Sunnudagur, 6. október 2019
Frakkland: Líkaði morðin árið 2015 vel
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 2019
****
"Ný-múslíminn" sem myrti fjóra lögreglumenn og særði þann fimmta í aðalstöðvum frönsku lögreglunnar í París, skrapp rétt aðeins úr vinnunni út í búð í hádeginu og keypti tvo hnífa úr stáli til að drepa kollega sína með. Hann starfaði í aðalstöðvum upplýsingaþjónustu frönsku lögreglunnar. Já þú last rétt; hann starfaði í leyniþjónustu frönsku lögreglunnar. Fyrst drap hann tvo yfirmenn lögreglunnar og einn aðstoðarmann, réðst því næst á konur, drap eina og særði aðra. Báðar störfuðu hjá lögreglunni
Sérstakur saksóknari franska ríkisins í hryðjuverkamálum, Jean-Francois Ricard, rannsakar nú morðin sem hryðjuverk. Hann segir að vopnin hafi verið úr málmi, en ekki keramik, eins og sumir fjölmiðlar skrifuðu. Og það vekur stórar spurningar um mikla bresti í öryggismálum frönsku lögreglunnar
Franska ríkisstjórnin sérstaklega innanríkisráðherrann Cristophe Castaners er nú ásökuð um að hafa ítrekað reynt að láta málið líta út fyrir að vera ekki hryðjuverk. Afsagnar innanríkisráðherrans er krafist
Saksóknarinn sagði í gær að morðinginn hefði gerst íslamstrúar fyrir heilum 10 árum síðan, eða um það leyti sem hann hóf störf hjá frönsku lögreglunni, og að hann hefði verið sérstaklega ánægður þegar múslímar drápu 12 og særðu 11 starfsmenn franska vikuritsins Charlie Hebdo árið 2015, í því sem þeir sjálfir kalla "heilagt stríð"
Fyrsta heilaga stríð múslíma var háð árið 636. Það kallast orrustan um Yarmuk sem nú er í Sýrlandi. Innan næstu 73 ára höfðu múslímar lagt undir sig 3/4 af öllu hinu upphaflega landsvæði kristninnar. Næstu 13 aldirnar voru svo meira eða minna blóðbað í nafni trúar múslíma. Það tók Spánverja og Portúgali nærri 800 ár að kasta oki þessu af sér á bara Íberíuskaganum einum og sér. Þeir héldu því upp á sigurinn í því Reconquista-stríði næstu nokkur hundruð árin, eða þar til Annað-Vatíkanráðið lagði hátíðarhöldin af, sem greinilega var ótímabært
Kristnir tóku sig fyrst saman í vörnum árið 1095 og riðu þúsundir kílómetra til að taka upp bardagann við íslam á landsvæði þess hinumegin Miðjarðarhafs. Krossfarar heita þeir. Og her þeirra var langtum og yfirburðarbetri en her múslíma. En svo kom að því að kristnir þreyttust á "fjarlægu stríði" gegn íslam, mörg þúsund kílómetrum í burtu, svipað og sumir kjánar eru þreyttir í dag. Hinn öflugi Krossfaraher í Palestínu fór því heim. Það var óþarfi og miður, því alla leið upp að Vín í Austurríki komst óvinurinn á næstu öldum
Restin af því landsvæði sem múslímar tóku ekki frá kristnum með heilögum hernaði, kallast Vesturlönd í dag. Það er að segja; litla hornið þarna uppi í vestri á skaganum sem stingst óvart út úr meginlandi Rússlands og kallast Evrópa; það er "Vesturlönd". Það svæði borast greinilega best út innan frá í dag, en þó alveg sérstaklega best með aðstoð evrópsku esb-kjánanna sjálfra sem vilja helst að það sé gert með kjarnorkuvopnum í höndum klerkaveldis íslams
Frakkar hafa kannski nú þegar gleymt orrustunni við íslam við Tours, 240 kílómetrum suður af París, árið 732. Líberalisminn í fyrsta, öðru, þriðja, fjórða og fimmta misheppnaða lýðveldi Frakklands, plús næstum óendanlega margar og misheppnaðar stjórnarskrár sósíalistans John Locke í Frakklandi, virka kannski svona vel að líberalisminn hefur jafnvel skaffað þeim sjálft vatnið til að ganga á
Kjánaveldi Vesturlanda væri ofboðslega stórt, ef Ameríka gæti talist með. En hún spilar ekki með í dauðadansi Evrópu. Sem betur fer
En hvernig skyldi annars "mannauðs"-stjórninni hjá frönsku lögreglunni líka "fjölbreytileikinn" núna. Því samkvæmt forystu Sjálfstæðisflokksins eru 50 flokkar á þingi mun betra en fjórir; Allt fyrir fjölbreytileikann. Valhöll á sínum bráðnandi ísjaka gæti jafnvel kennt frönsku lögreglunni allt um vandaðar mannaráðningar í framtíðinni, þ.e. skyldi einhver vilja vinna þar. Eða þarf kannski að kalla herinn til. En hvað með hann? Er hann kannski líka jafn "ríkur" af fjölbreytni og lögreglan. Og hvað þá? Stjórnlaust ríki - eða bara misheppnað ríki? Hvort viltu, því ekkert annað er í boði á hlaðborði fjölmenningarinnar
Hér er bókardómurinn um hina nýju bók Raymond Ibrahim; Sword and Scimitar: Fourteen Centuries of War Between Islam and the West. Þaðan hef ég sumt af þessu hér að ofan - plús Wall Street Journal og Le Figaro um blóðbaðið í aðalstöðvum lögreglunnar í Frakklandi núna. Raymond Ibrahim er ekki hver sem er
Fyrri færsla
Banna ætti þingmönnum að hafa aðstöðu á Alþingi
Árásarmaðurinn öfgafullur múslími | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:20 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 101
- Frá upphafi: 1387420
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Í gærkvöldi fór ég að sjá Brúðkaup Fígarós í Þjóðleikhúsinu. Það var framúrskarandi sýning og líktist ekkert því misheppnaða brúðkaupi sem ég skrifa um hér að ofan. Það var ekki þannig. Þessa síðustu sýningu Þjóðleikhússins á þessu verki eftir Mozart, sem aldrei hefði getað hvorki skrifað það né birt undir ríkisstjórn íslams, sótti einnig hinn nýbakaði Seðlabankastjóri okkar Ásgeir Jónsson, og heyrði ég sýningargest segja að hann myndi varla treysta honum vegna þess hve illa honum gekk að finna sæti sitt. Hlógu menn dátt, því allir virtust í góðu skapi og hlakka til að sýningin hæfist, og örugglega Ásgeir líka.
Í dag sé ég hins vegar Björn Bjarnason gráta skýrsluþurrum tárum úr þurrfóðurverksmiðju Sjálfstæðisflokksins, yfir því að ég skuli hafa sagt að kjósendur séu að plokka augun úr Sjálfstæðisflokknum. Það voru mismæli hjá mér, því EES-samningurinn hefur nú þegar plokkað augun út flokknum, því hann sér ekki neitt, nema náttúrlega EES. Kjósendur munu koma nýju stjórnmálaafli að í hans stað og þarf hann því varla að kemba hærurnar eftir fallið fyrir eigin hendi. Og það er víst ekki nein lygi.
Gunnar Rögnvaldsson, 6.10.2019 kl. 20:54
Sæll Gunnar æfinlega - sem og aðrir gestir, þínir !
Gunnar !
Eins: og ég hefði sjálfur saman sett / afar vönduð samantekt, af þinni hálfu.
Mögulega - (fyrir utan skrif mín: um glæpa búðir íslenzka Lífeyrissjóða kerfisins, á sínum tíma) getur meinbægni mín, í garð þeirra Múhameðsku hafa átt stærstan þáttinn í, að Svarthamra síðu minni (hér á Mbl. blog punkti is vefnum) var lokuð og læst, í Janúar 2015 / alla vegana, þá hafa þeir Hádegis móa menn verið full tilhliðrunarsamir, í garð iðkenda Múhameðstrúarinnar illskeyttu:: jafnt hérlendis, sem og og erlendis, all víða, hin seinni árin a.m.k.
Þess vegna: eru varnaðar skrif þín, sem ýmissa annarra mætra manna svo mikils virði, ekki sízt í einkennilegri dýrkun sumra ráðamanna í Brussel og Berlín (ESB gengið), á vitfirringu Mekku kreddunnar.
Þú nefnir - réttilega, Björn Engeying Bjarnason, hann er einn þeirra allt of mörgu hérlendra Quislinga, sem vilja opna allar gáttir, fyrir þessu liði, það er víða undirliggjandi Orkupakka III græðgin Gunnar, ekki hvað sízt í skilyrðislausum undirlægjuhætti sumra, gagnvart Fjórða ríkis (EFTA/ESS og ESB) óþverranum.
Með beztu kveðjum: sem endranær, af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.10.2019 kl. 21:43
Þakka þér Óskar Helgi.
Varið hef ég Björn Bjarnason og Sjálfstæðisflokkinn árum saman. En sú vörn gengur ekki lengur upp. Henni er því sjálfhætt, eins og fylgi flokksins er og var sjálfhætt meðal kjósenda hans, eftir að núverandi forysta og herfið sem hangir aftan í henni tók við og keyrði hann í kaf. Enga samúð á sá slóði skilið, aðeins fyrirlitningu.
Ég þekki engan flokksmann sem hirðir neitt sérstaklega um Sjálfstæðisflokkinn þann lengur, enda er hann ekki lengur til.
Kveðjur suður til þín
Gunnar Rögnvaldsson, 6.10.2019 kl. 22:23
Sæll á ný: Gunnar !
Víst er um það - einnig, að fái þessi lýður 46menninga alþingis, og attaníossar þeirra að vaða uppi móþróalaust, mun það hafa skelfilegar afleiðingar fyrir okkar afkomendur, sem og aðrar seinni tíma kynslóðir, hinna komandi alda.
Því: hefi ég ákveðið, að ákæra þá þingmenn Suðurkjördæmis fyrir Drottinsvik og almenn hryðjuverk, fyrir þeirra atfylgi við gildistöku Orkupakka III, á Lögreglustöðinni austur á Selfossi innan skamms, með kröfu um Stofufangelzun þessa lýðs, sem I. stig refsingar, þeim til handa, að minnsta kosti.
Vil ég vænta þess Gunnar - að eitthvert atorkufólk grípi til hins sama í hinum kjördæmunum líka, svo um mætti muna / sé Lögregla almenningi hliðholl, ætti hún að leita liðsinnis collega sinna hjá Landhelgisgæslunni:: líka sem og hjá Tollheimtumönnum (Tollgæzlu) til þeirrar framkvæmdar, að öðrum kosti verður að almenningur að grípa til þeirra stórræða, sem duga myndu.
Það er ósvinna ein: að íslenzkt launafólk skuli halda uppi stigmögnun sjálftökunnar, með OFUR- launum og fríðindum alþingismanna og embættismanna í stjórsnýslunni á þá vegu, að hér sé tilkominn einhvers konar gerfi- aðall, sem lifir umsvifameiri lúxus lifnaði, en hirð Loðvíks XVI. suður í Frakklandi á 18. öldinni t.d.lét sig nokkurn tíma dreyma um, síðuhafi mæti.
Ekki síðri kveðjur - hinum fyrri /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.10.2019 kl. 23:53
Er það ekki óþarfi Óskar, þ.e. að biðja um stofufangelsun.
Þeir eru allir nú þegar stofufangelsaðir af ESB og draga aðeins andann í gegnum EES. Þeir hafa meira segja sagt að þeir kafni sé því sogröri Evrópusambandsins ofan í Ísland lokað. Leyfum þeim að kafna fyrir eigin hendi.
Nýtt er að koma í þeirra stað, því ekkert vit er úr þeim hægt að fá né kenna.
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 7.10.2019 kl. 00:14
....
Gunnar !
Kannski: er Stofufangelzunar beiðnin óþarflega væg / sé ferill þeirra 46menninga alræmdu skoðaður, eitthvað nánar.
Og - þakka þér fyrir tilvísunina, í lok síðasta svars þíns, ekki síður.
ÓHH
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2019 kl. 00:31
Stöðugt berast nýjar og ógnvekjandi upplýsingar um morðin í frönsku lögreglunni. Það nýjasta er að öll rauð ljós innan lögreglunnar voru höfð að engu og komið var í veg fyrir að þau myndu sjást. Blaðið Le Parisien segir að yfirmenn í lögreglunni hafi þrýst á undirmenn um að segja ekki frá því sem fyrir langa löngu með vissu var vitað um morðingjann.
Þeirri spurningu er nú varpað fram hvort að morðinginn hafi tilheyrt Ríki íslams og starfað í lögreglunni fyrir það. Á síðustu árum hafa 250 Frakkar misst lífið í Frakklandi í árásum íslamista á þjóðríki Frakka.
Elítan með Emmanuel Macron sem æðsta prest, hefur það þó fínt á meðan óbreyttir Frakkar eru teknir af lífi hundruðum saman í sínu eigin landi bara fyrir það eitt að vera ekki múslímar og að ganga á götunum.
Franskir borgarar sem treyst hafa á lögregluna munu hugsa sitt. Þá er hver sjálfum sér næstur. Og ekki skyldi það því undra mig að borgararnir fari að grípa til sinna eigin ráðstafana og vopn- og vígvæðast, fyrst þetta er staðan; að ríkið sem þeir búa í er að hrynja saman innanfrá.
Skyldu einhver rauð ljós í EES-þurrfóðurverksmiðju Sjálfstæðisflokks-sogrörsins inn í ESB kvikna hér heima?
Gunnar Rögnvaldsson, 7.10.2019 kl. 08:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.