Þriðjudagur, 10. nóvember 2020
Forsetakosningarnar orðnar mesta hneyksli sögunnar
Victor Davis Hanson er gestur John Batchelor-þáttarins. Efnið er fjölmiðlar, og kannanabransi snjalla og góða fólksins. Njótið
****
Mánuðum saman fyrir kosningar, lýstu nær allir fjölmiðlar því fyrir bandarísku þjóðinni og heiminum öllum, hvernig Joe Biden væri með yfirburðarstöðu í forsetakosningum. Mánuðum saman kyrjuðu sérfræðingarnir og fjölmiðlar þá "staðreynd" að Biden væri með algjöra yfirburðarstöðu. Kjósendur máttu vita að engin séns var á öðru en sigri Bidens. Sögulegum yfirburðarsigri
En nú eru liðnir heilir sex dagar frá kosningum og enn vita menn ekki hver næsti forseti Bandaríkjanna verður. Svo mikil og stór var lygi fjölmiðla, kannanabransans og háskólamenntaðra greiningardeilda góða fólksins
Aldrei hefur eins stór stétt eyðilagt sjálfa sig eins mikið og núna. Litlu og jafnvel engu er að trúa sem frá þessum sérfræðingum og fjölmiðlum kemur. Ekki einu sinni síðunúmerum. Nú eru stéttir þessa fólks lítils og sennilega einskis virði
Og síðan er það hitt hneykslið: sjálft kosningamisferlið. Það verður vonandi lagfært. En það er ekki hægt að lagfæra fjölmiðlana, sérfræðingana og skoðanabransa góða fólksins. Þeir eru ónýtir. Enginn trúir því fólki aftur
Fyrri færsla
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 26
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 442
- Frá upphafi: 1389062
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 251
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Þessu hneyksli hafa forsetinn á Bessastöðum, forsætisráðherra og utanríkisráðherra Bjarna Benediktssonar fagnað.
Þau hafa öll hoppað á tossavagninn og jarma heimskulega eftir blístri stórfjölmiðlanna.
Ábægjulegt að sjá hins vegar Björn Bjarnason stinga þau með broddi sporðdreka halans.
Það gerir hann með því að leggja út af grein Brendan ONeill:
The Real Resistance.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 10.11.2020 kl. 12:04
Þakka þér fyrir Símon Pétur.
Forsetar Rússlands og Mexíkó ætla ekki að segja neitt um þessar kosningar eða óska neinum til hamingju með það sem ekki er vitað, fyrr en að staðfest opinber úrslit liggja fyrir.
Þessi sem þú nefnir eru allir í Ósjálfstæðisflokknum. Og þar segja menn svona. En sama er mér hvað þeir segja. Ég hlusta ekki lengur á það fólk. Það er tímasóun.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 10.11.2020 kl. 12:45
Fraudogate.
Theódór Norðkvist, 10.11.2020 kl. 12:59
Annars hlýtur það að teljast brandari aldarinnar, þó ekki sé mikið búið af henni, að það þurfti Mexíkó og Rússland til að kenna vestrænum fjölmiðlum út á hvernig lýðræðislegar kosningar virka. Hvað þá Kína.
Ef einhver hefði spáð því fyrir nokkrum árum, hefði viðkomandi sennilega verið lagður inn á geðdeild.
Theódór Norðkvist, 10.11.2020 kl. 13:03
Þakka þér fyrir Theódór.
Forseti Mexíkó lenti í því sama og Trump er að glíma við núna. Reynt var að stela 2006-kosningunum frá honum og Spánn óskaði keppinaut hans til hamingju með sigurinn, en varð síðan að draga þá heillaósk til baka, og skammast sín.
Rússlandsforseti þarf ekki að búa við svona. Hann sér um sín kosningaúrslit sjálfur. En hann á hins vegar mikið undir Bandaríkjunum komið, svo þar eru það þjóðarhagsmunir Rússlands sem knýja hann til að fara sparlega og varlega með flaðrið.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 10.11.2020 kl. 13:16
Alveg rétt. Maður gæti haldið að Biden og félagar hefðu farið á námskeið hjá Pútín í skapandi kosningum (creative counting í staðinn fyrir creative accounting).
Theódór Norðkvist, 10.11.2020 kl. 13:43
þriðjudagur, 10. nóvember 2020 kl. 23:31:01
Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist ekki efast um að valdatímaskiptin yfir í nýtt kjörtímabil Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna sem hefst í janúar, verði örugg og ánægjuleg. Hann segir að heimurinn geti verið alveg öruggur um það að utanríkisráðuneytið muni starfa og virka alla daga fyrir og eftir kaflaskiptin sem stjórnarskrá Bandaríkjanna skipar fyrir um. Horfa má á yfirlýsingu utanríkisráðherrans hér.
Áfram heldur að kvarnast úr nú mjög svo þunnum meirihluta Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Hverjum þingmanni þeirra á fætur öðrum hafa kjósendur sparkað út, eftir því sem framvinda atkvæðatalningar skríður fram.
Gunnar Rögnvaldsson, 10.11.2020 kl. 23:31
þriðjudagur, 10. nóvember 2020 kl. 23:50:30
Mitch McConnell leiðtogi öldungadeildar Bandaríkjaþings, stendur fast með Trump forseta og segir að Demókratar hafa eytt síðustu fjórum árum í að afneita niðurstöðum forsetakosninganna 2016, og að þeir hafi í öll þau ár hrópað að þær kosningar hafi verið ólögmætar. Ganga þarf úr skugga um að öll lögleg atkvæði séu talin og að þeim sem ólögleg eru sé kastað burt. Báðar fylkingar verði að fylgjast með talningu, og við erum með réttarkerfi og dómstóla til að skera úr um vafamál og leysa úr ágreiningi, með því að beita lögum landsins.
Gunnar Rögnvaldsson, 10.11.2020 kl. 23:51
miðvikudagur, 11. nóvember 2020 kl. 00:13:27
Lindsey Graham formaður laganefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, segir að Bandaríkin þurfi ekki leyfi vinstrimanna og fjölmiðla til að rannsaka meint misferli og kosningasvindl. Hann segist einnig hafa frétt að 25 þúsund manns á mismunandi hjúkrunarheimilum aldraðra víðs vegar um Pennsylvaníuríki hafi á akkúrat sama augnablikinu beðið um að fá tilsenda kjörseðla til póstkosninga. Horfa má á þetta athyglisverða viðtal við Graham hér.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 00:13
miðvikudagur, 11. nóvember 2020 kl. 00:39:32
Félagsmiðillinn Parler er nú í fyrsta sæti efstur á lista app-verslunar Apple yfir félagsmiðla. Kemur þetta í kjölfar ritskoðunartilburða Twitter, Facebook og Google. Sjálfur er eg er ekki á þessum svo köllum (sam)félagsmiðlum, en tók eftir þessum vef fyrir nokkrum dögum þegar ég í vafra var að lesa tíst Newt Gingrich því þar benti hann lesendum sínum á að fylgjast með sér á Parler. Einnig virðist að sviptingar séu að eiga sér stað á sjónvarpsmarkaðnum. Fox news virðist vera komið út í kuldann hjá hægrimönnum sem nú leita til Newsmax í kjölfar kosninganna, þannig að sú fréttastöð slær víst nýtt met í áhorfi. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég heyri minnst á þá stöð, enda horfi ég næstum aldrei á sjónvarp.
Á kosninganótt í síðustu viku horfði ég í fyrsta sinn á Fox news í meira en nokkrar mínútur og var ekki hrifinn. Skildi ekki undirgefni þeirra í garð svo kallaðra sérfræðinga á kosninganótt. Og þar var einmitt á vakt kappræðustjórnandinn Chris Wallace, sem eins og CNN-Candy Crowley, mun aldrei verða látinn stjórna neinu aftur.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 00:39
miðvikudagur, 11. nóvember 2020 kl. 01:32:46
Hjá Fox News á kosninganótt komu "sérfræðingar" stöðvarinnar fram og sögðu næstum í byrjun talningar að öruggt væri að Arziona myndi fara til Biden, því útilokað væri að fjórfalt staðalfrávik myndi eiga sér stað þar. Enn eru samt úrslit þar óviss og er forskot Bidens næstum horfið, og enn er verið að telja atkvæðin. Enn getur allt gerst þar því forskot Bidens er komið niður í 0,4 prósent. Þetta minnir mig á stjórnendur vogunarsjóðsins Long-Term Capital Management L.P. þar sem mestu gáfur í einu fyrirtæki þóttu samankomnar og þar á meðal var Nóbelsverðlaunahafi. Þeir sögðu að allt væri svo öruggt hjá þeim og vel reiknað út að jafnvel fimmfalt "sigma event" myndi ekki geta "snert þá". En sjóðurinn fór samt þráðbeint á hausinn og er sennilega eitt besta dæmið í langan tíma um hroka menntamanna. Öryggisformúlur þeirra sögðu ekkert fyrir um framtíðina. Allar kannanir og spár Fox News og allra annarra helstu stöðva í þessum kosningum reyndust úr í hött og stóðust ekki. Um vísvitandi áróður var að ræða, svipað og gildir um loftslagsáróðurinn.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 01:33
miðvikudagur, 11. nóvember 2020 kl. 02:29:47
Og síðan er víst óþarfi að geta þess, en ég geri það samt, að það eru kjörmenn Bandaríkjanna sem kjósa forseta þeirra og það gera þeir í desember er þeir í eina skiptið koma saman til að kjósa hann. Og nú þegar annar frambjóðandinn hefur ekki viðurkennt þau úrslit sem sumir fjölmiðlar hafa kynnt, byggð á tölfræðilíkönum, þá vandast málið. Haldið verður því áfram að telja án þess að niðurstaða fjölmiðla sé viðurkennd og almennt viðtekin sem sú rétta. Og síðan eru það allar lagalegu athugasemdirnar. Þær munu taka langan tíma að bæði koma fram, þróast, vinda upp á sig og leysast, séu þær taldar réttmætar, og þær virðast bara velta fram í endalausum bunum, vegna þess hve margir kusu á óhefðbundinn (og greinilega óöruggan) hátt. Þessar kosningar ætla sem sagt að verða öðruvísi en kosningarnar 2016, 2012, 2008 og 2004, því annar frambjóðandinn hefur neitað að viðurkenna útreikninga þeirra fjölmiðla sem þegar hafa gefið út úrslit byggð á líkönum, á meðan sumir fjölmiðlanna sem treyst er fyrir að segja úrslit, hafa ekki gert það enn. Niðurstaða fæst því ekki fyrr en öll atkvæði hafa í reynd verið talin og þeim sem ekki eiga heima í kjörkassanum er kastað burt - og þá kjósa kjörmenn Bandaríkjanna forsetann.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 02:29
Hafðu þakkir fyrir Gunnar
að halda þessa dagbók um framvindu mála.
Mig langar aðeins til að bæta við
því sem furðu margir skilja ekki enn,
að Trump er ekki stjórnmálamaður.
Hann er forseti Bandaríkjanna og jafnframt
hershöfðingi "the deplorables"
"plebbanna" gegn fámennri valdaelítu.
Á sama hátt er hann táknmynd baráttu þjóðríkja
undan oki glóbalískrar valdaelítu.
Trump er sér meðvitaður um þetta,
og því mun hann aldrei játa ósigur,
eins og Styrmi finnst hann eigi að gera,
heldur mun hann berjast til sigurs.
Alveg sama hvað það kostar
og hvílíka þrekraun það mun hafa.
Þannig, og einungis þannig, mun hann skrá sig
í sögubækurnar.
Uppgjöf kemur ekki til greina. Og hann veit það.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.11.2020 kl. 13:33
Þakka þér fyrir Símon Pétur
Forsetinn þekkir nú orðið Demókrataflokkinn og embættismannaveldi hans af aðeins slæmu. Og eftir rúmalega fjögurra ára valdníðslu þeirra, sem var svo svæsin að margir handlangarar flokksins í opinberum stöðum eiga yfir höfði sér ákærur og sumir þeirra hafa þegar verið reknir með skömm, þá veit Trump að þeim er trúandi til alls.
Já hann mun ekki gefast upp á að finna skýringu á því af hverju Biden er með svona miklu hærra fylgi en Obama fékk í einungis og akkúrat bara vissum sýslum í 10 sving-ríkjum, en ekki hvergi annarsstaðar. Kjörsóknin er út í hött í sumum þeirra, og heilum ríkjum líka, eða akkúrat í þeim ríkjum sem Biden þurfti á því að halda.
Og einmitt þar eru hundruð þúsunda kjörseðla þar sem aðeins er krossað við nafn Bidens, en ekki hirt um að kjósa neina þingmenn. Næstum allir sem kusu Trump á þessum stöðum kusu hins vegar einnig þingmenn. Það er venjan.
Og síðan er það höfnun á póstatkvæðaseðlum. Venjulega er höfnunin 3% í til dæmis Pennsylvaníu. Fólk hefur ekki fyllt kjörseðlana rétt út og ekki gengið rétt frá þeim. En í þessum kosningum er hins vegar ætlast til að menn trúi því að höfnun sé aðeins 0,03% eða 100 sinnum minni en venjulega. Þarna hefur bara allt flogið í gegn eins og að kjósendur hafi aldrei gert annað en að fylla út póstsendingarkjörseðla. Í New York var 21 prósentum póstkjörseðla hafnað í forkosningunum þar. Í heildina lítur þetta og margt annað furðulega út.
En sannanir verður forsetinn að koma með. Ég vona að hann finni þær. Nú, ef ekkert er að, þá hljóta menn að fagna því. En þannig held ég nú ekki að þetta muni fara. Ég held að þetta verði langdregið og átakamikið.
Trump gefst ekki upp fyrr en hann er búinn að sanna eða afsanna grun sinn. Þetta eru ekki bara grunsamlegar kosningar, heldur líka mjög óvenjulegar, vegna þess hve ofsafengið margir kusu einmitt á þann máta þar sem auðveldast er að svindla.
Já Trump er hreint ótrúlegur baráttu- og bardagamaður. Hann er Pattontýpan af Guðs náð. Hann mun ekki gefast upp án þess að finna sannleikann.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 15:24
Og þar sem Demókrataflokkurinn með Hillary Clinton og Obama í baksætinu, hefur ásakað Rússa í fjögur ár um að hafa blanda sér í kosningarnar í Bandaríkjunum, bæði með áróðri og tölvuafbrotum, þá ætti Trump að skoða Windows 7 stöðvarnar sem halda utan um kjörstaði. En það er hvorki meira né minna mest hakkaði hugbúnaður í heimi (fyrir utan NT4). Og skipta Rússum út fyrir Demókrataflokkinn. Hver veit hvað hann mun finna þar. Til dæmis það að viss hluti atkvæða merkt Trump í vissum sýslum lendi á öðrum stöðum en kjósendur sögðu fyrir um.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.11.2020 kl. 15:38
Trúir þú því að Trump hafi unnið kosningarnar?
Guðmundur Ásgeirsson, 11.11.2020 kl. 21:42
Ekki skal ég abyggjast hverju Gunnar trúir, en eitt er víst að Trump á fullan rétt á að vita hvort staðið hafi verið rétt að þessum kosningum.
Ragnhildur Kolka, 11.11.2020 kl. 21:45
Eins og hann þurfti að vita hvort rétt hefði verið staðið að kosningunum áður en hann lýsti yfir sigri á Twitter?
Guðmundur Ásgeirsson, 11.11.2020 kl. 21:54
Þakka þér fyrir Guðmundur.
Það fer eftir því á hvaða tíma dagsins þú spyrð mig. En ég hugsa að ég sé eins og 75% Repúblikana, sem trúa því að rangt hafi verið haft við í þessum kosningum og þær ekki frjálsar.
Að minnsta kosti höfðu Demókratar rangt við síðustu fjögur árin og fjölmiðlar þeirra í aðdraganda kosninganna. Taktu eftir að ekki allir þeirra hafa gefið út spádómsúrslit sín byggð á tölfræðilíkönum. Biden er að minnsta kosti ekki sigurvegari enn hjá RCP. En kosningaúrslit byggjast ekki á trú, heldur á löglegum atkvæðum.
Innanríkisráðherra Georgíu, Brad Raffensperger, tilkynnti í dag að öll atkvæði verða handtalin upp á nýtt. Þar treysta menn sér ekki til að standa við unnið verk.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2020 kl. 01:18
fimmtudagur, 12. nóvember 2020 kl. 01:28:15
Það var farið að fara um Demókrata þrátt fyrir yfirburða stöðu þeirra í nú öllum fölskum skoðanakönnunum fyrir kosningar. Hér segir kona í hópi aðdáenda Bidens að Trump sé "ólögmætur forseti" og hún óttast að þeir sitji uppi með Trump sem forseta næstu árin. Biden tekur undir og býður henni að verða varaforsetaefni sitt.
Og hér ráðleggur Hillary Clinton að Biden megi undir engum kringumstæðum viðurkenna sigur Trumps yrði hann reyndin eftir kosningar. Það sagi hún þarna FYRIR kosningar á meðan skoðanakannanir sögðu að Biden væri 12 prósent yfir Trump á landsvísu og 17 prósent yfir í Wisconsin, en þar eru þeir jafnir. Allar þessar kannanir voru greinilega sérhannaðar til að drepa móralinn hjá stuðningsmönnum Trumps. Falsar fréttir og falskar kannanir H/F (vörumerki Demókrata).
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2020 kl. 01:28
fimmtudagur, 12. nóvember 2020 kl. 02:37:10
Í Connecticutríki uppgötvuðust þau mistök að engin atkvæði frá einum kjörstað höfðu verið skráð og talin með í úrslitunum til þingsins þar. Er þau voru skráð þá missti þingmaður Demókrata sætið sitt. Starfsmaður einn rakst á þessa villu. Endurtalning mun fara fram.
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2020 kl. 02:38
Skoða þetta, hverju eigum við að trúa?
https://projectcamelotportal.com/2020/11/05/the-sting/
Sýnishorn úr textanum.
(110.920 fleiri greiddu atkvæði en voru á kjörskrá)
4. Wisc is now reporting 3,239,920 votes cast when there are only 3,129,000 registered voters on record. More people voted than actually registered.
Egilsstaðir, 12.11.2020 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 12.11.2020 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.