Leita í fréttum mbl.is

Nixon að hluta til bakkað út úr Kína [u]

[u] Ég uppfærði þessa bloggfærslu með smá bakgrunns-upplýsingum um þetta mál í athugasemd við færsluna. Þetta mál verðskuldar verulega athygli -

Donald J. Trump hefur hringt úr síma í forseta Taívan og þar með komið kommúnista-Kína fyrir á verri stað á vegasaltinu sem Nixon bjó til með því að lofa að viðurkenna kommúnista-Kína sem eitt Kína en ekki sem hluta af Lýðveldinu-Kína á Taívan (áður Formósa), þegar hann opnaði fyrir glufu á dyrum kommúnista-Kína til umheimsins 1972

Þeir hámenntuðu vesalingar og blákafnandi álitsgjafar sem engar kosningar nokkru sinni geta unnið, láta því nú eins og að Donald J. Trump sé trompaður bjáni og viti ekki hvað hann er að gera. Sama og þeir gerðu allan liðlangan tímann við Reagan og Bush yngri. Sögðu að þetta væru allt bjánar og heimskingjar. Reyndust hinir hámenntuðu og álitsgjafar hins vegar sjálfir vera það sem þeir sögðu aðra vera

Kínverjar veittu Bandaríkjunum á sínum tíma leyfi til að reka hlerunarstöðvar sem hlustuðu inn í Sovét uppi við landamæri Kína og Síberíu skömmu eftir landamæraátök Kína og Sovétríkjanna, gegn því að Bandaríkin viðurkenndu kommúnista-Kína sem hið eina raunverulega Kína. Bandaríkin lokuðu góðfúslega sendiráði sínu á Taívan, skiptu um skilti á því og létu það í staðinn heita Bandaríska stofnunin. Taívan hélt eftir sem áður áfram að vera dyggur bandamaður Bandaríkjanna í Asíu. En þar eiga Bandaríkin marga öfluga og þakkláta bandamenn

Ástæðan fyrir heimsókn Nixons til Kína var sú að Víetnamstríðið gekk illa og batt bandaríska herinn og getu hans um of niður þar, á meðan Sovétríkin þjörmuðu að Evrópu og stilltu þar upp stóru spurningarmerki við getu bandaríska hersins til að verja hið evrópska meginland taparanna, samhliða skemmdarverkum kommúnistanna Willy Brandts og Helmut Schmidt sem grófu með Ostpolitik af fullum ásteningi undan styrk bandarískrar utanríkisstefnu gagnvart Sovétríkjunum á meginlandi Evrópu. Ef þeir hefðu ráðið næðu Sovétríkin líklega alla leið til Atlantshafs, enn þann dag í dag

Donald Trump barðist með kjafti og klóm til sigurs í forsetakosningunum í Bandaríkjunum og í þeirri baráttu sagðist hann ætla að setja Kína undir pressu í þeim tilgangi að endurskilgreina samband ríkjanna undir nýjum skilmálum. Samband ríkjanna hefur nefnilega kallað fram félagslega krísu meðal stórs hluta bandarísks almennings og víðar í hinum vestræna heimi

Þetta símtal til forseta "kínverska lýðveldisins" á Taívan er því góð byrjun hjá Trump. Hann hefur sett Peking úr jafnvægi og það mun ekki kosta hann neitt, því Kína getur ekkert og kann ekkert miðað við Bandaríkin. Kína getur alls ekki án velvild og efnahags Bandaríkjanna verið. Gott hjá þér Donald Trump! Meira af þessu - twist the spikes!

Fyrri færsla

Ítalski forsætisráðherrann segir af sér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Fyrir þá sem vita þetta ekki, þá stendur kínverska lýðveldisstjórnin í Taipei á Taívan fyrir síðustu leifunum af ríkisstjórn og herafla Kína sem kommúnistar hófu borgarastyrjöld gegn eftir kosningarnar 1948.

Kínverska lýðveldisstjórnin hörfaði svo undan byltingaröflum kommúnismans til Taívan og þar situr hún og segist enn vera hið "raunverulega" Kína. Það var þangað sem Donald Trump hringdi til að tala við kínverska forsetann Tsai Ing-wen og myndir af henni talandi í símann við Donald J. Trump hafa nú birst um alla heim.

Bandaríkin sögu já við bón kínverska kommúnista-flokksins um að viðurkenna aðeins eitt Kína. En Kissinger sá vel fyrir því að ekki er enn vitað við hvort Kína Bandaríkin áttu. Hið "löglega" Kína á Taívan, eða hið umbylta Kína kommúnista á meginlandinu.

Ronald Reagan gagnrýndi ákvörðunina um bara eitt stjórnmálasamband og hugðist endurskoða ákvörðunina þegar í forsetaembættið hann væri kominn. En það gerðist ekki og sagt er að kínverskir byltingar kommúnistar hafi haft rökhyggju-aðgang heilabúi hins pena Bush eldri, sem var varaforseti Reagans og hann á að hafa talað forsetann til. Það er sagt, en ekki vitað.

En Trump veit vel að hann getur gert djarfa hluti af því að allir halda að hann sé svo heimskur, sem hann er náttúrlega ekki, því fer fjarri (svipað og að bara Nixon gat opnað Kína af því að allir vissu að hann var landsins þekktasti kommúnistafjandmaður og engum datt því í hug að bendla hann við þann isma. Hann gat það, en aðrir ekki).

Trump getur skrúfað Taívan-trompið þannig saman að Peking svitni hressilega. Bent þeim á svívirðilega gengisfölsun og hótað að nota Taívan sem fastneglt flugmóðurskip til að loka kommúnistana inni og af frá Suður-Kínahafi, þar sem þeir eru að klikkast með sanddælur og annað síbilandi kínverskt glingur, og kynt undir þeim þar, til þess að fá þá til dæmis til að hætta að styðja óbeint til kommúnista ófreskjurnar í Norður-Kóreu, sem eru að tryllast með kjarnorkuvopn í skotstellingum gegn hverslags frelsi manna. Áfram Trump. Enginn annar mun þora þessu nema þú!

Gunnar Rögnvaldsson, 7.12.2016 kl. 02:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband