Sunnudagur, 27. september 2020
"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]
Þetta er að minnsta kosti rétt hjá Sigmundi Davíð, þegar atburðir síðustu daga eru skoðaðir, plús nær allt núverandi kjörtímabil xD, plús öll árin frá því að núverandi Bjarni Benediktsson varð formaður þess flokks
Og jafnvel enn dapurlegra er að hugsa til þess að fráfarandi Þorgerður varaformaður xD hefur sennilega alltaf verið eins konar fjölbreytileikkona þar, ásamt Benedikt úr sömu ESB-skúffu, og sem bæði og samstíga virðast komin inn í forstofu líberalismans inn í marxisma; sjá "vinstri velferð" hirt upp úr vösum hægrimanna, sem var slagandi orð hennar og hans upp að altari marxismans fyrir síðustu kosningar
Hvenær skyldi Bjarni hoppa af og yfir til þeirra? Hann þyrfti meira að segja varla að hoppa, því hann hefur séð til þess að xD liggi lágt og rísi ekki. Gæti jafnvel bara labbað yfir. Enginn tæki að minnsta kosti eftir neinu þegar hann opnar munninn næst
Hvað er þá eftir af xD? Ekki mikið, eða eins lítið og við sáum á humarveislunni í fyrradag í því sem áður var dómsmálaráðuneytið. Hvílík hneisa, stjórnleysi, lögleysi og aumingjaháttur. Svona er þetta því miður búið að vera hjá Sjálfstæðisflokknum frá því að Bjarni Benediktsson og lið hans tók við
Bless Evrópa og dead-cat-bouncing Kína, er eiginlega það sem hægt er að lesa út úr þessu öllu. Sérstaklega þegar lesnar eru nýjustu viðbæturnar við þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna; Western Hemisphere Strategic Framework. En þar segir að frá og með nú sé það fyrst og fremst Vesturhvel jarðar sem móti rammann um þjóðaröryggisstefnu þeirra í efnahagslegu tilliti, þar sem allt verður flutt þangað undir einkunnarorðunum "heimahýsing" og "nærhýsing"
Inter-Amerkíu-þróunarbankinn, en ekki AIIB-útþenslubanki Kínverska kommúnistaflokksins þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins situr í bankaráði, er það sem notað verður á Vesturhveli jarðar, plús fimm fjárfestingarstólpar fyrir ríkin á því hveli veraldar; þ.e. í nýja heiminum. Og til marks um nýtt mikilvægi Vesturhvels (Ísland er á Vesturhveli jarðar) hefur Bandaríkjamaður nú tekið við IADB-bankastjórninni í fyrsta sinn í sögu bankans. Lesa má í nýtt mikilvægi IADB út frá því. Norður-Ameríka, Mið-Ameríka og Suður-Ameríka er það sem sá fjárfestingarbanki snýst um, ásamt restinni af ríkjum Vesturhvels
Ísland er auðvitað ekki þar, frekar en dómsmálin eru í humarráðuneytinu. Nei nei, formaður Sjálfstæðisflokksins sá um að henda í Íslandi inn í imperíal-útþenslubanka hins kínverska kommúnistaflokks Kínagúlaga. Hugsið ykkur! Og svo henti hann Íslandi inn í Orkupyntingasamband Evrópusambandsins, þar sem "Þýskaland fyrst" stefna yfirtapara meginlandsins tröllríður hinni hrynjandi spilaborg Evrópusambandsins. Ekkert ríki Evrópu mælist nú eins fjandsamlegt Bandaríkjunum og Þýskaland. Junge Freiheit útskýrir ágætlega sumar ástæðurnar fyrir því í grein blaðsins hér: Sie trommeln weiter
Þýskaland er nú með lélegustu orkuinnviði og versta orkubúskap Evrópu plús lélegustu fjarskiptainnviði nokkurs ríkis Evrópusambandsins. Hið fyrra er í vösum Kremlar og hið síðara er í vösum Húkavéa Kínverska kommúnistaflokksins. Hvernig haldið þið að þetta endi. Jú, varla nema á einn veg
Já, blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins í orku-icesave-pökkum hins ósjálfstæða EES-skrifstofuformanns hans
Tek undir orð Sigmundar Davíðs um að afturkalla verði aðild Íslands að Orkupakkabandalagi taparanna í ESB, ásamt ýmsum öðrum hugmyndum Miðflokksins hér: Vilja lækka tekjuskatt í 24%
Uppfært-
Ég er þó efins um framtíð ferðaþjónustu sem atvinnugreinar á Íslandi. Nýtt og langtum minna normal mun myndast þar eftir faraldurinn. Það þarf þó ekki að vera slæmt til lengri tíma litið, því ef eitthvað eitt sérstakt er hægt að segja um ferðaþjónustu í hálaunalöndum eins og okkar, þá er hún ávallt brautin inn í og um leið afleiðing efnahagslegrar hnignunar. Við vorum með ferðaþjónustu vegna hnignunar, og sú hnignun mun festast í sessi verði ferðaþjónusta eitthvað annað og meira en aukabúgrein sem allir geta verið án, gerist þess þörf og þegar þess þarf, því þetta er ekki síðasta skyndilega stopp greinarinnar. En það þarf samt að takast á við skyndilegt stopp ferðaþjónustu núna og snúa því einhvernvegin Íslandi í hag með krosshagsmunanýtingu milli geira. Og þar er Sigmundur Davíð sérstaklega sterkur, eins og við sáum síðast
Tími sérleiðanna fyrir hina útvöldu er liðinn, enda gáfust þær illa. Sigmundur Davíð er greinilega með herðar og hugmyndir breiðar. Já, breiðar hugmyndir...
Fyrri færsla
Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:33 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 9
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 1387447
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
"Blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins"
Amen! Já, svo sannarlega er hann dauður.
Steindauður.
Miðflokkur Sigmundar Davíðs
er vonarljós okkar sjálfstæðismanna.
Upprisa okkar. Svo einfalt er það.
Ég hvet alla sjálfstæðis- og fullveldissina
að ganga til liðs við Sigmind Davíð
svo endurvekja megi grunngildi
sjálfstæðis- og fullveldisstefnu
lands okkar og þjóðar.
Amen!
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.9.2020 kl. 01:36
Þakka þér fyrir Símon Pétur.
Þú sást viðbrögð Bjarna Benediktssonar og Guðlaugs Þórs við því þegar að Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna lokaði á Schengen. Þar sannaðist svo ekki var um villst að jarðsamband forystunnar við veruleikann er ekki til staðar. Það sama gildir um fullveldismálin.
Forysta xD er að fara með flokkinn í gröfina. Og það sem verra er, hún hefur tekið vörumerki flokksins með sér.
Eurosclerosis, þroskaleysi, ósjálfstæði, stuttbuxur og naívisimi verður það sem stendur á dánarvottorðinu.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2020 kl. 08:46
Mér hefur fundist hegðun forystumanna sjálfstæðisflokksins undanfarin ár vera að þóknast vinstri mönnum. Þeir virðast hvergi standa í fæturnar og nota hvert tækifæri til að hnýta í Donald Trump sem er einn af fáum sem þora að vera þeir sjálfir. Vinstri mennskan er hratt og örugglega að yfirtaka hinn vestræna heim.Vinstri eembættismannahrúan er að éta allt upp til agna. Ömurlegt. Það þarf að berjast fyrir frelsinu annars er það tekið af okkur.
Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 27.9.2020 kl. 09:25
Rétt hjá þér Kristinn og hafðu þökk fyrir.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2020 kl. 09:28
Þakka svarið Gunnar.
Algjörlega sammála þér um krufningarskýrsluna.
Og kærar þakkir fyrir þróttmikla pistla þína.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.9.2020 kl. 13:53
Bjarni er samt sá eini sem getur svarað fyrir sig sæmilega þó mistakaregistrið sé orðið langt.
Kemur þú Gunnar minn auga á nokkurn krónpríns í þingliðinu sem getur veitt forystu í Sjálfstæðisflokknum? Óli Björn er hugmyndafræðilega í lagi en einhverjir eru á móti honum af einhverjum ástæðum.
Nýstelpurnar? Palli? Biggi?Brynjar? Eða er hægt að breyta Bjarna?
Halldór Jónsson, 27.9.2020 kl. 14:36
Þakka þér fyrir Halldór minn kæri.
Þetta er ekki spursmál um hvort að einn maður sé snjall og duglegur, eða latur og heimskur, ef allt sem hann gerir er það sem þeir einir gera sem vér einir vita. Þetta er ekki spursmál um það.
Allur þingflokkurinn og innréttingarnar í Valhöll eru eflaust bæði snjallir og duglegir menn, en allt sem þeir gera er hins vegar algjörlega glatað.
Betra væri fyrir flokkinn ef þeir væru bæði heimskir og latir, því það myndi þó forða honum frá því að vera flokkur sem gerir allt rangt og vitlaust.
Þess vegna segir ég enn og aftur að hvaða húsmóðir sem er úti í fiskbúð að kaupa í matinn, væri betri leiðtogi flokksins en þeir sem allt þykjast vita.
Þetta xD-Stokkhólmsheilkenni fer þér afar illa Halldór minn, því það kemur í veg fyrir framfarir.
Við kjósum annan flokk eins og hin 86 prósent kjósenda sem kjósa Sjálfstæðiflokkinn ekki lengur gera, sökum þess sem ég segi hér fyrir ofan.
Þetta er allt saman algjörlega glatað lið. Algjörlega vonlaust. Það ætti allt að vera og starfa í öðrum flokkum.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2020 kl. 15:48
Góður pistill og fín eftirskrift um Sjálfstæðissósíalista. Sorglegt ástand að Miðflokkurinn er sannanlega hægriflokkur landsins. Ánægður með tengilinn yfir á bloggsíður Yoram Hazony, gaman að finna hann og fann þar helling af fleiru góðu efni, sérstaklega sáttur að finna Edmund Burke stofnunina.
Það hefur engin alvöru íhaldsstefna verið til hérlendis síðan á dögum Jóns Þorlákssonar, eða síðan 1929. Það væri þó færi að breyta því þann 12.02.2021.
Guðjón E. Hreinberg, 27.9.2020 kl. 17:45
Hafðu miklar þakkir fyrir Guðjón - og megir þú halda sem lengst fast í það sem halda ber í.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2020 kl. 22:49
Það er umhugsunarvert, að allir flokkshestar
Valhallar læðast nú með veggjum. Þora engir að verja hræið. Nema Halldór blessaður Jónsson, hann reynir þó, en bölvar hræinu svona oftast.
Öngvir sjálfstæðis-, fullveldis- og íhaldsmenn hafa uppi nokkrar varnir fyrir hræið. Enda hví skyldu þeir gera svo? Sjálfstæðisflokknum var rænt af frjálslyndum pilsfaldatittum, og allir skyni og viti bornir menn vita og viðurkenna að flokkurinn er dauður. En við sjálfstæðis- og fullveldismenn eru sprelllifandi og við leggjum okkar lóð á vogarskálar SDG og Miðflokksins, þar sem sjálfstæðis- og fullveldisbaráttan lifir.
Virkjum það afl til okkar baráttu fyrir upprisu lands og þjóðar. Og þjóðlegrar íhaldsstefnu okkar.
Virkjum krafta okkar og björgum okkur frá glötun.
Landið og þjóðin á undir högg að sækja.
Virkjum krafta okkar og fylkjum liði með SDG og Miðflokknum. Það eitt getur orðið okkar grunngildum sjálfstæðisstefnunnar til bjargar.
Nú liggur lífið við.
Öll lóð skulum vér nú leggja á vogarskálar Miðflokksins og uppskera sigur
í nafni grunngilda okkar
um sjálfstæðið og fullveldið.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 29.9.2020 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.