Þriðjudagur, 12. apríl 2022
Rússar verða sennilega eins lengi í Úkraínu og þeim sýnist
Mynd: Hryggsúla andskotans yfir Borgarfirði í snjójúní í fyrrasumar. Þarna lá hann á bakinu þann 24. júní og sýndi okkur jökulkaldan afturendann, einu sinni enn...
****
EFNAHAGSLEG HEIMSSTYRJÖLD GEGN RÚSSLANDI ER HAFIN
Menn verða að reyna að venjast því að stríð er ekki fótboltaleikur og því illa fallin til dyggða-skiltunar (e. virtue signalling) á ritskoðuðum eins flokks köngulóarvefjum einkafyrirtækja á borð við Fésbók og Tístarinn - þ.e.a.s. með þannig samskiptum sem þar eru stunduð með þeim afleiðingum að þau fyrirgera hagsmunum landa, þar á meðal lands okkar og þjóðar og blæða hagkerfi okkar til einskis
Það er absúrd að samþykkja svona gagnslausar refsiaðgerða-sjálfspyntingar vegna Rússlands á meðan til dæmis Þýskaland neitar alfarið að fórna svo miklu sem einum óseldum CDU/SPD-snúð úr risavöxnu þýska Rússadindlaveldinu, sem enn fær vanþróunarlandaaðstoð frá Bandaríkjunum, en er samt á skallanum á alla hugsanlega vegu. Að þessu leytinu eru íslenskir stjórnmálamenn dragbítar og skemmdarverkamenn okkar eigin efnahags. Þeir ættu að vita betur, en gera það því miður ekki því flestir þeirra eru því miður grænir og nytsamir kommakjánar úr hinum og þessum "höllum" -kenndum við vaff- og sem vel er hægt að kalla einu og sömu kommahöllina í dag
Rússar munu líklega verða í Úkraínu eins lengi og þeim sýnist, en þó örugglega eins lengi þeir telja nauðsynlegt. Alveg sama hvað okkur og heiminum öllum kann að finnast um það. Fyrir þeim er þetta Úkraínumál tilvistarlegs eðlis á svipaðan hátt og kínverskt KNATO í túnfæti Bandaríkjanna í Mexíkó væri tilvistarógn við sjálf Bandaríkin. Þau myndu bregðast eins við og Rússland bregst við firrtum áætlunum um NATO í túnfæti þess í Úkraínu núna
Í bráðum sjö vikur hafa vestrænir fjölmiðlar haldið því fram að Úkraína sem alltaf greiðir atkvæði gegn Ísrael í stofnun Sameinuðu þjóðanna, þ.e. gegn lýðræðisríki sem neyðist til að búa við einræðisherraríki á alla kanta sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Þessu hefur verið haldið blákalt fram eins og í versta bleðli frá áróðursráðuneyti Þriðja ríkisins. Og þegar bent er á að mönnum geti varla verið alvara með svona málflutningi, þá er bara hent í raunsæismenn óhróðri fyrir að taka ekki undir glóruleysið og fyrir að benda á hið augljósa: að það vinnur enginn stríð við Rússneska herinn sé það háð á heimavelli og af tilvistarlegum ástæðum, alveg sama hvort erlendum finnist slíkt vera tilfellið eða ekki. Rússar sjá þetta á þann hátt og segja að nú sé nóg komið. Að NATO-bröltið inn í Úkraínu síðastliðin 14 ár hafi náð suðumarki hvað Rússland varðar. En ef menn neita að horfast í augu við augljósar staðreyndir, þá þeir um það. En einhverjir munu samt þurfa að taka afleiðingunum af þannig gersamlega ábyrgðarlausum loftfimleikum - og þessir einhverjir geta skyndilega orðið mjög margir
BALLIÐ ER BARA RÉTT AÐ BYRJA
Eins og ég sagði í tengslum við þar síðasta pistill minn: Allar fréttir um að Rússlandi vanti vopn frá Kína voru og eru lygar því það er Rússland sem skaffar Kína vopn og tækni á því sviði, en ekki öfugt. Vopnasmíði Rússa er vestrænt meistaraverk miðað við það sem Peking skyrpir út úr sér í alla sína dalla. Kínverjar hafa til dæmis aldrei getað framleitt svo mikið sem einn áreiðanlegan þotuhreyfil, né hvað þá heldur stundað reglubundna farþegaflutninga í geimferðum með sinni eigin tækni. Þetta voru auðvitað áróðurslygar úr ranni óöryggisstofnana Bandaríkjanna og Bretlands (já því miður, þær eru orðnar þannig) og sem leikið hafa hættulega lausum hala allt of lengi. Þær þarf greinilega að taka á teppið svo að stjórnmálamenn beggja megin Atlantsála komi böndum yfir þær á ný, áður en þeim tekst að taka lönd sín enn neðar í svaðið
"It doesnt have to be solid intelligence," one U.S. official said. "It is more important to get out ahead of them [the Russians], Putin specifically, before they do something."
Rússar!, Rússar!, Rússar! og Rússar! er orðið stofnanavætt hatursmusteri undir hverju rúmi Demókrata þar sem Joe Biden er haldið sofandi í þeim öllum. Áróðurs- og lygaveitur þessar eru notaðar í eins konar upplýsingastyrjöld, því Rússneski herinn hefur nú að mestu tortímt hernaðargetu Úkraínu og eru því falskar upplýsingar einu vopnin sem eftir eru til umráða. Og flestar lygar þessara stofnana lepja vesturlenskir fjölmiðlar upp og búa til heilu akrana af samfelldum ósannindum sem daglega eru notuð til að fóðra almúgann á vesturlöndum. En fólk með heilann í lagi veit þó vel að jafnvel Rússar hafa tilvistarrétt, þó svo að þeir lesi ekki Washington-Pravda-Póst Demókrata og taki ekki þau efni sem Hillary Clinton og Joe Biden taka inn dagalega, eða anda bókstaflega að sér. Gildir það bæði fyrir og eftir Úkraínumálið
En ballið er bara rétt að byrja. Það er að segja, kistulagning tímabilsins frá 1991 til 2020 er rétt að hefjast og mikilvægt er því að Ísland taki þau egg sín sem lögð hafa verið í allsherjar gáfuleysi í ruslakörfuna Evrópu og að þeim sé komið varanlega fyrir á réttum stöðum, sér í lagi vestanhafs sem er á Vesturhveli jarðar, en þar verður eini öruggi staðurinn fyrir þau um langa framtíð. Gamli heimurinn mun hvorki verða til friðs né viðtals um langan tíma, lifi hann sjálfan sig af. Að tekist skuli hafa að byggja upp heilt nýtt sovétríki hér á landi í kringum einn grábölvaðan og útópískan EES-samning úr pappír, já það er ráðgáta fyrir heila stétt geðlækna að leysa á komandi árum hér heima. Það uppgjör verður að fara fram
ÁRANGURSLEYSI EINI ÁRANGURINN
Hver er strategían með því að vísa sendiherrum Rússlands burt úr hinum og þessum löndum núna? Hverju þykjast ríkisstjórnir ná fram með því? Og hverju þykist til dæmis ríkisstjórn Íslands uppná með því að taka þátt í öllum þessum "refsiaðgerðum" - nú í hátt á tíunda ár? Hefur sú strategíska hugsun yfir höfuð hvarflað að ríkisstjórninni? Nei, það hefur hún auðvitað ekki gert, því um dyggðaskiltun en ekki strategísk-stjórnmál er eingöngu að ræða, þar sem keppst er um að stúta sjálfum sér í kappi við aðra til að sýnast á kostnað þjóðarinnar. Í hvaða stellingar ætla þessir stjórnmálakjánar að setja sig og andlit sín þegar þeir þurfa að biðja Rússa um aðstoð gegn sínum gúlagsmönnum í Kína. Já gegn Kína, þar sem til dæmis Barni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins situr nú í AIIB-bankaráði kommúnistaflokksins sem rekur þar Stalín-gúlag
Sannleikurinn er auðvitað sá að enginn strategískur tilgangur er með aðgerðum á borð við þessar. Eini tilgangurinn er dyggða-skiltun og að taka sig vel úr á vaff-myndum og útgrænum skiltum. Þetta mun hins vegar kosta land okkar og þjóð verðmæti sem fela í sér áhrifamissi yfir sjálfri tilvist okkar sem þjóðar í eigin landi og versnandi lífskjör. Svona stunt-pólitískar broskalla-ljósmyndaaðgerðir endast illa. Þess utan er Rússland eitt af vesturlöndunum, þó svo að það sé einnig með annan fótinn í Asíu. Menning Rússlands er kjarna-vesturlensk. Öll stríð þar sem barist er við sína líka eru ekki neinar sandgöngur né úlfaldaferðir. Og menn eiga að hafa vit á að stofna ekki til þeirra og enn síður að stuðla að þeim. Þetta stríð er í boði stóðelítu Evrópusambandslanda sem misnotað hefur NATO á öllum hugsanlegum sviðum en þó mest í annarlegum tilgangi, því sjálf eru lönd sambandsins svo hrikalega illa stödd varnarlega séð að 10 prósent útgjöld af landsframleiðslu þeirra til varnarmála næstu 30 árin munu ekki einu sinni duga til. Þess utan veit enginn í ESB hvað land þeirra stendur fyrir lengur. Þjóðirnar í sambandinu vita ekki lengur hvað lönd þeirra snúast um og hvort þar sé eitthvað sem er þess virði að verja. Þarna er allt í rusli og Rómarveldissteik frá þriðju öld e.Kr. En þannig verða öll úniversal-heimsveldi. Þau verða óverjanleg abstraktsjón úti við ysta sjóndeildarhring, þar sem enginn býr né á sitt heima
TÁLSÝNIN VONDA
Viðskipti milli ríkja, sér í lagi á milli Evrópusambandslanda, minnka alls ekki hætturnar á stríði heldur magna þau hætturnar. Þessi síbylju-tásýn hefur alltaf verið firra, verður alltaf firra og helber útópískur þvættingur af verstu sort. Það sjá til dæmis Þjóðverjar núna, eða réttara sagt; þeir ættu að sjá það núna. Milliríkjaviðskipti breyta ekki löndum og tilvistarhagsmunum þeirra. En einmitt núna eru þýskir ráðherrar í áfalli og segja að Rússland hafi sturtað 50-ára viðskiptahjónabandi þess við Berlín í vaskinn - án þess að úr yrði alsæll friður. Og vel að merkja, var það hjónaband í algjörri óþökk margra annarra landa Evrópuþykjustusambandsins, þar sem allir hata alla. En Evrópusambandið var auðvitað eingöngu stofnað til að auðvelda stærstu ríkjunum að ríða minni ríkjunum til grunna og gera þau að hjálendum sínum með Evrópueyðni. Stofnun þess hafði ekkert með frið af gera, heldur allt með ófrið
ENDURTEKIÐ EFNI
Nú vantar bara að Þýskaland telji sig einu sinni enn "niðurlægt ríki", með því að vera neytt inn í afiðnvægingu þýska hagkerfisins sökum orkuskorts er rústar þeirri samkeppnishæfni sem fransk-ítalska makkarónu-evran færði þeim. Að þeir, eftir 65-ára ESB-þvælu standi berir á brókinni, rafmagnslausir, orkulausir, herlausir, og með ónýtan og of-prentaðan ítalskan gjaldmiðil sem gefinn er út við Miðjarðarhaf, er svo sprenghlægilegt að hægt er að hlægja alla leiðina í hvaða banka sem er, jafnvel þó svo að hlægja þurfi alla leiðina til útibús Schröders og Merkels nyrst í Síberíu. Þýskir kjósendur vita vel hver staðan er. Þeir sjá úrræðalausan og kjarklítinn kanslara landsins læðast um næfurþunna eggjaskurnina á peningagólfi evrunnar á 36-tommu snjóþrúgum, við kertaljós í tíu prósent verðbólgu og núll prósent stýrivöxtum sem ekki er hægt að hækka því þá hrynur allt og kanslarinn hverfur í gegn ásamt öllum samskonar fuglahræðum í Merkel-stíl sem á eftir honum koma
Þegar Þýskalandi finnst að það hafði verið niðurlægt nógu mikið já þið vitið þá hefjast þýsku rassaköstin þar á ný, en þau koma á 80-ára fresti. Öll hin pólitíska stétt ásamt hinni þríhyrndu esb-elítu Þýskalands er rotin inn að beini og Þjóðverjar sjá svart á hvítu að "lýðræði hefur ekkert fyrir okkur gert nema að fóðra önnur lönd", já sá söngur verður auðvitað kyrjaður þar á ný. Sama gamla sagan og síðast verður sungin. Krafan um nýjan "sterkan leiðtoga" mun endurtaka sig
En kannski og þrátt fyrir allt gæti sá nýi og "sterki þýski leiðtogi" þegar verið á leiðinni með járnbraut heim til Þýskalands, nema hvað, því hver veit nema að Christian Kern fyrrum kanslari Austurríkis leyfi Gerhard Schröder að sitja gratís í svona eins og einum járnbrautarvagni Rússneska ríkisins til Berlínar, og gefi skipun um að honum verði hreinlega sópað út úr lestinni á brautarpallinum í Berlín. Hæg eru heimatökin, því Kern situr í stjórn Rússnesku ríkisjárnbrautanna - hjá forseta Rússlands
EIGNASAFN VLADÍMÍRS PÚTÍNS FORSETA ER STÓRT
1. Angela Merkel kanslari Þýskalands í 16 ár ber hálsband forseta Rússlands og er enn ánægð með það og fékk hún fyrir vikið titilinn "leiðtogi hins frjálsa heims" frá útgefendum sovét-fréttamiðla vesturlanda, á meðan Donald J. Trump réttkjörinn forseti Bandaríkjanna var bannfærður af hinu sama fávitahælasafni vesturlenskra fjölmiðla. Á Íslandi var Merkel mærð sem eins konar undrabarn af öllum flokkum en þó einkum af áttavilltum Valhallar-grænkommum
2. Gerhard Schröder kanslari Þýskalands í 8 ár varð forstjóri Nord Stream 1 leiðslunnar inn í Þýskaland. Hann situr nú sem stjórnarformaður Rosneft, hins rússneska orkurisa, og hefur sömu stöðu í Nord Stream AG
3. Paavo Lipponen forsætisráðherra Finnlands sá um að skaffa leyfin til lagningar leiðslunnar um lögsögu Finnlands, sem fær nær alla sína aðkeyptu orku frá Rússlandi - og þykist Finnland nú ætla sér hitt og þetta, en mun ekki gera neitt
4. Esko Aho forsætisráðherra Finnlands sat í stjórn Sberbank, sem er stærsti banki Rússlands
5. Matteo Renzi forsætisráðherra Ítalíu (gjaldþrota land sem þolir ekki hærri stýrivexti en núll) situr í stjórn rússnesku Delimobil deilibílaþjónustunnar, en hún átti að verða alþjóðlegt undrabarn, eins og Angela Merkel sem brátt neyðist til að nota gömlu landflóttaleiðirnar til Suður-Ameríku
6. Christian Kern kanslari Austurríkis sat í stjórn ríkisreknu Rússnesku járnbrautanna fram yfir innrás Rússa í Úkraínu, en læddist þó sennilega burt á undanförnum dögum, en þó mest að nóttu til í náttfötum
7. Wolfgang Schussel kanslari Austurríkis situr í stjórn rússneska orkurisans Lukoil, nema að hann hafi hlaupið heim með skottið á milli fótanna sem Jörg Haider var ekki liðið af hafa
Þessi listi af evrópskum erkifíflum með ESB-hálm í heilastað er hins vegar endalaus. Þetta hér er bara lítið sýnishorn
VITA EKKERT OG GETA EKKERT!
Þá vitið þið kæru lesendur hvers konar heilaleysingjar það eru sem bjóða sig fram til kjörs á Meginlandi taparanna. Oftast er ekkert á milli eyrna þeirra, nema þá helst gamlir evrópskir köngulóavefir, eins og sést
Og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra Íslands situr sennilega enn í stjórn AIIB "fjárfestingabanka" Kínverska kommúnistaflokksins, sem er imperíal-útþenslu-stofnun Kína. Hann hoppaði á vagninn eins og hinir nytsömu kjánarnir í grænkommahöllum vesturlanda
LOFTIÐ EITT
"Verða komnar í loftið innan nokkurra klukkustunda"
- sagði Josep Borrell utanríkismálastjóri ESB án ríkis, er fíflið hann hugðist gangsetja þriðju heimsstyrjöldina um daginn. En sovésku MiG þoturnar eru enn fastar jörðu niðri. Síðan þá hefur lífshættulegur Borrell sem betur fer yfirgefið jörðina og er nú með hugann fastan í Malí. Best væri þó að senda hann inn í stjörnuþoku Sameinuðu þjóðanna
Fyrri færsla
Zelensky: "Úkraína verður hlutlaus"
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt 13.4.2022 kl. 07:00 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 12
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 1387450
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Sæll! Alltaf gaman að lesa þinn stíl.
Helga Kristjánsdóttir, 12.4.2022 kl. 23:56
Þakka þér fyrir Helga.
Já það skapar svo mikinn "frið" í Evrópu að löndum álfunnar sé með samþættingu færð þau vopn að geta slökkt á öðrum löndum álfunnar eða á efnahag þeirra. Það hljóta allir að sjá. Til dæmis ef ég get skrúfað fyrir til dæmis orku, vatn, peninga og seðlabankafærslur annarra landa álfunnar, að þá sé heimurinn friðsælli staður fyrir vikið. Þennan þvætting höfum við mátt þola að hlusta á í 65 ár - án enda.
Það undrar mig því ekki að lönd séu tekin hálstaki og kenningar þeirra sjálfra um þessa þvælu séu notuð á þau, en einmitt þau ætluðu þó aldrei að lifa samkvæmt þeim boðskap sem þau boðuðu fyrir önnur lönd.
Þýskaland neitaði að hlusta á öll lönd Evrópusambandsins um ávanabindandi samband sitt við Rússland. Þess vegna riðu önnur lönd Evrópusambandsins á þýska vaðið og depóneruðu orkumálum sínum til Rússlands líka.
Hið sama gildir um það að Þýskaland sveik skuldbindingar sínar við NATO í samfellt 30 ár. Næstum öll lönd sambandsins fóru því að þýska fordæminu og sviku líka.
NATO er því á tímamótum því það finnast eingin fordæmi í mannkynssögunni um að sameiginlegar varnir lifi félagsskap sinn af til lengri tíma litið. Hann verður alltaf að eins konar félagsmálastofnun - þar sem "aðrir" eiga að fórna sér, bara "ekki ég".
Og nú þegar jafnvel íslenskir sem erlendir vinstrimenn í Evrópu hafa áhuga á NATO, þá segðir það okkur að NATO sé við það að vera búið að vera sem varnarbandalag, því þegar vinstrimenn eru komnir um borð þá þýðir það að þeir líta á NATO sem eins konar félagsmálastofnun um varnarmál. En það er NATO einmitt ekki.
Þetta má ekki misskiljast á þann hátt að ég sé eitthvað minna NATO-sinnaður en áður. En þetta hættumerki fær hárin til að rísa á höfði mér, því nú styttist greinilega sá tími sem NATO á enn eftir ólifaðan.
Og þá er eins gott að sambandið vestur til Washington sé í lagi, og laust við Kínverska gúlaghaldara.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 13.4.2022 kl. 01:45
Þakkir fyrir þennan real-politk pistil.
Lausan við skinhelga hræsnina.
Bara ískaldar staðreyndir bornar á borð.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.4.2022 kl. 12:30
Ég tek undir með þér Gunnar um stuðning við varnarbandalagið, en nú eru blikur á lofti. NATO hefur spilað stóra rullu í tilurð átakanna í Ukrainu og Rússar munu seint gleyma því.
Og útþenslan stendur áfram. Gangi Finnland í NATO með øll sin endalausu landamæri að Russlandi mun hættan flytjast þangað. Uppbygging herafla þar gerir það að verkum. Eystrasaltsløndin eru bara smápeð í samanburdi við Finnland. Hvar ætlar NATO svo að finna mannskap til að dekka finnsku landamærin? Skandinavar, reyndar mestøll Evrópa eru andvígir herþjónustu. Þetta er aktual spurning. Svo sá ég að Stoltenberg hafi lýsti því yfir á bladamannafundi eftir nýlegan utanrikisradherrafund að NATO ætli nú að fara að snua sér meir að Kyrrahafs-Asíu svæðinu. Líklega þá til að verja BNA gegn árásum úr austri. Allt þetta hljómar ruglingslega í mín eyru,en umfram allt hljómar það eins og varnarbandalagið sé að taka á sig nýja mynd.
Ragnhildur Kolka, 13.4.2022 kl. 13:04
Þakka ykkur fyrir.
NATO er Bandaríkin. Við skulum hafa það á hreinu. Allt hitt er lítils virði og kjarnorkuvopn Breta og Frakka hafa bara gildi svo lengi sem þau tvö telja sig vera undir kjarnorkuvopnaregnhlíf Bandaríkjanna líka og á sama tíma. En án regnhlífar Bandaríkjanna á því sviði eru kjarnorkuvopn Breta og Frakka að mestu stofupunt gegn alvöru andstæðingi. Án Bandaríkjanna hafa þau aðeins gildi gegn minniháttar andstæðingi.
Úr vondu er að ráða með áframhaldandi tilvist NATO, því Bandaríkin geta ekki verið alls staðar í einu á sama tíma og meginland Evrópu er gagnslaust og gjaldþrota á þessu sviði, og Bretland getur alltaf dregið sig til baka í skjól upp á sína eyju og æpt og skrækt þaðan á til dæmis Rússland.
Stoltenberg hamast því við starf sitt sem er að reyna að tryggja áframhaldandi ALL-IN þátttöku Bandaríkjanna, því hann veit að án þeirra er spilið búið. Hans verksvið er því fyrst og fremst að reyna að sanna áframhaldandi tilverurétt NATO fyrir Bandaríkjunum. Lúður og blástur hans í hann ber því að líta á með þetta í huga. Og hann mun ekki draga af sér við blásturinn, sama hvort tilefnið er lítilfjörlegt eða ekki.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 13.4.2022 kl. 14:49
Ismay lávarður, hinn fyrsti framkvæmdastjóri NATO, útskýrði stofntilgang varnarbandalagsins svona: "NATO var stofnað til að halda Rússum úti úr Evrópu, Þýskalandi niðri, og Bandaríkjunum inni í Evrópu".
Rússar eru ekki lengur inni í því sem þá var skilgreint sem "Evrópa". Og Þýskaland er ekki lengur niðri heldur trúlofað Rússlandi og Bandaríkin eru farin.
Hvað er þá eftir? Jú kvöldverðardeild NATO í Brussel stendur ein eftir og hún gengur út á að reyna að fá Bandaríkin til að borga reikningana áfram.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.4.2022 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.