Leita í fréttum mbl.is

Þjóðin sem ekkert getur og ekkert kann [u]

Upptaka: Það sem ekki sést, fyrr en of seint. Þess vegna var Napóleon af Kutuzov leyft að hörfa með hluta af löskuðum her heim, til þess síðan að troða honum upp í túllann á Bretum. Byggð var gullin brú fyrir hann til baka. Það var betra og nytsamara en hitt sem flestir heimtuðu: algjöra tortímingu. Hvað verður nú?

****

Samkvæmt fréttum pólitískra vændishringa vestrænna fjölmiðla síðasta árið, og áratugina, þá er ekkert "lýðræði" í Rússlandi, en samt refsa vesturlönd og vestrænir vændisfjölmiðlar rússnesku þjóðinni eins og hún sé ábyrg fyrir öllu: þ.e. hafi kosið vitlausan mann. En samkvæmt Genfarsáttmálunum eru sameiginlegar refsingar bannaðar samkvæmt þeim lögum sem vesturlönd hafa sett en brutu síðan í 34-ára samfelldan spón með innrásum í Panama, Júgóslavíu, Afganistan, Írak, Líbýu og Sýrland og með því að aðstoða glæpagengi Gyðingahatara við árásir á austurhluta Úkraínu í samfellt sjö ár. Allt í allt hafa vesturlönd nýlenduhersetið töluvert stóran hluta heimsins síðan að líberalistar tóku að sér alheimsstjórnina með þessum blessuðu Genfarlögum þeirra við stríðsvinnuna, ofan í Parísarsamkomulagið sem er eina lagið sem menn kunna í dag. Enginn maður með fullu viti er eftir á vaktinni á vesturlöndum. Þar bíta frekar illa kjörnir stjórnmálamenn gras, það er nefnilega grænt. Samt bað enginn um það lag, eins og enginn bað um Evrópusambandið en fékk það samt. Þaaað er nefnilega lýðræði, sem ekki er hægt að kjósa burt

Upptaka: Rússneskt skítaveður. Rússar kunna ekki að fljúga í fylkingu, sagði eitt bandaríska undrabarnið við CNN (nú Communist News Network). Rússar geta nefnilega ekkert og kunna ekkert: sorpmiðill

****

Afleiðingarnar í dag eru þær að Kína endurreisti stjórnmálasambandið á milli Íran og Sádi Arabíu þann 10. mars síðastliðinn, og Moskva rúllaði út rauða dreglinum fyrir Bashar al-Assad forseta Sýrlands þann 15. mars, fimm dögum síðar

Í gær lentu síðan al-Assad og kona hans Asma í Sameinuðu arabísku furstadæmunum til að hugga sig saman með Sheikh Mohammed forseta

Salman konungur Sádi Arabíu bauð síðan í gær forseta Írans í heimsókn til Ríad

Og í dag, mánudaginn þann 20. mars 2023, hófst opinber heimsókn Xi Jinpings forseta Kína til Rússlands. Þar hitti hann forseta Rússlands, Vladímír Pútin, og sagði frá fyrstu stund að þeir væru að hittast einmitt þar vegna þess að nú séu löndin strategískir félagar

Uppfært: þriðjudagur, 21. mars 2023

Eftir rúmlega fjögurra tíma fund mánudaginn þann 20. mars munu fundir Vladímírs Pútíns og Xi Jinpings halda áfram í Moskvu í dag, þriðjudag, og verður fundarformið þrengra og einkennast af þátttöku rússneska vopnaiðnaðarins, því Kína er komið til Rússlands í leit að betri vopnum gegn Kyrrahafsflota Bandaríkjanna. Og þau vopn hafa Rússar einir í heiminum. Í gær voru friðartillögur Kína með tilliti til Úkraínu ræddar, en þar er Rússland með fyrirfram fastar áætlanir sem lítt verður haggað. Þessi tvö lönd heimsins eru líklega einmitt núna að enda ein-póls-heiminn sem reið heimsbúskapnum eins illa og ég nefni hér fyrir ofan. Hafði sá heimur feigðina innbyggða í sér frá byrjun af. Vesturlönd horfa bara á núna og halda áfram að sökkva sér í einu allsherjar sjálfsvígi firrtra glóbal-krata, með aðalstöðvar á Kleppi við Súez 2

Upptaka: Kíkt við í kaffi á Sukhoi Su-30: Er ekkert meira á borðum í þessari Ilyushin IL-76 strákar. Við getum ekkert eins og þið vitið

****

Á meðan brenna grænbruna-bankarnir, eins og flest annað, undir örvitanum Jósef Biden, og gengi hans í Washington. Maður bíður bara eftir því að snarbilaður Blinken stökkvi út um glugga eins sumir ráðherrar í sama Hvíta húsi með sömu einkenni hafa gert. Öll pólitík Bandaríkjanna, ESB og NATO liggur nú undir 34 ára rústum líberalista glóballarismans sem ætluðu sér að frelsa heiminn og jafna hann út með nú síðast vestgrænni myglu. Glóbalismi þeirra er gjaldþrota og mælist þrot hans best í verðbólgutölum, ónýtum vinnumarkaði og ónýtum háskólum vesturlanda, undir einum og sama alþjóðlega konu-vælandi kvenkyns grasasnasöng af báðum 25 kynjum - samanlagt. Síðasti alþjóða-vol-og-væl dagur kvenna var 8. mars. Sumir geta því enn náð að kvenvola og kvenvæla, hafi þeir ekki náð því þá. Volið og vælið, endilega!

Samkvæmt hinu rauða grænkveri NATO í Vinstri grænum er Rússland eina landið í heiminum sem engar lögmætar þjóðaröryggisáhyggjur er heimilt að hafa, né taka þarf tillit til

Nú er iðnaðarhluti rússneska hagkerfisins sennilega orðinn helmings til tvöfalt stærri en Þýskalands. Þjónustuhluti vestgrænna hagkerfa er hvað? Jú stafrænt streymisveitusuð. Á honum við byggjum framtíðina maður! 

Fyrri færsla

Ísland er með varnarstefnu og hún er ekki Þorgerður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Jú, það fer hægt af stað en svo hrynur það allt í einu. Þetta á við um heimsyfirráðastefnu Bandaríkjanna í dag. Með 1000 hervelli um allan heim ætluðu þeir að tryggja yfirráð sín. En svo bara, einn daginn, fengu undirsátarnir nóg og nú krefjast þeir jafnræðis. Það fá þeir hjá Rússum sem í fjölbreytileika sínum gerir ekki upp á milli mann. Rússland er nefnilega fjölþjóðasamfélag í orðsins fyllstu merkingu. Allt hjal vestrænna ríkja um að viðskipti tryggi frið fellur um sjálft sig þegar þau gang-í-gang beita refsiaðgerðum til að koma í veg fyrir viðskipti.

Og friður er það síðasta sem hergagnaiðnaðurinn kallar eftir. Næst á dagskrá er Haítí.

Ragnhildur Kolka, 24.3.2023 kl. 11:48

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ragnhildur.

Veit ekki hvort að menn hafði almennt tekið eftir Súez-1 þegar sú tímastimplun sögunnar fór fram og stimpillinn smellti sér á hana 1956 og batt endahnútinn á geopólitísk heimsáhrifavald breska heimsveldisins, sem þar með varð að héraðsáhrifavaldi. En atburðirnir núna Úkraínu vegna eru farnir að minna mig á þá stimpil-aðgerð.

Fleiri stimplar reiða til höggs núna. Því sem næst allsherjarverkfall skellur á í Þýskalandi á mánudaginn og endar þar með 20-ára frið á því sviði þar og endurvekur þar með frumbyrjunina á byltingarneista í lendum iðnaðar þar - sem er á lóðréttri leið á skallann. Tímasetningin er þannig.

Hvernig í ósköpunum ættu viðskipti að tryggja frið??, nú þegar margsannast að kapítalisminn leiðréttir sig ekki sjálfur. Það er eitt af því fáa sem hann aldrei gerir og munu bankabruna-eldarnir í ESB í sumar dansa á gröf hans, sé ekki slegið og neglt neitt vit í þá álfu, því ekki mun það koma vestan-frá næstu tvö árin.

Jú þetta passar: Þýskaland var stærsta viðskipaland Rússlands 1914 og 1941 og 2022. Og Rússland var stærsta viðskipaland Þýskalands 1914 og 1941 og 2022. Passar því upp á hár að viðskipti tryggi friðinn, það er að segja ófriðinn.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.3.2023 kl. 13:24

3 Smámynd: FORNLEIFUR

 Ljóst þykir mér af þessum skrifum, að stoðir Sjálfstæðisflokksins séu smávegis að gefa sig... Eftir er margt heilabilað fólk og þessi stóri kjarni, sem ekki stígur í vitið. Þeir eru jafnvel búnir að gleyma réttinum til að græða.

FORNLEIFUR, 26.3.2023 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband