Miðvikudagur, 12. september 2018
Byltingarráð Sjálfstæðisflokksins stofnað
Ísland að komast í fremstu röð pólitískra bjána heims
Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins kom saman á mánudag og kynnti fyrir þjóðinni Alþjóðabyltingu-II (umhverfisisma)
Það hafðist með því að forysta Sjálfstæðisflokksins setti flokkinn aftur fyrir sig, eins og síðast þegar forystan hélt að hún væri þjóðin Jóhanna og Steingrímur. Öll þau mál sem flokkurinn var stofnaður um, hefur þurft að troða í stíflaða forystuna með teskeið fyrir smábörn. Að meðtaka einföld sannindi á hverju einasta mikilvæga sviði, tók minnst átta ár
"Þú skilur þetta ekki Halldór verkfræðingur" sagði ég við þrautreyndan Sjálfstæðismann er hann reyndi að brydda upp á röksemdafærslu í sambandið við þátttöku Sjálfstæðisflokksins í Alþjóðabyltingu-II. Og ég hélt áfram:
- "Þetta snýst ekki um Ísland, þjóðina, skynsemi, rök, efnahag né vísindi. Þetta er ný alþjóðabylting, sagði ég við hann. Sjálfstæðisflokkurinn gengur frá og með nú fyrir Alþjóðabyltingu umhverfisisma. Þú hefur verið hreinsaður út. Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins, xDkomintern, var í ríkissjónvarpinu í gær. Þú sást það. Þetta er ekki plat. Byltíngin er hafin. Hinum mannlegu aðstæðum á plánetunni verður bjargað úr klóm kapítalismans og aðalstöðvar Alþjóðabyltingar-II verða í París. Ísland verður fyrirmyndarland byltingarinnar. Bjarni ætlar að tryggja það. Ekkert mun fara úrskeiðis, því hann er með þetta í excel og glærum frá Vinstri grænum"
Síðasta byltingartilraunin, Alþjóðabyltingar-I, þá undir fána kommúnista, gekk fyrir því hugmyndafræðilega eldsneyti að mælingar og spádómar sérfræðinga (gáfumenna) kommúnista á aðstæðum mannkyns á plánetunni (e. the human condition) sýndu að aðeins alþjóðabylting gæti lagað og bjargað mannkyninu frá svo kallaðri tortímingu kapítalismans. Til að hún tækist varð hún að gerast á heimsvísu. Fyrirmyndarlandið, Sovétríkið, átti að vísa veg
Hin nýja alþjóðabylting umhverfisista, Alþjóðabylting-II, gengur út á nákvæmlega það sama. Að vísindalegir spádómar gáfumenna þeirra sjálfra á mannlegum aðstæðum á plánetunni (the human condition), sanni að aðeins ný (nú græn, en ekki rauð) bylting geti lagað og bjargað heiminum frá tortímingu kapítalismans. Lífsskilyrði alls mannkyns á plánetunni eru undir, eins og síðast. Hvorki meira né minna
Í báðum þessum byltingartilraunum er því trúað að þjóðfélög geti ekki innréttað sig sjálf, heldur verði sérstakir sérfræðingar og gáfumenni að innrétta þau á þann hátt að þau lúti fyrirfram ákveðnum niðurstöðum Reiknistofu alþjóðabyltinga. Svæsinn, stigmagnandi og lúmskur ÓTTI knýr úrverk Alþjóðabyltingar-II, og að því leytinu gengur hún betur ofan í þá sem vit eiga að hafa. Plánetan er að farast út lofttegund, er nýjasta niðurstaðan úr Reiknistofu alþjóðabyltinga. Það er að segja ekki plánetan sjálf, heldur aðstæður mannkyns á plánetunni, the human condition
Engir slíkir spádómar hafa nokkru sinni staðist. Mannkynið varð ekki hungurmorða 1975, ný ísöld kom ekki 1980 og gatið í ózonlaginu var eðlilegt. Reyndar er það svo að landbúnaður hefur óendanlega getu til að fæða óendanlega margar manneskjur. Olían sem átti að vera búin 1980 á enn árhundurð eftir. Sama gildir um kol og sjaldgæfa málma. Japan var rétt í þessu að finna í sinni lögsögu slíka málma sem duga því þriðja stærsta og útflutningsháða hagkerfi heims í mörg hundruð ár. Á aðeins einu ári tókst að auka framleiðslu B-29 sprengjuflugvéla frá einni flugvél á viku upp í eina flugvél á klukkustund. Vesturlönd hafa alltaf vanmetið getu sína. Kommúnistar hafa hins vegar alltaf ofmetið sína getu, enda eru bestu lönd þeirra grafreitir
Plánetan er ekki að farast. Mannkynið er ekki að farast, heldur gæti svo verið að það sé Sjálfstæðisflokkurinn sem sé að farast - úr einmitt vinstrimennsku. Hún er sú mennska sem menn ættu að óttast, því hún hefur sannað sig sem verandi af hinu frekar vonda, en þó ekki af hinu alslæma alltaf. En útblástur hennar þarf að hefta áður en hundruð milljón manna farast úr henni á ný
Hættan á að það gerist er orðin töluverð. Sjálfstæðismenn verða að hafa í huga að heiðnikirkjuveldi háskóla okkar í dag, er miklu stærra en kirkjuveldi Kaþólsku kirkjunnar var á miðöldum. Miklu stærra og voldugra. Var plastpoki í íbúðinni? er farið að skipta bara fjandans miklu máli, jafnvel í höfði formanns Sjálfstæðisflokksins. Indoktrineríngin er orðin það mikil. Slíkt ætti ekki að geta gerst sé flokknum fylgt að málum
Ef menn vissu hvað kemur af hlutum og orku út úr einni tunnu af olíu, þá myndu þeir ekki tala svona um hana eins og of margir gera. Ekkert á sjálfri skrifstofu forsætisráðherra né á skurðstofum myndi virka án þess sem fæst úr olíu. Ekkert!
Út með þessi hindurvitni og út með andaglas umhverfisismans. Enginn í dag stefnir að því að tortíma lífsskilyrðum mannkyns á plánetunni, nema sjálf útópísk stefna harðlínu-umhverfisista, sem gera þjóðir að nytsömum bjánum
- Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum
Fyrri færsla
Sovéski Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýja 10-ára áætlun
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:18 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 441
- Frá upphafi: 1389084
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 246
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Já Gunnar, ég kil þetta ekki og það er greinilega búið að hreinsa mig út.Ég horfði á sjónvarpið í forundran og mér hefur ekki skánað eftir það.
Yfir kaldan eyðisand, einn.....
Halldór Jónsson, 12.9.2018 kl. 08:55
Þú þarft að sýna "samfélagslega ábyrgð" Halldór. Þá frelsast þú. Fáðu þér endilega aflátsbréf. Þau fást í Valhöll, fyrir ekki neitt. Og eru á grænum pappír gegnsósa í eitri á meðan skógarbændur sækja um að fá að fara í gjaldþrot.
Það er helvíti hart að þurfa að hlusta á svona þvaður um "samfélagslega ábyrgð" úr pennum Sjálfstæðismanna. Þetta er hreinn kratismi af verstu sænsku sort.
Skyldu hásetar vera búnir að setja upp Pin-up stúlkurnar sínar á ný í klefanum sínum um borð? Eða hangir þar enn "samfélagslegt ábyrgðarskírteini" úr nýjustu herferð þvæluríkisins.
Held bara að ég komi með þér yfir þann kalda sand. Ég er að kafna.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2018 kl. 11:00
Strákar mínir, hvað eruð þið að hanga aftaní Sjálfstæðisflokknum lengur. Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki lengur undir nafni, það er ekkert sjálfstæði eftir í þessum flokki frekar en alþýða í hinum fornu -flokki og -bandalagi.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur hægriflokkur, hann getur bara af sér krata og kommúnista.
Yfirgefið þennan flokk, eins og ég gerði, meðan þið hafið enn tök á því af sjálfsdáðum.
Tómas Ibsen Halldórsson, 12.9.2018 kl. 16:23
Þakka þér Tómas
Já. Þessi staða er ekki eftirsóknarverð. Þessu má Sjálfstæðisflokkurinn ekki lenda í:
Kommúnistaflokkur Íslands
1931, 1933, 1934, 1937 fjögur kjörtímabil púff
Sósíalistaflokkurinn - Sameiningarflokkur alþýðu
1942, 1942, 1946, 1949, 1953 púff
Samtök frjálslyndra og vinstri manna
1971, 1974 púff
Bandalag jafnaðarmanna
1983, 1987 púff
Samtök um kvennalista
1983, 1987, 1991, 1995 púff
Þjóðvaki, hreyfing fólksins (hvaða fólks?)
1995 púff
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
lögð að velli á kjörtímabilinu 1995 með "structural EU-reforms" (sovéskar ESB-umbætur) og tvær nýjar rettur úr sama pakkanum eru boðnar fram. VG er búið að fá sjö smóka úr sinni rettu og Samfylking það sama, en kafnaði næstum því 2016. Þoldi ekki tóbakið sitt
Borgarahreyfingin
2009 púff
Píratar
2013, 2016, 2017
þar er einn smókur eftir í stubbnum - reykskynjarinn kominn á fullt og fólk byrjað að skríða út um gluggana í sótsvartri vinstristækju
Björt framtíð
2013, 2019, 2017 - púff
Samfylking
Og við þetta bætist nær-dauði Samfylkingar 2016 og sem kjósendur eiga ekki marga smóka eftir í. Samfylkingin líklega fer í yfirfullan öskubakka vinstrisins. Þangað flögraði leðurblökukjóll Bjartrar framtíðar 2017 og dó.
xD
Ef forysta Sjálfstæðisflokksins tekur sig ekki á þá er ekki gott að segja hvað gerist. Óstaðfesta og dómgreindarleysi i grundvallarmálum, prinsippmálum og stórmálum er ekki góður kostur fyrir kjósendur Sjálfstæðisflokksins. Þeim hringlanda verður að ljúka. Kjósendur kyngja ekki getuleysi endalaust og fjárfestingum þeirra í flokknum lýkur. Fólk vill helst ekki fjárfesta í töpurum
Dæmi
Danski íhaldsflokkurinn tapaði öllum sínum grunngildum á gólfið: Guði, konungi og fósturjörð. Eftir óstjórn danskra krata, tók Danski íhaldsflokkurinn við stjórnartaumunum með 23,4 prósent fylgi árið 1984, en fór að dýrka kratisma, gleymdi gömlu gildunum, seldi landið til Brussel, laug að þjóðinni, rústaði hagkerfinu með fastgengi, gerði ESB að konungi og varð heiðinn. Hann fékk 3,4 prósent atkvæða í síðustu kosningum, 2015
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2018 kl. 17:08
Það er með ólíkindum að horfa uppá Sjálfstæðisflokkinn vera
orðin að eins hrúgaldi og hann er í dag.
Við sem töldum okkur vera Sjálfstæðismenn erum hugsi
yfir því hvernig tókst að rústa flokknum á svona skömmum tíma.
Trojuhestar og svikarar hafa nóð bólfestu í flokknum og
hægt og örugglega malað undan því sem hann átt að standa fyrir.
Formaðurinn, grenjaði sig inn á þing í beinni, og það vafnigalaust,
Þrátt fyrir hans iskalda mat á ICESAFE og þó svo hann væri
ICEHOT 1 á dónalegum stefnumóta síðum.
Segir allt sem segja þarf um þann formann.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn á sér einhverjar viðreisnar von,
þá þarf að losna við alla hans forystu og það strax.
Viðreisnar von er ekki fólgin í Viðreisn.
Sá flokkur er byrjunin á enda Sjálfstæðisflokksins.
Það sjá allir sem vilja sjá.
Sigurður Kristján Hjaltested, 12.9.2018 kl. 21:26
Þið eruð herskár í meira lagi í síðustu pistlum. "Meðalgönguskeið" flokka ekki langt. Breyta sífellt um nöfn og málefni. Er það ekki gangur mála.
Tók eftir því á Mbl.is í kvöld að nú á að breyta gangi mála í Seðlabanka. Skipta um menn og málefni. Forsætisráðherrann kom vel fyrir sem ábyrgur stjórnmálamaður. Þar til hún kom að umhverfismálum. Þar á sýndarmennskan að ríkja og milljarða fjárveitingar. Vekja skal athygli á þeim erlendis, eins og jafnréttismálum. Sama og hjá íþróttamönnum. "Gaman að vera með þeim stóru. Okkar mönnum í útlandinu."
Það er eins og vegamálaráðherrann hafi týnst í hæggengri umferðinni. Enn einn vegamálaráðherrann gleymdur og grafinn? Bara viðhald og skilti. Stefna flokksins þar er óviðunandi í 6 ár. Ágætt að greiða niður skuldir en ekki á kostnað endurbóta í vegamálum. Arðbærustu framkvæmdir eru að tvöfalda Reykjanesbraut og greiða úr umferðatöfum, fækka slysum. Ekki að taka upp hægagang vinstri manna og sérstöðu.
Þá verður spennandi að sjá hvað Lilja Alfreðsdóttir stendur fyrir utan loforða. Framsóknarflokkurinn hundrað ára og enn með misskiptingu atkvæða.
Sigurður Antonsson, 12.9.2018 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.