Leita í fréttum mbl.is

Vangaveltur um herstjórn í Grikklandi

Samkvæmt upplýsingum úr pappírssafni varnarmálaráðherra Grikklands, Panos Beglitis, hefur fjórum af æðstu yfirhershöfðingjum í gríska hernum verið skipt út með nýjum mönnum. Þetta segir franska blaðið Le Figaro. Blaðið hefur eftir sérfræðingum að þetta gerist oft þegar ríkisstjórnir óttist að þær séu í yfirvofandi fallhættu og séu því í hraði að reyna að setja síðasta fingrafar sitt á herinn áður en þær missa völdin. Tímasetningin og atburðarásin sé hins vegar þannig að meira hafi þó í raun legið hér undir steinum. Á Le Monde bloggi sínu segir Georges Ugeux að gríska ríkisstjórnin hafi hér í raun verið að reyna að koma í veg fyrir valdatöku hersins, en tekur þó fram að þetta séu einungis hans eigin vangaveltur.
 
Sjá einnig bloggfærslu Einars Björns Bjarnasonar um sama efni.
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gæti verið að það sé verið að koma inn EU sinnuðum herstjórum. ?

Valdimar Samúelsson, 2.11.2011 kl. 10:31

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ætli þetta eigi eitthvað skilt með að allar tilraunir til að sameina Evrópu í eitt ríki hafi endað í stríðum, þveröfugt við það sem hugsjónamenn ESB vilja selja fólki.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2011 kl. 10:35

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta eru allt herskáar þjóðir og meir að segja Danir en byrja ekki stríð vegna bankanna í öllu falli.

Valdimar Samúelsson, 2.11.2011 kl. 10:51

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Einhverjar fréttir af því hvernig SocGen í frans og UniCredit á Ítalíu eru að plumma sig? Afleiðubransinn bara í gúddí eða?

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2011 kl. 14:46

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Soc Gén bankinn í Frakklandi, Jón Steinar, féll í gær um 16 prósent. Þetta er mesta fall á einum degi síðan bankinn var skráður á markað árið 1987. Í dag er smá plús (2-3 pct), kannski bara "a dead cat bounce" eða þá smá side-ways léttir. Er fallinn um 50-65% á einu ári.

Sömu sögu var að segja um BNP Paribas í gær, mesta fall síðan bankinn var skárður 1993. Í dag er bankinn í 6,61 í plús. Er fallinn um 40-56 % á einu ári. 

UniCredit Ítalía er í plús 8-9 % í dag. Fallið síðustu 52 vikur er 50-70 prósent, eftir því hvaða hrundag maður mælir herlegheitin. 

Gærdagurinn var versti dagur bankageirans í evrulöndum síðan myntin var búin til.

Sömu sögu var að segja um myntina sjálfa. Mesta eins dags fall evru síðan henni var rúllað í umferð.

Og svo eru það vaxtakjörin sem standa ríkissjóð míster Sivlio til boða; um 6,2 prósent fyrir lán til 10 ára, sem þýðir siglingu í ríkisgjaldþrot fyrir hraðbyr ef mörg eldri lán þurfa að endurnýjast á þeim kjörum og ný að takast á loft; snjóboltaáhrif á massa skuldanna virkar hratt.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.11.2011 kl. 15:58

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er sannarlega svart. Ég vona bara að svörtustu spár rætist ekki og að Berassi og co fari að viðurkenna að Evran var mistök. Annars munu svörtustu spár rætast og þá verður allsherjarhrun. 

 Það er ótrúlegt að handfylli embættismanna, sem geta ekki leyft sér að hafa rangt fyrir sér né viðurkenna mistök, skuli halda hálfum heiminum í heljargreipum.

Er þetta spilað eftir handriti? Er viljinn sá að leggja allt í rúst til að draumur Glóbalistanna um hnattrænt hagkerfi verði að veruleika.

Ég hélt að það væru samsærisórar, en er farinn að trúa því að eitthvað sé til í því dæmi.

Hugsaðu þér heiminn sem eitt allsherjar sovét.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2011 kl. 17:45

7 identicon

Hlutabréfamarkaðir og evra voru að hækka.

Var valdarán í Grikklandi?  Réðist ESB loks í landið til að frelsa það? 

Fritz von Koppenstein (IP-tala skráð) 2.11.2011 kl. 17:54

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fritz: Hækkunin er brotabrot af fallinu. Já ESB réðist inn í landið. Nú er búið að skipa þeim að umorða spurninguna um hvort það eigi að þiggja þessa "aðstoð" í það hvort þeir vilji vera í sambandinu.

Hókus Pókus. Allt í einu varð lýðræðisúrræðið að hótun.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2011 kl. 20:16

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mér sýnist hjá CIA að mjög gott innstreymi sé úr varsjóðum þjóðverja  í handa lögsögu þeirra. EU heildar þrautasjóður er Not available. 50% eign Þjóðverja og Frakka er EU fjárfestingar bankinn í Lúxenbourg. S-EU var 80% hreysi frá dögum Rómverja. Potential:  aldrei til komast í tölu meirháttar ríkja. Þjóðverjar og Frakkar tapa engu að losa sig við þetta, þessi ríki eru gífurlegt framtíðar eignhaldar utan sinna landmæra.

Júlíus Björnsson, 2.11.2011 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband