Leita í fréttum mbl.is

Kína kaupir inn í Evrópu

Ferðalag kínverska forsætisráðherrans til ESB landa hélt áfram í dag. Á morgun hittir hann sjálfa kínverja Evrópu, Þjóðverja, þar sem Angela Merkel mun taka á móti honum á dráttarvél. Hún hefur farið á námskeið.
 
Koma Asíuútgáfu kínverska kanslarans til Þýskalands er til vottunar um það að Asíukínverjar munu halda áfram innkaupum sínum á uppgjafarríkisskuldabréfum evrulanda í merkelskum barmi upplausnar í skiptum fyrir þögn kínverja Evrópusambandsins þegar að siðferði, frelsi og mannréttindamálum kemur. En til kínverja Evrópusambandsins í Brussel hafa öll ESB-ríkin afsalað sér næstum öllu fullveldi sínu í innflytjenda- flóttamanna og mannréttindamálum og alveg öllu fullveldi þeirra í utanríkismálum. Draumurinn um hold kæft, trit og retning á því sviði er þegar uppfylltur í öllu Evrópusambandinu. Friðartollabandalagi Weimardúllara.

Össur Skarphéðinssson
Íbúar í Evrópusambandinu óttast nú að þeir verði seldir til hæstbjóðenda og að restarnar af fullveldi ríkja þeirra fari sömu leið og vörurnar frá Þýskalandi fara. Þetta er sannarlega merkur dagur í sögu Íslands, að mati Össurar Skarphéðinssonar alþýðumanns og komma. En hann er um þessar mundir staddur í púðurdós frú Merkel. Þar er hann að skoða aðstæðurnar fyrir afhendingu fullveldis íslenska lýðveldisins yfir á lyklakippu stórhertogadæmis Evrópu, sem einnig hvílir í þessari sömu handtösku frú Merkel á dráttarvélinni.
  
 
Krækja. ABC OPINIÓN; El dictador solvente
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þögn kínverja, þegar mannréttindi eru annars vegar?

Heirðu kallin ... sko, Kínverjar koma hingað og hafa ekki einu sinni fyrir því að læra málið.  Þeir fara ekki eftir neinum landslögum, og það er enginn sem segir neitt við því.  Sænskt fyrirtæki myndi fá illa meðferð, ef þeir segðu upp fólki vegna þess að það varð veikt ... en ekki Kínverskt fyrirtæki.

Og hvað er að því, ég bara spyr? Þið eruð ónýtir ónytjungar, og landráðamenn ... það er engum manni söknuður af því, að ykkur verði fargað og Kínverjar komi inn í staðinn.  Öll önnur þjóðarbrot, eru skárri en þessi Evrópu skríll.  Ósamstæðir fautar, sem hafa undanfarinn 80 ár, skammast út í þjóðverja og legið með kananum eins og mellur.

Þetta er bara gott á ykkur ... þið uppskerið það sem þið sáðuð.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 09:08

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þeir sem lágu utan í Kananum sins og mellur, eru ennþá í mellustandi, að mínu mati. Nýr Risi EU kominn í staðinn.  Það er fara í geitarhús að leita sér ullar að ætla reyna lifa á stofnendum EU.  EU reiknar nákvæmar en USA allan viðskipthalla.

Júlíus Björnsson, 28.6.2011 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband