Leita í fréttum mbl.is

Væru öll í vinnunni núna

Donald J. Trump

Mynd: Forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump, sem hér sést horfa á nýjustu mýfluguna sem varð úlfaldi í hakkavélum fjölmiðla á borð við New York Times: Trump hyggst nefnilega flytja 50-100 hermenn til í Sýrlandi, og bang: heimsendir (sjá einnig vefsetur Hvíta hússins). Hins vegar segir "orðið við dæluna" í kínverska olíu- og gasbransanum sem Trump er að loka niður í Íran, að allir séu að flýja landið vegna þess að "meiriháttar átök eru í vændum og best er að fela sig niðri í byrgi og koma öllu sem hægt er að koma út úr landinu sem fyrst". Það sagði ráðgjafi kínverska Sinopec í Íran (betur þekkt sem China Petroleum & Chemical Corp) í samtali sem Wall Street Journal sagði frá um helgina

****

FBI, CIA, NSA, DÓMSMÁLARÁÐUNEYTI - OG FJÖLMIÐLAR

Ef að Donald J. Trump hefði tapað kosningunum 2016, þá væri allt þetta fólk Obama hér að neðan ennþá í vinnunni hjá Hillary Clinton. Það er skuggaleg tilhugsun:

Já, listinn fer að verða ansi langur yfir það sem embættismenn (djúpríkið) hafa lagt á sig til árása á réttkjörinn forseta Bandaríkjanna í viðstöðulausum tilraunum þeirra til að bola honum frá völdum með lygum, óhróðri, svikum og valdníðslu. Þar má nefna þetta hér:

Tuttugu og tvo mánuði af "rannsókn" Roberts Muellers sérstaks saksóknara sem kostaði bandaríska skattgreiðendur meira en 48 milljónir dala og sem út í gegn var þokukennt blaður um þokubakka, sem jafnvel saksóknarinn sjálfur vissi frá byrjun að var bakki fullur af þoku og þvaðri. Þjóðkjörinn Trump hafði ekkert aðhafst sem réttlætti þessa rannsókn. Ekkert. Enda kom ekkert út úr henni, nema ekkert. Niðurstöðum hennar var því hent frá sér í einu hendingskasti og ný "rannsókn" fundin upp í staðinn, því það styttist í nýjar kosningar sem koma þarf í veg fyrir að geti farið fram með Trump í kjöri, eins og reynt var 2016

"Hvíslarinn" sem fékk New York Times til að birta "andspyrnubréfið" 2018, þar sem einhver ónafngreindur átti að vera haldinn "æðri tryggð" við réttlætið. Reyndist bull og þvaður frá sviksömum embættismanni, sem meðvirk blaðurtíska dagsins í dag fegrar með því að kalla "uppljóstrara"

Skátadrengurinn Andy McCabe aðstoðarforstjóri FBI sem "bara neyddist" til að setja af stað bókstaflegt valdarán og njósnaherferð gegn þjóðkjörnum forsetanum í nafni "réttlætis"

Þrennan John Brennan forstjóri CIA, James Clapper forstjóri NSA og Bruce Ohr úr glæpavarnardeild dómsmálaráðuneytisins, sem stigu fram sem handhafar "æðra réttlætis" með upplýsingar sem áttu að koma forsetanum frá völdum. Sviksamir embættismenn sem viðhöfðu tilraun til valdaráns

Starfsmenn Demókrataflokksins og embættismenn alríkisstjórnarinnar sem með aðstoð Fusion GPS sem fjármagnað var úr kosningasjóði Hillary Clintons sem láku alls kyns tilbúnum óhróðri um Trump með aðstoð New York Times, Washington Post og NPR og sem skýrð var "töfrakúlan" sem "taka átti út" réttkjörinn forseta Bandaríkjanna, sem þeir sjálfir lýstu sem "ófreskju". Svikamylla stjórnar Demókrataflokksins og embættismanna

Svo kom aðförin að Brett Kavanaugh dómara sem Demókrataflokkurinn setti af stað og reyndist bara vera gamli Moskvurétturinn frá Sovéttímanum ásamt hinum nýja; MeToo. Útgáfa tvö var meira að segja reynd í síðasta mánuði

Frægt fólk í kvikmyndabransanum sem afhjúpað hefur sig sem verstu óþokkar og sem fælt hefur flesta saklausa aðdáendur sína svo frá, að þeir geta ekki lengur hugsað sér að kaupa miða á bíósýningu með þeim. Hollywood er því hrunin og enginn nennir að horfa á Óskarsverðlaunaafhendingu lengur, miðað við áður

FBI

Svo eru það allir hinir lægra settu í FBI sem hafa verið reknir eða fluttir til í störfum vegna aðfarar þeirra að forsetanum, eða sagt af sér, eða bíða þess að vera saksóttir, dæmdir og jafnvel stungið í fangelsi, ásamt hinum háttsettu hér fyrir ofan:

James Comey forstjóri FBI
Andrew McCabe aðstoðarforstjóri FBI
Peter Strzok gagnnjósnadeild FBI
Lisa Page lögfræðingur FBI
James Rybicki starfsmannastjóri FBI
James Baker yfirlögfræðingur FBI
Mike Kortan aðstoðarupplýsingastjóri FBI
Josh Campbell sérstakur aðstoðarmaður James Comey
James Turgal aðstoðarframkvæmdastjóri FBI
Greg Bower forstjóri þingmálaskrifstofu FBI
Michael Steinbach aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI
John Giacalone aðstoðarframkvæmdastjóri í FBI

OG STANDA ENN

Og nú síðast er það "Úkraínumálið" sem þegar er orðið farsi í höndum Adam Schiff formanns upplýsingaþjónustunefndar þingsins, annarra Demókrata og embættismanna, sem ákæra forsetann fyrir að gera það sem þau gerðu sjálf; að rannsaka

Ekkert annað ríki veraldar en Bandaríkin væri starfhæft með svona aðfarir leikandi lausum hala innanborðs og í valdamiðju þess. Stjórnárskrá þeirra, gerð og uppbygging hennar sér fyrir því. Bandaríkin virka á öllum sviðum þó svo að stór hluti stjórnmálamanna, embættismanna og fjölmiðla virki ekki. Enda vissu stofnendur Bandaríkjanna vel frá slæmri reynslu sinni af Evrópu hversu rotin þessi fyrirbæri geta verið. Þeir byggðu því samkvæmt því, og lofuðu engu, nema því að allir hefðu jöfn tækifæri til að leita hamingjunnar

ÁLFATRÚIN

Þeir sem trúa á ókjörna embættismenn trúa á álfa. Glíma Trumps við of oft spillta þá, sem fyrrverandi byggingarmeistari á erfiðustu og dýrustu byggingarreitum veraldar, er bardagi sem hann þekkir og kann vel

Og fyrir þá sem einnig hafa hoppað á loftslags- og umhverfismálaklámvanginn, þá koma aftur tímar á borð við þá þar sem bankamenn, útrásar- og fjármálasnillingar breyttust skyndilega úr "guðum" í "glæpamenn"

Fyrri færsla

Frakkland: Líkaði morðin árið 2015 vel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snilldarfærsla og svo sönn.

Spurning hvenær væluliðið á RUV verði

svælt út ásamt hundurðum óþurftar embættismanna

sem eru að draga Ísland niður hægt og rólega

í algjöran ruslflokk með þessu loftlagsbulli.

Hver kaus þetta umhverfis slys sem situr sem

umhverfisráðherra..?

Ekki þjóðin, svo er víst.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.10.2019 kl. 10:22

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir Sigurður.

Þetta er bóla. Bóla af hippategund sem höfðar sérstaklega til hauslausra manna sem geta ekki haft höfuð á herðum sínum vegna skorts á hryggsúlu. Klám af verstu sort. Það er varla að maður þoli lengur að sjá hreyfimyndir úr náttúrunni, svo ég tala nú ekki um sela-augnamyndir af "góðum dýrum" í dýralífsseríum BBC-musteris áróðursins. Eða Attenboraðan vatnsdropa sem er tvær mínútur að falla frá pöddu til jarðar, því dýralífsklámið er sýnt svo hægt að efnið er þar með algerlega aftengt veruleiknaum. Það er orðið eins og óæt súpa frá Dr. Oetker þar sem vísindamaður í hvítum slopp hrærir í lituðum úrgangi, sýnt mjög hægt, því annars kaupir hana enginn. En hvað þetta er rómó og huggulegt... bla bla bla.

Loftið er nú þegar byrjað að síga úr þýskum græningjum. Þeir þutu upp sem sú gorkúla af burgeisum sem þeir eru, eins þessi umhverfis-loftslagsstétt er líka hér heima, og eru á aðeins þremur og hálfum mánuði fallnir úr 26,5 prósentu fylgi niður í 21 prósentu. Fólk vill ekki missa vinnuna. Það vill heldur ekki missa aleiguna og það hefur engan áhuga á að greiða upp 100 milljarða evra ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar þriggja þýskra bílaframleiðenda. Það vill heldur ekki frjósa í hel og því síður kjósa sig í hel. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 8.10.2019 kl. 11:09

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er eitt sem ég vil segja um ummubleringu Trumps í Sýrlandi, sem ég minntist á efst í færslunni, og það er um Kúrda.

Ekkert skotleyfi hefur verið gefið á Kúrda. Og Trump hefur seinkað brottförinni um tvö ár.

En málið er náttúrlega ekki einfalt. Þó svo að Kúrdar hafi getað aðstoðað við að ráða niðurlögum Ríkis íslams, þá geta þeir ekki haldið Rússlandi í skák og mát í heimshlutanum. Þeir eru heldur ekki á því landsvæði sem haldið getur Rússlandi frá því að taka Svartahafið alveg yfir. Það er Tyrkland.

Bandaríkin geta ekki fórnað sambandi sínu við Tyrki fyrir samband sitt við Kúrda, sem eru ekki ríki. Aðeins Tyrkland getur haldið Rússlandi í skák og mát þarna. Bandaríkjunum er þess utan bannað að hafa fast stjórnmálasamband við samtök sem eru ekki ríki.

En það er meira. Kúrdar hafa ekki enn sem komið er getað tekið sig saman og myndað ríki. Það er einfaldlega ekki næg þjóðarsamstaða meðal þeirra. Kannski geta þeir það síðar. En ég efast þó um það, því þeir eru bæði Sunni og Shiita múslímar sem berjast innbyrðis. Þeir eru ekki samstíga eins og við Íslendingar. Og ef það er eitthvað sem er að sprengja þennan heimshluta í loft upp þá er það valdabaráttan á milli Sunni og Shiita. Það geta Bandaríkin ekki læknað.

Það eru bara þrjú alvöru ríki í þessum heimshluta: Ísrael, Tyrkland og Íran. Restin er landmassi gerviríkja sem ríkisstjórnir hafa ekki stjórn á. Þetta er púðurtunnan mikla.

Þetta þýðir alls ekki að ég hafi ekki samúð með Kúrdum. En þjóðir fæðast ekki af frjálsum vilja án innri samstöðu. Og það er ekki hægt að búa þær til, erlendis frá. Það hefur verið reynt, eins og sést. Þær verða að berjast fyrir sjálfstæði sínu sjálfar og góðir bandamenn eru þá afar mikilvægir.

Gunnar Rögnvaldsson, 8.10.2019 kl. 11:14

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þorsteinn vinstrimaður Pálsson gæti með samfylkingafélaga sínum Loga ófrelsisins í ESB, beitt sér fyrir stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Katalóníu, því þar ógna Rússar ekki tilvistarmálum.

Málflutningur þessara þjóðþekktu samfylkingaspekúlanta með fjöregg þjóðarinnar, er svo hörmulega ósamrýmanlegur veruleikanum, að þeir hljóta að leggja allt landsvæði Útópíu undir sig á einum og sama deginum og fara létt með það.

Það segir sína sögu um brestina í innviðum Sjálfstæðisflokksins að Þorsteinn og Þorgerður skyldu yfir höfuð geta villt svo á sér heimildir þar, að þau  náðu að koma sér í formannsstóla. Án verndar Bandaríkjamanna á Íslandi hefði það ekki getað gerst, því þá hefðu flokksmenn verið mun betur á verði gegn þannig fólki til pólitískra áhrifastarfa í þjóðríkinu Íslandi.

Gunnar Rögnvaldsson, 8.10.2019 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband