Miðvikudagur, 3. júlí 2019
Stjórnmálamaður skipaður ECB-seðlabankastjóri evru
Gúrkutíminn sem daglega kemur út í ESB, færir okkur eftirfarandi tíðindi af þráðbeinóttu uppskerunni í ESB, samkvæmt síðustu-, þar síðustu og þar á undan síðustu 10-ára áætlunum Evrópusambandsins, um að verða ríkasta, frið- og hagsælasta hagkerfi veraldar, en sem mistekist hefur fullkomlega alltaf og að eilífu
0. Frá hlaðborði pólitískra hrossakaupa Evrópusambandsins
Ekkert gekk við 62-tíma borðhaldið í hallarsölum Brussel í þeim efnum að fara eftir því sem fara átti eftir; þ.e. "oddvitareglu" (bla bla) um hver yrði nú hvað í toppi Evrópusambandsins. Þar eins og annars staðar í málefnum ESB er útkoman háð þjóðerni. Forseti Frakklands sem varð forseti þess lands, og bara þess lands, til að koma í veg fyrir að önnur persóna yrði forseti, og sem hefur því 24,01 prósentu stuðning þeirrar þjóðar á bak við sig til að gera eitthvað mögulegt í stað þess að koma í veg fyrir allt, stormaði 62-tíma hlaðborðhaldið með pólitísku hrossunum á, og sagði að það, borðið, og sjálfur fundurinn um að tapið sé fundið, væri vanvirðing við alla og allt fólkið fyrir utan höllina, sem fengið gæti þá skoðun sína staðfesta að hér inni væri bara sirkus í gangi. Fólkið gæti einnig farið að halda að fundurinn snérist ekki um heildarhagsmuni Evrópu, sagði Emmanuel Macron með 66,10 prósent umboð til að stöðva hann (síðari umferðin). En það gerði hann auðvitað ekki, þar sem hann er með 24,01 prósent umboð kjósenda til að gera eitthvað mögulegt (fyrri umferðin)
Evrópa hefur ekki og getur auðvitað ekki haft "heildarhagsmuni" því hún er ekki land, né heldur heldur getur hún haft sameiginlega hagsmuni -nema örfáa- og alls ekki sameiginlega tilvistarhagsmuni af dýpstu tegund. Löndin í Evrópu hafa hins vegar öll sína þjóðarhagsmuni. Og þá hagsmuni má ekki og er heldur ekki hægt að láta liggja, reka og sullast um svona hlaðborð fyrir pólitísk hrossakaup, nema auðvitað í Evrópusambandinu, og hvergi annars staðar á byggðu bóli. Þarna á þessu hlaðborði hafa þjóðarhagsmunir landanna verið gerðir að skiptimynt á hinu pólitíska kauphallargólfi ESB-landa, sem öll eru því orðin reköld og tilvistarleg viðrini, en sem Bandaríki Norður-Ameríku hafa ábyrgst að verja. En þó líklega ekki mikið lengur, því ekki er hægt að verja lönd ESB gegn sjálfum sér
1. Stjórnmálamaður skipaður seðlabankastjóri evru
Þarna kom það loksins. Hrossakaupmenn Evrópusambandsins hafa gert fyrrverandi fjármálaráðherra Frakklands, Christine Lagarde, að næsta bankastjóra ECB-seðlabanka evru. Það styttist heldur betur í að hesturinn Gengiskan verði gerður að allsherjarráðgjafa Evrópusambandsins, sýnist mér. Það hlýtur bara að vera, vegna þess að Evrópusambandið sagði öllum frá 1993 til 2019 að ekkert slíkt gæti gerst í heilagri reglu ECB-munkaklausturs evru. Þetta væri "stofnun" sem hafin væri yfir allt slíkt. Hér á Íslandi báru menn meira að segja seðlabankastjóra þjóðar okkar út, en sem björguðu okkur þó frá miklu og mestu, með skírskotun til ECB-reglunnar í Evruhrópinu. Jóhanna og Steingrímur veifuðu þá heilögu flaggi á 2000 km löngu kústskafti frá Brussel með heilagri gulrót á endanum, en sem hér með reynist bara vera gömul sneið af hringormalagaðri Brusselgúrku
Og ekki nóg með það þá var Christine Lagarde dæmd í frönskum rétti fyrir vanrækslu í starfi fjármálaráðherra Frakklands árið 2008, en refsing var ekki útmæld (þið vitið náttúrlega hvers vegna). Hún brást sem fjármálaráðherra Nicolas Sarkozy, sagði rétturinn. Það er líka óskiljanlegt að Jóhanna ess og Steingrímur hungurjóðl skuli ekki hafa hlotið dóm og refsingu fyrir að brjóta Stjórnarskrá Íslands og nauðga Seðlabanka Íslands þegar það vanstillta pólitíska ofstækispar tróð norskum Stoltenbergara hér inn í Seðlabanka Íslands sem bankastjóra, þvert á lög landsins. Af hverju eru þau ekki í fangelsi núna. Má ég brjóta lögin svona?
Ef að Lagarde tekst ekki að sprengja evrusvæðið endanlega í loft upp, þá er enginn skortur á ráspútín-hæfileikaríku fólki innan furðuheima Evrópusambandsins. En nóg er samt að minnast bara aðfarar Lagarde að Grikklandi og öðrum evruríkum á barmi þjóðargjaldþrots, en sem hún neitaði þeim um af tillitssemi við gúrkuveldið í Brussel
2. Vextir tveggja seðlabanka
a) Bandaríkin (Nýi heimurinn): 2,5 prósent innlánsvextir fyrir fjármálastofnanir (e. federal funds rate). Síðasta ákvörðun tekin 19. júní 2019. Ástand: eðlilegt
b) Evrusvæðið (Gamli heimurinn, aðallinn og Deutsche Bank, sem er ári eldri en Þýskaland, og hyggst segja upp 20 þúsund manns á næstu 12 mánuðum): -0,4 prósent skattur tekinn af innistæðum fjármálastofnana (e. deposit facility). Síðasta ákvörðun tekin á 36 tommu snjóþrúgum úti á næfurþunnu peningagólfi evrusvæðis, þann 6. júní 2019. Dósinni sparkað áfram niður götuna til að minnsta kosti á síðari hluta næsta árs, því að lítið sem ekkert gengur með að koma hvorki peningapólitískum markmiðum, efnahagsmálum né peningamálum myntsvæðisins í lífvænlegt horf. Ástand: mjög óeðlilegt, en þó í samræmi við hinn pólitíska Frankenstein peningamála sem evran er. Hún hefur ekkert með efnahagsmál að gera, því evran er 100 prósent pólitísk mynt
Valdarán segja þýskir
Ágætt er að enda þennan pistil dagsins með krækju á leiðara Wall Street Journal í dag: A Politician for the European Central Bank ($) - og svo á því að þýskir telja að valdarán Frakklands innan ESB hafi ráðið för við skipan í toppembætti sambandsins að þessu sinni - og að þýskar valdastéttir, fjölmiðlar, sossar og græningjar froðufella vegna skipan Ursulu von der Leyen (varnarmálaráðherra úr flokki CDU og stórríkissinna) í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB, og hóta að koma í veg fyrir hana. Það væri þó of mikið af gúrkusneiðum á lesendur lagt að fjalla um það í einum og sama pistlinum, um gúrkuveldi ESB. Meira um það síðar þegar að spægipylsan hefur verið sneidd á hlaðborð leynifélags ESB, sem hvorki fundargerðir né upptökur ná til
Fyrri færsla
Angela Merkel laug. Það var ekki hitinn
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:21 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 7
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 101
- Frá upphafi: 1387445
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 69
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Lee Iacocca fyrrum forstjóri Chrysler, sem hann snéri við frá næstum alkuli með heimsfrægu "turnaround", og faðir Ford Mustang og svo Minivan hjá Chrysler fyrir stórar fjölskyldur (bannaðar með gluggum í Bíla-Sovéti-Danmörku), lést í dag 94 ára að aldri. Votta ég honum mikla virðingu mína. Ég klæddist oft skyrtum í ljósum bláum lit en með hvítum kraga, því hann gerði þær frægar. Hann var íkon sem fá líka átti. Öflugur maður sem eftirsjá er að.
Takk Iacocca!
Gunnar Rögnvaldsson, 3.7.2019 kl. 15:01
Þá er það stóra spurningin Gunnar:
Af hverju var þessi sama Christine Lagarde gerð að æðsta yfirmanni Alþjóða Gjaldeyris Stofnunarinnar?
Og nú að bankastjóra Evrópska seðlabankans?
Hver eru tengslin milli þessara stofnana, eru þau miklu samtvinnaðri en margir gera sér í raun grein fyrir?
Hver er svo æðsti yfirmaður seðlabanka seðlabankanna, BIS, í Sviss?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.7.2019 kl. 15:24
Þakka þér Símon.
Hún Frakkinn var gerð yfirmaður þar vegna þess að Frakkinn Dominique Strauss-Kahn, sem var á undan henni, lenti í vörslu lögreglunnar í Nýju Jórvík fyrir nauðgunartilraunir.
Eins og nafni þinn Símon en Johnson hjá MIT og Peterson stofnunni, og sem var aðalhagfræðingur hjá AGS, benti á þegar hann kom og messaði hér ásamt Krugman í Kredithörpunni, þá er AGS, eins og flestir reyndar vita, fyrst og fremst hagsmunagæslulíkami fyrir ríki Evrópu og ávallt með evrópskan yfirmann. Að því leytinu er AGS í blómavasa aðstandenda ESB eins og svo greinilega kom fram þegar hann varð hluti af þríeykinu sem sá um kála Grikklandi et al, og braut þar með það siðferðislega fíkjublað sem átti að vera fremst í sögu sjóðsins, en sem er þar ekki.
BIS, Greiðslumiðlunarbankinn í Sviss, er undir stjórnarforsæti Jens bankastjóra þýska seðlabankans núna (Buba), en hefur áður haft stjórnarforseta frá Bandaríkjunum. Hann er allt annað apparat en AGS og annars eðlis.
Christine Lagarde er sett inn í ECB-sogrörsseðlabankann núna af því að hún er Frakki og út af engu öðru. Allar útkomur í ESB, hvort sem það er úr áföllum eða inn í stöður, eru háðar þjóðerni. Ef þú ert af röngu þjóðerni þá þarft þú að borga fyrir áföll sem lönd með réttu nafni hafa þrýst þér í. Og ef þú ert frá réttu landi þá færðu stöðuna sem lönd með rangt nafn fá ekki.
Engar stöður fóru núna til landa Austur-Evrópu né Norður-Evrópu, heldur fóru þær allar til hins gamla kjarna ESB í Vestur-Evrópu og allir sem voru skipaðir í þær eru harðlínu stórríkissinnar eða "federalistar".
Kveðja
Gunnar Rögnvaldsson, 3.7.2019 kl. 16:06
Takk fyrir gott svar Gunnar.
Helferðarstjórnin leitaði til AGS á sama tíma og hún sótti um að Ísland gengi í ESB.
Annan þeirra flokka sem mynduðu Helferðarstjórnina, Vg, leiddi Sjálfstæðisflokkur Junior Bjarna og Engeyinga, til valda á nýjan leik. Ljóst að það slitnar ekki slefan á milli Kolefnis- og Kola Kötu og Juniorsins í kapphlaupinu að troða landi og þjóð í kolabandalagið.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.7.2019 kl. 19:11
Það er tími til kominn að sjálfstæðismenn yfirgefi forystuna og allan þingflokkinn. Kjósi þessa ESB sinna alls ekki. Það ætti að kenna þeim þá lexíu að enginn sjálfstæðismaður kýs lygara sem vanvirða ályktunanir Landsfundar hins almenna sjálfstæðismanns.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.7.2019 kl. 22:31
Þakka Símon.
Engin hætta á að ég og mínir kjósi slefflokkinn eins og hann er slefandi ofan í orkupakka Evrópusambandsins núna, né nokkru sinni sem ESB-slefandi þannig í framtíðinni.
Það er skondið þetta með nafnið á ECB-seðlabankalingnum eins og þú skrifar það með stórum staf: "Evrópski seðlabankinn" => því sumir segja að Ísland sé í Evrópu (sem það er ekki því við erum á okkar eigin meginlandssökkli), en þá væri okkar eigin seðlabanki sjálfkrafa evrópski seðlabankinn líka og allir aðrir seðlabankar landa Evrópu líka. Okkar Seðlabanki mun auðvitað lifa ECB-seðlabankalinginn af því hann er Seðlabanki Íslands.
Evrópa er ekki land og verður það aldrei. Hún er einungis nafnið á landmassa næstminnstu heimsálfu jarðar með 52 löndum í, ef mig minnir rétt.
Sú minnsta, Ástralía, er hins vegar eitt land og seðlabanki hennar getur því heitið Ástralski seðlabankinn (Reserve Bank of Australia).
Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2019 kl. 05:28
Rétt Gunnar, Evrópa er bara smá tota úr Asíu.
Ég er alfarið á þeirri skoðun að við eigum að hafa okkar mestu samskipti við Bretlandseyjar og Norður Ameríku. Þar er okkar staða og með okkar eigin Seðlabanka.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.7.2019 kl. 11:44
Amen!
Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2019 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.