Sunnudagur, 13. október 2019
Kratisminn gekk ekki upp - heldur ekki í Tyrklandi
Það krefst töluverðra íhugana að melta það sem nú hefur gerst í Tyrklandi. Sögulegir atburðir eru að gerast beint fyrir framan nef okkar, eins og mannkynssagan ávallt veltur fram. Þar sem hvorki þarf að nota viðamiklar græjur og mannskap CIA, NSA né sendiráð og sérfræðinga, heldur aðeins sín eigin augu og nef. Það er að segja ef að menn kunna enn að lesa, sem þeir því miður í sífellt minna mæli gera. Endurreisa þyrfti Barnaskólann
Ný millistétt út um vítt og breitt Tyrkland, og sem varð til fyrir tilstilli veraldarhyggju Kemalista í Istanbúl, sem áður var trúarpólitískt höfuðsæti kristni, hefur nú tekið völdin af Kemalistunum, sem gerðu hana bæði efnaða og valdameiri. Erdogan forseti er maður hennar millistéttarinnar og hann þarf því að stjórna Tyrklandi með því að allir óttist hann, því annars springur Tyrkland í loft upp. Þetta er það eina sem hann getur gert. Líki mönnum ekki stjórnarfar hans, þá er valkosturinn enn verri: borgarastyrjöld og síðan klerkaveldi íslams
Veraldarhyggjustjórn í Tyrklandi með aðstoð hersins er lokið. Henni er algerlega lokið. Sá kafli sögunnar er búinn því hann gat ekki gengið lengur, því það er einfaldlega ekki hægt að þurrka rætur þjóða út. Það gengur ekki upp og endar illa. Það sést líka í Rússlandi, sem er kirkjugarður Sovétríkjanna. Kristnar rætur Rússa var ekki hægt að þurrka út með veraldarhyggju sósíalismans, né neinum afbrigðum hans, og heldur ekki með kratisma sem er bjór- og dagdrykkjuútgáfan úr vínkjallara sósíalismans
Þetta veit Donald Trump því hann er fullorðinn og reyndur maður eins og stjórnmálaleiðtogar þurfa að vera. Bandaríkin hafa því, frá og með nú, viðurkennt Tyrkland sem stórveldi í heimshlutanum og jafnframt sem áframhaldandi bandamann síðustu 76 ára, sem betra er að hafa með sér en á móti. Þetta veit Trump vegna þess að hann er Íhaldsmaður; sem í ræðu sinni í stofnun Sameinuðu þjóðanna 2017 sagði eftirfarandi:
"We do not expect diverse countries to share the same cultures, traditions, or even systems of government. But we do expect all nations to uphold these two core sovereign duties: to respect the interests of their own people and the rights of every other sovereign nation."
Þess vegna segir Íhaldsstefnan þetta, sem er kjarni hennar:
1. Sögulegar staðreyndir: sem byggja á reynslu kynslóðanna, er það sem stjórnarskrárbundin ríkisstjórn dregur vald sitt af
2. Þjóðar- og þjóðareinkennisstefna: Hver þjóð sitt. Hver þjóð hefur sína sögu, sem verður að virða, vernda og byggja á. Ísland fyrst
3. Trú: Í okkar tilfelli kristni. Hafa skal í heiðri Guð Bilbílunnar og trúarsiði þjóðarinnar og vernda hana sem stofnun sem ber uppi hið siðferðilega lágmark, eins og barnaskólar okkar kenndu
4. Takmarkað ríkisvald: Lög manna þjóðarinnar takmarka ríkisvaldið, þar innan sem stofnun þjóðkirkjunnar á líka heima og fær vernd
5. Einstaklingsfrelsi: Því frelsi er ekki hægt að viðhalda nema með aðstoð hins takmarkaða ríkisvalds þjóðarinnar sjálfrar í sínu eigin þjóðríki, sem verndar þjóðkirkjuna líka
Hér má lesa ritgerðina: Hvað er Íhaldsstefna?
Kratismi gengur ekki upp, því hann veitist að rótum þjóðfélaganna, sem á Vesturlöndum eru kristnar. Þetta sést sérlega vel á Svíþjóð í dag, sem komin er á endastöð og gengur ekki lengur upp, frekar en Tyrkland undir hverveldi Kemalista gekk heldur ekki upp lengur. Þar stendur slagurinn um annað hvort upplausn eða millileið Erdogans, sem virðir rætur Tyrkja vítt og breitt um landið allt, og hefur þær í heiðri. Annars er það klerkaveldi íslams
Heimurinn er að ganga í sjálfan sig aftur. Í sitt gamla sjálf. Tímabilinu frá 1945 til 2009 er lokið. Milliríkjaviðskipti og bandalög munu þó eiga sér stað áfram, þó svo að heimurinn breytist nú þegar kratisminn er að syngja sitt síðasta vers. Þau verða bara ekki fastur né sjálfvirkur hluti af samskiptum ríkja. Þau verða ekki "réttindi". Þau verða forréttindi, og ber að líta á þau þannig. Það eru til dæmis forréttindi fyrir Ísland að eiga tilvistarlegan bandamann eins og Bandaríkin, því þau heimta ekki af okkur fullveldið í staðinn, eins og Evrópusambandið gerir með heilögum og úr sér bræddum kratisma og alls konar geislavirkum "orkupökkum". Gagnkvæmir hagsmunir Íslands og Bandaríkjanna ráða för
Evrópusambandið er því dautt eins og Tyrkland Kemalista. Það er komið í kistuna sem bíður eftir bálförinni. Hagsmunir Íslands og Evrópusambandsins fara ekki saman og geta aldrei farið saman. Sú útópía var blindgata, sem algerlega óþarft var að kanna. Gámarnir með það samband innanborðs sukku því á leiðinni til Íslands, eins og Davíð Oddsson sagði að myndi gerast
Kúrdar eru varla sérstök þjóð. Þeir tala ekki einu sinni sama tungumálið. Þeir tala mörg tungumál og þau sem töluð eru mest, kurmanji og sorani, eru ekki meira skyld en enska og þýska. En kannski verða þeir þjóð. Það er undir þeim sjálfum komið og engum öðrum - eins og hjá okkur sjálfum
- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:31 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 101
- Frá upphafi: 1387420
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
"Donald Trump því hann er fullorðinn og reyndur maður eins og stjórnmálaleiðtogar þurfa að vera."
Hvernig í ósköpunum komst þú að þeirri niðurstöðu?
Hefurðu ekkert kynnt þér hans feril?
Eða fylgst með hvað er í gangi í töluðum orðum?
Annars mjög áhugaverð gein frá þér.....þeas Tyrklandshlutinn.
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 14:52
Þakka þér fyrir lesturinn og innlitið Ívar.
Það er nú einmitt það sem ég hef gert. kynnt mér feril Donalds J. Trump. Það hef ég gert með því að hlusta á það sem hann segir. Horfa á það sem hann hefur gert. Kynnt mér það sem aðrir sem hann hefur unnið fyrir segja um hann, og lesið það sem til dæmis einn fremsti sagnfræðingur á vesturlöndum skrifar um hann, pólitíska baráttu og hugrekki hans í metsölubókinni "The Case for Trump", sem er eftir engan annan er Victor Davis Hanson sem ég efa ekki að þú vitir hver er.
Trump er maður sem byggir. Hann er ekki pappírsmaður. Hann hefur byggt á erfiðustu og dýrustu byggingarreitum veraldar og þekkir því út og inn hið spillta kerfi embættismanna frá fyrstu hendi. Engir nema meiriháttar menn byggja háhýsi á Manhattan í frumskógaveldi opinberra embættismanna og verkalýðsfélaga, og byggir og á besta hótel heimsins.
Og af því að ég vann sjálfur í byggingarbransanum þá þekki ég hvernig þeir menn eru sem steypugengi og járnamenn klappa fyrir þeir koma til að tala við þá og hvetja þá áfram. Þetta þýðir einnig að Trump er sérfræðingur í samskiptum við verkalýðsfélög; þ.e. vinnandi fólk.
Og það sem hann tekur sér fyrir hendur, er hann þekktur fyrr að skila af sér á réttum tíma, undir kostnaðaráætlun og í fyrsta flokks standi. Með öðrum orðum; "med rettidig omhu".
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 15:22
Takk fyrir svarið, áhugavert...
En nei þú hefur greinilega ekki kynnt þér hann nægilega vel.
Yfirborðið er gert fallegt, hann hefur jú séð um það gegnum tíðina en maður þarf að fara aðeins dýpra.
Það eru nú margir fleiri en Hanson sem hafa skrifað um Trump, hefur þú lesið eitthvað meira um hann eða séð td. einhverja af áhugaverðum þáttum sem gerðir hafa verið um hans ævi hingað til?
Röð af gjaldþrotum, svikum og málaferlum gera hann örugglega reyndan mann, þar hefur þú rétt fyrir þér en er það reynsla sem maður vill að forseti BNA búi yfir?
Og að teljast fullorðinn þá þarf maður nú haga sér svoleiðis...ég hef ekki séð mikið af því frá Mr. Trump. Fyrr né síðar.
Skelltu þér nú á bókasafnið og fáðu þér meira lestrarefni um herran, þú verður örugglega hissa hvað þú finnur.
Hvað er annars þetta "besta hótel" sem þú minnist á, ég man bara ekki eftir neinu slíku eftir að hann varð að gefa upp Plaza i New York.
Kv. Ivar Ottosson
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 15:49
Trump International Hotel and Tower, í Nýju Jórvík var af 74 þúsund lesendum hins breska Luxury Lifestyle Magazine kosið besta hótel í heimi í sínum flokki 2019. Listinn er svona:
Þetta var meira að segja í Morgunblaðinu um daginn.
Þetta segir sitt um sköpunarverk Trumps. Að hótelið skuli ekki detta í sundur þó svo að honum sé óheimilt að vaka yfir því og hafa afskipti rekstri þess á meðan hann er forseti Bandaríkjanna. Mörg önnur sköpunarverk hans fá svipaðan dóm bæði í Bandaríkjunum og Kanada.
Hefurðu séð flugvélina hans og þá hreyfla sem hann notar í hana?
A.P Møller datt heldur ekki í sundur sem skipafélag þó svo að Mærsk Mc-Kinney Møller væri lokaður af frá því í Nýju Jórvík á meðan Danmörk var hersetin af níunda síðasta kanslara Þýskalands. Góður rekstur þolir fjarveru eiganda, vegna þess að hann er vel byggður sem fyrirtæki með tryggum starfsmönnum, þar sem andi og markmið stofnenda lifa áfram, vegna þess hve vel þau hafa sannað sig.
Þú ætlast kannski til þess að ég "skelli" mér inn á "næstu bókasöfn" sem eru ekki með erlendar bækur og lesi útskriftina af hatursþáttum DDRÚV um Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna á íslensku? Það var nógu mikil þrautarganga að hlusta á heila þrjá sérsniðna rógberandi framhaldsþætti DDRÚV um Trump í byrjun framboðs hans.
Ég hugsa að enginn annar nema þá Davíð Oddsson hafi sætt slíkri fáránlegri meðferð, enda er DDRÚV sérsniðin sjálfsfróunarmiðstöð vinstrimanna á Íslandi á kostnað skattgreiðenda. Vinnur þú nokkuð þar? Ég spyr því þú hefur ekkert annað fram að færa en þoku á þokubakka.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 16:44
Blessaður Gunnar..var í meira að segja í morgunblaðinu um daginn, það eru náttúrlega viss meðmæli.
Þetta hótel fór undir radarinn hjá mér þegar minst er á bestu hótel veraldar, keyrði reyndar fram hjá því fyrir nokkru en held nú samt að að það séu nokkur mörg betri hótel í NYC og víðar en það er nú bara mín skoðun...og reyndar annarra þar sem þetta hóte er ekki á nokkrum öðrum listum sem ég hef séð...en leiðréttu mig gjarnan ef rangt er.
Googlaði hótelið snöggt og fann merkilega grein frá NYT: https://www.nytimes.com/2019/08/25/us/trump-international-hotel-nyc.html
Margt sagt þar en það sem er td. skrifað er að DT á mjög lítin hluta af þessari byggingu og þegar víðar er skoðað í raun flestum byggingum sem nafni hans er klínt á.
Hann er nefnilega ekki að byggja neitt nema vörumerkið sitt. Og talandi um "trygga" starfsmenn hanns þá eru nú margir í fangelsi í töluðum orðum eða á leiðinni þangað.
Aftur, ekki horfa á yfirborðið, farðu aðeins undir það þegar þú hefur tíma.
En ég er alls ekki að beina þér í átt að RUV eða venjuleg bókasöfn heldur er nú allt hægt sjá gegnum netið í dag...þar eru "bókasöfninn"...bara kíkja aðeins meira en á Fox News og sambærilegt, þú finnur þetta, forvitinn maðurinn.
Þoku á þokubakka? og að vinn ég á RUV?, nei vinn ekki þar og vonadi nokkuð þokulaus, Ég er i rauninni bara að spjalla við þig um DT mér til ánægju en þér líklega til nokkurs angurs og ama.
En hvað er þetta um einkaþotu hanns og hreyfla?...aftur undir radarinn hjá mér, hef ekker heyrt um þessa hluti..endilega fræddu mig...
Kv. Ivar
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 18:48
Þú verður bara að "skella" þér á bókasafnið þitt sem þú ert svo hrifinn af og kynna þér "hreyflamálið" Ívar. Eða leita á stærsta ruslahaug mannkynssögunnar, veraldarvefnum.
Ég er hissa á því að þú skulir ekki koma með Næsti-Hitler-ræðuna um Trump Ívar. Hún var mjög vinsæl í falsfréttaiðnaðinum strax eftir kjör hans. Svo kom Rússaþvælan og nú er það Úkraínuherferðin. Ásamt öllum uppfylltu kosningaloforðum hans sem áttu að verða þess valdandi að heimurinn myndi farast.
Allir menn hafa fortíð. Þú líka. Nema náttúrlega nýfædd kornabörn sem siðferðilega pervertur forsætisráðherra okkar vill helst kála. Það hefðu þótt fréttir um allan heim fyrr á tímum.
Enginn maður án fortíðar verður forseti Bandaríkjanna og allra síst mun hann vinna stærsta sigur í prófkjörum nokkru sinni, án þess að fortíð hans komi til umræðu. Bandaríska þjóðin var sátt við það sem hún heyrði, því hún vissi vel að um mannlega persónu væri að ræða, sem varla gat orðið verri en það sem hún hafði haft og þoldi ekki lengur. Hún bað því um kemóterapíu Trumps. Og ég sé að þú þolir hana ekki.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 20:14
Þú ert farinn að hvessa þig hér Gunnar...kom ég við auma taug?
Skal reyna að finna út hvað "hreyflamálið" snýst um, er engu nær.
Ég líki engum lifandi manni við Hitler, skrýtið að þú haldir að það sé í boði. Og falsfréttirnar eru út um allt Gunnar, sammála þér þar, ertu nokkuð að lesa Þær sjálfur og halda að þær séu sannleikur?
En nokkuð líklega er Trump á leið fyrir ríkisrétt...Þetta með Úkraínu er nokuð yfir strikið...en þú ert greinilega á öðru máli.
Restin sem þú skrifar skil ég reyndar ekki..."stærsti sigur í prófkjörum" osfrv.
En að sjálfsögðu eru forsetar mannlegir....en hvernig mannlegir er spurninginn....hvað finnst þér persónulega um persónuna Trump?
Góður maður?...Siðferði?...annað?
Bið spenntur svara...
Kv. Ivar
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 20:59
"Hreyflamálið" bjó ég til handa þér Ívar. Það snýst um þig, þ.e. um trúgirni þína.
Enginn frambjóðandi Repúblikanaflokksins hefur nokkru sinni hlotið eins mörg atkvæði í forkosningum (prófkjörum) flokksins eins og Donald Trump. Hann sigraði alla keppinauta sína með glans með 44 af atkvæðum og 70 prósentum fulltrúa. Næsti maður, Ted Cruz fékk 25 prósent atkvæðanna og 20 prósent fulltrúanna.
Ég hefði kosið Trump væri ég Bandaríkjamaður Ívar og ég myndi sennilega kjósa hann á ný 2020. En ég var samt ekki fyrstur til að kveikja á perunni. Það verð ég að viðurkenna.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 21:32
Aha...svo "hreyflamálið" er bara kjánaskapur?...ertu vanur að nota slíkt í þínum færslum?....halda og vona að menn sem svarar þér eru trúgjarnir?
Satt og rétt, hann marði alla í forkostningunum hjá Republikönunum, og það gerði hann meira eða minna með oforsi og lygum en hann tók þá alla á beinið enda í raun (mjög góður) leikari og án allra siðferðislegra landamæra en það kannski skiptir þig engu máli.
Og Gunnar, hann tapaði "popular vote" á móti Clinton 2016...sér hver sigurinn.
Og nú..Ríkisrétturinn bíður....það er peran sem er að kveikjast...mjög spennandi...
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 22:06
Sýnist þér að pólitískar ofsóknir andstæðinga réttkjörins forsetans séu á sömu plánetu og hugtakið siðferði, Ívar? Eða framkoma og hegðun fjölmiðla í nær öllum málum sem varða hann í meira en þrjú ár. Listinn er langur: Allt þetta fólk væri enn í vinnunni núna ef Trump hefði ekki komið til.
Viljinn var með ágætis pistil um ykkur sem þolið ekki úrslit kosninga þegar ykkur þóknast þau ekki og byrjið þá að gagga um að kosningakerfið sem er það sama og alltaf. Hann er hér: endurtekid-coup-detat-beggja-vegna-atlantshafsins.
Maður hefur aldrei séð önnur eins svín og marga þá krata, stæka vinstrimenna og sófa- og loftslagsmarxista með hálm í heilastað sem kalla sig lýðræðissinna á Vesturlöndum í dag, en sem þegar til kastanna kemur eru það bara alls ekki.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 22:39
Réttkjörinn er hann Gunnar alveg eins og GWB á sínum tíma.
Watergate...allt sem þú skrifar hér getur maður næstum heimfært upp á hvernig Nixon stjórnin kvartaði yfir ransókn fjölmiðla.
Við vitum hvernig það fór...
Ykkur?..við?....Því miður Gunnar það er bara ég að skrifa hér, bara mínar skoðanir...
Þú minntist á Hitler hér að ofan og núna eru það svín...ég held ég slái loki á þessar umræður, hafðu góða nótt.
Kv. Ivar
Ívar Ottósson, 13.10.2019 kl. 23:08
Og hver skyldi nú hafa mótað og framleitt skoðanir þínar á Donald J. Trump, Ívar? Ekki eru það staðreyndir að minnsta kosti. Enda hefur ekkert í máli þínu komið fram sem er á sömu plánetu og staðreyndir. Aðeins gas, aðdróttanir, illvilji og rógburður.
Hvað Watergatemálið varðar, þá drógu fjölmiðlar þessa mikla lands bandarísku þjóðina á tálar í því sem þá var kallað "Watergate-hneykslið", og hröktu úr embætti réttkjörinn forseta landsins sem aldrei í sögunni hafði sigrað eins stórt í kosningum, og sem gerði það vegna dugnaðar og hugrekkis. Því hefur þjóðin ekki gleymt. Hún var dregin á tálar og fjölmiðlar landsins sviku hana.
Það þurfti því ekki mikið til að bandaríska þjóðin sæi í gegnum svikavef fjölmiðla þegar að síðustu forsetakosningum kom, þar sem Trump var kjörinn þrátt fyrir að vera með næstum allt fjölmiðlahyskið, bankana, Wall Street, tæknirisana, Hollywood, heiðnikirkjuveldi háskólanna, gáfumennin og hugveiturnar á móti sér. Bandaríska þjóðin mundi enn.
Ákæruskjalið á hendur Nixon var í hundrað liðum. Og ákæran hljóðaði upp á að hann hefði brotið af sér í einum lið eða fleirum, án þess að segja við hvaða lið væri átt. Þetta var sem sagt ákæra á hendur Nixon fyrir að vera ekki forseti vinstrimanna, svipað og þegar menn ákæra einhvern fyrir að vera "illiberal", en það er ákæra um að vera ekki vinstrisinnaður, því líberalismi er vinstrisinnuð stjórnmálakenning sem kom fram á sjónarsviðið frá og með ca. John Locke, sem andstæða Íhaldsstefnu (conservatism), sem er mörgum öldum eldri stefna og heimspeki.
Að vera haldinn því að vera ekki-vinstrisinnaður var sum sé orðið glæpur. Svo geggjað er elítupakkið orðið. Og þannig er fjölmiðlapakk Vesturlanda því miður orðið, nema í undantekningartilfellum og stundum á sveita- og landshlutablöðunum.
Það verður spennandi að sjá hvort að slíkt gerist aftur. Lítið bendir til þess því Demókratar þora ekki með ekkert-málið út á gólf þingsins til að kjósa um það, en ætla í staðinn að reyna að keyra það sem róburðarherferð í fjölmiðlum sínum gegn forsetanum, eins og þeir hafa gert síðustu fjögur ár.
Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2019 kl. 23:38
Bent skal á að Nixon kom aldrei fyrir rétt og slíkt kom aldrei til greina, landsins vegna. Hann sagði af sér þegar hann skynjaði að fjölmiðum hafði tekist að snúna hluta af öldungadeildinni gegn sér.
Litlum en valdamiklum hluta vinstrimana í Bandaríkjunum tókst með aðstoð fjölmiðla sinna að koma réttkjörnum forseta landsins frá. Það var hinn eiginlegi skandall málsins.
Og við munum öll hvernig málið gegn Geir Haarde var keyrt með pólitískri viðurstyggð hér heima, svo ekki sé minnst á SDG.
Það er virkilega slæmt að slíkt geti gerst í lýðræðisríkjum. Að kjörnir fulltrúar fólksins séu ofsóttir úr embætti.
Gunnar Rögnvaldsson, 14.10.2019 kl. 00:20
Kúrdar eru 22 milljón manna þjóð, sem talar skyldar mállysku eða díalekta eins og öll evrópa gerði og gerir að mörgu æeyti enn. Eftir stríð fengu þeir sjálfstæði og þjóðarstatus, sem fljótlega var tekinn aftur eftir makk í baakherbergjum. Kúrdar hafa mörg trúarbrögð og umburðarlyndi fyrir þeim, sín á meðal. Nató hefur algerlega brugðist þeim og einnig USA, sem sjálfir komu öllu í bál og brand þarna í upphafi með ólöglegri árás.
Það hefur verið hlutlaus ræma á milli þeirra og Tyrkja og ástæða Tyrkja fyrir þessum brotum á alþjóðalögum og stríðsglæpir þeirra, ( sem hafa framið þrjú þjóðarmorð) er að þögult samþykki var gert fyrir því að þeir tækju undir land umhverfis mikilvæga olíuleiðslu sem ESB þarf að tryggja. Þessvegna þegir öll evrópa þunnu hljóði og herraþjóðirnar setja einhverjar sýndarþvinganir á þá til að sýnast pc.
Kúrdar hafa verið á þessu svæði í þúsundir ára, allt frá tímum Assiríumanna. Lengur en Tyrkir og Ottómanar og allar þær umbreytingar og þjóðir sem þar hafa búið undir ýmsum nöfnum. Þeir hata kristna og þjóðarmorð þeirra á Armenum og fleirum vitna um það. Það má segja að Evrópa hafi nú kallað yfir sig óbeint stríð við Rússa, svo ekki er að undra að ESB heimti her.
Nató þarf að grípa hér inn og skakka leikinn, því viðskiptaþvinganir taka ár og áratugi að hafa einhver áhrif likt og raunin var með Íraka, sem raunar höfðu ekki bugast undam þeim í áratugi áður en á þá var ráðist. Erdogan verður búinn að fremja enn eitt þjóðarmorð Tyrkja áður en þessar þvinganir setja einhverja beyglu í þá. Það er hafin þarna keðjuverkun sem ekki sér fyrir endan á.
Jón Steinar Ragnarsson, 14.10.2019 kl. 11:06
Þakka þér Jón Steinar.
Kúrdar eru einnig hluti af þjóðum Armeníu, Georgíu og Azerbaijan. Þar eru þeir hluti af þeim þjóðum í Kákasus sem mynda innrásarhliðið inn í Rússland í suðri. Rússar þola því ekki Kúrda vegna þess að þeir mynda geoópólitíska hættu fyrir Rússland á einum viðkvæmasta bletti inn í Rússland í suðri.
Þúsundir ára eru langur tími. Engu ríki í Evrópu langar til að heimsveldi Rómar verði endurreist þar á.. tja, sögulegum forsendum. Að því leytinu er ESB kannski Kúrdistan meginlandsins. Kúrdar eru ekki þjóð frekar en Evrópusambandið er þjóð. Væru þeir þjóð þá væri staða þeirra ekki eins og reynt er að halda henni fram í fjölmiðlum í dag.
Þú manst kannski eftir því að ný tilkomið Rússland -eftir fall Sovétríkjanna- er talið hafa gengið frá allt að 100 þúsund manns í Tjéténíu og gert hálfa milljón heimilislausa. Ástæðan var sú sama, þ.e. upplausnar- og innrásarhættan sem er í Kákasus fyrir Rússland.
Ef að Erdogan tækist að koma landsvæði til handa Kúrdum undir vernd NATO, þá yrði það mikill sigur fyrir hann, þar sem hann myndi slá tvær flugur í eini höggi. Verður það? Hef ekki minnstu hugmynd um það.
En hann verður að snúa málefnum Kúrda sér í hag, eftir að hafa fengið að pissa í hornin og gæta hagsmuna síns eigin lands, Tyrklands, því hann eins og aðrir þarf að glíma við sína eigin þjóð sem annað hvort kýs hann til valda eða ekki. Hins vegar myndi nýtt klerkaveldi í Tyrklandi ekki spyrja neins og "redda málunum" í hvelli. Vilja menn það?
"Alþjóðasvampfélaginu" er velkomið að bjarga þessum málun eins og það gerði ekki og ekkert í innrás Rússa inn í Georgíu, Krím og Úkraínu.
Velkominn til baka í veröld sem var og fór aldrei neitt eftir útópíutímabilið frá 1990 til 2008.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 14.10.2019 kl. 12:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.