Sunnudagur, 7. febrúar 2021
Mýtan um Evrópusambandið
Hlaðvarp Spiked um ESB-útópíuna og bóluefnismálið. "Hvernig heimsfaraldurinn afhjúpaði ESB gersamlega" má síðan lesa hér
****
Ekki þýðir annað en að birta hér á útlensku um það málefni sem hver fjölmiðill með virðingu fyrir sjálfum sér ætti að birta hér heima en gerir ekki, nema Morgunblaðið. Og hér er alveg sérstök ástæða til að benda á lokaðan ríkisfjölmiðilinn DDRÚV. En hann hefur á hinum síðustu árum loksins fundið gluggatjöldin sem Halldór Laxness sagði að væri það eina sem Sovétríkjunum vantaði, því ekkert um ástandið í Vesturlöndum-nær sleppur út úr DDRÚV. Sérstaklega ekki um ESB-gjaldþrotasambandið. Aðeins þær fréttir sem passa við stefnuskrá DDRÚV sleppa út
Nú segir Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB að sambandið sé framar Afríku í bólusetningum gegn kínversku Wuhanveirunni. Er þetta ekki stórkostlegt. Meginlandsfyrirbærið ESB er að breytast í eins konar Norður-Afríku
En þá ber að geta þess að sá/sú stjóri/ína er sérstakur útsendari Angelu Merkels, sem aðstoðarritstjóri breska Telegraph segir að sé ofmetnasti stjórnmálamaður sinnar kynslóðar á meginlandi Evrópu. Hvorki meira né minna. Allt sem hún kemur nálægt leggur hún í rúst
Merkel og forseti Frakklands hafa nú breyst í eins konar bólusetningar-afneitara sökum þess hversu vel nýfengið fullveldi og sjálfstæði Bretlands virkar fyrir það þegar að lífsmikilvægum málum eins að verja þjóðina í og gegn heimsfaraldri kemur. Þar æða Oxford/Spitfire um Stóra-Bretland og hafa nú þegar bólusett 17 prósent þjóðarinnar á meðan, sem sagt, Evrópusambandið miðar sig við Afríku
Ekki gleyma að minnast hér á þriðja flokks orkupakka Evrópusambandsins Gunnar, því nú er svo kalt í veðri í turni ESBhrópsins að Svíar mega helst ekki ryksuga heima hjá sér vegna ESB-hugmyndafræðilegs orkuskorts og pappírsverksmiðjur landsins neyðast til að loka niður, því þá er rafmagnið svo dýrt. Þarna er draumur rafbílasovétsins sannarlega að rætast; bara má keyra á sunnudögum? Hjarðónæmi meðal forystu Sjálfstæðisflokksins gegn kjósendum hans hefur hins vegar verið náð. Það er þó eitthvað
Og hugsa sér. Nú er ástandið á Ítalíu svo "rosalega gott", eina ferðina enn, að ókjörinn Mario Draghi fyrrum ECB-seðlabankastjóri er að setjast þar við stjórnartaumana, einungis vegna þess að hann þekkir fólk um borð í seðlabanka evrunnar. Kjósendur koma hvergi nærri. Hvert skyldi nú aftur ítalska skútan vera á leiðinni? Tvær aðrar samsteypuríkisstjórnir riða nú til falls á meginlandi Evrópu: í Hollandi og Austurríki
Það besta sem gerst gæti fyrir Ísland er að viðurkenna að við Íslendingar eins og Bretland, getum ekki búið við meginland Evrópu því við erum ekki í Evrópu, og að við leggjum því aftur aðaláherslur okkar í utanríkisviðskiptum á Stóra-Bretland og Norður-Ameríku og nágranna þess í norðri, því ein og sér eru Bandaríkin stærri, öruggari og mun betri og þróaðri viðskiptamarkaður en allt meginland Evrópu. Á því meginlandi er nefnilega flest viðstöðulaust á leið til nýrrar heljar
Segja þarf EES-samningum upp og forða Íslandi út af lögsögu Evrópusambandsins áður en hún dregur okkur lengra niður í meginlandssvað hins þriðja farrýmis hagkerfa. En þar hefur Þýskaland nú náð því nýja en samt gamla þróunarstigi á ný, að það myndi endurframleiða næstum hvað sem er til aftöku á hverju sem er hvar sem er, græddi það túkall á því. Þar býr gömul púðurtunna sig undir nýjar hæðir, einu sinni enn
Bara þetta árið munu hundruð þúsunda manna missa lífið á meginlandi Evrópu vegna pólitískar hugmyndafærði elíta þess um ESB. Sovétríkin voru líka þannig. Þannig hugmyndir kosta nefnilega mannslíf, því þær eru drápsmaskínur
Fyrri færsla
Pútín hinn almáttugi? eða hvað
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:01 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 29
- Sl. sólarhring: 59
- Sl. viku: 445
- Frá upphafi: 1389065
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 253
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Er það ekki undarlegt að enginn stjórnmálaflokkur hér á skerinu hafi það skýrt og skorinort á stefnuskrá sinni að tafarlaust beri að slíta öll tengsl við EES og Schengen, auk auðvitað allra annara leyndra loðinna hálfkveðinna umsóknardrauma í sjálft ESB ríkið?
Hvernig stóð annars á því að tillaga Flokks fólksins þess efnis að kosið yrði hreint og beint á Alþingi Íslands með nafnakalli um formleg slit umsóknarviðræðna Íslands í ESB - fór aldrei fram?
Jónatan Karlsson, 7.2.2021 kl. 11:01
Þakka þér Jónatan.
Ekkert sem heitir "umsóknarviðræður" er til. Aðeins innlimunareftirlit fer fram.
Alþingi getur hvorki sótt um né hætt við umsókn í ESB, því það er ekki pólitískt yfirhöfuð Íslands.
Evrópusambandið dílar einungis við pólitísk yfirhöfuð ríkja (e. Heads of States). Það dílar ekki við þjóðþing ríkja. Innanríkispólitískar deilur, rykmekkir og stjórnarskrárbrot þingmanna og ráðherra er ekki þess mál.
Ísland er ekki umsóknarríki lengur. Ríkisstjórn Íslands (e. Head of State) hætti henni.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 7.2.2021 kl. 16:07
Nær allir flokkar, fyritæki og lífeyrissjóðir hafa verið að mæra eitthvað sem þeir kalla grænar fjárfestingar.
Nú er komið í ljós að ESB ætlar sér að ákveða hvaða fjárfestingar eru grænar og hverjar ekki. Einsog er þá er skógrækt ekki græn
EU:s förslag att ta bort skog på listan över hållbara investeringar oroar Sverige | SVT Nyheter
Svíarnir eru á leið til Brussel til að reyna hafa áhrif á konóristana með öllum ráðum þar með talið Namibíu aðferðum.
Grímur Kjartansson, 7.2.2021 kl. 17:03
Þakka þér fyrir Grímur.
Þú manst eflaust eftir delluguðspjalli bankabóluáranna.
Græna bólan er alveg eins; þ.e. á leið í allsherjarþrot.
Ég man ennþá eftir "Nýja hagkerfinu" í höfðum stjórnmálaelíta og fjárfesta á dot.com bóluárunum. Það rugl hrundi líka og veruleiki flatbrauðs með hangikjöti snéri auðvitað aftur, og delluna niður. Jafnvel hátæknisalerni Bill Gates hættu að anda.
Þegar menn taka bólutrú þá eru þeir í reynd að reyna að tryggja sig gegn því að líta út sem bjáni í augum nágranna og kollega (e. hedging against stupidity). Þannig er ferill allra bóla.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 7.2.2021 kl. 19:14
Þegar ég tala um að loðin endalok umsóknar Íslands, þá virðist Wikipedia og þá væntanlega ESB sömuleiðis einungis vera á þeirri skoðun að aðildarviðræður hafi einungis verið stöðvaðar og ekkert nánar um hvað lengi, eins og sjá má á eftirfarandi texta:
Aðildarríki og stækkunarlotur:
Sex ríki eru opinberlega umsóknarríki, sem þýðir að þau hafi hug á að ganga í ESB og verið sé að meta það hvort þau uppfylli skilyrði sem ákveðin voru á leiðtogafundi í Kaupmannahöfn árið 1993.[2] Þau eru Albanía, Ísland, Fyrrverandi Júgóslavíulýðveldið Makedóníu, Svartfjallaland, Serbía og Tyrkland. Ríkisstjórn Íslands hefur þó ákveðið að stöðva aðildarviðræður.
Jónatan Karlsson, 7.2.2021 kl. 21:35
Jónatan.
Sjálft Wikipedia veit ekki neitt. Það er bara samkomustaður fólks í gratís-geira veraldar (fólk sem fær oft hvergi vinnu og er á framfærslu skattgreiðenda) og sem hefur gaman af því að láta líta svo út að það viti eitthvað. Og sem heimildir notar það í yfirgnæfandi mæli vinstrisinnaða fjölmiðla, hugveitur og þá sem segjast vera en eru ekki vísindamenn nema að nafninu til. Wikipedia er því að mörgu leyti aðeins áróðurstæki fólks sem aðrir hafa hafnað. Og því hrakar stöðugt.
Wikipedia veit til dæmis ekki hvaða ríki ganga næst úr Evrópusambandinu. Það vissi heldur ekki að Bretland myndi ganga út Evrópusambandinu fyrr en eftir að það gekk úr Evrópusambandinu. Wikipedia veit heldur ekki hvað Evrópusambandið er.
Þér er frjálst að trúa því, en þú verður ávallt að stóla fyrst og fremst á þínar eigin rannsóknir og hugsanir. Að vitna í Wikipedia er löngu liðin tíð. Þannig enda öll prójekt gtatís-geira vinstrimanna.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 00:49
Og ég minni þig á Jónatan að þú heldur áfram að tala um "aðildarviðræður". En þær eru ekki til. Það eina sem fram fer er innlimunareftirlit. Engar aðildarviðræður eiga sér stað þegar sótt er um inngöngu í Evrópusambandið. Ekki frekar en aðildarviðræður um dómsniðurstöður við dómara hæstaréttar eða ökukennara fara fram. Allar þjóðir sem sækja til dæmis um inngöngu í Ísland verða að taka upp íslenska löggjöf. Um ekkert er að semja.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 01:56
Jæja Gunnar, við náum líklega ekki lengra með þennan ágreining okkar varðandi trúverðugleika uppsagnar ESB umsóknar okkar, sem ég vona þó innilega að leiði að lokum í ljós að neikvæður efasemdarmaðurinn ég, lúti í lægra haldi.
Jónatan Karlsson, 8.2.2021 kl. 06:58
Jónatani til varnar, að nokkru, minni ég á að Styrmir hefur margsinnis og ítrekað haldið fram því sama og Jónatan varðandi að enn liggi aðildarumsóknin dormandi í skúffu í Brussel. Og að hún hafi því aldrei verið dregin formlega til baka. Hvað veldur því að Styrmir hefur ítrekað haldið því fram?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.2.2021 kl. 10:58
Þakka þér Símon Pétur.
Þú verður að spyrja Styrmir um það.
Gjörðu svo vel, beint frá bákninu: Candidate Countries and Potential Candidates.
Sumir virðast halda að Jóhanna S sé enn á þingi og að kjósendur hafi ekki degið hana formlega til baka. En hún er samt farin.
Uppákoman í þinginu á sínum tíma var vegna þess að ríkisstjórnin hafði ekki meirihluta í þessu máli, og svo til heimabrúks því henni var ætlað að gefa umsókninni einhverskonar lögmæti og að dreifa sök í málinu um kosningasvik Vinstri grænna, sem voru svo yfirgengilegt að aldrei hefur annað eins sést.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafði ekki meirihluta í þessu ákveðna máli. Hún neyddist til að fiska eftir nokkrum marhnútum í þingsalnum og fann þá í formi persónulegrar pólitískrar ofsagræðgi þar sem þingmenn seldu sál sína fyrir stóla - og síðan með hjásetu til dæmis Þorgerða Katrínar Gunnarsdóttur, og auðvirðislegheita Ragnheiðar Ríkharðsdóttur.
Þarna stofnaði Samfylkingin sitt eigið pólitíska sláturhús er kjósendum hennar varð síðar ljóst að um ekkert var að semja nema beina aftöku Íslands. Hún varð því fimm komma sjö prósentu flokkurinn á þingi.
Og sömuleiðis byggðu Vinstri grænir þér þarna sína eigin fallöxi, og hjó hreyfingin sig niður úr tæpum 22 prósentum niður í tæplega 11 prósent.
Alþingi hafði ekkert með umsóknina að gera.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 11:13
Takk fyrir svarið Gunnar.
Þetta vissi ég, en það vekur mér furðu hvað valdi því að Styrmir hafi ítrekað reynt að rugla fólk í ríminu og af hvaða ástæðum hann geri það.
Hann og Björn Bjarnason héldu lengi úti vefriti, evrópuvaktinni, svo maður hélt að þeir væru einarðir í andstöðu sinni, en annað hefur, beint og óbeint, komið í ljós. Enda eru þeir einungis trúir forystu "Sjálfstæðisflokksins." Og forysta þess flokks er ESB sinnaðri en andskotinn sjálfur, loðin og talar tungum tveimur.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.2.2021 kl. 11:41
SP.
Styrmir er algjörlega gegnheill í þessu máli. Algjörlega andsnúinn ESB-innlimun. Og það ber að virða.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 11:47
Og Styrmir barðist einnig gegn þriðja orkupakkanum. Mjög svo og kröftuglega.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 11:52
Gott Gunnar.
Já, það ber að virða en af einhverjum ástæðum heldur hann því fram að aðildarumsóknin sé enn hálfvirk ofan í skúffu og hún hafi aldrei verið formlega dregin til baka. Við skulum vona að hann geri betur grein fyrir þessu áliti sínu.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.2.2021 kl. 12:01
Sumir halda þetta, já.
En ég er viss um að það er ekki rétt.
Þetta er misskilningur sem ég held að byggist á EEC(EB)-tímunum fyrir 1993 og tilkomu Acquis. Sést sá misskilningur einnig á því að sumir halda enn að eitthvað sé til sem heitir "aðildarviðræður". En þær eru ekki til.
Allt það fór út um gluggann þegar ESB varð sjálfstætt yfirríki með tilkomu Maastricht, og skaffaði sér sína eigin stjórnarskrá sem dikterar Acquis.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2021 kl. 12:30
"Aðildarviðræður" eru vitaskuld ekki til;
þar er eingöngu um aðlögunarferli að ræða.
Og aðlögun að ESB er augljóslega á fullu gasi
á vakt, og með tilstuðlan, forystu
"Sjálfstæðisflokksins."
Kaflinn um sjávarauðlindir var skilinn eftir,
en orkuauðlindirnar eru falboðnar ESB
á vakt, og með tilstuðlan, forystu
"Sjálfstæðisflokksins."
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.2.2021 kl. 12:50
Hvað varðar Wikipediu, þá er ég ekki viss um að ég sé sammála þér. Mér hefur alltaf fundist fyrirbærið hafa verið góð hugmynd, að hafa ókeypis alfræðiorðabók á netinu.
Þó er varla hægt að segja að Wikipedian sé alveg ókeypis. Ég fékk stanslaust tölvupósta á tímabili, því ég styrkti þá einhvern tímann um einhverjar 100 krónur (sænskar) einu sinni eða tvisvar.
Ég held það sé reyndar rétt að það er komin veruleg vinstri slagsíða á Wikipedia-skútuna. Svo mikil að það er hætta á að hún sökkvi. Eins og öll skip (lesist: samfélög, stofnanir) sem fá á sig vinstri slagsíðu. Þau enda alltaf á hafsbotni.
Var að lesa umfjöllun Wikipedia um ásakanirnar um kosningasvindlið í BNA og þeir éta bara upp eftir vinstri Fact-twisters síðunum (eða hvað þær heita). Þeir munu ekki fá krónu frá mér aftur, hvorki íslenska né sænska.
Kannski er niðurstaðan sú að ekkert er ókeypis. Bara spurning um hverjir borga brúsann.
Theódór Norðkvist, 8.2.2021 kl. 14:44
Um ESB-umsóknina, ef hún er til, þá eiga þeir sem vilja halda henni til streitu einfaldlega að byrja að taka lyfin sín aftur.
Það er ekkert til að kjósa um. Það er ekki hægt að kjósa um það sem er ekki til staðar. Við getum það svo sem alveg, við getum kosið um hvort jörðin sé flöt. Verður hún flöt ef það er samþykkt af meirihlutanum?
Á sama hátt breytist ekkert eðli ESB, sama við hvað við x-um á einhverjum kjörseðli. Það er að vísu klárt mál að ESB mun þróast, en einungis niður á við. Þeir munu bara heimta meiri völd fyrir afæturnar í Brüssel, ekki mnni.
Eitt mesta heimsveldi mannkynssögunnar náði rétt svo að sleppa úr hrammi ESB og fór þaðan sundurtætt, þ.e. breska ljónið.Á hvaða lyfjum eru þeir sem halda að Ísland geti bara fengið hvað sem þeir heimta frá ESB?
Theódór Norðkvist, 8.2.2021 kl. 14:50
Jónatan.
Wikipedia er ágæt en hefur þó þann ókost að upplýsingar þar eiga til að úreldast og vera ekki uppfærðar fyrr en löngu seinna. Tilvitnun þín er skýrt dæmi um það.
Ég hef núna uppfært viðkomandi texta til samræmis við þá staðreynd að Ísland er ekki umsóknarríki.
Takk fyrir ábendinguna.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.2.2021 kl. 22:13
Þakka þér fyrir innlitið og skrif Theódór - og þakka þér fyrir Guðmundur.
Get ekki annað en flissað dálítið ofan í kaffið mitt.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 9.2.2021 kl. 00:49
Við Íslendingar erum í aðstöðu til að setja ESB afarkosti sökum legu landsins, og auðvitað hefur þetta komið fram í stríðsleikjum sem usa og nato hafa leikið.
Vitneskjan úr þessum stríðsleikjum er sú að véla verður fullveldi íslendinga frá þeim með öllum tiltækum ráðum, og helst skipta þjóðinni út fyrir sígauna, deila og drottna svo hún geti ekki látið ESB leggjast á knén til að biðja ísland um leyfi til halda áfram ógæfulegri tilvist sinni í eitt eða tvö ár í viðbót.
Og vissulega þurfum við að fara að íhuga hvort við getum leyft þessari vesælu eftirmynd ráðstjórnarríkjanna að tóra degi lengur.
Árni Thoroddsen (IP-tala skráð) 9.2.2021 kl. 01:26
Sæll Gunnar,blaðsíður þínar fullar af snilld,líka frá gestum; Afhverju þurfum við þá að þola þessa ríkisstjórn? Ein perlan þín er rituð á bloggi pallVill í dag,týmdi ekki að spilla henni með upphrópun.
Helga Kristjánsdóttir, 9.2.2021 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.