Föstudagur, 15. júlí 2011
Norræn ESB velferð: Þrjú hundruð þúsund Danir í lausu lofti ef illa fer
Mynd, AE; Samanburður á atvinnuleysishlutfalli vinnumarkaðsrannsókna og hins vegar einungis hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir og eiga rétt á bótum. "AKU ledihged" eru samhæfðar tölur á borð við vinnumarkaðsrannsóknir Hagstofu Íslands. Atvinnuleysi í Danmörku hefur aðeins farið niður fyrir 5-6 prósent í samtals 5-6 ár á síðustu 32 árum. Hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir og eiga ekki rétt á bótum eykst og eykst; sjá rauðu súlurnar. Eins og er er atvinnuleysishlutfall í Danmörku það sama og á Íslandi, en hefur verið mun verra í Danmörku miðað við Ísland um næstum aldur og ævi. Við erum að glíma við afleiðingar bankahrunsins. Samt er eins og við séum þegar komin inn í ESB. Ástandið í atvinnumálum á Íslandi er þannig.
Um 300 þúsund vinnandi Danir hver sjötti vinnandi maður hafa enga afkomu, skyldu þeir missa vinnuna. Þeir geta hvorki fengið atvinnuleysisbætur né aðstoð hjá félagsmálastofnun. Með öðrum öðrum; þeir hafa ekkert öryggisnet.
Til að fá atvinnuleysisbætur þurfa Danir og allir þeir sem eru á dönskum vinnumarkaði að hafa keypt sérstaklega atvinnuleysistrygginu sem þeir greiða fyrir af launum sínum, sem þýðir að menn þurfa að hafa haft fulla atvinnu í um það bil eitt ár og greitt skatta.
Hver syvende dansker i arbejde står uden indtægt, hvis de skulle blive fyret. Det skriver avisen.dk med henvisning til nye tal fra Arbejderbevægelsens Erhvervsråd, som viser, at 300.000 danskere hverken er berettiget til dagpenge eller kontanthjælp, hvis de skulle miste deres arbejde
Þeir sem eru á lágum launum freistast oft til að láta hjá líða að kaupa sér þessa trygginu sem kostar 10 til 20 þúsund íslenskar krónur á mánuði. Það sama gildir um launþega á háum launum, en oftast er um ungt fólk að ræða því það fær alltaf lægstu launin í ESB, því atvinna hefur verið af svo skornum skammti þar öll hin síðustu 30 ár.
Þá skyldi maður ætla að þessir 300.000 Danir gætu leitað til félagsmálastofnunar. Nei það geta þeir ekki, því ef þeir eru stóreignafólk sem á meira en 200 þúsund íslenskar krónur í bankanum, þá fá þeir ekki félagsmálaaðstoð nema að eyða þessu stórfé fyrst. Og ef maki þeirra er með góð laun þá fá þeir heldur ekki neitt frá féló. Félagsmálahjálpin er tekjutengd heimilistekjum.
Hið svo kallaða norræna velferðarsamfélag sem forsætisráðherra vor talar svo oft um, andaðist árið 1985 þegar Danmörk var að komast í þrot vegna einmitt þessa kerfis. Þegar Jóhanna missir vinnuna þá getur hún ekki farið á bæinn í Danmörku. Fyrst þyrfti hún að hafa búið þar í 5 ár og greitt skatta, því hún er útlendingur, og það þýðir ekkert að veifa þar skjaldarmerki Íslands né annarra Norður- eða ESB landa framan í neinn. Hún fengi í hæsta lagi aðstoð við að kaupa flugmiða til síns ömurlega heima á ný, sem hún m.a. stóð sjálf fyrir að búa til. Og nú er Danmörk verulega illa stödd á ný; vegna einmitt aðildar landsins að ESB. En áfram heldur Jóhanna að lesa í gömlum bæklingum. Um draumalandið.
Historisk langsomt opsving i dansk økonomi. Frem mod 2013 kan vi kun se frem til moderate vækstrater, som på ingen måde kan skabe jobfest i Danmark. Imens risikerer arbejdsløsheden at bide sig fast på et for højt niveau til stor skade for væksten, velstanden og de offentlige finanser
Svo er það - í íslenskri umræðu - hinn margumtalaði svo kallaði námsstrykur til danskra námsmanna. Af honum borga flestir Danir skatt, því enginn námsmaður getur lifað af þessum styrk, hvorki fyrir né eftir skatt. Hann bætist við þínar heildartekjur sem námsmaður og þú greiðir auðvitað tekjuskatt af þessu öllu saman. Og ef þú ert heimabúandi hjá foreldrum þá lækkar þessi skattskyldi "styrkur" líka og sem pabbi og mamma eru fyrir löngu búin að greiða til ríkisins í gegnum skatta sína, sem í heild eru þeir hæstu í heiminum.
Svo er það hið fræga regluverk og svo kölluð stjórnsýsla
Þú stofnar eftir námið fyrirtæki sem selur báta. En eitthvað fer úrskeiðis í tölvukerfi yfirvalda og skattayfirvöld gera þér allt í einu skylt að greiða 11,4 miljónir DKK í VASK. Þetta er mörgum sinnum hærra en þú átt í raun að borga. Þú kærir ákvörðunina og það lítur út fyrir að þú vinnir málið fyrir réttinum. En í millitíðinni hafa skattayfirvöld krafist að þú greiðir 4,9 milljónir DKK í tryggingu og þú átt þær ekki til og því fer fyrirtækið þitt í gjaldþrot á meðan þú vinnur málið í réttarsölum regluverksins. Þú vannst málið, áttir ekki að greiða nema brot af þessum 11,4 miljónum DKK, en þú átt því miður ekkert fyrirtæki lengur. Skattayfirvöldin tóku það og skiptu því á milli sín og annarra. Með öðrum orðum; það kostar skattayfirvöld ekkert hefja byssuna á loft, skjóta og eyðileggja einkafyrirtæki. Þau eru bara sett í þrot þó svo að þú á endanum hafir réttinn allann þín megin. Too bad, ups, sorry
Danske virksomheder risikerer at blive tvangslukket af skattemyndighederne, inden deres sager er afgjort. "Det er hårdt at sluge, at retstilstanden er sådan i Danmark"
Þetta var Danmörk. Hin danska stjórnsýsla og regluverk þar sem skattalöggjöfin er svo flókin að enginn einn maður getur náð að þekkja hana til hlítar. Úrslit dómsmála eru háð stund, stað, túlkun og veðri. Sífellt er verið að loka holum en við það opnast nýjar holur og himininn hrynur ofan á borgarana. Regluverkið er eins flókið, óskiljanlegt og marg-gagnvirkt eins og tölvuvíravirki voru á lampatímunum. Togað er spotta kerfisins til að loka glugga á neðri hæðinni en við það hringir bjalla vestur í bæ, hurð opnast norður í landi, um leið og skólpi er hellt yfir hálendið og ljósastaurar blikka í sex mánuði á Vestfjörðum. Þetta er einmitt kerfið sem ríkisstjórn Íslands er að keppast við að innleiða hér á landi um þessar mundir.
Auðtrúa Íslendingum er hér heima sagt að eitthvað sem kallað er stjórnsýsla og regluverk sé svo gott í Evrópusambandinu. Framan í þessa sakleysingja hér heima veifa háskólamenntaðir íslenskir sérfræðingar ESB-glansmyndabæklingum úr síðustu prentbunu frá prentstofnunum ESB. En eitt er prentað mál og annað er raunveruleikinn. Þeir hefðu alveg eins getað veifað bæklingum frá Intourist, sem var ferðaskrifstofa Sovétríkjanna. Brussel er ekki heiðarlegri en Moskva var. Alls ekki. Og í Brussel er keyrt eftir 10 ára áætlunum. Moskva lét sér þó nægja 5 ára áætlanir.
Hin danska stjórnsýsla og regluverk virkar illa og er hroðaleg viðureignar fyrir borgarana. Hið opinbera hefur byggt múr í kringum sig til að verja sig gegn borgunum sem hið opinbera mjólkar meira og meira út í gegnum lífið í hratt deyjandi skattagrunni. Óbeint og beint.
En hvernig heldur þú að þessi mál séu í Frakklandi? Þúsund sinnum verri en í Danmörku. Og hvernig halda menn að þessi mál séu á Ítalíu? Þúsund sinnum verri en í Frakklandi. Og hvernig halda menn að þessi mál séu í Austur-Evrópu? Eða í Eystrasaltslöndunum? Eða í Grikklandi, einhver? Kýpur, einhver?
Ferskar yfirskriftir ESB-dagsins; Giulio Tremonti compares Merkel to a first-class passenger on the Titanic; og nú er krafist sérstaklega hærri vaxta á lánum á millibankamarkaði til hinna kerfislega mikilvægu ítölsku banka; UniCredit og Intesa Sanpaolo
Wall-Street-þingmenn þjóðþinganna og Kremlarliðið í Brussel finnst alltaf að þeir þurfi að vera gera eitthvað. Búa til amstur (e. generate activity, attention). Skýrslur, rannsóknir. Bara eitthvað, til að koma sér nú á framfæri. Lögin og reglurnar sprautast út eins kúlur úr vélbyssum. Liðið þarf að koma sér á framfæri. Reisa sér minnisvarða, og allt á kostnað borgaranna. Svo þarf að semja við mafíur hins opinbera og einkageirans í Evrópusambandinu. Þetta krefst auðvitað mikillar vinnu og mannafla. Það sjá allir.
Ég þori að veðja hatt mínum að í Evrópu finnst varla betri og skilvirkari opinber stjórnsýsla og meira mjúkt og sveigjanlegt regluverk en hér á Íslandi. Allt er ekki betra hér, en lagsamlega flest. Þið eruð bara svo góðu vön, og svo lengi. Eða réttara sagt, þannig var það áður en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar tók til höndunum við að rífa niður Ísland.
Krækjur
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 07:28 | Facebook
Nýjustu færslur
- Mætti í vinnuna strax í gærkvöldi og hóf störf
- Ísland og Grænlandsmálið
- "Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 51
- Sl. sólarhring: 134
- Sl. viku: 270
- Frá upphafi: 1390900
Annað
- Innlit í dag: 37
- Innlit sl. viku: 163
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 35
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Já Gunnar: Það væri nú ekki ónýtt að komast inn í ESB Dýrðina!? En fyrst að lífeyrisþegar geta lifað af sínum bótum "að áliti Jóhönnu", þá hlítur hún nú að vera búinn að leggja fyrir mikil auðævi á sínum rosalaunum og þarf því engar bætur sjálf, og þá er allt í lag!!!
Eyjólfur G Svavarsson, 15.7.2011 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.