Sunnudagur, 26. september 2010
Hentistefna verðbólguhræddra Íslendinga
Íslendingum virðist, í orði, vera illa við verðbólgu. En samt ekki alla verðbólgu. Ein sérstök verðbólga virðist eiga meiri rétt á sér hjá mörgum á Íslandi en önnur. Það er húsnæðisverðbólgan. Flestir Íslendingar vilja að fasteignir þeirra hækki og hækki í verði, sérstaklega eftir að þeir hafa hafa keypt hana. En þeim er samt illa við að matvara og lífsnauðsynjar hækki í verði. Það er helst vegna þess að ekki er hægt að veðsetja ísskápinn og heldur ekki frystikistuna góðu.
Þegar fasteignir Íslendinga hækka í verði þá gerist eitt af tvennu. A) menn fyllast óánægju með háu fasteignagjöldin, eða, B) þeir fyllast ánægju og finnst þeir vera orðnir ríkari. Þegar það gerist fara þeir út að slá, ekki grasið, heldur slá lán út á eignamyndunina sem húsnæðisverðbólgan bjó til. Á þeirri stundu dettur þeim ekki í hug að lánaslátta ríkidæmisverðbólgu þeirra muni valda verðbólgu annars staðar í hagkerfinu. En það er einmitt þessi verðbólga sem er að valda mönnum höldnum stöðugleika-fetishisisma og evrópskum verðbólgunasisma nokkurs konar hjartaáfalli. Þessir sjá núna ESB sem bjargvætt.
Stöðugleika fetishistar Brussels og evrópskir verðbólgunasistar öldrunarhagkerfa ESB drífa sig því í gang með að koma verðbólgunni, sem átti ekki að geta átt sér stað undir galdramyntinni, fyrir kattarnef.
Tvennt er þá gert samkvæmt læknisráði Brussels: allir eiga að hætta einkaneyslu og lántökum og fara í það að borga niður gömlu lánin sín - þetta er a.m.k það sem menn halda að sé nú þegar í gangi í Evrópu og jafnvel víðar. En þetta eru hrapalleg misráð og rangar ályktanir, því það sem er að gerast núna og sem menn halda að sé ekki að gerast núna er þetta:
1) Ef allir fara í það að borga niður lánin sín á sama tíma þá falla verðin, líka húsnæðisverðin. En það gera lánin þeirra hins vegar ekki. Við þessa verðhjöðnun mun skuldahlutfall skuldara á móti eignum bara hækka. Ergo: skuldarar munu fyrir vikið skulda ennþá meira sem hlutfall af eignum sínum. Laun þeirra munu líka lækka og því mun greiðslubyrði þeirra hækka sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.
2) Þegar þetta ferli hófst þá sáu menn að skuldahlutfall í hagkerfinu byrjaði að smá lækka. En það gerðist einungis vegna þess að svo margir eru að fara á hausinn. Ekki vegna þess að þeir hafa verið að borga niður skuldir. Þeir verða bust í stað þess að borga niður skuldir. Þetta er það verst hugsanlega sem getur gerst í heiminum í dag. Þetta mun steinrota alla eftirspurn og koma af stað nýrri kollsteypu.
Hin óhagganlega staðreynd er sú að hvergi í heiminum varð til eins mikil og slæm fasteignaverðbólga og sú sem gerðist fyrir framan nefið á seðlabanka Evrópusambandsins á evrusvæðinu. Og þessi húsnæðisverðbólga á evrusvæðinu var að engu leyti mannfjöldaknúin (demography driven). Hún var eingöngu spákaupmennskuknúin. Massíf útpumpun lána með veði í fasteignum varð reyndar svo hrottaleg að efnahagur nokkurra landa evrusvæðis var sprengdur í tætlur í því ferli. Allt með hjálp seðlabanka Evrópusambandsins; í sjálfri galdramyntinni; í evrum.
Vegna alls þessa ættu menn í dag að vera dálítið þakklátir fyrir verðbólgu. Hún er merki þess að það er kannski ennþá smá lífsmark í íslenska hagkerfinu og sem er ekki Evrópusambandslegt elliheimili. Það eina sem Íslandi vantar núna er ný og betri ríkisstjórn og að innlimunarumsókn lýðveldis okkar inn í kolanámu Evrópusambandsins verði dregin til baka samstundis. Þessi umsókn er glæpur gegn lýðræði á Íslandi. Krugman; Default Is In Our Stars
Tengt efni:
Nokkrum dögum áður en allt myntbandalag Evrópusambandsins leitaði skjóls hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum: Nota þarf snjóþrúgur þegar gengið er á eggjaskurn myntbandalagsins
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:30 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 1387418
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 69
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Þér mun seint takast að koma fólki í skilning um að gengislánin sem það tók voru kurlið sem kynnti undir verðbólgunni.
Það er svo ósegjanlega erfitt að horfast í augu við eigin sök.
Ragnhildur Kolka, 26.9.2010 kl. 19:53
Sæll Gunnar, var að rekast á áhugaverða lýsingu frá því í Maí, á panic'inu við að bjarga evrunni, datt í hug að þú hefðir gaman af
http://online.wsj.com/article/SB10001424052748703904304575497871279626904.html?mod=googlenews_wsj
Anna Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 00:57
Það er hægt að pakka þessu þannig inn Ragnhildur að síðasti staður sem menn ættu að leita sér fjárhagslegrar ráðgjafar er í bankastofnunum. Þannig hafa hlutirnir alltaf verið og verða alltaf. En að taka lán í myntum sem maður fær ekki laun sín í er svo augljóslega hættulegt að það ætti víst ekki að þurfa að minnast á það. En sú múgsefjun sem helfarar-bankar Íslands ráku var glæpsamleg en hún virkaði, því miður.
Kærar þakkir Anna æskuvinkona mín. Þetta er svo sannarlega athyglisverð grein. Hér er hægt að bæta við slóð frá honum Guðmundi Ásgeirssyni: Leynilegur starfshópur um björgun Evrunnar
Gunnar Rögnvaldsson, 27.9.2010 kl. 12:46
Frábær grein... takk fyrir hana.... gott innlegg hjá Ragnhildi. Kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 27.9.2010 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.