Þriðjudagur, 23. desember 2008
Undarlegt þetta Evrópu-samband
Hmmm . . .
. . . undarlegt, en það virðist vera svo að allt sem kemur nálægt þessu Evrópusambandi fari næstum því sjálfkrafa á hausinn, nema náttúrlega að gamla heima-ríkið komi og hjálpi til, því ekki gerir ESB það, svo mikið er víst.
Núna er það mjög þrálátur orðrómur um að Danske Bank sé að fara á hausinn inni í miðju Evrópusambandinu sem vekur athygli þeirra sem eiga peninga í vissum pappírum, eða réttara sagt, þeirra sem héldu að þeir ættu peninga í vissum pappírum. Það er því miður mjög mikið að gera núna hjá talsmönnum Danske Bank við að bera til baka frekar lífsseigan og Íslandslegan orðróm sem virðist lifa sínu eigin langa og þráláta lífi um að bankinn sé að fara nedenom og hjem.
Öll útrás Danske Bank til Írlands og baltísku landanna virðist vera að hengja þá í snöru esb-frelsisins núna. Ríkisstjórn Danmerkur segist vera að undirbúa björgunarhring uppá 100 milljaðra DKK til bankanna hér í þessu ESB landi. Þetta eru ca 2400 miljarðar ISK og kemur ofaní allt annað sem hefur verið kastað til bankanna. Þetta er ca. hálf miljón ISK á hvert mannsbarn í Danmörku.
Viðskiptavild Danske Bank uppá 23 miljarða DKK virðist alveg óvart hafa gufað upp fyrir hraðbyri á írska og baltíska hafinu inni í lögsögu ESB. Þessvegna er sennilega verið að kasta þessum björgunarhring af því að þetta heyrir jú væntanlega undir sjávarútvegsmálin þarna á ballarhöfum Írlands og baltísku landanna. En hvað veit ég. Það er því gott að við höfum marga sérfræðinga til að segja okkur frá því hvernig málin standa. Sérfræðingar frá Danske Bank segja okkur til dæmis að bankageirinn "hafi það fínt" og hafi næga peninga. Því spyrja aðrir danskir sérfræðingar hvervegna það sé þá þörf á þessum monster-pakka til bankanna? En hvað veit ég.
Hlutabréf í Danske Bank hafa fallið um 80% frá hámarki sínu fyrir tveim árum. Núna er gengið aftur komið niður til sultaráranna 1997, eða niður í fimmtíukallinn. 100 milljaðrar DKK gufaðir upp. Går den, så går den. Jammen det er jo bare dejligt!
Markedet frygter minus i Danske Bank
Eksperter sår tvivl om bankpakke
Danske Bank i dramatisk rygtestrøm
Ekki veit ég hvað hamingjumála-kommissar ESB segir við þessu öllu. Er ekki hægt að setja einhverjar fleiri reglur um að allt eigi að ganga vel í Evrópusambandinu? Ég spyr bara!
Það er því gott að Ungir Sjálfstæðismenn hafi alltaf vitað að ekki er allt gull sem glóir sem stjarna á bláum bakgrunni. Einusinni var bakgrunnurinn víst rauður. En núna er hann blár. Það þykir sumum ögninni betra.
En þetta lagast allt bráðum
Núna eru einungis 374 dagar eftir þangað til við verðum ríkust hér í Evrópusambandinu, samkvæmt teljaranum efst til hægri hérna á þessari vefsíðu. Ég get varla beðið - ó hve ég hlakka til !
Fyrri færsla: Saxo Bank 10 púnkta völvuspá fyrir 2009
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:30 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 14
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 131
- Frá upphafi: 1387414
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Það er ekki nema von að aðilarríkin verði sjálf að bjarga sínum bönkum - þau hafa ekki viljað taka upp sameiginlegt ábyrgðarkerfi fyrir bankakerfið. Það er blessað gamla þjóðarstoltið sem er að fara með þetta eins og svo margt annað til .......
Reinhard Reynisson (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 09:04
Snilldarhugmynd sem þú nefnir: Setja fleiri reglur um að allt eigi að ganga vel í Evrópusambandinu!
Haraldur Hansson, 23.12.2008 kl. 11:06
voðalega finnst mér viðbrögð og tálsmáti dönsku bankanna minna á íslensku bankanna rétt fyrir fall.
Fannar frá Rifi, 23.12.2008 kl. 12:03
Flott grein Gunnar. Setu hana aftur inn með tengingu á þessa frétt hérna
Guðmundur Jónsson, 23.12.2008 kl. 14:22
Það er skrítin röksemdarfærsla að kenna atburðarás sem átti upphaf sitt í bandarískri glæfrastarfsemi í húsnæðislánamálum við Evrópusambandið, bankar um allan heim eru í vandræðum og þér dettur í hug að kenna Evrópusambandinu um! Það er líka ein af þessu undarlegu hugmyndum sem andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafa um sambandið að hlutverk þess sé að koma bönkum til bjargar. Þetta staðfestir bara það sem mér hefur sýnst í þessari umræðu, þeir sem hæst gjamma gegn Evrópusambandinu eru þeir sem minnst vita um það.
Kjartan Jónsson, 23.12.2008 kl. 16:04
Takk kærlega fyrir innleggin
Já Kjartan. Ég hélt ekki að Bandaríkin skiptu máli lengur. Eurokratar eru búnir að segja það svo lengi. Það er víst ekki hægt að kenna Bandaríkjamönnum um hversu lélegir kaupmenn Evrópubúar eru, að hafa keypt þetta drasl af Bandaríkjamönnum. En já Bandaríkjamenn eru góðir sölumenn.
En annars held ég að subprime lán Evrópubúa sjálfra séu nú eins og ein stór púðurtunna í eignasöfnum evrópskra banka. Fasteignamarkaður Evrópu er jú í frjálsu falli. Ásamt 3,5 trilljón EURO lánum evrópskra banka til í nýmarkaðslöndum sem munu gjaldfalla á næsta ári. En það var samt gott að Bandaríkjamenn björguðu bandaríska AIG tryggingarisanum því hann tryggir allar skuldir Evrópskra stórbanka.
Nú er það víst þannig að eitrað eignasafn þýskra banka er núna komið uppí 30% af þjóðarframleiðslu Þýskalands. Svo það er bara að bíða eftir flugeldasýningunni - ásamt þessum 1.000.000 nýbyggðu og óseldum íbúðum á Spáni sem eru að springa undir ríkisstjórn Spánar. Svo eru það þessar 300.000 íbúðir á Írlandi sem enginn vill.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2008 kl. 17:54
Sæll Gunnar
Spár eru ekki það sem ég stunda heldur heilunarmiðlun en samt er það svo að stundum kemur tenging ef hún skiptir máli fyrir mannkyn.Bendi þér á Völvuspá sem ég gerði í 31.12 2007 á www.heilun.blogcentral.is um það hrun sem orðið er og ýmislegt þar sem komið er fram eins og mér var sýnt það.Það má vera að í framtíðinni setji ég nákvæmari greiningar inn allt að 12 mánuði fram í timann bæði um fjárhag og framtíð fólks en við sjáum til.Mér sýnist austantjaldslöndin vera að berjast í bökkum að halda sér á floti og Rússar eru að nálgast hættumörk haldi olia áfram að lækka en ég sleppi spá um það og geymi hana fyrir mig en hún mun hrista vel upp í hagkerfum heimsins á næstu 7 mánuðum.
með jólakveðju
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson, 23.12.2008 kl. 20:30
Ávinningur ESB umnfram EES er nokkuð sem hefur verið svolítið í skýjunum í umræðunni. Hver er ávinningurinn ? Hver er viðbótin, ef við bara sleppum göllunum í bili ?
-markaðir...þeir eru okkur vel opnir þegar (ekki er það það)
-Evran...jafnvel þó hún væri eftirsóknarverð...þá er hún ekki á leiðinni eftir hefðbundinni leið, sökum stöðugleika krafna
-stuðningur á erfiðum tímum...ekki eri Grikkir, Spánverjar og Írar að upplifa það
-"Bankakreppan hefði ekki gerst !"...en hví ekki, þetta eru reglur ESB sem EES svæðið tók upp um innistæðutryggingar...það hefði engu bjargað, tja nema að tryggja enn meir atvinnuleysi í fjarveru krónunar sem getur teygt sig niður á við og bjargað þúsundum starfa
-jú við hefðum haft málsvara á Evrópuþinginu...en við höfum það þegar í gegnum EES...
HVER ER HINN MIKLI ÁVINNINGUR UMFRAM EES...enn á ný með blindu auga á gallana?
Haraldur Baldursson, 23.12.2008 kl. 23:42
Ég er hissa Gunnar, hvað lítið kemur fram af upplýsingum í umfjöllunum um Danske Dank. Hversu tæpur er bankinn raunverulega ? Þótt gengi hlutabréfanna sé komið í 50 krónur, er ekki víst að hann sé tæpur, nema hann eigi mikið í sjálfum sér.
Hvenær fara Danir að taka út innistæður sínar ? Þegar það skeður, fer bankinn væntanlega í greiðsluþrot. Skeður nokkuð fyrr en eftir áramót, þegar uppgjör ársins verður ljóst ?
Hvernig ætli lausfjárstaða bankans sé ? Er hann með sterkar lánalínur ? Bankastjórar Íslendsku bankanna fullyrtu að lausafé bankanna myndi endast til 12-18 mánaða. Svo kom í ljós að þetta var lygi og "lausaféð" var háð óvissum lánalínum, sem brugðust auðvitað.
Virkar ekki þessi fjárveiting til bankana, eins og olía á eld ? Nú vita allir að alvaran bankar á dyr. Hvaða innistæðu-trygging er í gildi í Danmörku ?
Loftur Altice Þorsteinsson, 24.12.2008 kl. 00:30
Mikill er máttur USA: 1 banki hrynur þar og í kjölfarið allir bankar tengdir ESB. Í Bandríkunum eru það fjölskyldurnar sem þau eru að einbeita sér að bjarga í augnablikinu.
Júlíus Björnsson, 24.12.2008 kl. 03:37
Ég sé nú ekki betur að bankar í Bandaríkjunum og á Íslandi og víðar hafi farið létt með að fara á hausinn án þessa að vera í ESB.
Skil ekki alveg þessa röksemdafærslu þína? Hins vegar er ég sammála að einkennilegt er að ESB skuli ekki hafa sýnt samstilltari viðbrögð í þessu hruni um allan heim.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 24.12.2008 kl. 13:27
Þetta er nú málið Haraldur. Þegar menn hafa kokgleypt trúar-blekkingar (trúar-brögð), sitja menn svo þrælslega fastir á önglinum, að engin vitræn hugsun kemst að. Menn verða þrælar heimskunnar.
Auðvitað ætti að meta ávinning og telja tapið af EES-aðildinni, áður en mönnum leyfist að tala um ESB-aðild. Á sínum tíma (1993) var vitað, að tvíhliða samningur við ESB var mögulegur, í stað EES. Alþýðuflokkurinn mátti ekki til þess vita, því að flestir vildu þeir ana beint inn í ESB, eins og naut sem hleypur að dulu nautabanans.
Loftur Altice Þorsteinsson, 24.12.2008 kl. 17:10
Kjartan Jónsson:
Það eru reyndar einmitt ófáir Evrópusambandssinnar sem hafa sagt að Evrópusambandið kæmi bönkum til bjargar á evrusvæðinu í gegnum seðlabanka sinn. Menn eins og t.d. Eiríkur Bergmann Einarsson sem kallar sig sérfræðing í Evrópumálum. Staðreyndin er þó vissulega sú að umræddur seðlabanki hefur enga burði né lagaheimildir til þess að bjarga bönkum, þ.e. hann er ekki lánveitandi til þrautavara eins og það er kallað. Og það hafa sjálfstæðissinnar einmitt ítrekað bent á.
Hjörtur J. Guðmundsson, 24.12.2008 kl. 22:32
Guðbjörn:
Það er einmitt kjarni málsins. Bankar eru að fara á hausinn um allan heim. Innan sem utan Evrópusambandsins. M.ö.o. er engin vörn í þessu blessaða sambandi í þeim efnum eins og sumir hafa viljað halda fram.
Hjörtur J. Guðmundsson, 24.12.2008 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.