tók einnig eftir að 5 ára leiðtogi þjóðarinnar hafði látið lífið í stórkostlegu hjartastoppi. Það voru víst of margar útlenskar makkarónur fljótandi í blóðinu hjá honum. Útför hans fór ennþá fram þegar ég fór frá Íslandi. Sem afleiðing virðist ákveðið tómarúm ríkja á vettvangi leiðtogamála á Íslandi. Hérna á ég að sjálfsögðu við herra fjármálageira sem dó á haustmánuðum og sem verið er að jarðsyngja að hætti Corleone. Þið vitið, þessi geiri sem hreif svo mörg okkar á ákveðnu tímabili og sem við héldum að væri "kominn til að vera". Mennirnir og leiðtogarnir sem gátu gengið á vatninu og breytt því í vín og góðar vísitölur. Allt átti að vera komið til að vera: hlutabréfaverð, olíuverð, hráefnaverð, fasteignaverð, glóbal warming, Kína, ESB, og hvað eina. Rykið féll því óhindrað á okkar gömlu hefðbundnu leiðtoga og landsfeður. Núna hiksta því og hósta okkar rykföllnu fyrrverandi leiðtogar upp gömlu ryki og eru að reyna ná áttum á ný. Þeir gera sér alls ekki ennþá grein fyrir því að sviðið er tómt ennþá og að það er beðið eftir þeim. Kaktusar feykjast þar um í andblæstri frá almúganum - heyballs. Hvar eruð þið? Eruð þið hræddir? Eftir að eini núlifandi virki leiðtogi þjóðarinnar, Davíð Oddsson, var lögsettur út úr Seðlabankanum af sjálfu Alþinginu með aðstoð barnaverndar, þá er enginn við lengur. Það er á tali hjá næstum öllum - píbb bíbb bíbb bíbb. Þeir eru núna að hringja í leiktjaldadeildina, föðrunarmeistarana og kunna sig ekki lengur sem þeir menn sem þeir voru. Þeir eru hræddir við að hafa skoðanir því þeir hafa þær engar og eru oftast jafn allsberir og þeir sem liggja í kistunum, - eru hræddir við að vera menn með skoðanir. En þér að segja, er varla von á öðru? Ég spyr.
Ég fór á tvo fundi hjá Heimssýn og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka innilega fyrir þessa skemmtilegu fundi. Fólk kom oft langar leiðir að - einnig úr sveitinni.
Borðaði vel
Það var mikil lukka að fá saltkjöt og baunir á sprengjudag og ekki voru nú rjómabollurnar neitt slor á bolludeginum heldur. Einnig skaust ég tvisvar í mat niður á BSÍ (Umferðarmiðstöð) í Reykjavík og fékk mér svið með rófu- og kartöflustöppu (stranglega bannað í ESB) og svo í seinna skiptið fékk ég uppáhaldsmatinn minn, lambakótilettur í raspi með feiti, rabbabarasultu og Ora baunum. Konan fékk sér fisk enda miklu hollari manneskja en ég. Maðurinn við hliðina á okkur var að borða kjöt í karrí. Ég játa hér með að ég er ekki mikill makkarónumaður. Þarna ræddu menn einnig pólitík og efnahagsmál beint fyrir framan gamla Farmall traktorinn. Þarna liggja leiðir til allra átta á Íslandi
Jæja
Það verður skortur á verðbólgu í mörgum löndum á næstunni. Mikill skortur. Enginn vill fjárfesta í neinu sem stöðugt er að falla í verði. Enginn vill kaupa neitt núna sem fæst ódýrara seinna. Enginn vill eiga neitt sem sífellt tapar verðgildi => sell now! Það er því hætta á að við sjáum miklar og stórar gengissveiflur víða á næstunni.
Næsti póstur mun fjalla um e-málin, að venju
Takk fyrir kæru Íslendingar og takk fyrir kæra Ísland. Þú ert lifandi land. Sama hvað á gengur!
Fyrri færsla:
Hörðustu evrusinnar í Evrópusambandinu missa móðinn, en bara ekki á Íslandi
Forsíða þessa bloggs
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.3.2009 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 13
- Sl. sólarhring: 70
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1389049
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 245
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008